Þjóðviljinn - 20.08.1964, Page 12

Þjóðviljinn - 20.08.1964, Page 12
Togliatti hefur heldur skáuaS, líðan Segni söm RÖM 19/8 — Líðan Togliattis leiðtoga ítalskra kommúnista, sem fékk heilablæðingu í síð- ustu viku og liggur síðan þungt haldinn á sjúkrahúsi á Krím, hefur heldur skánað síðasta sól- arhring. Líðan Segni. forseta Italíu, sem einnig fékk heilablæðingu fyrir nokkrum dögum, er söm. Hann hefur verið meðvitundar- laus síðan á laugardag. Heilsu Tuomioja hefur enn hrakað GENF 19/8 — Heilsu hins finnska sáttasemjara SÞ í Kýp- urdeilunni, Tuomioja, hrakar enn, en hann fékk heilablæðingu á sunnudaginn. Hann hefur nú fengið snert af lungnabólgu og er talin ástæða til að óttast um líf hans. Herforingi fær heilablæðingu NEW YORK 19/8 — Brasilíski herforinginn Chaves, yfirmaður gæzluliðs SÞ fyrir botni Mið- jarðarhafs, fékk í dag heilablæð- ingu og hefur verið fluttur á spítala þungt haldinn. Demókratar móti Johnson forseta NEW YORK 19/8 — Þrír af rík- isstjórum Demókrata í suðurríkj- unum. Þeir Faubus í Arkansas, McKeithen í Louisiana og John- son í Mississippi hafa tilkynnt kð° þéir muni ekki mætá á flokksþingi Demókrata sem er um það bil að hefjast i Atlantic City. Þeir munu heldur ekki mæta á fundi ríkisstjóra Demó- krata sem haldinn verður i Hvita húsinu á laugardaginn í boði Johnsons forseta. Fimmtudagur 20. ágúst 1964 — 29. árgangur — 186. tölublað. Kuldakast um allt land og næturf rost 1? ■ Mikið kuldakast gekk yfir landið í fyrradag og fyrrinótt og snjóaði víða í fjöll norðanlands og hér á Suðurlandi mun næturfrost hafa valdið tjóni á kartöfluuppskeru eins og sagt er frá annars stað- ar í blaðinu. Séð yfir nokkurn hluta sýningarsvæðisins á kaupstefnunnni í Leipzig. Kaupstefna í Leipzig haidin 6. —13. sept ■ Eins og kunni er er Kaupstefnan í Leipzig haldin tvisvar á ári. Kaupstefna þessi er hin stærsta í heiminum sinnar tegundar og þangað streyma menn frá öllum ver- aldarhornum- Haustkaupstefnan hefst nú 6. spntember næstkomandi og lýkur 13. september. Næsta vor verður svo haldið hátíðlegt átta alda afmæli Kaupstefnunnar með mikilli viðhöfn. A sýningunni í september munu koma fram 6500 framleið- endur frá 57 löndum í öllum heimsálfum. En kaupsýslumenn frá alls áttatíu löndum munu koma til ráðstefnunnar. Stærstj hhiti bátttakenda er frá bvzka albýðuiýðveldinu. sem á aðild að ölium sýningardeild- nm en au.k bess svna barna sóof- alistísku löndin í Evrópu, 7 lönd Bjarni í Bandaríkjunum Ræddi við forseta og Rusk ráðherra 13 Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hafði viðdvöl í Washington í Bandaríkjunum í fyrra- dag og ræddi þá m.a. við Johnson forseta og Dean Rusk utanríkisráðherra. Um þessa Washingtondvöl ráð- herrans hafa Þjóffviljanum bor- izt svofel'ld afrjt af skeytum frá íslenzka sendiráðinu þar í borg til utanríkisráðuneytisins: Johnson forseti tók á móti for- sætisráðherra Bjama Benedikts- syni á hádegi í dag. 18. ágúst í Hvíta húsinu. Forsetinn þakkaði hlýlegar móttökur á Islandi sið- astliðið haust. lét í Ijós aðdáun sína á íslenzku þjóðinni og kvaðst meta