Þjóðviljinn - 09.09.1964, Page 5

Þjóðviljinn - 09.09.1964, Page 5
MÓÐVILJLNN SlÐA g Miðvikudagur 9, septerr.ber 1964 /?œða SVERRIS KRISTJÁNSSONAR á landsfundi Sam- faka hernámsandsfœðinga aS Skjólbrekku, um sl. helgi Landsfundur hernámsanö- stéeðinga, haldinn hjá Mývatni dagana 5.—6. sept. 1964 er skýrasta sönnun þess, að andstaðan gegn erlendri her- stöð á Islándi og aðild þess í Atlanzhafsbandalaginu er ekki hjöðnuð eða dofn- uð. öldur þessarar andstöðu eru meiri og djúpstæðari en svo, að á þær verði hastað með orðum. Samtök hernámsandstæðinga hafa vakið þá hreyfingu, sem ekki mun staðna fyrr en hlut- verki hennar og markmiði hef- ur verið náð: afnám her- stöðva í landinu og úrsögn Is- lands úr Atlanzhafsbandalag- inu. Baráttan fyrir þessu mark- miði hefur aldrei verið meiri eða nauðsynlegri en nú, þeg- ar margt bendir til þess, að sú herraþjóð. sem hér hefur herstöð, sé farin að búast um til langdva&r í iandinu. Hið svonefnda sjónvarpsmál. sem vakið hefur miklar deil- ur og mótmæli með þjóðinni, er dæmi um það, að Banda- ríkin telja sig eiga langa dvö! í vændum á Islandi. 1 þjónk- un sinni við herstjórnina hef- ur íslenzka ríkisstjórnin geng- ið lengra en sæmilegt er ríki, sem kallar sig frjálst og full- valda. Án þess að leita sam- þykkis Alþingis hefur hún breytt lögum um útvarpsrekst- ur og leyft bandarísku her- stöðinni á Keflavíkurflugvelii að reka sjónvarp, er tekur til þeirra hluta Islands, sem byggðir ei-u meirihluta þjóðar- innar. Með þessu hætti hefur erlendu stórveldi og herveldi verið gefinn einkaréttur til að beina áróðri sínum, pólitískum og menningarlegum, að f jölmenn ustu byggðum íslands og gera þær ánauðugar bandarískum áhrifum. Af þessu hefur skap- azt menningarlegur undir- lægjuháttur hjá fjölda Islend- inga og fullkomið sinnuleysi gagnvart hernáminu. Það hef- ur jafnvel í opinberum um- ræðum bólað á þeirri röksemd til framdráttar hernáminu. að afnám herstöðvarinnar mundi gera sjónvarpsnotendum við- tæki þeirra ónýt og baka þeim fjárhagslegt tjón. Svo djúpt hafa margir Islendingar sokk- ið eftir 13 ára hernám lands-, ins. Það er því full ástæða til að stinga við fótum og spyrja: Hvar stöndum vér nú eftir þetta hernám og aðild að erlendu hernaðarbandalagi? Það er fljótsagt, að íslenzka þjóðin er stödd í bráðri lífs- hættu af herstöð Bandarilíj- anna hér á landi. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að Bandaríkin standa i því nótt sem nýtan dag að verja það, sem þau kalla „frelsi". 1 Suðaustúrasíu er lítið ríki, sem heitir Suður- Víetnam. Þar hafa Bandarík- in verið að verja frelsið í tíu ár og eytt í það stórfé. Árangur þessarar frelsisbar- áttu er orðinn algert stjórn- leysi, sem meðal annars má marka af því. að samkvæmt nýkomnum fréttum bandarísk- um að uppruna. hafa fram- haldsskólanemendur orðið að taka í sínar hendur stjórn og löggæzlu í sumum borgum og héruðum landsins. Þessi furðu- lega frelsisbarátta Bandaríkj- anna austur í Asíu virðist við fyrstu sýn vera algert einkamál þeirra. En svo er þó ekki. Þessi frelsisbarátta Bandaríkjanna í Asíu heyrir einnig undir íslenzka