Þjóðviljinn - 07.08.1964, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 07.08.1964, Qupperneq 3
Föstudagur 7. ágúst 1964 HÖÐVILIINN SlÐA 3 MIKILL VIÐBUNAÐUR HERAFLA BANDARÍKJANNA Á KYRRAHAFI WASHINGTON 6/8 — Allur herafli Bandaríkj- anna við Kyrrahaf hefur fengið fyrirmæli um að vera til taks ef nauðsyn krefur. Fjöldi banda- rískra herskipa í flotadeildum þeira á Kyrrahafi er nú á leiðinni til Vietnams. Sveitir herflugvéla hafa verið sendar til Suður-Vietnams og Thailands og búizt er við áframhaldandi liðsflutningum. Johnson forseti hefur farið fram á við Bandaríkja- þing að fá heimild til allra þeirra aðgerða sem hann kunni að telja nauðsynlegar. Tilkynnt var í aðalstöðvum bandaríska hersins í Japan að allar sveitir hans hefðu fengið fyrirmæli um að vera við öllu búnar til að „leysa af hendi þau verkefni sem þeim kynnu að vera falin“. Haft var eftir góðum heimild- um í Tokio að tvö flugvélaskip og um tuttugu beitiskip og tund- urspillar hefðu lagt úr höfn frá flotastöðinni í Yokosuku, skammt frá höfuðborginni. Japanska út- varpið sagði í gær að 23 af 26 bandarískum herskipum sem bækistöðvar hafa i Japan væru farin af stað þaðan. Bandarískur talsmaður í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, sagði að bandaríski herinn þar væri við öllu búinn. hvað sem fyrir kyrmi að koma. Bandaríska sendiráðið í Bang- kok, höfuðborg Thaiiands, sagði að ákveðið hefði verið að senda tvær sveitir herflugvéla þangað. Hér væri um varúðarráðstöfun að ræða og hefði hún verið á- kveðin í samráði við stjórn landsins. Bandarískar flugvélar sem réðust á þorp í Norður-Viet- nam á laugardaginn komu sum- ar frá Thailandi, aðrar frá Laos. öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag að veita John- som forseta fulla heimild til hverra þeirra aðgerða í Vietnam sem eru nauðsynlegar að hans áliti. Deildin samþykkti þetta einróma að undanteknum Wayne Morse, þingmanni Demókrata frá Oregon. Málið fer nú fyrir fulltrúadeildina og verður vænt- anlega afgreitt á morgun. Rusk utanríkisráðherra gerði utanríkismálanefnd öldungadeild- arinnar grein fyrir > ástandinu í dag og hélt því fram að árásir á bandarísk herskip á Tonkin- flóa væru liður í samfelldri á- ætíun kommúnista að leggja undir sig „hin ' frjálsu ríki“ í Suðaustur-Asíu. Þingið ætti að veita forsetanum heimild sem hann færi fram á til að sýna kommúnistum að Bandaríkja- þjóð væri einhuga um að verja Grant Sharp flotaforingi. yfir- maður herafla Bandarikjanna á Kyrrahafi. frelsi Suðaustur-Asíu. MeNam- ara landvamaráðherra og Wheel- er, formaður herforingjaráðsins, mættu á fundi nefndarinnar sem haldinn var fyrir luktum dyrum. Barry Goldwater, forsetaefni Repúblikana, lýsti í dag fullu samþykki sínu við aðgerðir Bandaríkjanna í Vietnam. Hann sagði blaðamönnum í Washing- ton að hann ætlaði sér ekki að nota ástandið í Vietnam sér til framdráttar í kosningabarátt- unni. Öll von úti um að bjargað verði fleirum úr nómunni Skattar CHAMPAGNOLE 6/8 — Borgar- stjórnin í franska námubænurn Champagnole, Pierre Socie, sagði x dag að nú mætti hcita úti öll von um að takast mætti að bjarga fleiri mönnum úr nám- únni. Níu mönnum sem lokuðust inni í námunni hefur verið bjargað eftir átta daga innilok- un og líður þeim öllum vel. Fimm eru enn í námunni en litl- Home vill fá Krústjoff heim LONDON 6/8 — Brezki utanrik- isráðherrann, Richard Butler, kom þegar hann var í Moskvu þeim skilaboðum frá Home for- sætisráðherra til Krústjoffs að hann væri ævinlega velkominn til London í opinbera heimsókn. ar sem engar vonir eru til þess að þeir séu lengur á lífi. Þó mun haldið áfram að reyna að bora göng niður í námuna þar sem talið er að þeir séu, Framhald af 12. síðu. gamla óréttlæti, sem stafar af skattsvikum, aukizt til muna“. — Og Hannes á horninu tekur svo djúpt í árinni að segja, að það séu „verndaðir glæpir“, ef þau augljósu og stórfelldu skatt- svik, sem lesa má út úr skatt- skránni, verða látin viðgangast. Þetta er lýsing eins aðalmál- gagns ríkisstjómarinnar á fram- kvæmd skattastefnu hennar. Þannig reynir Alþýðublaðið nú á allan hátt að vera „stikk- frí“ í skattpíningarleik íhaldsins. Það hamast gegn því sem það áður hampaði sem stórfelldum hagsbótum. Það ræðst gegn skattsvikurum af offorsi, þótt þingmenn Alþýðuflokksins hafi allir sem einn greitt atkvæði gegn tillögum um raunhæft eft- irlit með framtölum fyrirtækja og einstaklinga á síðasta þingi. Það er um að gera að spila nógu djarft til þess að reyna að