mikils vináttu ís- lendinga. Forsætisráðherra þakk- aði hið vinsamlega heimboð og þann heiður sem Islandi væri sýndur. Forsetinn og forsætisráð- herra ræddust við hálfa klukku- stund og snérust viðræður beirra um * almenn mál Sendiherra Thor Thors var í för með for- sætisráðherra. Frá Hvíta húsinu fór forsæt- isráðherra með sendiherra í fvlgd siðameistara bandríska ut- anríkisráðuneytisins til sendi- herrabústaðarins og var þar c’valizt í hálfa klukkustund, en síðan haldið í utanríkisráðu- nevtið, þar sem Dean Rusk hafði hádegisverð +il heiðurs for- sætisráðherra að viðstöddum Nitze flotamálaráðherra og ýmsum æðstu mönnum Evrópu- deildar ráðuneytisins. Utanrík- isráðherra og forsætisráðherra fluttu vinsamleg ávörp. Utan- ríkisráðherra minntist áhrifa íslands í alþjóðamálum sem væru meiri en stærð þjóðar- innar gæti bent til og væri rödd íslands ávallt virt á alþjóða- vettvangi. Forsætisráðherra sagði að Bandaríkin væru leiðtogi hins frjá^sa heims. Síðan gengu forsætisráðherra og Thor Thors sendiherra til einkafundar með Dean Rusk, sem skýrði viðhorf- in í helztu heimsmálunum. Að fundinum Ioknum var haldið að leiði Kennedys forseta. For- sætisráðherra lagði fagran blóm- sveig með áletrun frá ríkisstjóm tslands og íslenzku þjóðinni að leiðinu, en síðan hélt ráðherr- ann áleiðis til New York með flugvél Johnsons forseta. I framhaldi af þessum fré’ta- skeytum vekjum við athygli les- enda á þættinum FRÁ DEGI TIL DAGS á 2. síðu — Austri trerir heimsókn fslenzka forsæt- isráðherrans til Hvíta hússins að umtalsefni í dag. Asíu, 9 í Afríku og 9 í Ameríku. Svo og Vestur-Evrópulönd. Stærstu sýnendur utan Evrópu eru Indland, Túnis. Brasilía. fran og Indónesía fslendingar munu að þessu sinni ekki hafa þarna sýningar- deild en ráðgert er að þeir eigi þátt í sýningunni sem haldin verður vorið 1965 Sýningarsvæði Kaupstefnunn- ar er afar glæsilegt og talið að einn maður komizt ekki yfir það á göngu þó hann sé að alla sýningardagana frá morgni til kvölds. Alls er svæðið 120 þúsund fermetrar. 30 aðalvöruflokkar eru á sýn- ingunni, bæði tæknilegar vörur og neyzluvörur. Lönd f Vestur-Evrópu hafa aukið þátttöku sína verulega. T.d. sýna í haust aliir pappírs- framleiðendur Svíþjóðar. Þess má og geta að þátttaka Vestur-Þýzkalands hefur aukizt um 10% frá Kaupstefnunni í fyrrahaust og frá Vestur-Berlín einni er aukningin alls 30%. Þó fs’land eigi enga sýningar- deild á ráðstefnunni munu ís- lenzkir kaupsýslumenn heim- sækja ráðstefnuna í Leipzig nú sem endranær. í þessu sambandi er rétt að minnast á það að viðskipti fs- lands og Austur-Þýzkalands hafa stóraukizt upp á síðkastið. Sem dæmi má nefna að nú standa jTir samningaviðræður um kaup á ýmsum stórvirkum tækjum. Aðalatriðið í þeim viðskiptum eru kaupin á fiskiskipum og verða sex afhent strax f haust og síðan 10 skip á næstu tveim árum. Skip þessi eru flest 215 tonn og 30 m. löng. Viðræður hafa einnig farið fram á milli Austur-Þýzkalamds og fslands um kaup á flutningaskipum en ekki hefur gegnjð saman í þeim samningaviðræðum þar sem Austur-Þjóðverjar smíða nú sem