Þjóðviljinn - 20.08.1964, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 20.08.1964, Blaðsíða 3
ATHUGIÐ VORUNUM KYNNIST VERÐINU HVEITI Finantudagar 20. ág'ist 1964 H6DVIUDIN SIÐA Johnson forseti margfaldur miljónamœringur i dollurum OS er megnið af þvi á nafni konu hans. Hér er um að ræða reiðufé, verðbréf, hlutabréf í The Texas Broadcasting Corpor- ation, búgarða og aðrar fasteign- ir í Texas, Alabama og Missouri. Johnson ákvað að birta eigna- skrá sína eftir að tímaritin „Time” og „Life” höfðu birt skrá yfir eignir hans sem þar voru metnar á 14 miljónir dollara, eða rúmlega hálfan miljarð íslenzkra króna. Skrif blaðanna um hinn mikla auð forsetafjölskyldunnar hafa vakið nokkra athygli, ekki sízt vegna þess að vitað er að John- son var ekki fjáður maður þeg- ar hann var fyrst kosinn á þing fyrir strið og þingmannslaunin hrökkva skammt til slíkrar auð- söfnunar. Elding varð að '’ana tveim Svíum STOKKHÖLMI 19/8 — Það ó- venjulega slys vildi til í gær- kvöld á Kalmarsundi milli Eylands og meginlandsins að eld- ing sem laust niður í trillu varö tveimur mönnura ad bana. Sjánvarpstunglinu sem sendir frá OL / Tokio skotíð á loft forseti hefur talið ástæðu til : birta þjóð sinni skýrslu u eignir sínar og fjölskyldu sin ar. Samkvæmt henni er hann < kona hans margfaldir dollai miljónarar. HENNEDYHÖFÐA 19/8 — Fjarskiptatunglinu Syncom 3. sem ætlað er að endurvarpa sjónvarpssendingum frá ol- ympíuleikunum í Tokio til Bandaríkjanna var skotið á lc ft í dag frá Kennedyhöfða og fór tunglið á útreiknaða I .'áðabirgðabraut sína um jörðu. Þessi braut líggur 1.120—36.640 k u frá jörðu, en um 28 tím- v n eftir geimskotið verður lít- il eldflaug í gervitunglinu lát- ir breyta brautinni svo að hún v ’rði hringlaga_ í 35.700 km fjar- l -'gð frá jörðu. I þessari fjar- 1 -gð er umferðartími gervi- t ngla nákvæmlega sá sami og r indulhraði jarðarinnar og 5 ncom 3. verður því ævinlega y 'ir sama blettinum á jörðinni. Þessi bléttur hefur verið val- ínn svo að nota megi Syncom 3. til þess að endurvarpa sjón- varpssendingum frá olympíu- leikunum í Tokio til Bandaríkj- anna. Takist þetta vel, eins og nú eru horfur á, er ætlunin að fleiri Syncomtungl verði send á loft þannig að þau spanni allan hnöttinn. (Sjá skýringar- mynd). En þótt Synoom 3. komist ekki á rétta braut verður hægt að hafa rtf honum margs konar gagn við undirbúning fjarskipta milli heimsálfanna um gervi- tungl. Hann verður einnig not- aður til að miðla símsamtölum, fjarritasendingum ,og símamynd- um milli stöðva á Filipseyjum. Guam og í Ka'lifomiu. Tæki Syncom 3. hafa reynzt vera í fullkomnu lagi. Svo var einnig um tæki Syncom 2., en ekki frumherjans, Syncom 1., sem skotið var á loft 14. febrú- ar í fyrra. Sjónvarpsstöðvar í Evrópu taka þátt í kostnaðinum af skoti Syncom 3. Sjónvarpssendingar frá olympíulcikunum verða kvik- myndaðar í Kalifomiu. Þaðan verða myndimar sendar á mikro- bylgjum til Montreal, en þaðan flýgur þota með þær til Evrópu. Með þessu móti verður