Þjóðviljinn - 17.09.1964, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 17.09.1964, Blaðsíða 10
Sóttu alþjóðasýningu í Moskvu á húsbygginga- og vegagerðavélum I | Fyrsta alþjóðlega vöru-^ sýningin í Sovétríkjunum stóð yfir í Moskvu dagana 24. ágúst til 7. sept. s.l. Var þetta sýning á vélum og tækjum til húsbygginga og vegagerðar og tóku þátt í henni fyrirtæki frá 19 lönd- um, bæði sósíalískum lönd- um og auðvaldslöndum. Tveir íslendingar sóttu vörusýn- ingu þessa á vegum Húsnæð- ismálastofnunar ríkisins, þeir Guðmundur Vigfússon borg- arfulltrúi og Hannes Pálsson frá Undirfelli, en þeir eiga sem kunnugt er báðir sæti í Húsnæðismálastjórn. Þjó'ðviljinn hefur beð:ð Guð- mund Vigfússon að segja lesend- um blaðsins eitthvað frá þess- ari alþjóðlegu vörusýningu og öðru frásagnarverðu úr ferðinni. Fer frásögn hans hér á eftir: Þetta er fyrsta alþjóðlega vörusýningin sem efnt er til í Sovétríkjunum. en áður hafa einstök lönd eða fyrirtæki frá einstökum löndum haldið þar sýningar á framleiðsluvörum sinum. Þátttakendur í þessari alþjóðlegu vélasýningu voru frá 19 löndum, þar á meðal frá flestum sósíalistísku löndunum í Evrópu, flestum löndum Vestur- Evrópu. Bandaríkjunum og Jap- an. Sýningardeildunum var öll- um komið fyrir á miklu útivist-- ar- og íþróttasvæði við Lenin- leikvanginn. Sýningin var opnuð 24. ágúst af einum af varafor- sætisráðherrum Sovétríkjanna og formanni sovézka verzlunar- ráðsins. Stóð hún yfir til 7. september. Við Hannes Pálsson komum til Moskvu 22. ágúst og dvöldum þar til 31. ágúst og var þá eftir vika af sýningar- tímábilinu. Þama voru í öllum sýningar- deildum sýndar hlið við hlið vélar til húsbygginga og vega- gerðar og virtist okkur bera öllu meira á vegagerðarvélum, en þar mátti líta mörg glæsileg og stórvirk tæki. Margvíslegar vélar til bygginga voru einnig í öllum deildum sýningarinnar, allt frá Nstórvirkum vélum og krönum til smárra rafknúinna verkfæra og tækja. Einnig létt byggingar- efni til húsagerðar. Þá voru sýnd bama líkön af byggingarverksmiðjum, en hús úr verksmiðjugerðum hlutum ryðja sér nú mjög til rúms víða um lönd, og hafa þau þann kost að stórlækka byggmgarkostnað- inn og flýta framkvæmdum. En skilyrðið er auðvitað að bygg- ingarnar séu skipulagðar fyrir- fram svo og framkvæmdirnar og nógu stór verkefni séu á hönd- um sama aðila. Meðan við dvöldum í Moskvu heimsóttum v'ð eina verksmiðju . sem framleiðir loftplötur úr steinsteypu Þessi verksmiðja af- kastaði 700 þús. ferm. á ári. Steypan var fyrst pressuð í stál- mótum og plötumar síðan hert- ar í ofnum eða öllu heldur hita- gryfjum í verksmiðjunni. Tek- ur 10 stundir að herða loftplöt- una áður en hún er flutt á af- greiðslulager verksmiðjunnar. Margar húsahlutaverksmiðjur eru starfandi í Moskvu og var okkur tjáð að 80% af nýbygg- ingum í Moskvu ^æru nú verk- smiðjubyggt. Við heimsóttum eitt siíkt íbúðahverfi nýbyggt í ú+íaðri borgarinnar í fylgd Har- aldar Kröyer sendiráðsritara. sem veitti okkur hina ágætustu fvrirgreiðslu á allan hátt meðan v'ð dvöldum