stendur eingöngu ákveðna gerð 6. f. G. í Finnlandi Framhald af 1. síðu. Síðan var haldið til Turku (Abo) i fylgd með Letho forsætisi'áð- herra, sem komið hafði til Gull- randa úr sumarleyfi. í Turku voru skoðaðir merkustu staðir, en í gærkvöld sátu utanríkis- ráðherrahjónin samsæti Norræna félagsins í Finnlandi. Heimsóknar utanríkisráðherra hefur verið ýtarlega getið í finnskum blöðum og útvarpi og atriði úr henni sýnd í sjón- varpi. af flutningaskipum, sem eru of stór fyrir fslendinga. Samningaviðræður um drátt- arbrautir hafa og átt sér stað og kom sendinefnd hingað ný- verið til að athuga möguleika á þeim viðskiptum. Þá má nefna hinar lands- kunnu Trabant-bifreiðir, sem nú hafa verið til sölu á landinu um hríð og var þessi bílategund hæst allra í júlílok 1964. en þá voru komnar til landsjns alls 250 bifreiðar beint til eiganda en nú er þegar búið að panta hingað 100 bíla í viðbót af Tra- bantgerð. Ráðsfundur UMFÍ 14. Sambandsfundur UMFÍ verður haldinn í Haukadal 5.— 6. sept. og hefst kl. 4 e.h. Helztu mál fundarins verða: 40. Lands- mótið 1965, Þrastaskógur, Fé- lagsmál, Næsta Sambandsþing. Á sunnudag verða skoðuð mannvirki, sem unnið er að að Laugarvatni og tekin verða í notkun á landsmótinu. Einnig verða skoðaðar framkvæmdir í Þrastaskógi, leikvangur og veit- ingaskáli. Fundinn sitja héraðs- stjórnir allra héraðssamband- anna, auk stjómar og gesta. Samkvæmt upplýsingum frétta- ritara Þjóðviljans á Siglufirði lokaðist Siglufjarðarskarð í fyrrinótt vegna snjóa og í gær var rigning og slydda á Siglu- firði og grátt niður undir byggð. Var ætlunin að reyna að hjálpa rútunni yfir skarðið í gærkvöld. Veðurstofan skýrði Þjóðvilj- anum svo frá i gær að í fyrri- nótt hefði mælzt næturfrost á tveim stöðum á landinu: Á Grímsstöðum á Fjöllum og Hellu á Rangárvöllum. Mældist frost- ið 1 stig á Hellu. Á Hæli var hitinn einnig um eða undir frost- marki, sömuleiðis á Nautabúi í Skagafirði og víða á landinu svoi sem á Síðumúla og Egils- stöðum var aðeins eins stigs hiti. Og að sjálfsögðu hefur verið kaldara niðri við jörð en þess- ar mælingar sýna. Samkvæmt upplýsingum veð- urstofunnar voru í gærkvöld litlar horfur á breytingum á veðurfarinu og allt útlit fyrir að í nótt yrði sízt hlýrra en { fyrri- nótt. Kl. 6 síðdegis í gær var hitinn norðanlands víða aðeins 2—3 stig en þar var skýjað og því minni hætta á næturfrosti en hér sunnanlands. Makaríos þakkar Krústjoff stuðninginn við Kýpurbúa Framhald af 1. síðu. / ^prengjunj ,á, Kýpur, gran<ja f- búum eyjarinnar, einnig börnum, konum og gamalmennum. Geri einhver öðrum illt,, aetti hann að hafa í huga að það sem hann gerir öðrum getur komið yfir hann sjálfan". Skip á leiðinni? Tyrknesk blöð skýrðu í dag frá því að sovézkt skip hefði farið um Bosporus-sund, hlað- ið vopnum og skotfærum. á leið til' Kýpur. Erkin utanríkisráð- herra vildi ekkj staðfesta þetta þegar blaðamenn ræddu við hann í dag, en sagði að ef það kæmi á daginn að Sovétríkin sendu hergögn til Kýpur myndi tyrkneska stjómin gera allar við- eigandj ráðstafanir. Hann bætti við að ef ófriður kæmi