slá ryki í augu almennings. Eiturhernaður f/ugvéla frá Saigon í Kambodja NEW YORK 6/8 — Stjórn Kambodja hefur sakað stjórnina í Saigon fyrir að hafa látið flugvélar sínar dreifa eitri yfir héruð í Kambodja við landamæri Suður-Vietnams með þeim afleiðingum að 76 menn hafa beðið bana. Stjóm Suður-Vietnams hefur í orðsendingu til formanns öryggisráðsins, Norðmannsins Siverts Nielsen, viðurkennt að hún stundi eiturhemað, en heldur þvi fram að mönnum verði ekki meint af eitrinu sem sé einungis ætlað að eyða gróðri. Skoðun frönsku stjórnarinnar: Atburðimir í Vietnam sanna að samningslausn er eina leiðin Ferðir ú 4rt daga IU fresti ^PARÍS 6/8 — Hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna gegn Norður-yietnam eru staðfesting á þeirri skoðun frönsku stjórnarinnar að vandamál Indókína verði aðeins leyst með samningum, og það er þess vegna sem Frakkar hafa stutt þá tillögu sovézka fulltrúans í Öryggisráðinu að stjóm Norð- ur-Vietnam verði boðið að senda fulltrúa á fund ráðsins til að gera grein fyrir sjónarmiðum hennar. FRÁ ROTTERDAM Tungufoss 11.8. 1964 Dettifoss 21.8. 1964 Tungufoss 1.9. 1964 Brúarfoss 11.9 1964 [Tungufoss 22.9 1964 Goðafoss FRÁ HAMBORG Goðafoss 15.8. 1964 Dettifoss 26.8. 1964 Goðafoss 5.9. Brúarfoss 16.9. 1964 1964 26.9. 1964 H.F. EIMSKIPAFÉLAG ISLANDS , Sími21460 (15 línur) Þetta var í dag haft eftir frönskum embættismönnum. Þeir sögðu að enda þótt franska stjórnin lýsti sig ekki beinlínis andvíga framferði Bandaríkj- anna í Vietnam þá telji hún að atburðirnir þar syni glögglega hve mikil hætta er á að ástand- ið þar hríðversni, ef ekki verð- ur reynt að vinda bráðan bug að því að finna pólitíska lausn á vandamálunum með samninga- viðræðum. Sök Bandaríkjanna Fréttaritari Reuters í París segir að það sé á allra vitorði að de Gaulle skelli ekki skuld- inni á stjórnir Kína eða Norð- ur-Vietnams fyrir að ekki hefur verið staðið við Genfarsáttmál- ann sem gerður var um Indó- kína fyrir tíu árum og gerði rá'ð fyrir því að Norður- og Suður- Vietnam yrðu sameinuð í eitt ríki. Sá sáttmáli var runnin undan rifjum Mendes-France, þáver- andi forsætieráðherra Frakk- lands, en de Gaulle er sagður álíta að Bandarikjamenn hafi vísvitandi komið í veg fyrir að sáttmálinn var haldinn. Haft er eftir embættismönnum de Gaulle að hann vilji að áætlun Mendes- France um sameiningu vi- etnömsku landshlutanna sé tek- in upp að nýju. Það er að vísu viðurkennt í París að það geti reynzt erfitt eftir tíu ára erjur að sameina Norður- og Suður-Vietnam. Engu að síður vilji de Gáulle fyrir hvem mun þrautreySna allar diplómatískar samningaleiðir til að finna lausn sem allir geti unað við og vill hann því að sem allra fyrst verði kvödd saman alþjóðaráðstefna til að semja frið í Indókína öllu. Frumskilyrði fyrir því að hægt sé að gera sér nokkrar vonir um samningslausn er að Johnson forseti færi ekki út stríðið í Suður-Vietnam og að ekki sé aftur ráðizt á Bandaríkjamenn. Uppreisnarmenn í Kongó ráða nú um sjötta hluta landsins LITFILMUR é-'ví Sfmi 2-03-13 Bankastræti 4. K0DACHR0ME II 15 DIN KODACHROME X 19 DIN EKTACHROME 16 D!N LEOPOLDVILLE 6/8 — Það er viðurkennt í Leopoldville, höfuðborg Kongó, að sveitir uppreisnarmanna hafi nú á valdi sínu um sjötta hluta landsins og svo virðist sem þeim gangi betur í viðureignum við hermenn stjóma- rinnar. Enn mun vera barizt um flug- völlinn við Stanleyville höfuð- borg Austurfylkisins, sem upp- reisnarmenn virðcst annars hafa að mestu leyti á valdi sínu. Einn helzti foringi uppreisnar- manna, Gaston Soumaliot. á- varpaði landa sína í dag um út- varpsctöðina í Stanleyville. Hann kvaðí.t vera arftaki Patrice Lú- múmba, sá ira-'b'r sem Lú- múmba hefði sagt að myndi risa upp að sér látnum og leysa Kongóbúa úr þrældómsfjötrum.' Baráttunni yr.N haldið áfram þar til fullur sigur væri urciinn á hinum erlendu kúgurum og þjcnum þeirra. Síðar ! dag bárust þær fréttir aá upprc.'jsnarmenn hefðu tekió hinn mikilvæga námubæ Man- ono í austurhluta Katanga, um 50 km frá Elisabethville. Þeir höfðu setið um bæinn í þrjá daga. Belgíski auðhringurinn Union Minere hefur miklar tin- námur við Manono og í dag bárust þau skilaboð frá aðal- fulltrúa félagsins í bænum að honum væri þar ekki vært leng- ur. Innilega þökkum við þeim er sýndu okkur samúð við andlát og'útför bróður okkar og mágs PÉTURS ÞÓRIS ÞÓRARINSSONAR, bakara Jóhanna Þórarinsdóttir Margrét Þórarinsdóttir Ingolf Abrahamsen

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.