hægt að sjá hvað fram hefur farið í Tokio tólf tímum fyrr en ver- ið hefði ef flogið hefði verið með þær aHa ieið frá Tokio. Hla fenginn auður? Johnson segir að sameiginleg eign hans, konu hans og tveggja dætra nemi 3.484J)08 dollurum Barizt um Bukavu í Kongó, uppreisnarmenn hafa betur Einn mikilvægasti bærinn í austurhluta landsins og þungt áfall fyrir stjórn Tshombes ef hann fellur LEOPOLDVILLE19/8 — Bardagar eru nú háðir milli upp- reisnarmanna og hermanna stjórnarinnar í Leopoldville um bæinn Bukavu, sem er höfuðborg Kivufylkis í austur- hluta Kongó. Uppreisnarmenn virðast hafa betur og horf- ur á því að þeir nái bænum á sitt vald. Samkvæmt útvarpsfregnum sem bárust til Leopoldville mun þegar vera barizt á götum bæj- arins. Uppreisnarmenn munu Þrumuveður talið munu tefja fyrir Geminitilraun KENNEDYHÖFÐA 19/8 — Þrumuveður sem gekk yfir til- raunastöðina á Kennedyhöfða í Florida fyrir tveimur dögum olli svo miklu tjóni á ýmsum tækjum þar að óttazt er að það muni hafa í för með sér tafir á framkvæmd Geminitilraunar- innar, sem ráðgerð var seinni part ársins, svo að fresta verði henni til næsta árs. Geminitil- raunin er liður í undirbúningi Bandarikjamanna að ferð manna til tunglsins og er ætlunin að senda þá tvo menn upp í sama geimfarinu. Dularfull morðgáta / Norður-Svíþjóð STOKKHÓLMI 19/8 — Óhugnanlegur fundur mannabeina sem kyndari í bænum Umeá í Norður-Svíþjóð gerði fyr- ir um það bil mánuði virðist ætla að verða upphaf ein- hverrar dularfyllstu gátu sem sænska rannsóknarlögregl- an hefur nokkru sinni fengið að glíma við. hafa sótt að bænum úr norðri og norðvestri. Þungit áfall Bukavu er einn mikilvægasti bærinn í austurhluta Kongó og það mun verða þungt áfall fyrir stjóm Tshombes í Leopoldville ef uppreisnarmenn ná honum á sitt vald, segir fréttamaður Reut- ers; Stjómarherinn hefur 800 manna setulið í bænum og er nokkur hluti þess fallhlífaher- menn. Sókn uppreisnarmanna við Bukavu hefur gerbreytt vígstöð- unni á þessum slóðum. Á sunnu- daginn var sagt að stjómarher- inn hefði hrundið áhlaupi þeirra í Kabarehéraði fyrir norðan Bukavu. I síðustu viku var til- kynnnt að uppreisnarmenn hefðu verið hraktir 80 km frá bænum. en áður höfðu þeir verið um 20 km frá honum. Bandaríkjamenn flýja 1 Bukavu munu vera um 150 útlendingar, meðal þeirra nokkr- ir Bandaríkjamenn sem eru þar á vegum SÞ. Talsmaður SÞ f Leopoldville sagði að allt 'yrði gert til að forða þeim úr bænum áður en hann félli í hendur upp- reisnarmönnum. Brottrekstrar Stjórn Tshombes hefur ákveð- ið að vísa úr landi þegnum frá nágrannaríkjunum í Kongó (Brazzaville’ og Burundi, en hún sakar þá um aðstoð við upp- reisnarmenn. Síðar var tilkynnt að þegnar Malílýðveldisins yrðu einnig gerðir landrækir. Hér mun vera um að ræða um 25.000 manns. Uppreisnarmenn hafa haft bækistöðvar f Brazzaville og í Urundi og í dag var tilkynnt í Brazzaville, sem liggur við Kongófljót gegnt Leopoldville, að einn helzti foringi þeirra, Pierre Mulele, væri þar við beztu