utanrík- isráðuneytið. Þegar forseti Bandaríkjanna skipaði flota- flugvélum sínum að varpa sprengjum á borgir og stöðv- ar í Norður-Víetnam var þessi frelsisbarátta orðin málefn: Atlanzhafsbandalagsins og bandarískra herstöðva um all- an heim, og enn á ný var heimsfriðurinn staddur á yztu nöf eftir árásirnar á annað Asíuríki, en Island er í At- lanzhafsbandalaginu og Banda- ríkin hafa herstöð á Keflavík- urflugvelli. Þessi frels'sbarátta er því ekkert einkamál fá- tækra hrísgrjónabænda og Bandaríkjanna. heldur er hún til að m'ynda einnig orðin mál, sem íslenzka bændur á Suð- urnesjum og víðar skiptir miklu, því að hin bandaríska herstöð er handan við túnfót- inn hjá þeim og Island er i Atlanzhafsbandalagnu. Þetta samhengi milli Atlanzhafs- bandalagsins og frelsisbaráttu Bandaríkjanna í Asiu kom skýrt í ljós, er einn af fremstu stjórnmálamönnum þeirra Henry Cabot Lodge, var send- ur til Evrópu. til vinaland- aiflia í bandalaginu, til að fá hjá þeim styrk og liðve:zlu, Reyndar sagðist hinn banda- ríski sendiboði vera einkum kominn til að biðja um sið- ferðisstyrk. Þá mun án efa ekki standa á framlagi utan- ríkisráðherra Islands. því af honum á hann nóg. Það duldist engum, að hinar . vopnuðu árásir á Norður-Viet- nam voru í nánum tengslum við þá kosningabaráttu, sem nú er háð í Bandaríkjunum um forsetaembættið. Andstæðingur Johnsons fofseta. Barry Gold- water, hefur krafizt þess að varpað yrði .,litlum“ kjarn- orkusprengjum á hina þrjózku- fullu hrísgrjónabændur Asíu svo hægt væri að koma frels- inu inn í hausinn á þeim Hann vill ekki aðeins veifa kjarnorkusprengjum. Hann vill kasta þeim til þess að leysa vandamál Bandarikjanna bæði fljótt og vél. Því verr sem Bndaríkjastjórn gengur i frelsisbaráttunni í Suður-Víet- nam, því me'ri verða sigur- vonir Goldwaters í foi'seta- kosningunum. I fyrsta skipti í sögu Bandaríkjanna getur svo farið. að í foi’setastólinn setjist maður, sem hefur að baki sér öll öfl fasisma og kynþáttakúgunar og vílar ekki fyrir sér að beita kjarnorku- sprengjum gegn skæruliðum hrísgrjónabænda, sem eiga sér ekki annað innlendra vopna en bambusspjót og hnífa. Slíkur maður yrði þá æðsti yfirmaður herstöðvarinnar á Keflavíkur- flugvelli, og utanríkisráðherra vor yrði að gefa honum dálítið inn af íslenzkum siðferðis- styrk, ef honum lægi á. Þeg- ar Johnson forseti lét varpa sprengjum yfir fólkið í Norð- ur-Víetnam. þá var hann fyrst og fremst að reyna að sann- færa bandaríska . k.iósendur um það, að hann væri ekki síður hugrökk hetja en Barry Gold- water. Heimsfriðurinn hékk að vísu á bláþræði meðan sprengj- unum rigndi yfir hrisgrjóna • bændur Asíu — en hvað um það? Kjósendum Johnsons for- seta fjölgaði um nokkra aí hundraði — og til þess var leikurnn gerður. Þegar við Islendingar spyrj- Þrír fulltrúanna á landsfundinum, talið frá vinstri: Helga Kress, Ásgerður Jónsdóttir og Sverrir Kistjánsson sagnfræðingur. — (Ljósm. Þjóðv. J. Th. H.). um: Hvar erum vér staddir eftir 13 ára erlenda hersetu og 16 ára aðild að stríðsfélagi Atlanzhafsbandalagsins? — þá verður svarið: Vér erum í bráðum háska staddir, og það er