þar eystra, og skoð- uðum þar íbúðarhús með 180 í- búðum. Flutt var í allar íbúðirn- ar nema eina 2ja herbergja í- búð á neðstu hæð, sem höfð var til sýnis og skýringa á bygg- ir "arefnum og byggingaraðferð. í þessari stóm íbúðarblokk voru 32 eins herb íbúðir, 112 tveggja herb. íbúðir og 36 þriggjn herbergja ibúðir. íbúðarherberg- Framhald á 3. síðu. Kornskurður á Hvummsmóum í Vulluhreppi Þessi mynd var tekin í síðustu viku af kornskurði á akri Axels Sigurðssonar á Gíslastöðum á Völl- um eystra. En akurinn er í landi Hvamms í sömu sveit, þar sem skilyrði til komræktar eru mjög góð, en þar er melur eða flagmór. Akur Axels er 4 ha. að flatarmáli, í hann var sáð 2 tunnum af byggi, en uppskeran er 20 tunnur af ha. Margir Vallabændur hafa byggakra, en Axel á hinn stærsta í sveitinni. Sláttuvélin er eign Vallabænda sem byggrækt stunda, en dráttarvélin er fengin að Iáni úr Skriðdal. Við koraskurðinn greiða bændur visst gjald fyrir sláttuvélina eftir þeim tíma, sem fer í sláttinn hjá hverjum og einum, auk þess vinnu sláttumannsins. Það korn, sem bændur nota ekki til fóðurs hjá sér, leggja þeir inn í safnhús Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöðiun. — (Ejósm.: Guð- mundur Jóhannsson). Dómur í nauðgunarmáli: 18 mán. fangelsi oi 54 þús. kr. bætur Miðvikudaginn 16. september var í sakadómi Reykjavíkur kveðinn upp af Þórði Björns- syni yfirsakadómara dómur í máli, sem af ákæruvaldsins hálfu var höfðað á hendur Stef- áni Guðna Ásbjörnssyni, kvik- myndatökumanni, Eaugarnesvegi 90, hér í borg. í apríl mánuði 1963 auglýsti maður þessi í dagblöðum hér eftir stúlkum, 14—30 ára. sem ráðnar yrðu til kvikmyndastarfa. Var hann ákærður fyrir að hafa í júlí f.á. framið kynferðisbrot gagnvart 13 ára telpu, sem kom til hans vegna þessara auglýs- inga. Sakadómur taldi eigi nægilega sannað að ákærði hefði nauðgað telpunni og var hann sýknað- ur af þeirri ákæru. Hinsvegar var hann — þrátt fyrir neitun sína — sekur fundinn um að hafa gert tilraun til' að taka telpuna nauðuga en haldið þ að hún væri 14 ára gömu Einnig var hann talinn haia sært blygðunarsemi hennar með töku mynda af henni. Þetta at- ferli ákærða var talið bæði skír- lífisbrot samkvæmt XXII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19 1940 og brot gegn lögum n: 29, 1947 um vemd bama og ungmenna. Ákærði var dæmdur í 18 mánaða fangelsi en til frádrátt- ar látið koma gæzluvarðhalds- vist hans í rúmlega tvo og hálf- an mánuð. Einnig var hann dæmdur til að greiða samtals- kr. 54.490.00 til telpunnar. Loks var honum gert að greiða all- an kostnað sakarinnar, þar með talin saksóknarlaun til ríkissjóðs kr. 5.000.00 og laun réttargæzlu- manns og verjanda síns, Gunn- laugs Þórðarsonar, hrl., kr. 7.000.00. Mikið um að vera í Þjóðleikhúsinu Brecht, Miller, Jónas og Jón Múli, íslenzk leikrit, ballett Leikhúsgestir eiga margt gott í vændum í Þjóð- leikhúsinu í vetur. Þar verða sýnd 3—4 íslenzk leikrit og íslenzkur ballett. Erlendu leikritin eru hin athyglisverðustu, m. a. leikrit eftir Miller, og