heilsu. Áður hafði verið skýrt frá því í Leopoldville að Mulele hefði verið drepinn. Menn hafa enn enga hugmynd um það af hverjum beinin eru og eftirgrennslan lögreglunnar í Umeá hefur engan árangur borið, þótt mikið kapp hafi ver- ið lagt á rannsókn málsins, eft- ir að það kom í Ijós fyrir viku að enginn vafi er á að um mannabein er að ræða. Það var 17. júlí sem kyndari í sorpeyðingarstöðinni í Umeá sá mannshöfuð í logunum þeg- ar sorppoki sem hann einmitt hafði ka&tað í ofninn sprakk af völdum hitans. Hann kallaði á einn af vinnufélögum sínum sem einnig kom auga á höfuðið Það var ekki fyrr en daginn eftir að svo hafði kólnað í ofn- inum að lögreglan gat grafið eftir beinaleifum, sem reyndust við rannsókn vera úr manni. Sérfræðingamir töldu að beinin hlytu að vera úr ungum manni eða konu, ekki yngri en 15 ára. En þá vandaðist málið. Kynd- arinn og vinnufélagi hans bera báðir að enginn vafi sé á að höfuðið sem þeir sáu hafi verið af fóstri, og ekki komi til mála að það hafi verið af fullorðn- um manni. , Þess hefur því verið getið til ! að hér kunni að hafa_ verið um að ræða misheppnaða ólöglega fóstureyðingu. sem kostað hafi : bæði móður og barn lífið. Sér- j fræðingar segja að engar beina- j leifar myndu verða eftir fó&tur j í 800 stiga hita sorpeyðingar- j ofnsins. Það er furðulegast við þetta mál að lögreglan hefur ekki fengið neina vísbendingu sem gæfi til kynna af hverjum bein- in gætu verið. Auglýst hefur verið í útvarpi og blöðum eft- ir upplýsingum um horfið fólk. en þær hafa engan árangur bor- ið. Tveggja kvenna er saknað. en um hvoruga getur verið að ræða. Samtenging mannaðra geimfara reynd einhvern næstu daga? ^MOSKVU 19/8 — Fréttamaður frönsku fréttastofunnar AFP í Moskvu kveðst hafa það eftir áreiðanlegum heim- ildum að fyrir næstu mánaðamót og sennilegá einhvern næstu daga muni reynt að skjóta _frá Soyétríkjunum tveimur eða þremur mönnuðum og stýranlegum geimför- um af gerðinni Poljot og muni ætlunin að tengja þau sam- an úti í geimnum. Það fylgir fréttinni að tálið sé að tilraunin muni gerð áður en Krústjoff forsætisráðherra fer í opinbera heimsókn til Tékkóslóvakíu seinni hluta mán- aðarins og megi búast við henni innan þriggja daga. Þrálátur orðrómur hefur verið um það, í Moskvu síðustu dagana að vænta mætti tíðinda frá sovézk- um geimvísindamönnum. Geimskot þeirra í gær, þegar þremur gervitunglum af gerð- inni Kosmos, 38.. 39. og 40. tunglinu af þeirri gerð, var skot- ið á loft með einni og sömu eld- flaug hefur vakið athygli. Það hefur að vísu ekki verið látið uppi. fremur en endranær, hve þung .gervitunglin voru, en telja má líklegt að fyrst þau bera Kosmos-nafnið sé þungi þeirra svipaður og fyrri tungla af þeirri gerð, en hann hefur verið áætl- oður 4—5 lestir. Hafi ein eld- flaug borið þrjú slík gervitungU á loft hafa Sovétríkin þar tekið í notkun við geimrannsóknir sín- ar eldflaug af nýrri og miklu öflugri gerð en áður var kunn. 6 >

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.