Þjóðviljinn - 04.09.1964, Qupperneq 4
4 SIÐA
ÞIOÐVILIINN
Föstudagur 4. september 1964
Otgclandi: Sameinmgarflokkur alþýöu — Sóslalistaflokk-
urinn —
Ritstjórar: ívar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust 19.
Sími 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kl 90.00 á mánuði
/
Landsfundur hernáms-
andstæSinga
|Jm næstu helgi efna Samtök hernámsandstæð-
inga til landsfundar við Mývatn. Hafa samtök-
in efnt til funda víðsvegar um landið undanfarið,
þar sem kjörnir hafa verið fulltrúar til fundarins
og eru horfur á að fundarsókn verði góð hvaðan-
æva af landinu. Þessi ánægjulegi undirbúningur Qg
aukna starfsemi sam'takanna hefur ekki farið
fram hjá neinum, eins og sjá má af því að Morg-
unblaðið rauk upp með fúkyrðum s.l. þriðjudag
og sagði þar m.a. að „hin svokölluðu samtök her-
námsandstæðinga (væru) orðin einöngruð klíka,
sem enginn ábyrgur, hugsaodi maður tæki
mark á“.
— ■ —
■yiðbrögð Morgunblaðsins sanna þó einmitt hið
gagnstæða; í þeim endurspeglast hinn stöðugi
ótti hernámssinna við þann mikla hljómgrunn
sem málflutningur Samtaka heroámsandstæðinga
á með íslenzku þjóðinni. Morgunblaðið verður að
sætta sig við það, að samtökin sem það nefnir
„einangraða klíku“ eiga ötula fylgismenn í öllum
flokkum, Ajþýðubandalaginu, Þjóðvarnarflokkn-
um, Framsóknarflokknum og Sjálfs'fæðisflokknum
og Alþýðuflokknum. Samtök hemámsandstæð-
inga og stuðningsmenn þeirra' í öllum flokkum
hafa tekið afstöðu sem ábyrgir og hugsandi að-
ilar í hernámsmálunum. Slíkrar afstöðu er ekki
hægt að vænta af ritstjórum Morgunblaðsins, sem
í einu og öllu eru undirgefnar málpípur herfor-
ingja Atlanzhafsbandalagsins, og eru fúkyrði
þeirra í garð hernámsándstæðioga auðskilio af
þeirri ástæðu einni.
_ ■ —
pYrir nokkru komst einn af áköfustu fylgismönn-
um hernámsins og Atlanzhafsbandalagsins
svo að orði í Morgunblaðinu„ að hann væri fylgj-
andi Natósamtökunum vegna þess, að „sá félags-
skapur tryggir okkur aðild að því stríði, sem kynni
að reynast óumflýjanlegt“. Markmið Samtaka her-
námsandgtæðinga er hins vegar ekki aðeins að leit-
ast við að tryggja íslenzku þjóðinni öryggi og
Iff iafnt í stríði og friði með því að firra okkur að-
ild að hugsanlegu stríði, heldur einnig að leggja
fram okkar skerf á vettvangi heimsmálanna til
þess að koma í veg fyrir að þróun þeirra verði
sú, að stórveldi heimsins álíti styrjöld óumflýjan-
lega leið til að útkljá deilumál sín. Afnám her-
stöðva stórveldanna er tvímælalaust mikilvægur
áfangi á þeirri leið.
_ ■ —
pyrir þessum landsfundi hernámsandstæðinga
liggja mikilvæg verkefni varðandi sfarf og
skipulag samtakanna í framtíðinni. Hernámsand-
stæðingum var allt frá ^upphafi ljóst, að barátta
þeirra fyrir afnámi herstöðva á íslenzkri grund
og friðlvstn landi gæti orðið langvarandi En þeim
mun ákveðnari og einbeittari eru hernámsandstæð-
ingar í bpirri ákvörðun sinni að balda baráttunní
áfram unz sigur er unninn. — b.
