Þjóðviljinn - 20.08.1964, Page 4
I
4 SIÐA
Ctgctandi: Samemingarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn —
Ritstjórar: Ivar H Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason
Fréttaritstjóri: Sigurður V BYiðþjófsson.
Ritstióm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmidja, Skólavörðust 19,
Simi 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kl 90.00 á mánuði
Stríðshætta af
Natóríkjum
Qfriðarblikur hafa verið á lofti um nokkurt skeið.
Litlu hefur munað að tvö ríki sem ísland er
í hernaðarbandalagi við hafi rokið saman í stríð,
tvö ríki sem lesendur Morgunblaðsins, Tímans og
Alþýðublaðsins hefðu ástæðu til að ætla að væru
í Atlanzhafsbandalaginu til þess að vernda frið-
inn í heiminum og þá ekki sízt til þess að lifa í
sátt og samlyndi innbyrðis, Grikkland og Tyrk-
land. Ríkisstjórnin íslenzka og flokkar hennar,
sem drifið hafa vopnlausa íslendinga í hernaðar-
bandalag við þessi ríki, virðist að vísu ekki hafa
miklar áhyggjur vegna skuldbindinga sinna. Það
er varla fundarfært eða hefur verið í ríkissfjórn-
inni í Reykjavík, einn ráðherranna í Washington,
annar í Helsinki, þriðji á Sprengisandi. En senni-
lega hugleiða þeir hver á sínum stað, og fá jafn-
vel um það innblástur hvernig beri að skilja skuld-
bindingu og heitstrengingu íslands að veita lið
í stríði bandamönnum sínum í Atlanzhafsbanda-
laginu, ef svo slysalega tiltekst að bað verði ein-
mitt bandalagsríki íslands -í friðarbandalaginu
Nató sem berjast innbyrðis. Hvoru þeirra á Is-
land þá að veita lið? Um það er ekkerf í sáttmál-
anum. Og samkvæmt fréttum virðist það helzt
harmsefni ríkisstjórnum hinna friðsömu ríkja
Grikklands og Tyrklands, bandalagsríkia íslands
í hernaðarbandalaginu, að þær skuli ekki fá að
semja um málefni hins sjálfstæða smáríkis sem
er tilefni deilunnar, Kýpur, þann veg að ríkis-
stjórn þess lands og íbúar séu þar hvergi hafðir
með í ráðum.
| öðrum heimshluta, Suðaustur-Asíu, má segja
að Bandaríkjastjórn hafi nú alveg kastað hræsn-
isgrímunni og hafið blygðunarlausa, opinbera og
yfirlýsta hernaðarþátttöku gegn þjóðfrelsishreyf-
ingu Súður-Víetnam. en öll hemaðarþátttaka
Bandaríkianna og hergagnaflutningur þangað er
brot gegn Genfarsamkomulaginu um málefni
Víetnam Þess vegna hefur hingað til verið reynt
í orði að dulbúa beina hernaðarþátttöku Banda-
ríkjanna þar með hræsnistali um „hernaðarráðu-
nauta“ og hvers konar „aðstoð“ þó það hafi ekki
blekkt neina. ekki heldur heiðarlega bandaríska
fréttamenn í Saigon. Jafnframt eru hafnar ó-
skammfeilnar hernaðarárásir bandarísks flughers
á Norður-Víetnam. Það er þannig fvímælalaust
her voldugasta stórveldis Atlanzhafsbandalagsins,
sem stendur blóði drifinnd stríði gegn þjóðfrels-
ishreyfingu Suður-Víetnam og leikur sér að eldi
stórstyrjaldar í Asíu. Sú framkoma hefur verið
fordæmd einnig af mörgum bandamanni Banda-
ríkjanna. Og þjóðir heimsins hafa enn fengið svip-
sýn af hinu sanna eðli ,.friðarbandalapsins“ Nató.
revnslu sem ekki er ólíklegt að íslendingar læri
einnig nokkuð af. — s.
ÞJðÐVILIINN
•Fimmtudagur 20 ágúst 1964
Áætlanir um fullvirkjun
Laxár í Þingeyjarsýslu
Stjórn Laxárvirkjunarinnar
hefur nýlega sent frá ser svo-
fellt yfirlit um helzbu niður-
stöður Sigurðar Thoroddsens
verkfraeðings, sem unnið hefur
að rannsókn og áætiunargerð
um virkjun Laxár:
Nú nýverið hefur Sigurður
Thoroddsen verkfræðingur skil-
að áætlun um fullvirkjun Lax-
ár í S-Þingeyjarsýslu við Brú-
ar.
