Þjóðviljinn - 18.09.1964, Side 2

Þjóðviljinn - 18.09.1964, Side 2
2 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN OLÍA OC KOL ERU EKKl OÞRJOTANDI Sl. vör bauð Flugfélag fs- lands í samvinnu við ferða- málaráð Brighton nokkrum fréttamönnum blaða og út- varps að heimsækja þennan góðkunna sumardvalarstað á hinni sólríku suðurströnd Bret- lands. Eftir heimkomu íslenzku fréttamannanna, var mikið skrifað um Brighton í íslenzk blöð, sem vakti áhuga manna á því að eyða nokkrum frí- *)ögum ,á stað. sem ekki. -Jíat..- svo ýkja fjarri heimahögun- um. Ferðaskrifstofan Saga varð • strax vör við áhuga fyrir 4arð- um til Brighton, endár.flhefur margt manna farið þangað á hennar vegum og dvalizt þar í bezta yfirlæti i sumarleyfinu. Ferðaskrifstofan Saga hefur nú ákveðið að efna til ferðar til Brighton 22 september fyrir þá, sem ekki hafa enn haft tækifæri til þess að taka sér frí og skreppa utan í sumar. Flogið verður með flugvél frá Flugfélagi íslands beint til London, en þaðan verður ekið frá flugvellinum í sérstökum bíl suður til Brighton. Dvalið verður á hóteli við ströndina í eina viku. Verði hefur verið stillt mjög í hóf, og kostar ferðin aðeins kr. 7.750,00 en innifalið í verðinu eru flug- ferðir til og frá London, bíl- ferðir til og frá Brighton og gisting á hóteli ásamt öllum máltíðum í viku. Enda þótt tugir þúsunda er- lendra ferðamanna heimsæki y grigfifpp Þá riá éegja' áð'fsientiingar séu þnr vinsælir og miklir aufúsugest- ir Sem dæmi má geta þess, að ferðamálaráð borgarinnar og borgarstjórinn munu hafa sérstakt boð inni fyrir íslenzka ferðamannahópinn, sem gistir Brighton i næstu viku. Auk þess mun hópnum verða boðið að sjá það markverðasta í borginni með leiðsögn kunnugs fylgdarmanns. Gert er ráð fyrir því að elds- neytið, sem enn er í jörðu á hnettinum muni endast í 800 ár ennþá. En eftirspumin eykst ört. Ef allur heimurinn hefði svipaða eidsneytisneyzlu á hvern íbúa eins og Norður-Am- eríka, þá mundi eldsneytisforði heimsins ekki nægja næstu 100 árin'. Af þéssum sökum fiöfn- ■ uðust vísindamenri frá öltum . heiminum saman í Genf ddg- ana 31. ágúst til 9. september til þriðju alþjóðaráðstefnu S.Þ. um friðsamlega nýtingu kjam- orkunnar, og þá fyrst og fremst um nýt'ngu kjarnork- unnar til raforkuframleiðslu. Eldsneytisforði heimsins í jörðu niðri (kol, olía, mór. náttúrugas o.s. frv.) nemur nú ' magni sem svarar til 3.500.000 miljónum tonna af kolum. Kol- in eru meginpartur þessa elds- neyt's eða kringum 3.000.000 miljónir tonna. Mórinn nem- 1 ur 100.000 miljónum og náttúru- gasíð tæpum 100.000 miljónum tonna. Orkuinnihaldið i kjarnorku- eldsnefti (úran og tóríum) er talið vera 10—20 sinnum meira en í þeim eldsneytisforða sem vitað er um neðanjarðar. Ef eitt tonn af úran framleiðir 10.000 megavatt-daga ' af orku, nema úrahbirgðir jarðarinnar, sem taldar ezu vera kringum 1,5 m.iljón tonn, ork^umagni sem er yfir 4Ó0.000 miljónjr tonn af kolum. En í sérstökum bræðsluofni, sem unnið getur úran af verri gerð, ætti að vera hægt að framleiða 200.000 megavatt-daga" á hvert tonn, og úranmagnið sem þannig mætti nota er ekki minna en 