kynnu Tyrkir að neyðast til að loka Bosporus-sundi. Stormahlé Á Kýpur sjálfri er armars heldur friðvænlegar í\ dag en undanfarið. Kýpurstjóm heimil- aði aðdrætti Tyrkja í Ktimahér- aði á suðvesturströndinni sem hafa verið bannaðar flestar bjargir síðustu daga. Samkomu- lag um þetta hafði verið gert f gækvöld milli Makariosar, full- trúa SÞ og Alþjöða rauðakross- ins. Ví'ðræffur Allt er óvist um viðræður stjórna Grikklands og Tyrklands um Kýpur eftir veikindi Tuomi- oja, sáttasemjara SÞ. Stjómim- ar hafa báðar afturkallað fyrri ákvarðanir sínar að taka hluta af herliði sínu undan herstjóm At- lanzhafsbandalagsins. 6. skiptiheimsóknin á vegum Skógræktarfélags íslands ■ í gær var boðað til blaðamannafundar að Sig- túni í Reykjavík. Þar voru samankomnir 74 Norð- menn, sem hingað eru komnir í skiptiheimsókn á vegum Skógræktarfélags íslands. Norðmennirn- ir komu hinn 5. áeúst en 'fara aftur kl. 2 í dag. Þá koma hingað í dag 71 íslendingur sem dvalizt hafa í Noreeri á veeum norska skóeræktarfélagsins. Norðmennimir hafa nú ferðazt um landið og gróðursett u.þ.b. 100.000 plöntur aðallega á fimiti stöðum á landinu. 26 þeirra fóru 1 Haukadal, 10 í Rangárvalla- sýslu. 10 í Norðtunguskóg í Borgarfirði. 15 í Vaglaskóg og 10 í Hallormsstaðaskóg. Eins og áður segir komu þeir hingað 5. ágúst en fengust síð- an við gróðursetningu á hirum ýmsu stöðum þar tjl mánudag- inn 17. ágúst er þeir komu til Reykjavíkur. Síðan fóru þeir ! fyrradag á Þingvöll og upp í Borgarfjörð að Reykholti en dvöldust aö öðru leyti í Reykja- vík. Þetta er í sjötta skipti, sem slíkar skiptiheimsóknir eiga sér stað, hin fyrsta 1949 en síðan á þriggja ára fresti og má ætla að alls hafi tekið þátt í þessum skiptiheimsóknum 300 manns frá hvoru landinu. Skiptiheimsóknirnar hafa not- ið mikilla vinsælda meðal beggja þjóðanna. sem má marka af því að fjórum sinnum fleiri leituðu eftir að koma hingað til lands en komust. Hér á landi hefur sá háttur verið hafður á að Skóg- ræktarfélag Islands hefur sent út erindisbréf til deilda sinna og hefur aldrei skort þátttöku héðan. Enda eru kjörin til ferð- anna afar hagstæð, allur kostn- aður utan 65% ferðakostnaðar er greiddur eða kannski öllu heldur þeir vinna fyrir sér með gróðui-setningu, grisjun o.þ.h. Flestir þátttakendanna eru ungir, frá aldrinum 17—30 ára, Allir virtust þeir afar ánægðír með árangurinn af ferðinnj og dásömuðu náttúrufegurð lands- ins. Fararstjóramir þeir Einar Ueland frá Förde í Sunnfjord og Fröystein Ringseth frá Sunn- maeri, luku einnig lofsorði á móttökur allar. náttúrufegurð og höfðu orð á því að Island hefði mikla möguleika sem ferða- mannaland. Hákon Bjamason skógræktar- stjóri lýsti ánægju sinni með komu Norðmannanna og sagði að slíkar heimsóknir hefðu mikla þýðingu fyrir starfsemi skóg- ræktarinnar því flestir þeir er tækju þátt í heimsóknunum yrðu síðan virkir í starfi hjá skóg- ræktinni. I gærkvöld var svo samsæti fyrir Norðmennina f Sigtúni og bar komu norsku stúlkumar úr hópnum fram í þjóðbúningum þjóðar Ginnar. ;

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.