Þjóðviljinn - 07.08.1964, Qupperneq 4
4 SIÐA
ÞIÓDVILIINN
Föstudagur 7. ágúat 1964
DIOOVIUINN
Dtgetandi: Sameinmgarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: tvar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Biamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19,
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kl 90,00 á mánuði.
Heimsfriðnum ógnað
g.l. sunnudag var á það bent hér í blaðinu hversu
alvarlegur tími færi nú í hönd í alþjóðamálum
vegna kosningabaráttunnar í Bandaríkjunum,
sem ævinlega svipti þarlenda valdhafa ráði og
rænu, og m.a. komizt svo að orði: „Hin sauruga
styrjöld Bandaríkjamanna í Víetnam er einnig
á dagskrá, og gagnrýni Goldwaters um slælega
framgöngu Bandaríkjastjórna,r í þeim átökum
hefur orðið til þess að Johnson er að magna íhlut-
un sína. Á þeim slóðum er stöðugt rætt um nauð-
syn þess að hefja árás á Norður-Víetnam og ógna
Kínverjum með kjarnorkusprengjum ef þeir
þoli ekki bandarískan yfirgang við bæjardyr sín-
ar. Á þeim tíma sem eftir er fram að kosningum
munu ákvarðanir um þau efni ekki fyrst og fremst
fara eftir raunsæju mati á alþjóðamálum, heldur
þeirri trylltu keppni sem háð verður um atkvæð-
in innan Bandaríkjanna sjálfra, þar sem einskis
verður svifizt í keppninni um völdin og örlög
annarra þjóða verða höfð að peðum í stjórnmála-
'taflinu. Þeir menn sem óttast valdatöku Gold-
waters skyldu ekki síður skelfast þau ábyrgðar-
lausu viðhorf beggja aðila sem ævinlega einkenna
kosningamánuðina í Bandaríkjunum“. Þessi vam-
aðarorð hafa nú ræ'tzt á algerasta hátt með of-
beldisárás Bandaríkjanna á Norður-Víetnam,
stórfelldum loftárásum og fjöldamorðum, og eng-
um dylst að yfir mannkyninu vofir háski nýrrar
styrjaldar ef ofbeldismennirnir verða ekki neydd-
ir til undanhalds; ástandið nú er ámóta hættu-
legt og þegar Bandaríkin efndu til átakanna á
Karíbahafi 1962.
jgandaríkin reyna að réttlæta hernaðarárás sína
með ágreiningi um það hvað sé alþjóðahaf í
þröngum flóa milli Kína og Norður-Víetnam þar
sem bandarísl? herskip eiga sízt af öllu nokkurt
erindi. Málflutningur af því tagi hefur naumast
góð áhrif hér á landi; ekki eru nema tæp sex ár
liðin síðan íslendingar voru sakaðir um að beita
ofbeldi á alþjóðahafi og brezkur her var sendur
á vettvang til þess að kúga okkur til uppgjafar.
Samkvæmt hinni bandarísku kenningu hefðu
Bretar þá haft rétt til að gera loftárásir á íslenzka
bæi, og verður sannarlega fróðlegt að sjá hvort
íslenzku hernámsblöðin gera þaer blygðunarlausu
ofbeldiskenningar að sínum.
J>ví aðeins verða ráðamenn Bandaríkjanna neydd-
ir til að falla frá ofbeldi sínu að þeir finni fyrir
nægilega einbeittri og víðtækri andstöðu um heim
allan. Einnig við íslendingar berum okkar ábyrgð;
hið vestræna stórveldi er hemaðarlegur banda-
maður okkar, og herstöðvarnar hér á landi hlekk-
ur í því vígbúnaðarkerfi sem nú er notað til blygð-
unarlausustu ofbeldisverka. Hérlendum valda-
mönnum ber að tilkynna Bandaríkjunum það af-
dráttarlaust að fsland verði á engan hátt aðili að
alþióðlegum hryðjuVerkum hins vestræna her-
veldis. — m.