þjóðinni lífsnauðsyn að forða sér úr þessum háska. Eigum vér kost á að komast undan? Já! Islenzka þjóðin verður í fyrsta lagi að gera sér ljóst. að hún vilji ekki eiga neina aðild að einkaslagsmálum Bandaríkjanna úti um allar jarðir. I annan stað verður hún að gera sér ljóst, að hún vilii ekki éí'ga 'örlög síh undir úr- slitum forsetakosninga eða annarra kosninga 1 Bandaríkj- unum, sem eru einnig einka- mál þeirra. En vilji hún þetta hvorttveggja, þá er henni ekki annar kostur gefinn en knýja pólitíska valdhafa sína til þess að segja upp hersetunni og aðild að Atlanzhafsbanda- laginu. Hvenær sem er getur ríkisstjórnin í rauninni sagt upp herverndarsamningnum, og sáttmáli Atlanzhafsbandalags- ins rennur út árið 1969. Eru nú raunar nokkur lík- indi til. að ríkisstjórnin taki það upp hjá sjálfri sér að létta af þjóð'nni hersetunni eða sýni sig líklega til að segja upp aðild að Atlanzhafs- bandalaginu? Því miður eru litl- ar eða engar líkur til þess. En íslenzka þjóðin getur gert eitt- Hún getur hrætt ríkisstjórnina til að segja upp hervemdar- samningnum og að'ld að At- lanzhafsbandalaginu. Því að árið 1967 eru kosningar til Ai- þingis — og þær kcsningar mun ríkisstjórnin óttast meir en venjulega. Frá þessari stundu og árin hin næstu munu hernámsand- stæðingar fara sem eldur um landið og vekja þjóðina af hin- um pólitíska dásvefni, sem hún hefur legið í til þessa. Ef íslenzka þjóðin metur líf sitt og sjálfstæði nokkurs. þá verður hún að sýna þingfull- trúum sinum meira aðhald en Framhald á 7. síðu. jiiiiíiiiilll 59. DAGUR. En er menn höfðu mjög út höggvið ísinn þá hljóp maður út eftir ísnum þar til er höggva skyldi og lét síðan sem óð- ur væri og galinn að íshögginu. Þá mælti maður: ,,Nú er enn sem oftar að enginn er jafnliðgóður hvar sem hann gengur til sem hann Hallur Koðráðsbani. Sjá nú hversu hann hegg- ur ísinn!“ En maður sá var á skipi Magnúsar er Þórmóður hét Eindriðason; en er hann heyrði nefndan Koðráðsbana, þá hljóp hann að Halli og hjó hann banahögg. Koðráð var Guðmundarsoh. Eyjólfssonar, en Valgerður var systir Guð- mundar, mýðii Jórunnar, móður Þormóós. Þo.rmóður var vet- urgamall, þá er Koðráður var veginn og hafði hann aldrei séð Hall Ótryggsson fyrr en þá. 1 / Þá var og ísinn höggvinn i vatnið og lagði Magnús sitt skip út í vatnið og tók þegar til segls og sigldi vestur yfir vatnið, en konungs skip lá innst í vökinni og komst hann seinast út. Hallur hafði verið í sveit konungs og honum all- kær og var hann hinn reiðasti. Konungur kom síðastur til hafnar. Hafði Magnús þá skotið vegandanum í skóg og bauð boð fyrir hann, en við sjálft var að konungur mundi ganga að þeim Magnúsi áður en vinir þeirra komu og sættu þá. Vetur þennan fór Haraldur konungur upp á Raumaríki og hafði lið mikið. Bar hann sakir á hendur bændum, þær að þeir hefðu haldið fyrir honum skyldum og sköttum en eflt fjandmenn hans til ófriðar við hann. Hann lét taka bændur, hamla suma, suma drepa en marga ræna aleigunni. Þeir flýðu er því komu við. All víða lét hann brenna héruðin og gerði aleyðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.