Þjóðviljinn - 04.09.1964, Síða 2
2 SÍÐA
HÓÐVILTINN
FQstudagur 4. eeptember 1934
Forsetakosningar í
Chile í dag — kunna
að marka tímamót
Kort af Chile
%
Þétta verdur mikið kosninga-
haust í þingræðislöndum.
Nú fara í hönd þingkosningar
í Svíþjóð og Danmörku. í Bret-
landi verða þingkosningar í
nassta mánuði og er úrslita
þeirra beðið með mikilli eftir-
væntingu. Og í nóvember ery
svo forsetakoáningar í Banda-
ríkjunum, sem geta orðið æði
sögulegar, enda þótt vafi leiki
tæplega á úrslitum. En þótt
margt geti 'oltið á þessum kosn-
ingum, kann þó svo að fara
að kosningar hjá tiltölulega fá-
mennrí þjóð hinum megin á
- hnettinum verði öliu afdrifa-
ríkari. Það eru forsetakosning-
amar sem fara fram í dag i
Chile, eina landinu í Suður-
Ameríku þar sem nokkurn veg-
inn óskorað þingræði hefur
ríkt síðasta mannsaldurinn.
„Þér verðið að afsaka ef yður
finnst ég taka full djúpt í ár-
inni. en framtíð heimsins er ef
til vill fremur undir úrslitum
okkar kosninga komin en ykk-
ar“, sagði einn þriggja fram-
bjóðenda. Salvador Allende,
nýlega við brezkan blaðamann
Og hann bætti við til skýring-
ar: — Við ætlum okkur að
koma því til leiðar með frið-
samlegu móti sem fram að
þessu hefur aldrei tekizt nema
með vopnavaldi.
Allende er boðinn fram af
samtökum sem nefnast
Frente Revoluc'onario de Acc-
ión Popular (FRAP). en að
þeim standa kommúnistar
sósíalistar, hluti af frinum
borgaralega Radikalaflokk og
Þjóðlegi lýðræðisflokkurinn
Þessi samtök voru mynduð fyr-
ir síðustu forsetakósningar fyr-
ir sex árum og var Salvador
Allende bá einnig í framboð
fyr!r ba” r>í mnnaði aðein
29 00^ fa****ti rttri*'
kosnir ð-n hefur orðið ör
þróun í Chi-le sem og öðrum
löndum Suður-Ameríku. FRAP
hefur stöðugt vaxið fylgi. en
h.ægri flokkarnir sem sigruðu
með naumindum haustið 1958.
Ihaldsmenn og Frjálslyndir,
hafa orðið fyrir slíku fylgis-
hruni. að dagar þeirra virðast
taldir í stjórnmálum Chile. I
marz s.l. fóru fram kosningar
í fylkinu Curicó, strjálbylum
sveitahéruðum, þar sem íhalds-
flokkamir höfðu jafnan ráðið
lögum og lofum. Þessar fylk-
iskosn:ngar mörkuðu þáttaskil,
FRAP vann algeran sigur á
afturhaldsfylkingumni og öllum
varð Ijóst hvert stefndi. ,.Þá
barði byltingin að dyrum hjá
auðstéttinni í Chile og þó eink-
um hjá bandarísku auðfélög-
unum tveimur sem hafa at-
vinnulff landsins í hendi sér’’
segir Michel Bosquet í ,.L‘Ex-
press”.
Bandarísku auðfélögin sem hér
er átt við eru hinn vold-
ugi námuhringur Anaconda og
systUrfélag hans Kennecott Sal-
es Corporation. Þessi félög
ráða ein yfir mestu auðlindum
Chile, kopamámum landsins,
sem eru einhverjar þær auð-
ugustu í heimi. Um þriðjungur
af öllum kunnum koparbirgð-
um heimsins eru í Chile og ár-
leg framleiðsla þar af þessum
dýrmæta og eftirsótta málmi
er um 600.000 lestjr. Nær öll
framleiðslan er flutt úr landi
og nemur hún um 70 prósent
af öllum útflutningi Chile. Af
því má ráða hversu gífurleg í-
tök hinir bandarísku auðhring-
ir hafa í chilensku atvinnulífi
og því auðskiljanlegur ótti
þeirra við hverja þá þjóðfé-
lagsbyltingu sem myndi hrófla
við þeim. Allende og flokkúr
landsmanna. 1 miðbiki lands-
ins, frjósamasta hluta þess, ni
stórjarðimar. haciendas, yfií
níu tiundu hluta alls ræktaðs
lands, þótt þær séu aðeins 7
prósent af jarðafjöldanum.