I sumarbúð-
umí tékkó-
slévakíu
Eins og mörg undanfarin
sumur, hafa börn og ungling-
ar frá ýmsum Iöndum dvalizt
i sumarbúóum í Tékkóslóv-
akiu. Meðal þessara alþjóð-
legu æskulýðsbúða eru „Pod
Sitnom" sumarbúðirnar við
Pocuvadlo-vatnið í Mið-Slóv-
akíu, en þar hafa fjölmarg
böm frá ýmsum löndum Evr-
ópu, m.a. fslandi, dvalizt í
sumar ásamt tékkneskum
bömum.
Myndimar sem þessum lín-
um fylgja em frá ,,Pod Sit-
nom" sumarbúðunum. A ann-
arri myndinni sjást nokkrar
ungar stúlkur búast til báts-
ferðar á vatninu. Þær em frá
vinstri: O. Kjartansdóttir og
Valgerður Björnsdóttir frá fs-
landi, R. Stcpánková og Sona
Merinská frá Austurríki og
Barbro Scverinson og Inger
Svensen frá Sviþjóð. A hinni
myndinni sjást frá vinstri: J.
Norberg og Karen AII frá
Svíþjóð, K. Leckésiová og Ján
Brolík Tékkóslóvakíu, Hall-
dór Thoroddsen og Helgi
Bernódusson frá fslandi og
Stella Reis og Sona Merínská
frá Austurríki.
Frá 11. landsfundi Kvenréttindafélags íslands:
A tvinnu- og launamáikvenna
og almanna tryggingamálin *
■ Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum, var ellefti
landsfundur Kvenréttindafélags íslands haldinn fyrir
nokkrum vikum. Margar ályktanir um ýms mál voru
samþykktar á landsfundinum, m.a. ályktanir þær um
atvinnu- og launamál og tryggingamál, sem hér fara á
eftir.
11. Landsfundur Kvennrétt-
indafélags Islands, haldinn 19.
— 22. júní 1964, beinir þeirri
áskorun til kvenna, að þær
afli sér sem beztrar þekkingar
til að öðlast full réttindi i
þeim störfum, sem þær hafa
valið sér.
Ennfremur skorar fundurinn
á konur. sem vinna störf, sem
kjaradómur hefur ákveðið laun
fyrir, að þær gæti þess vel, að
bær verði settar í rétta launa-
fiokka.
Fundurinn telur rétt að
stefna beri að því. að hæfnis-
próf verði tekin upp við ým-
is störf, svo að möguleiki sé á
að skipa fólki í launaflokka
eftir leikni og þekkingu.
Fundurinn vill mótmæla ó-
rétti vegna launamála ljós-
mæðra og hjúkrunarkvenna
með því að taka fram eftirfar-
andi, sem beinist til viðkom-
andi aðila:
a) Endurskoðun fari fram á
ljósmæðralögunum. Allar
starfandi ljósmæður verði við-
urkenndir opinberir starfsmenn
og njóti samningsxéttar á sama
hátt og þeir, svo áð þær hafi
möguleika á að lagfæra hin ó-
eðliléga lágu launakjör sín.
b) Að sérlærðar hjúkrunar-
konur. sem unnið hafa á skurð-
stofu og í röntgendeildum fyr-
ir 1. júlí 1963, fái viðurkennt
það sérnám, sem tekið var fyr-
ir þann tíma og fái laun í
samræmi við það. Ennfremur
beinir fundurinn þeirri áskor-
un* til ríkisstjómarinnar, að
lokið verði byggingu fullkomins
hjúkruriarskóla sem fyrst, svo
að allir, sem læra vilja hjúkr-
un, eigi þess kost.