!»■
\
HASKÖLABK5:
Sýn mér trú þína
•«*
Það er undarleg tilviljun,
að heilagur andi skuli jafnan
skipa prestum að sækja um
betra brauð, var einhvern-
tíma sagt. Til eru þó undan-
tekningar frá reglunni — en
að vísu örfáar. 1 þessári
mynd fær ungur prestpr af
fátæku fólki kominn svokall-
að „gott brauð” í borg á Eng-
landi. Naumast þarf að taka
það fram. að það er fyrir
misskilning og nafnarugling.
sem slíkt á sér stað.
Presturinn ungi er að því
leyti einstakur meðal kirkj-
unnar þjóna hvar sem er í
heiminum að trúa raunveru-
lega á guð. Og ekki nóg með
það: Hann er svo ósvífinn
að benda einni helztu yfir-
stéttarkellingu borgarinnar á
þau ummæli Drottins vors
Jesú Krists, að auðveldara
sé fyrir úlfalda að ganga
gegnum nálarauga, en fyrir
ríkan mann að ganga inn í
guðsriki. Kemur fyrir lítið,
þótt kollega hans, snilldarvel
leikinn af Cecil Parker, bendi
honum á, að „þetta útskýri
menn allt öðruvísi nú á dög-
um”. En það er eins og við
' manninn mælt: Frúin selur
eigur sínar og tekur að gefa
fátækum.
Allt lendir þetta að sjálf-
sögðu í ósköpum, hlutabréf í
helztu yerksmiðju borgarinn-
ar hríðfalla í verði, við gjald-
þroti liggur hjá kaupmönnum
og atvinnuleysi tekur að gera
vart við sig í bænum. Og þá
er ekki að sökum að spyrja;
Peter Seller .
presturinn, sem áður var ár
trúnaðargoð almennings ernú
hataður og hrakinn bókstaf-
lega talað út í hafsauga.
Myndin er þannig ágæt
lýsing á því, hve hlægilegt
fýrirbrigði kristindómurinn er
í kapítalísku þjóðfélagi. Helzt
má að henni finna, að hún
er óþarflega löng og niður-
lagið ódýrt í meira lagi. Á-
deilan er heldur aldrei bein-
skeytt, hvað þá bitur, en oft-
ast svona „smáhugguleg”, ef
svo mætti að orði komast.
Peter Sellers leikur prestinn
ungu frábærlega vel. Undirrit-
aður minnist þess ekki að
hafa séð jafn bamslegt sak-
leysi skína út úr nokkrum
reykvískum presti, og eru
þeir þó hreint ekki svo litlir
leikarar sumir hverjir. Aðrir
leikendur fara og ágætlega
með hlutverk sín.
Myndinni . fylgir íslenzkur
texti, þokkalegur í alla staði.
<»
<>
(»
J. Th. H.
Lóðum undir einbýlis- og rað
hús úthlutað íÁrbæjarh verfí
Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum, voru lagðar
fram á síðasta borgarráðsfundi tillögur lóðanefndar um
úthlutun byggingarlóða undir einbýlis- og raðhús í Ár-
bæjarhverfi- Var úthlutun þessi samþykkt í borgarráði
með 4 samhljóða atkvæðum fulltrúa íhalds og Fram-
sóknar.
Hér fer á eftir skrá yfir þá sem fengu lóðir á fram-
angreindu svæði.
HRAUNBÆR 1—7:
"'T? Átí JóSéfsáÖtt, tóllþj , Láttg-
holtsvegi 79. 3: Ólafur Gústafs-
son. múrari, Gufunesi, 5: Ingólf-
ur ' GöstáfSsott. húsaSm., Lang-
holtsvegi 79, 7: Magnús Ásgeirs-
son, verkamaður, Vesturgötu 24.
HRAUNBÆR 9—15:
9: ömólfur Valdimarsson,
bankaritari, Langholtsveg 23; 11:
Hugo Andreassen, skrifari, Lang-
holtsvegi 103, 13: Ólafur Þor-
steinsson, framkv.stj., Stóragerði
24, 15: Steingrímur Jónasson,
eftirlitsm. Sogavegi 206.