Alls nær skýrslan yfir áætl-
unargerðir um 10 mismunandi
virkjanir og til Suðurárveitu.
Enn fremur er gerð grein fyrir
flutningsvirkjun vegna hinna
ýmsu tilhagana, spennistöðvum
við virkjanirnar, háspennulínu
til Akureyrar og spennistöð þar.
Þess skal getið. að í öllum
tilhögununum er gert ráð fyrir-
hví, að veita Suðurá í Laxá, en
t>að eykur orkuvinnslugetuna
við Brúar um 30—40% og enn-
fremur er gert ráð fyrir að
gera háa stíflu f Laxárgljúfrum
í bví skyni að skapa miðlun
og rekstursöryggi og auka fall-
hæð. Allt bendir tjl bess, að 30
metra há stífla sé hin hag-
kvæmasta.
Enn fremur skal bess getið að
bessar áætlanir eru miðaðar við
bað. að virkjað sé tii almenn-
ingsnota og uppsett afl miðað
við bað,
Fara hér á eftir hinar 4 til-
haganir að virkjun fallsins við
Brúar:
virkjað verður í áföngum á 20
—30 árum, þá verði 2. og 3.
tilhögun ódýrastar miðað við
núgildi stofnfjárins í upphafi
heildarvirkjunar
Enn hafa ekki verið gerðar ,
endanlegar tillögur til lausnar
á raforkuþörf Norður- og Aust-
urlands, en eftirfarandi 3 mögu-
leikar eru teknir til meðferðar
í skýrslu Sigurðar Thoroddsen:
1. Laxársvæðið:
Sama orkuveitusvæði og nú
er.
2. Norðurland:
Hrútafjörður — Þórshöfn.
Orkuveitusvæðið stækkað með
veitu vestur til Skagafjarðar,
norður tjl Siglufjarðar og aust-
ur til Þórshafnar.
3. Norður- og Austurland:
Fyrmefnt svæði (2) að við-
bættu Austurlandi. allt suður
fyrir Hornafjörð.
í skýrslunni eru línurit, er
sýna aflspá fram til ársins 1986
fyrir ofangreind svæði, og eru
virkjunarstigin við Brúar, sem
henta hverju siáni felld að
línuritunum. Gert er ráð fyrir
að aflbörfinni verði fullnægt
með vatnsafli yfirleitt, en fram
til ársins 1968 verði aflþörfinni
fullnægt á annan hátt, en tal-
ið er að fyrr verði ekki lokið
hinum fyrsta áfanga virkjunar
við Brúar.
Lauslegar athuganir þenda til
þess, að byggingartími þeirra
virkjunarstiga, sem til greina
koma sem 1. áfangi séu um 3
ár.
Verði orkuveitusvæðið hið
sama og nú er. Laxársvæðið,
eru virkjunarþrepin samkvæmt
2. og 3. tillögu nokkuð stór.
Með 1. tilhögun fengist auð-
veldari byrjun, en heildarvirkj-
unin verður dýrari. Svipað er
að segja um 2. orkuveitusvæð-
ið.
Fyrir 3; orkuveitusvæðið N.-
og Austurland, vex aflþörfin
örast. Fyrir þetta svæði mundi
henta vel að virkja samkvæmt
2 og 3. tilhögun í áætlun Sig-
urður Thoroddsen. Með 3. til-
högun mundu tvö fyrstu virkj-
unarstigin verða fullnýtt á um
5 árum hvort, hið 3. á um
4 árum og hið 4. og síðasta á
um 4 árum.
Heildarvirkjun Laxár við
Brúar yrði þannig fu'Unýtt á
árunum 1985—1990. Af framan-
sögðu sést. að heildarvirkjun
Laxár við Brúar mundi henta
bezt fyrir orkuveitusvæði. sem
nær yfir Norðurland og Aust-
urland.
Telur Sigurður Thoroddsen
ólíklegt, að hægt verði að full-
nægja orkuþörf þessa orku-
veitusvæðis ódýrar með virkj-
unum annars staðar en við
Brúar. ef virkjað er fyrir al-
menningsnotkun eingöngu.