Blásnauðir og réttndalausir
le’guliðar, inquilinos, yrkja
þessar jarðir fyrir smánarlaun
sem nægja varla til að halda
í þeim líftórunni; 10—15 króna
dagkaup er algengt. Hinir for-
- ríku landsdrottnar eru flest'r
hverjir algerar afætur, sem
láta i sér á sama standa um
jarðir sínar, en eyða arðinuni
í vellystingar fjarri heima-
landinu: Chile sem þrátt fyrir
miklar óbyggð'r og feyðimerkur
gæti hæglega brauðfætt Öll
landsins börn verður að flytja
inn matvæli fyrir 40 miljónir
dollara árlega Þannig hefur á-
standið ver’ð í landinu að
heita má óbreytt öldum saman,
þótt ýms merki hafi verið um
að nýir tímar væru í nánd.
Einn gleggsti fyrirboðinn var
einmitt kosningaósigur íhalds-
aflanna í Curicó í marz s. 1.
Þá varð öllum Ijóst að for-
setakosningarnar nú í
haust kjmnu að valda tímamót-
um. Fylking hægriflokkanna
sém áttí að tryggja afturhald-
inu áframhöldandi völd riðlað-
ist. Frambjóðandi hennar,
Julio Duran úr Radikala flokkn-
um. afturkallaði framboð sitt,
Sigur Allende var ekkí lengur
aðeins sennilegur, heldur mátti
teljast nær viss. „Eins og nú
horfit”, sagði -frahska blaðið
„Le Mohde” eftir kosningam-
ar í Curicó, „eru líklegastir til
að taka við af Alessandri for-
séta þeir Eduardo Frei. leið-
togi Kristilega lýðraeðisflokks-
ins, og þó einkum Salvador
Myndin er af kopamámubænum É1 Xe níente í Ó’fliggins-héraði í Chile.
Salvador AUende
hans hafa ekki farið dult með
að það vakir einmitt fyrir þeim
að binda enda á yfirráð hinna
bandarísku auðhringa yfir chil-
ensku atvinnulífi, þjóðnýta
koparnámumar og aðrar eignír
útlendra áuðfélaga og tryggja
þannig Chilebúum sjálfum arð-
inn af auðlegð lands þeirra.
— Chilebúar geta átt bjarta
framtið fyrir sér, ef þeír fá
sjálfir að ráða og losna við
kverkatök hinna bandar. heims-
valdasinna. hefur Allende sagt.
Yj»n það eru ekki aðeins hinir
iL erlendu auðhringar sem
itaðð hafa Chilebúum fyrir
'fifum. Þar eins og annara
taðar í Suður-Ameríku hefur
'4meítn klíka auðkýfinga og
stórjarðeiger.da setið yfir hlut
Eduardo Frei
Allende, frambjóðandi FRAP”.
Og bandaríska vikublaðið
„Newsweek" komst þasníg að
prði 30. marz: „Miklar líkur
eru á að sósíalistar, studdir af
kommúnistum vinni kosning-
arnar í septémber og forseta-
efni þeirra. hinn ættstóri lækn-
ír Salvador Allende, hefur
skuldbundíð sig til að taka
eignarnámi , hinar bandarísku
kopamámur”. Þegar þannig
var komið lýstu foringjar aft-
urhaldsflokkanna og Frjáls-
lyndra yfir stuðnihgi sínum
við eina frambjóðandann sem
hugsanlegt var að gæti sigráð
Allende. Eduardo Frei, foringja
Kristílega flokksins Frei hafð:
einnig verið í framboði í kosn-
íngunum 1958, en þá orðið þríðji
í röðinni með mun minni fylgi
en þeir Alessandrí og Ailende.
Enda þótt flokkur hans hefði
unnið talsvert á þau sex ár
sem síðan eru líðin, hafði hann
ekki verið talinn líklegur til
sigurs. En öðru máli gegndi
þegar íhaldsflokkarnir hættu
við eigið framboð og foringjar
þeirra fóru ekki dult með það
að þeir myndu leggja honum
allt það lið sem þeir gætu til
að koma í veg fyrir sigur All-
ende. Radikali flokkurinn sem
hafði lagt íhaldsbandalaginu
til forsetaefnið Duran var hins
vegar ófús áð ganga í líð með
Kristilegum og stafaði það af
hefðbundnum fjandskap hans
, í garð iflerkavaldsins. Flokk-
urinn tók í þess Stað upp við- •
ræður við FRAP um kosninga-
samvinnu gegn fýrirheiti Um
ráðherraembætti í væntanlegri
stjóm AJlende. Þær viðræður
fóru út um þúfur og Duran
endumýjaði framboð sitt, en^.
nú aðeins á vegum síns eigin
flokks. Hægrimenn flokksins
eru þó líklegri til að styðja
Frei, þrátt fyrir þá óbeit Sem
þeir hafa á kírkju og klerk-
dómi. Duran mun hins vegar
fá atkvæði margra þeirra Radi-
kala sem hefðu kosið .Allende
ef hann hefði keppt einn um
forsetaembættið við Frei.