HRAUNBÆR 17--33:
17: Haraldur Haraldsson,
húsasmiður. Skipasundi 32, 19:
Jóhannes Pétursson, kennari,
Álfheimum 58. 21: Brynjólfur
Ámundason. Sólheimum 24, 23:
Karl Adoif Ágústsson verzlm.,
Baldursgötu 26, 25: Jóhann Emil
Bjömsson. framkv.stj.. Mávahlíð
13, 27: Stefán . Jónsson. múr-
ari, Langholtsveg 14, 29: Stef-
án Stefánsson. .Kleppsvegi 16,
31: Hólmsteinn Steingrímsson,
Hófgerði 11. Kópav., 33; Öskar
Ólafsson. framkv.stj. Háagerði
35.
HRAUNBÆR 47—53:
47: Guðmundur Jóhannsson.
húsam., Álfheimum 52. 49:
Einar M. Jóhannssoo, eftirlitsm.
Sólheimum 23, 51: Vigfús Þórð-
arson. Njálsgötu 35. 53: Ingimar
Haligrímsson, trésmiður. Háa-
leitisbraut 40.
HRAUNBÆR 43—45—55—57:
43: Einar Strand, verzl.m.,
Sörlaskjóli 3, 45: Halldór Kr.
Ingólfsson, húsasm., Blönduhlfð
27. 55: Jóhann E. Sigurjónsson,
prentari. Laugarásvegi 67. 57:
SigUrður Kristinsson, kennari,
Hitaveitut. 3. Smálöndum.
HRAUNBÆR 35—37—39—
41—57—61—63—65—67:
35: Sverrir Sveinsson. prentari,
Þingholtsstræti 23. 37: Viðar
Jónsson, vélvirki. Stóragerði 8,
39: Ámi Guðmundsson, verkam.,
Höfðaborg 10, 41: Boel Sylvia
Sigfúsdóttir. frú, Lokastíg 20,
57: Einar Ásgeirsmn stýrimaður,
Réttarholtsvegi 65. 61: Theodór
Óskarsson, vélvirki. Rauðalæk
71, 63: Sigurbjöm Guðjónsson,
húsasm.m., Langholtsvegi 87, 65:
Gísli Hafliðason. múrari, Heiðar-
gerði 62, 67: Svavar Markússon,
bankaritari, Austurbrún 4.
HRAUNBÆR 93—99:
93: Guðjón Ingimundars.. tré-
smiður. Þórsgötu 19, 95: Guð-
mundur Finnbogason, bifreiðastj.
Hofteigi 12, 97: Sverrir Ingólfs-
son, bifreiðastjóri, Vesturgötu 20,
99: Bjöm Ó. Pálsson, pípulagn-
ingamaður, Stórhólti 26.
HRAUNBÆR 69—79:
69: Erlendur Bjömsson, vél-
stjóri, Sólvallagötu 40, 71: Gunn-
ar Bjömsson, verkamaður, Sól-
vallagötu 40. 75: Skúli Einars-
son, Hátúni 3. 77: Ingibergur
Gestur Helgason. trésm.' Berg-
staðastræti 33, 79: Baldur Sveins-
son. húsasmiður, Ljósheimum 9.
HRAUNBÆR 81—83:
81: Ríkharður Pálsson, tannl.,
Hávallagötu 13,( 83: Guðmundur
Þ. Daníelsson, bakari. Hjalla-
vegi 46.
Gatnagerðargjald ákveðst kr.
42.00 pr. ma og áætiast alls kr.
29.000,00. Frestur til greiðslu
gatnagerðargjalds er til 1. okt.,
og fellur úthlutunin sjálfkrafa
úr gildi, hafi gjaldið þá ekki
verið greitt.
Borgarverkfræðingur setur alla
nánari skilmála þ.á.m. um af-
hendingar og byggingarfrest.
Mæliblöð verða afhent 2. des-
ember n.k.
GLÆSIBÆR:
2: Gunnar Jónsson, múrari.
Hrísateig 34. 4: Gísli Ólafsson,
bifreiðastjóri, Gnoðarvogi 16.
