Þjóðviljinn - 12.09.1964, Qupperneq 1
Laugardagur 12. september 1964 — 29. árgangur — 206. tölublað.
GERIÐ
SKIL
★I i gær lukum viö viö að
senda út 3. flokk happ-
drættis - Þjóðviljans og
strax erum við farin að
fá skil frá þó nokkrum
fjölda manna, er fengið
hafa senda miða; er það
aðallega úr Reykjavík og
er það að vonum því tæp-
lega er hægt að búast við
að miðamir séu komnir
til allra enn úti á landi,
en við vonum að þeir
bregði einnig fljótt við
og sendi okkur skil við
fyrsta tækifæri.
★ I dag höfum við opið milli
kl. 9—12 f.h. að Týsgötu
3 og eru það vinsamleg
tilmæli að sem allra
flestir líti inn til okkar og
geri upp andvirði þeirra
miða sem þeir hafa feng-
ið senda. Einnig er hægt
að póstsenda okkur and-
virði þeirra. Utanáskrift
okkar er Happdrætti Þjóð-
Týsgata 3.
<• viljans Týs
i*1 Við viljum
viljum vekja athygli
allra þátttakenda á því
að þetta happdrætti okk-
ar er nokkurskonar
skyndihappdrætti því að-
eins 24 dagar eru þar til
dregið verður þannig að
ailt verður að gerast í
miklu skyndi. Léttið und-
ir með okkur og hjálpið
til að Ijúka við hæðina á
Skólavörðustíg 19.
\ Opið kl. 9-12
70 skip með nær 36
þás. mái og tunnur
í fyrrinótt var allgóð síldveiði um 70 mílur austsuð-
austur af Dalatanga og fengu 70 skip þar samtals 35.830
mál og tunnur. Var síldin allmisjöfn. Sum skipin voru
með ágæta síld en önnur lélega en allt var sett í söltun
sem hægt var.
<$>
Þegar Þjóðviljinn átti tal við
síldarleitina á Dalatanga um kl.
10.30 í gærkvöld voru skipin að
veiðum á þessum sömu slóðum
en engar fréttir höfðu borízt um
afla. Gott veður var á miðun-
um en talsverð kvika.
Aðeins sex skip fengu 1000
tunnur og þar yfir í fyrrinótt en
hin voru með frá 250 og upp í
500 til 600 mál og tunnur. Þau
skip sem fengu 1000 tunnur og
þar yfir voru: Sæhrímnir 1600
tunnur, Ámi Magnússon 1400,
Jón Kjartansson 1200, Elliði 1000
og Hrafn Sveinbjamarson 1000
tunnur.
Ægir er nú að leita síldar á
miðunum út af Langanesi en sú
leit ,hefur engan árangur borið
til þessa. Annars virðist næg
síld vera á miðunum en hins
vegar hefur veður hamlað veiði
það sem af er þessari viku að
bessum eina sólarhring undan-
skildum.
Enn halda skipin þó áfram að
bíða eftir síldínni og sýna efcki
á sér neitt fararsnið.
Banaslys á
Akureyri
Klukkan sjö í gærkvöld varð
eldri kona fyrir strætisvagni á
götu á Akureyri. Féll hún í göt-
una og hlaut slæmt höfuðkúpu-
brot.
Hún var þegar flutt á sjúkra-
hús og lézt þar skömmu síðar.
Slysið varð á gatnamótum
Strandgötu og Norðurgötu.
Lögreglan á Akureyri vildi
ekki gefa upp nafn konunnar
þar sem hún á marga aðstand-
endur búsetta víða á landinu.
Þessi mynd er tekin suður í Kópavogi í gær við lokun kjörbúðarvagnsins og var hann þá stadd-
ur í Iloltagerði. Hér eru þrír lögregluþjónar úr Kópavogi að ræða við Sigurð Baldursson, lögfræð-
ing KRON og Ingólf Ólafsson, kaupfélagsstjóra. (Ljósm. Þjóðv. G.M.)
Sverfur til stáls í Kópavogi:
<s^-
Kjörbúðarvagni KRON
lokað með fógetavaldi
® Klukkan þrjú í gærdag var kjörbúðarvagni KRON. í Kópavogi lokað
með fógetavaldi og framkvæmdu hana þrír lögregluþjónar í fullum emb-
ættisskrúða með skjal upp á vasann frá bæjarfógeta.