Fundurinn vill vekja athygli
á því, að þrátt fyrir lagalegt
jafnrétti kvenna við karla um
aðgang að öllum skólum og
starfsstéttum, er þeim í raun
og veru lokaður aðgangur að
rhörgum iðngreinum, vegna
þess að meistarar hindra inn-
göngu þeirra.
Fundurinn telur, að starfs-
fræðslu þeri að auka að mun
og skipuleggja þannig, að
störfin séu ekki flokkuð í
kvenna og karla störf.
Fundurinn vill þeina þeim
tilmælum til fræðslumála-
stjórnar (og • félagsmálaráðu-
neytisins) að beita sér fyrir því
að komið verði á námskeiðum
fyrir nýja stétt kvenna, sem
tekizt gæti á hendur heimilis-
störf. skv. lögum um heimilis-
hjálp i viðlögum og skv. 22,
grein laga um álmannatrygg-
ingar um heimilishjáip' fyrir
ellilífeyrisþega. Ennfremur vill
fun'durinn benda á, að þegar
von er á hæfu starfsliði til
slíkrar heimilishjálpar, koma
enn fleiri verkefni til greina
og stefna ber að því að kom-
ist í framkvæmd, svo sem
heimilishjálp vegna húsmæðra-
orlofs og fæðingarorlofs hús-
mæðra.
Fundurinn telur, að það sé
mikilvægt fyrir húsmæður, sem
tíma hafa aflögu eða af öðrum
ástæðum vilja vinna utan heim-
ilis,. að geta fengið störf við
sitt hæfi nokkra tíma á dag
eða hluta úr viku eða mánuði,.
eftir atvikum. Fundurinn bein-
ir því til atvinnurekenda og
stéttarfélaga að rannsaka, hvort
ekki væri hægt að gefa hús-
mæðrum kost á tímabundinni
vinnu. Fundurinn skorar á
stjórn KRFl að skrifa ýmsum
atvinnurekendum og opinber-
um stofnunum um þetta mál.
Framhald á 9. síðu.
HAFNARFJARÐARBÍÖ
Rótlaus æska
, Hann og Hún í París
Hún er amerísk og hefur
verið sett til mennta í Frans.
Þarf að vera f Svartaskóla til
að fá peninga að heiman. Er
að byrja á blaðamennsku. Og
hefur dregizt að ýmsum for-
boðnum ávðxtum í þeim
gamla heimi — líklega yrði
fólkið heima dauðskelkað ef
það kæmist að öllu saman.
Boðorðið er skráð í ýmis-
leg spjöld borgarinnar: það
er að lifa hratt. -lifa æski-
lega. lifa hættulega.
Því fylgir hann. Harin stel-
ur bflum af götum borganna
og peningum í svefnherbergj-
um kvennanna. Og hann
drepur lögregluþjón í briaríi.
Þau gefa sig Ævintýrinu á
vald, en það er erfitt að
halda þessu lífi áfram, og
kuldinn og tómleikinn læðast
að. Hún gefst upp og fram-
selur hann. Hann gefst upp
og vill ekki flýja.
Mér er tjáð að Godard hafi
gert þessa mynd. Hann hefur
heldur betur verið i essinu
sínu. Listræn leti finnst ekki
i hans aðferð og i öllum at-
riðum er mikil hreyfing og
líf. Og til að svo verði. þarf
hann ekki endilega að hend-
ast með persónurnar út um
allar trissur. Hann getur sett
þær niður í lítið svefnher-
bergi um langan tima. Það er
Belmondo og Sebcrg í aðalhlutverkunum.
margt sagt og ekki allt
merkilegt. eins og eðlilegt er.
En Godard leikur sér glæsi-
lega að þessu litla sviði og
þessum vandræðalegu elsk-
endum og við erum spennt
og trúum því, að allt þetta
skipti máli.
Belmondo er yfirmáta ör-
uggur i þessu hlutverki og
Jean Seberg er áreiðanlega
sönn arrierísk stúlká í París-
arháska. A.B.