6: Magnús Andrésáon, bifreiða-
stjóri, Árbakka v/Rafstöð. 8:
Kristján Júlíusson. Hrísateig 13.
10: Pálmi G, Kristinsson, verka-
maður. Kálfakoti v/Laufásveg.
12: Sigurður Teitsson, stýrimað-
ur, Garðastræti 21. 14: Viðar
Óskarsson. jámsmiður. Skóla-
gerði 17. 16: Magnús Eggerts-
son, aðalvarðstjóri. Njálsgötu 92.
20: Vilhjálmur B, Vilhjálmsson,
símvirki, Grænhlíð 11. 1: Ei-
ríkur Svavar Eiríksson, flugum-
sjónarmaðUr. Brávallagötu 46.
3 Baldur Kristinsson. vélvirki.
Baldursgötu 21. 13: Allfuglabú
bakarameistara, sem erfðafes*o-
hafi. 15: Ragnar Þors'teinsson,
gjaldkeri, Hrísateigi 8. 17: Guð-
jón Reynisson, fulltrúi, Gnoðar-
vogi 24. 19: Sveinn Ingvarsson,
verzl.m.. Grænukinn 16.
ÞYKKVIBÆR:
4: Gestur Þorkelsson, húsa-
smiður, Kleppsvegi 58. 14: Sig-
rún Guðmundsdóttir, húsfrú, Ár-
bæjarbletti 54, sem erfðafestu-
hafi. 16: Petrína K. Jakobsson,
Borgarholtsbraut 24, Kópavogi.
18. Óskar Jóhannsson. málara-
meistari, , Meðalholti 7, sem
erfðafestuhafi að Árbæjarbletti
55. 3: Gyða ömólfsdóttir, hús-
frú, Ljósheimum 20, 5: Benedikt
Bjami Kristjánsson, bifreiða-
stjóri. Árbæjarbletti 58 sem
erfðafestuhafi. 9: Ólafur Geir
Sigurjónsson. bifreiðastjóri, Ár-
bæjarbletti 59, sem erfðáfestu-
hafi. 13: Magnús Jónsson, Ár-
bæjarbletti 60, sem erfðafestu-
hafi. 17: Marinó Guðjónsson,
trésmiður, Bergþórugötu 59 sem
erfðafestuhafi Árbæjarbletts 61.
19: Bjami Jón Ólafur Agústsson.
húsgagnasmiður. Bergþórugötu
59.
VORSABÆR:
4: Lárus Óskarsson, verkam.,
Holtsgötu 13. 6: Eyjólfur Jóns-
son, tannsmiður, Marargötu 7.
14: Jón Friðgeir Magnússon.
Laugamesvegi 84. 18: Pálmi
Sigurðsson, rafvirkjam., Segul-
/hæðum v/Rafstöð. 20: Theódór
Steinar Marinóson. bifreiðasm.,
Álfheimum 4fí. 7: Stefán Aðal-
björnsson, verkam., Árbæjar-
Framhald á 7. síðu.
Lögtaksúrskurður
Skv. kröfu bæjarritarans í Hafnarfirði, úrskurð-
ast hér með lögtak fyrir ógreiddum útsvörum og
aðstöðugjöldum til Hafnarfjarðarkaupstaðar álögð-
um árið 1964. Lögtök verða framkvæmd fyrir
g’jöldum þessum að liðnum átta dögum frá dag-
setningu úrskurðar þessa, ef ekki verða gerð skil
fyrir þann tíma.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, 3. sept. 1964.
Björn Sveinbjörnsson, settur.
Akurnesingar
Akraneskaupstað vantar mann til þess að taka
að sér sóthreinsun. ’ ,
Nánari upplýsingar veittar í skrifstofu bæjarins.
*
Bæjarstjórinn.
Starfsstúlkur óskast
Starfsstúlkur vantar i eldhús Landspítalans.
Upplýsingar gefur matráðskonan í síma 24166
tnilli klukkan 8 og Í4.
Skrifstofa ríkisspítalanna.