B8 Sala var í fullum gangi og var vagninn staðsettur þá stundina í Holtagerði. Var
bílnum síðan ekið að Kronbúðinni við Álfhólsvég 32 og hurðum skellt í lás.
■ Þessi kjörbúðarvagn er þar með hættur starfsemi sinni.
■ Hinsvegar vekur það furðu, að kjörbúðarvagnar í Silfurtúni fá eftir sem áður að
halda áfram starfsemi sinni.
Fréttustofu Ríkis-
átvurpsins vítt
B Landsfundur Samtaka hemámsandstæðinga sem hald-
inn var í Skjólbrekku í Mývatnssveit 5.—6. þ.m. sam-
þykkti samhljóða eftirfarandi vítur á fréttastofu Ríkis-
útvarpsins fyrir brot á starfsreglum hennar er hún neit-
aði að birta samþykkt samtakanna í sumar:
Landsfundur hemámsandstæð-
inga haldinn í Skjólbrekku í
Mývatnssveit, dagana 5. og 6.
september 1964. samþykkir eft-
irfarandi.
Fundurinn telur, að frétta-
stofa Ríkisútvarpsins hafi brotið
starfsreglur þess, er hún synj-
aSi á þessu sumri um frásögn
af samþykkt hernámsandstæð-
inga um þá auknu hættu af
hemáminu, sem stafar af alvar-
legri stjórnmálaþróun í Banda-
ríkjunum. Er þetta brot bví
augljósara sem um sama leyti
var lýst í fréttum nýgeVðum
Minnisblöð Togliattis,
síðari hluti — Sjá 2.
síðu.
samþykktum tveggja stjórn-
málaflokka um skattamál.
Urskurður dómsmálaráðuneyt-
isins um lokun vagnsins féll í
fyrradag og er þar fallist á túlk-
un bæjarfógetans í Kópavogi á
þrettándu grein lögregtusam-
þykktar, en samkvæmt þeirri
grein heimilar bæjarfógeti ekki
rekstur kjörbúðarvagna í Kópa-
vogi.
Þrír lögreglumenn héldu síð-
an á vettvang í gærdag og
hremmdu bílinn við sölu í Holta-
gerði og tóku hann úr umferð.
Þeir höföu skjal meðferðis upp
á vasann með nákvæmum leið-
beiningum frá bæjarfógetá um
töku vagnsins.
Þannig var einn lögregluþjón-
anna vopnaður myndavél og tók
myndir af vagninum á sölustað
bæði innan og utan.
Síðan var salan í vagninum
stöðvuð með þessum hætti.
Verzlunarstjóra gefinn kostur á
Enn var ráðist á
konu í fyrrakvöld
Laust fyrir miðnætti í fyrri-
nótt kom kona á lögreglustöðina
og kærði yfir því að maður sem
hún tilnefndi hefði ráðist á sig.
Átti það sér stað í íbúð hennar
við Laugaveg en hún slapp frá
honum. Er Þjóðviljinn átti tal
við’ rannsóknarlögregluna s.d. í
gær varðist hún allra frétta af
þessu máli en rannsókn stóð yfir.
því að láta viðskiptamenn fara
út úr bifreiðinni eftir að þeir
höfðu gert upp viðskipti sín við
kassann og nýjum viðskipta-
mönnum ekki hleypt inn.
Ef verzlunarstjórinn yrði með
eitthvert múður eða húsmæður
gengu eftir sem áður inn í vagn-
inn til viðskipta, þá skyldi
samkvæmt þessum fyrirmælum
hindra slíkt með valdi.
Síðan skyldi flytja bifreiðina
með valdi á lóð kaupfélagsins
að Álfhólsvegi 32.
AUt gekk þetta snurðulaust,
samkvæmt þessum fyrirmælum.
Blaðburður
Enn vantar fólk til blað-
burðar í eftirtalin hverfi:
TEIGAR
MELA
SKJÓL
HJARÐARHAGA
KVISTHAGA
GRUNNA
BRtJNIR
SOGAMÝRI
SKÚLAGATA
Talið við afgreiðsluna
HOMMI
sími 17-560.
Á 10. síðu eru stutt viðtöl við
málsaðila í tilefni af lokun
vagnsins.