LOKSINS — Bert Brecht. í gær hélt Guðlaugur Rósin- kranz þjóðleikhússtjóri fund með fréttamönnum og skýrði þeim frá væntanlegum verkefn- um Þjóðleikhússins á hinu.nýja leikári, er hefst nk. sunnudag. Viðstödd voru einnig á fundin- um Klemenz Jónsson leikstjóri og Gunnvör Braga Björnsdóttir, sem fer með annað aðalhlutverk- ið í „Kraftaverkinu“. „Kraftaverkið“ fyrsta verkefnið Eins og frá hefur verið skýrt oftlega áður hér í blaðinu, hefst leikárið með sýningum á „Kraftaverkinu" eftir ameríska leikritahöfundinn William Gib- son, í þýðingu Jónasar Kristjáns- sonar magisters. Leikstjóri er Klemenz Jónsson, en Gunnar Bjarnason hefur gert leiktjöld. Leikritið fjallar um æskuár hinnar blindu og mállausu am- erísku skáldkonu Helen Keller og hvernig henni var kennt að lesa, skrifa og að lokum að tala af kennslukonunni Anne Sulli- van Macy. Allar persónur leik- ritsins eru sannsögulegar og ganga undir réttum nöfnum. Hlutverk í leiknum eru níu, og þeir, sem fara með þau, þess- ir: Ann Sullivan Macy: Krist- björg Kjeld. Helen Keller: Gunn- vör Braga Björnsdóttir, 13 ára gömul telpa úr Kópavogi. Var hún valin af sex telpum er fengnar voru til að æfa hluta úr leikritinu snemma í vor. Er þetta í fyrsta skipti, sem barni er falið svo stórt hlutverk á sviði Þjóðleikhússins, verður hún á sviðinu nær frá byrjun til enda. Foreldra Helen Keller leika þau Valur Gíslason og Helga Valtýsdóttir. Föðursystur hennar og fóstru: Amdís Björnsdóttir. Bróður Helenar: Arnar Jónsson. Vinnukonu: Emilía Jónsdóttir. Læknir: Árni Tryggvasctn. Kenn- ara á málleysingjaskóla: Ævar Kvaran. Á blaðamannafundinum í gær kvað leikstjórjnn, Klemenz Jóns- son, það vera ákaflega erfitt að koma þessu leikriti saman. Litla „primadonnan'* var heldur hug- hraustari í máli og sagðist hlakka til frumsýningarinnar, en svolítið var hún föl á vangann, enda ekki nema von, þar sem hún er nýstigin upp úr inflú- enzu. Leikritið verður eins og áður er sagt frumsýnt nk. sunnudag og hefst sýningin kl. 8. Þrjú ný íslenzk leikrit Þrjú ný íslenzk leikrit verða tekin til flutnings hjá Þjóðleik- húsinu í vetur. Er þar fyrst að nefna næsta verkefni leikhúss- ins „Forsetaefnið" eftir Guð- mund Steinsson og er það jafn- framt fyTsta verk höfundrríns sem sett er á svið. Fjallar leik- ritig um stjórnmálabaráttu nú- tímans. Leikstjóri verður Bene- dikt Ámason og forsetaefnin leika þeir Róbert Amfinnsson og Rúrik Haraldsson. Seinna í vetur er svo vænt- anlegt gamanleikrit eftir Agnar Þórðarson „Sannleikur úr gipsi“ c>g barnaleikrit eftir Ingibjörgu Jónsdðtt.ur með tðnlist eftir Ingibjörgu Þorbergs. Þrjú erlend leikrit Á eftir „Forsetaefninu“ verð- ur sýnt leikritið „Hver er hrædd- ur við Virginiu Woolf?