Áætlun um flutningsvirkjun,
sem þarf til stækkunar orku-
veitusvæðanna hefur að vísu
ekki verið gerð, og þar af
leiðandi ekkj heldur kostnaðar-
eða hagkvæmnissamanburður á
þessum þremur möguleikum.
enda kemur þar einnig til sam-
anburðar við aðra virkjunar-
möguleika.
Að lokum segir svo í álits-
gerð Sigurðar Thoroddsen:
„Að öllu athuguðu verður
ekki annað sagt en að virkjun-
arstaðurinn við Brúar sé heþpi-
legur. Tæknileg vandamál í
sambandi við framkvæmdir fá-
ar og ekki umfram það. sem
eðlflegt má teljast á góðum
vjrkjunars.töðum og virkjunar-
kostnaður ti'ltölulega mjög
vægur. Þar er nægt afl og orku
að fá fyrir orkuveitusvæði, er
nær yfir Norður- og Austur-
land. næstu tvo áratugi auk
þess að annað eins má virkja
ofar við Laxá, Mývatnsvirkjan-
ir, væntanlega á líku verði,”
Það er álit Laxárvirkjunar-
stjómar að þessar virkjanir við.
Laxá þoli fyllilega samanburð
við aðrar þær virkjanir. sem til
greina koma í dag, og taka
beri fullt 'tillit til hinna miklu
möguleika, sem Laxá í Suður-
Þingeyjarsýslu hefur í sam-
bandi við orkuöflun fyrir
Norðurland. jafnvel Austurland
og Suðurland, áður en ákvörð-
un er tekin um aðrar hugsan-
legar leiðir.
1. Tilhögun:
Fallið nýtt í 3 þrepum. Lax-
árvirkiun I. lögð hiður Upp-
sett afl 86.300 kw, Orkuvinnsla
á ári 395 mflj. kwst. Heildar-
kostnaður 1005,9 milj, kr. Verð
á uppsett kw. við stöðvarhús-
vegg um kr. 8.300.00.
2. tilhögun:
Fallið nýtt í 3 þrepum. Lax-
árvirkun I lögð niður. Uppsett
gfl 85.400 kw. Orkuvinnsla á
ári 391 milj. kwst. Hefldarkostn-
aður 882,9 milj. kr. Verð á
uppsett kw. við stöðvarhúss-
vegg um kr. 7.400.00. .
3. tilhögun:
Fallið nýtt með samsíða
virkjunum í einu og tveimur
brepum. Laxárvirkjun I. lögð
niður, Uppsett afl 84.700 kw.
Orkuvinnsla á ári 386 milj.
kwst. Heildarkostnaður 843,4
milj. kr. Verð á uppsett kw.
við stöðvarhússvegg um kr.
7.135.00.
4. tflhögun.
Fallið nýtt í einu þrepi. Nú-
verandi virkjanir lagðar niður.
Uppsett afl 90.000 kw, Orku-
vinnsla á ári 404 milj kwst.
Heildarkostnaður 805.2 milj.
kr. Verð á uppsett kw. v/ð
stöðvarhiíssvegg um kr. 6.540.00.
Auk þess er sá möguleiki
fyrir hendi að virkja Laxá
samkvæmt tilhögun 4 en sem
grunnaflsstöð (fyrir stórt veitu-
svæði) með 50,000 kw. upp-
settu afli. Heildarkostn. laus-
lega áætlaður um 627 milj. kr.
og verð á uppsett kw. um
8.200.00 kr. Verð á hverja kw-
st við stöðvarhúsvegg yrði
með 8% árlegum kostnaði um
8,1 eyrir og á Akureyri um 12,3
aurar.
Rannsóknir á Snæfellsjökli
Orkuverð á Akureyri sam-
kvæmt tilhögun 2 yrði með 8%
árlegum kostnaði um 18 aur7
kwst. og samkvæmt tilhögun 3
og sömu forsendum um 17,5
aur’/kwst. Verðið samkvæmt til-
högun 4 yrði aftur á móti um
16 aurTkwst Það er álit Sig-
urðar Thoroddsens, að ef
iitflt-g >■' SO QQO
/
Þetta kort teiknaði Carol Jex ein leiðangurskven nanna, og sýnir það isröndina að nprðvestanverðu
og svæðið sem komið hefur undan jöklinum á síðustu þrjátíu árum. Þessi mynd átti að fyylgja
greininni um jarðfræðirannsóknir á Snæfellsnesi, sem birtist á 5. síðu blaðsins í gær. Vegna mis-
taka varð teik ningin útundan.