-r
Utför forsetafrúarinnar verour gero
frá dómkirkjunni kl. 14 á þriðjudag
■ í gær barst Þjóðviljanum eftirfarandi fréttatilkynning frá forsætisráðuneytinu um út-
för Dóru Þórhallsdóttur forsetafrúar sem andaðist sl. fimmtudag í Landsspítalanum:
B Útför forsetafrúarinnar fer fram á vegum ríkisins. í samráði við herra for-
setann og aðra vandamenn Dóru Þórhallsdóttur, forsetafrúar, hefur verið ákveð-
ið að útförin fari fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 15. septem-
ber, kl. 14. Minningarathöfn fer fram í Bessastaðakirkju kl. 10 árdegis sama dag.
B Útvarpað verður frá athöfninni í Dómkirkjunni.
Forsætisráðherra-
hjánin boðin til
fsrael í nóvember
í gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandi f réttati 1 kynning frá
forsætisráðuneytinu:
Þegar forsætisráðherra Israels,
David Ben-Gurion. og frú hans
voru í opinberri heimsókn á Is-
landi árið 1962, bauð hann for-
sætisráðherra Islands Ölafi Thors
og frú hans í opinbera heim-
sókn til Israels. Forsætisráð-
herrahjónin höfðu þegið boðið,
en eigi gat orðið af förinni.
Nú hefur forsætisráðherra Is-
raels, Levi Eshkol, endurnýjað
boðið til forsætisráðherra Is-
lands dr. Bjama Benediktssonar
og frúar hans um að koma í op-
inbera heimsókn til ísrael dag-
ana 1.—9. nóvember n.k. og
hafa þau þegið boðið.
13.
GREININ
Mönnum til fróðleiks
birtum við hér á eftir hina
umdeildu 13. grein lög-
reglusamþykktarinnar í
Kópavogi sem stuðst var
við í banninu á rekstri
kjörbúðarvagns KRON:
,.Enga atvinnu má reka
á almannafæri, þar sem
það tálmar umferðinni. Ut-
an sölubuða er sala á hvers
konar varningi bönnuð,
með þeim undanþágum,
sem taldar eru í þessari
grein.
Islenzkar afurðir, aðrar
en kjöt, fisk. mjólk og
mjólkurafurðir, getur bæj-
arráð, að fengnu áliti heil-
brigðisnefndar, heimilað að
selja á torgúm og öðrum
stöðum, enda séu fyrirmæli
um verzlunarleyfi og önn-
ur ákvæði laga ekki því til
fyrirstöðu, að slík leyfi séu
veitt. Skal leyfi bæjarráðs
bundið við ákveðnar teg-
undir afurða. og er því
heimilt, að setja fyrir leyf-
inu þau skilyrði, er það
telur nauðsynleg vegna
hreinlætis og annars.
Um sölu á kjöti og fiski,
og mjólkurafurðum, eru
sérstakar reglur í heilbrigð-
issamþykkt.
Blöð og bæklinga er
heimilt að selja á almanna-
færi. Mcð leyfi lögreglu-
stjóra má selja á almanna-
færi aðgöngumiða að úti-
samkomum, dagskrár,
merki og annað þessu skylt
að dómi lögreglustjóra.
*
Bannað er sölumönnum
að gera vart við sig með
ópum, köllum eða söng frá
náttmálum til dagmála.
(Sbr. 3. grein).”
USTASAFN ASÍ
KAUPIR B LÍDÓ
I gær birtist í Alþýðublað-
inu óstaðfest frétt þess efn-
is að Listasafn Alþýðusam-
bands íslands hefði hug á að
festa kaup á samkomuhús-
inu Lido í Reykjavík, sem
safnhúci. Gamkvæmt upp-
lýsingum sem Þ'jóðviljinn
aflaði sér í gær mun ekkert
hæft í þessari flugufregn
Alþýðublaðsins.
Listasafn ASl er sem kunnugt
er sjálfseignarstofnun, og er
Hannibal Valdimarsson forseti
ÁSÍ formaður stjómar safnsins.
Hann var ekki í bænum í gær,
en Þjóðviljinn hafði tal af ein-
um meðlimi stjórnarinnar og bar
hann þá frétt eindregið til baka,
aC komið hefði til mála að
kaupa Lido sem listasafhshús.
Eins og kunnugt er, var á
sínum tíma nokkuð um það rætt
að reisa listasafnshús fyrir safn-
ið í Kópavogi, en endanleg á-
kvörðun hefur þó ekki verið tek-
in þar að lútandi ennþá.
4
i