Kristilegi iýðræðisflokkurinn
hefur fyrst á seinni árum
látið að sér kveða í chilenskum
stjómmálum. Sé hann aðeins
dæmdur eftir stefnuskrá slnni
eða yfirlýsingum og loforðum
leiðtoganna. hlýtur hann að
teljast eindreginn vinstriflokk-
ur. I kosningaræðum sínum
vitnar Frei jafnt í de Gasperi,
helzta brautryðjanda i.inna
„kristilegu” flokka Vestur-
Evrópu eftir strið, og Aneur-
in Bevan, leiðtogi vinstrimanna
í brezka Verkamannaflokknum.
Hann talar gjaman um að
flokkur hans vilji koma á
„kristilegum sósíalisma”. Og
því nær sem leið kosningum
því róttækari varð Frei í ræð-
um sfnum, enda segja banda-
rísk blöð að baráttan standi
milli tveggja vinstrimanna
(„Time” 21. ágúst). Frei segír
það einnig markmið sitt að
koma á nýskipan landbúnað-
arins. skipta stórjörðunum og
efnema leigulíðaþrælkuniná,
bæta aðstöðu Verkalýðshreyf-
ingarinnar (flokkur Freis hef-
ur eins og bræðraflokkar hans
víða í Eviópu lagt mikla á-
herzlu á að n.á ítökum í verka-
lýðsféiögunum og orðið tölu-
vert ágengt), sýna hinum
bandarísku heimsvaldasinnum
í tvo heimana, taka upp stjórn-
málasamband og viðskipti við
sósíalistísku ríkin. að Kína
meðtöldu. Hann boðar „bylt-
ingu gegn heimsvaldasihnum,
aUðklíkunum og einokunarhring-
unum”. Hann gerði sér ferð til
Moskvu í fyrra (kom að vísu
einnig við í Bandaríkjunum.
Véstur-Þýzkalandi og Páfa-
garði) og lauk miklu lofsorði á
Sovétríkin við heimkomuna.
Það hefur seft sinn svip á
kosningabaráttuna að þeir All-
ende og Frei eru góðkunningj-
ar og hafa forðazt allar per-
sónulegar væringar.
Kristilegir hafa lagt meginá-
herzlu á það í kosninga-
baráttunni að þeim sé bezt
treystandi að hrinda í fram-
kvæmd þeim umbótum sem
bæði þeir og FRAP hafa lofað.
— Allende kann að vilja láta
gott af sér leiða, hefur Frei
sagt í hverri kosnihgaræðunni
af annarri, en kosningasigur
hans myndi ekki leiða til
neinna umbóta. Bandaríkin
myndu beita sér af alefli gegn
manni sem náð hefði kosningu
með stuðningi kommúnista,
afturhaldsöflin myndu fá her-
inn í lið með sér til að hindra
að Allende tæki við embætti.
Afleiðingln yrði sú að Chile
einangraðist á alþjóðavett-
Framhald á 7. síðu.
Flugsýn h.f. sími 18823
flugsköli
Kennsla fyrir einkaflugpróf — atvinnuflugpróf.
Kennsla I NÆTCRFLUGI
FFIRLANDSFLCGI
BLINDFLDGI.
Bókleg kennsla t'yrir atvinnuflugpróf byrjar 1 núvember
og er dagskóli. — Bókleg námskeið fyrir einkaflugpróf,
vor og haust.
FLUGSÝN h.f. sími 18823.
UPPBOÐ
sem auglýst var í 85., 87. og 89. tbl. Lögbirtingablaðsins
1964 á húseigninni nr. 10 við Smiðjustíg, hér í borg,
Þingl. eign Ragnars Halldórssonar o.fl. fér fram eftir
kröfu UhnSteins Beck hdl., til slita á sameign, á eigninni
sjálfri þriðjudaginn 8. september 1964, kl. 3.30 síðdegis.
borgarfógetaembættið í reykjavík.