Þjóðviljinn - 12.09.1964, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 12.09.1964, Blaðsíða 8
2 SlÐA ÞJðÐVILIINN Laugardagur 12. september 1964 ég séð þessa konu gera þessa hversdagslegu, venjulegu, hégóm- legu, átakanlegu, kvenlegu at- höfn. Hversu margar ferðir, lengri eða skemmri, sælar eða vansælar, hafa byrjað með þessu lága, þurra, skrjáfa.ndi hljóði. — Jack, byrjaði hún; svo þagnaði hún. — Já? — Veiztu hvers vegna ég kom eiginlega til Rómar? — Ef þú ætlar að segja að þú hafir eiginlega komið til að hitta mig, sagði Jack, þá trúi ég þér ekki. — Nei, ekki ætlaði ég að segja það. Ég kom til að hitta Maurice Delaney. Eins og ég var búin að segja þér. Hún yppti öxlum óþolinmóðlega. Ef þeir hleypa mér þá nokkurn tíma inn til hams. Veiztu af hverju ég er komin til að heim- sækja Maurice? Hún beið and- artak, en Jack sagði ekkert. Ég er komin til að heimsækja hann, vegna þess að hann er sá karl- maður af öllum þeim sem ég hef sofið hjá, sem hefur veitt mér mesta fullnægingu. Og mér datt í hug að honum þætti kannski vænt um að heyra það núna, þegar hann væri að deyja. — Það er ég viss um að hon- um þykir, sagði Jack þurrlega. — Þú veizt hve ást var mér mikils virði.. . Kynlíf, ef þú vilt það heldur... ■ — Var? — Var. Ég uppgötvaði að það var þýðingarmest af öllu. Mið- depill lífs mins. Og ef karlmað- ur gefur svo ... ■ — Ég þarf engin smáatriði, sagði Jack. — Þú ert ekki reiður yfir því að ég skyldi segja þér þetta, eða hvað? — Nei, sagði Jack. Það var næstum satt. — Nú finnst mér einhvern veginn sem ég geti sagt allt við þig, sagði hún. Og sagt þér frá öllu. — Skilnaður okkar, sagði Jack léttum'rómi, vegna þess að hann vildi ekki að hún segði meira, hefur ekki verið til einskis. — Láttu þér þvkja vænt um mig, Jack, hvislaði hún. Höfuð hennar var alveg niðri í krag- HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðslu og snyrtistofu STEINU og DÓDÓ Laugavegi 18. III. h (lyftaj — SfMI 2 46 16 P E R M A Oarðsenda 21. — SlMIr 33 9 68 Hárgreiðshj og snyrtistofa.. D ö M U R ! Hárgreiðsla við allra hæfi — TJARNARSTOFAN. — Tjamar- götu 10 — V on ar stræti sm egin — SÍMI: 14 6 62 HARGREIÐSLUSTOFA AUSTURBÆJAR — (Maria Guðmundsdóttir) Laugavegi 13. — StMI: 14656 — Nuddstofa á sama stað. anum og röddin var mjóróma og biðjandi. — Gerðu það fyrir mig að láta þér þykja væint um mig. ’ Hann þagði. — Við sjáumst aftur, er það ekki Jack? sagði hún. — Áður en ég fer frá Rómarborg. — Auðvitað, sagði hann og laug. 24 f litla, ruslaralega herberginu á fjórðu hæð unnu Bresach og Jack allan daginn, gengu frá öllum þeim breytingum og við- bótum og úrfellingum, sem þeir höfðu tekið ákvðrðun um á veitingahúsinu kvöldið áður í kvikmynd Delaneys. Þeir unnu saman með hraða og góðum árangri, skildu hvor annan án margra orða óg það var engu líkara en þeir hefðu ótal sinn- um áður unnið að sams konar verkefnum. Hilda, ritari Delan- eys, sem Jack hafði kallað á til aðstoðar, hafði hraðritað allt niður, og þegar klukkan var orðin sex og þreytan neyddi þá til að taka sér smáhvíld, var hún komin með stóran hlaða af blöðum sem hún fór með heim til að hreinrita. Þegar hún var farin, þáði Jack kaffibolla sem Max hafði búið til í kyrrþey meðan hann beið álengdar. Jack dreypti þakksamlega á kaffinu, hallaði sér