15 miljónir tonna. Þar sem til er svo mikið magn af kjarn- crku-eldsneyti. héldu menn að kjarnorkan yrði ódýrari á sjötta tug aldarinnar. En sú varð ekki raunin á, og veldur þar einkum, að löndin sern einkum framleiða kjamorku búa ekki við neinn skort á venjulegu eldsneyti, að kjarn- orkuver útheimta mjög mikla fjárfestingu. og að tæknivanda- málin í sambandi við kjarn- ' orkuna hafa reynzt vera meiri en menn gerðu ráð fyrir í , fyrstu. En það var sem sé orkuþörf- in í framtíðinni, ekki sízt í vanþróuðum löndum, og hlut- verkið, sem kjarnorkan mun gegna á næstu tíu árum. sem rætt var um á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Genf. Umferðarkennsla fvrir ungt hjólreiðafólk Sumarstarfsnefnd Langholts- safnaðar gekkst fyrir nám- skeiði fyrir böm í umferðar- kennslu í vor. Það mæltist mjög vél fyrir og þátttakendur skiptu hundruðum. Nú hefur nefndin ákveðið að J;iefOa,..|til.':: annars . . námpkeiðs í, umferðarreglum og hjólreiðum eingöngu handa aldursflokkn- um 10—12 ára, áður en aðal- umferðin í skólana hefst og hættur aukast með haustinu. Þetta námskeið hefst n.k, laugardag kl. 2 við Vogaskól- ann. Þar koma kennarar og nemendur námskeiðsins sam- an. Aðalleiðbeinandi verður eins og í vor Sigurður E. Ág- ústsson lögregluþjónn. Slysa- varnarfélagið annast ýmsan kostnað, en framkvæmdir og skipulagning eru á vegum Sum- arstarfsnefndar kirkjunnar, eins ■ og áður er sagt. En for- maður hennar er Kristján Er- lendsson, trésmiður. f sumar hefpr nefndin gong- izt fyrir skemmtiferðum fyrst með æskulýðsfélaginu og þá með eldra fólk, svo berjaferð fyrir böm og síðast Þórsmerk- urferð með almennri þátttöku, ennfremur starfaði nefndin að undirbúningi fjölbreyttrar dag- skrár á kirkjudegi safnaðarins, og ætlar nú að efna til al- mennrar skemmtisamkomu síð- ustu helgi september. Árelíus Níelsson. .....-..........Föstudagur 18. september 1964 Flugvirkjar Landhelgisgæzlan óskar að ráða flugvirkja. Uppl. gefur Gunnar Loftsson, sími 12880. Verkstjóranámskeið Næsta verkstjóranámskeið verður haldið sem hér segir: Fyrri hluti 12. — 24. okt. 1964 Síðari hluti 11. — 23. jan. 1965. Allar upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá Iðnaðarmálastofnun íslands. Stjórn Verkstjóranámskeiðanna. Norðfjörður Fljúgið með Flugsýn til Norðfjarðar, á lengstu flugleið landsins, fyrir lægsta far- gjaldið., FLUGSÝN hf. Símar: 1-88-23 og 1-84-10. InViiii.-.— 9 til 17 farþega Mercedes-Benz hópferðabílar af nýjustu gerð. til leigu t lengri og skemmri ferðir — Afgreiðsla alla virka daga. kvöld og um helgar I sima 20969. HARALDUR EGGERTSSON. Grettisgötn 52 VINNINGAR Trabantbifrelð (station- gerð) verðmæti 82.000 • 20 vinn- ingar vöruútekt á kr. 2.000 hver /erð- mæti 40.000 • 31 vinningur vöruút- tekt á 1.000 kr. hver að verðmæti 31.000 krónur Afgreiðsla happdrættisins er á Týs- götu 3. Sími 17514. Opið 9-I2 og I-6 • takmarkið er að selja alla miðana • styðjið ykkar eigið málgagn • ger- ið skil sem fyrst Dregiö 5. oktober 3. FLOKKUR HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVI LJ ANS 4

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.