“ eftir Edward Albee í þýðingu 'Jónas- ar Kristjánssonar. Leikrit þetta hefur notið mikilla vinsælda og var mest sótta leiksýningin í New York á næst síðasta leik- ári. Leikstjóri verður Baldvin Halldórsson. Aðalhlutv. leika þau Helga Valtýsdóttir og Ró- bert Arnfinnsson. Leiktjöld ger- ir Þorgrímur Einarsson. Þá verður sýndur söngleikur- inn „Stöðvið heiminn” (Stop the world I wanna go off) eft- ir tvo unga enska höfunda Les- lie Bricusse og Anthony New- ley og verður það frumsýnt um jólin, í þýðingu Þorsteins Valdi- marssonar skálds. Er þetta smellinn söngleikur, þar sem pýnt er fram á hvemig menn án nokkurra verðleika komast í æðstu þrep mannfélagsstigans með aðstoð tengda og peninga. Leikstjóri verður Ivo Gramér, en hann er vel þekktur ura öll Norðurlönd fyrir uppsetningar sínar á söngleikjum. I janúar verður svo væntan- lega sýnt leikrit Arthurs Mill- ers ,,Eftir syndafallið”, í þýð- ingu Jónasar Kristjánssonar. undir stjóm Gísla Halldórsson- Jón Múli ar. Er þetta annað leikritið, sem Gísli Halldórsson setur upp fyr- ir Þjóðleikhúsið, hið fyrra var „Blóðbrullaup“ eftir Garcia Lorca. Loksins — Brecht Þá fáum við loksins að sjá Brecht á sviði Þjóðleikhússins. Er það síðasta verk hans ,,Art- uro Ui”, sem sýnt verður. Feng- in hefur verið einn snjallasti leikstjóri verka Brechts, Pólverj- inn Erwin Axer, til þess að setja það á svið. Er leikrit þetta nöp- ur ádeila á nazismann og hryðjuverk hans. Verður þetta viðfangsefni að teljast einn merkasti leikhússviðburður i sögu Þjóðleikhússins. Önnur leikrit. sem gert er ráð fyrir, að komi í vetur eru „Staðgengillinn” eftir Rolf Jónas Hochhuth í þýðingu og undir stjórn Gísla Alfreðssonar. Svo og óperan „Madame Butterfly” eftir Puccini. Og síðast en ekki sízt verð- ur væntanlega settur á svið íslenzkur ballett og íslenzkur söngleikur. Ballettinn er byggð- ur á * sögu eftir Guðlaug Rdsin- kranz. en tónlistina mun Jón Sigurðsson bassaleikari semja. Söngleikurinn er eftir hina landskunnu bræður Jónas og Jón Múla Árnasyni. Hafa þeir báðir samið efni Ieiksins, Jón Múli tónlistina og Jónas söng- texta. Þrjú leikrit, sem sýnd voru á síðasta leikári. munu verða tekin upp aftur, en það eru „Táningarást”. ,Sardasfurstinn- an” og „Mjallhvít’. 18 DAGAR EFTIR - GERIÐ SKIL Óðum styttist tíminn. Nú eru aðeins 18 dagar eftir þar til dregið verður um Trabant bifreiðina og þar að auki 51 vöruvinning að upphæð kr. 1.000.00 og 2.000.00, eftir eig- in vali. Vinningsmöguleikarn- ir eru miklu meiri en í fyrri flokkum hjá okkur, en verð- mætin að vísu minni nema hvað snertir Trabantinn Þetta ætti að gera spenning- inn meiri hjá þeim sem hafa ánægju að spila í happdrætt- um. Hins vegar megum við ekki gleyma hinu sem þessu fylgir en það er að tryggja útgáfu Þjóðviljans á þessu ári og ljúka byggingunni á Skólavörðustíg 19. Þar miðar uppslættinum vel hjá tré- smiðunum og munum v.„ innan fárra daga lofa ykk- ur að sjá mynd af kollinum. Við vonum að þið bæði létt- ið undir með okkur þessa daga sem þessi orrahríð stendur yfir með því að koma í skrifstofuna Týsgötu 3 sem er opin alla virka daga frá kl. 9—12 f.h. og 1—6 e.h. og styðja með því gott mál- efni. Athugið að einnig er hægt að póstsenda okkur skil; utanáskriftin er: Happdrætti Þjóðviljans Týsgata 3 Reykja- vík. Allir eitt fyrir Þjóðviljann. \ «

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.