afturábak i stólnum og hugs- aði með ánægju um það sem þeir höfðu verið að gera. — Ég er ofurölvi eða þjáist af losti, sagði hann, en ég held að þetta endi með því að þetta verði Ijðmandi kvikmynd. Bresach var líka að drekka kaffi úr hinum bollanum á heimilinu og hann umlaði: — Gættu þín Andrus. Varaðu þig á óskhyggjunni. ■ — Þetta er ekki óskhyggja, sagði Jack. — Ég er eins eld- klár í kollinum og ég get frek- ast verið. Ég endurtek það — ég held að þetta verði ljómandi kvikmynd. — Manni verður ekki flökurt af henni — svo langt get ég gengið. Jack lagði frá sér bollann og reis á fætur og teygði sig. — Ágætt. Ljómandi kvikmynd sem manni verður ekki flökurt af. — Hvemig heldurðu að Delan- ey taki þessu? spurði Bresach. — Hann þakkar okkur fyrir að hafa bjargað Mfi sínu. — Ertu nú ekki svolitið barna- legur? — Nú skal ég segja þér hvað ég held, sagði Jack. — Ef hann væri á frískum fótum, myndi hann kannski mótmæla tölu- verðu af því sem við erum að gera. Ekki öllu saman, en tölu- verðu. En á þennan hátt fær hann að sjá þetta þegar allt er tilbúið. Hvað svo sem þú heldyr um hann, þá er hann enginn asni, og þótt hann striki kannski eitthvað út og taki upp eitt- hvað af því gamla, þá mun hann áreiðanlega geta séð að kvik- myndin er miklu betri. — Tja, sagði Bresach. Þú þekkir hann auðvitað betur en ég. i — Já, það geri ég, sagði Jack. Eigum við að halda áfram í kvöld? Ég get komið aftur um níuleytið. — Tja. Það varð undarlega hljótt í herberginu og Bresach og Max litu hvor á annan. — Hvað er að? spurði Jack. — Það er ekkert að, sagði Bresaeh. Það er bara það, að Holt er búinn að bjóða mér að borða. Hann bað mig að bjóða þér líka. Og Max lika. Ég held hann fái samvizkubit ef hann borgar ekki matinn fyrir tuttugu manns að minnsta kosti á hverju kvöldi. — Hvenær hittirðu Holt? spurði Jack. Hann hafði forðazt að minnast á fyTirhuguð við- skipti Holts og Bresach og verið feginn því að Bresach minntist ekki á neitt heldur. Einhvem tíma yrði hann að taka ákvörð- utn, en harm vildi helzt bíða eins lengi og nnnt væri, þangað til 68 önnur vandamál hefðu verið leyst. — Ég hitti hann í morgun, sagði Bresach. í morgunkaffi. — Hvað sagði hann? —* Hann kom með mjög höfð- inglegt boð, sagði Max í skyndi. — Hann er mikill höfðingi, sagði Jack. Hvað sagði hann? — Svona nokkurn veginn það sama og hann sagði við þig í gærkvöldi, sagði Bresach. X doll- arar fyrir söguna og vikukaup fyrir að vinna með Delaney þegar hann kemur út af spítal- anum og verður nógu hress til að ganga frá handritinu og kvik- mynda það. — X dollarar, sagði Max. Hann baðaði út höndunum í æsingi. Af hverju segirðu hon- um það ekki? Fimmtán þúsund dollarar? Það er stórfé. — Þú gleymir því, Max, sagði Bresach og brosti dálítið spotzk- ur til vinarins, að ég er sonur ríks foður og hef fyrirlitningu á peningum. — Ég veit ekki hvað faðir þlnn er ríkur, hrópaði Max. En þú hefur ekki peninga til að borða þrisvar á dag, og það veiztu vel. — Vertu rólegur, Max, bara rólegur, Bresach klappaði Max hughreystandi á herðarnar. Það er enginn að segja að ég af- þakki þessa peninga. — Hvað- sagðirðu við Holt? spurði Jack. — Ég sagðist fyrst ætla að tala við þig, sagði Bresach. Ég sagðist treysta þér. Ekki gagn- vart kvenfólki... Hann brosti kaldhæðnislega. En í svona mál- um. Hann sagði að þú gengir í félagsskap við hann Oig Delaney sem framkvæmdastjóri... — Það er ekki afráðið enn, sagði Jack. — I gærkvöldi, sagði Bresach, sagðirðu, að þú vildir að svo stöddu ekki ræða þetta. Hvað segirðu um það núna? Jack gekk að glugganum og sneri baki inn í herbergið og horfði á skökk þökin á bygging- unum sem sneru að portinu og upplýsta eldhúsglugga þar sem sást í konur að matbýa. Hann hugsaði um Delaney sem lá í sjúkrastofu sinni og var einmitt nú að ráðgera hvemig hann ætl- aði að gera kvikmyndina eftir handriti Bresachs. Hann mundi eftir spenningi og bjartsýni Del- aneys og hann mundi hve hann átti Delaney mikið að þakka. En hann vissi líka að hann þurfti nú að gera upp við sig hversu mikið hann átti Bresach að þakka. Þrátt fyrir allan ofsa sinn og sína miklu hæfileika, var Bresach líka mjög viðkvæm- ur og gæti hæglega orðið fyrir hnjaski. Kannski brotnað. Ef þetta fyrsta tækifæri færi for- görðum, ef Delaney tileinkaði sér verk hans, umbreytti því, fyllti það , fídusum og krum- sprangi og allri þeirri tilfinn- ingavellu sem hafði þrúgað myndir hans síðustu . tíu árin, var ekki gott að vita hvernig það færi með Bresach. Eða hvernig það færi með söguna sjálfa, sem var byggð upp á fallegan og látlausan hátt og myndi spillast og eyðileggjast ef hún yrði tekin skökkum tökum. Þriðja skyldan. Gagnvart tvö hundruð síðum af illa vélrituð- um blöðum. Og Sam Holt — hvað skuldaði hann Sam Holt? — Herra Andrus, heyrði hann Max segja. — Uss, sagði Bresach, Leyfðu manninum að hugsa í friði. Þótt undarlegt væri minnti rödd unga mannsins hann á sinn eigin son og bréfið í flugvél- inni og bréfið frá Chicaco. Hann starði yfir port'ö og á upplýsta glugga og fann kuldaleg, ung augu hvíla á sér — augu Bres- achs, Stevens, sín eigin augu þegar hann var á sama aldri, augu Delaneys, þegar Delanev kom í fyrsta sinn í búnings- herbergið í Philadelphiu. Tveir ættliðir ungra manna, hugsaði hann, synir og feður í einni bendu, bíða þess að ég svíki þá. — Leyfðu manninum að hugsa í friði... FERÐIZT MED LANDSÝN • Sefjum farseðla með flugvélum og skipum Greiðsluskilmálar Loftleiða: • FLOGIÐ STRAX - FARGJALD GREITT SÍÐAR • Skipuleggium hópferðir og ein- staklingsferðir REYNIÐ VIÐSKIPTIN FERÐASKRIFSTOFAN l/\ n a s v isi ^ TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 465 — REYKJAVÍK. UMBOÐ LOFTLEIÐA. Brunaíryggingar Aisyroðar Vöru Helmilis Innbús Afla Glerfryggingar Heimisfrygging j) hentar yður ITRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRf LINDARGATA 9 REYK3AVÍK SÍMI 2 1 260 SlMNEFNl t SU-RETY TilboB óskast i í nokkrar fólksbifreiðar er verða sýndar í Rauðar- árporti, mánudaginn 14. sept. kl. 1 til 3. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri kl. 5 sama dag. Sölunefnd varnarliðseigna. Vélar til sö/a Tilboð óskast í nokkrar diesel- og benzínrafstöðv- ar, tvo háþrýstiloftkúta og nokkra riðstraums- og jafnstraumsrafala af ýmsum stærðum. Vélar og rafalar eru í misjöfnu ástandi. Vélarnar verða til sýnis og sölu í birgðageymslu Rafveitna ríkisins, Elliðaárvogi 113, kl. 14—19 dagana 14., 15. og 16. september. Rafipagnsveitur ríkisins. Sendisveinn óskast strax, bæði fyrir og eftir hádegi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.