Þjóðviljinn - 25.09.1964, Page 1
DMMIHNN
Föstudagur 25. september 1964 — 29. árgangur — 217. tölublað.
VIÐTAL VIÐ RAGNAR ARNALDS:
Síldariðnaður myndi valda
straumhvörfum á Norðurlandi
Færum fólkinu hentug verkefni en flytjum ekki alla suður á land!
□ Það verður aldrei nægilega undirstrikað, hve atvinnuástand á vestanverðu Norðurlandi er í-
skyggilegt að óbreyttum aðstæðum, sagði Ragnar Amalds, alþm., í stuttu viðtali við Þjóðviljann,
en hann er nýkominn að norðan. Einmitt þess vegna eru það einstæð gleðitíðindi, að horíur era
á stóraukinni sölu á niðurlagðri síld. Verkafólk á stöðum eins og Skagaströnd, Siglufirði og Hofs-
ósi er bjartsýnna en áður og bíður eftir úrslitum þessa máls með skiljanlegri eftirvæntingu.
-4>
21. þmg ÆskulýðsfyEking-
arinnar sett í dag kl. 20.30
| | í kvöld kl. 8.30 hefst 21. þing Æskulýðsfylkingarinnar,
sambands ungra sósíalista og verður það haldið í Góð-
templarahúsinu í Hafnarfirði. Núverandi forseti Æsku-
lýðsfylkingarinnar, Gunnar Guttormsson, setur þingið með
ræðu og einnig mun Einar Olgeirsson formaður Sósíalista-
flokksins ávarpa það. Um 60 fulltrúar munu sækja þingið.
Fyrir kaffihlé fer fram skipun
kjörbréfanefndar en eftir kaffi-
hlé skilar kjörbréfanefnd áliti
23 skio með rösk
24 þúsund mál
f fyrrinótt fengu 23 skip sam-
tals 24.350 mál og tunnur 60
til 70 sjómílur útaf Seley og
fór sumt af síldinni í söltun.
Er Þjóðvii jinri átti tal við
síldarleitina á Dalatanga í gær-
kvöld voru skipin á þessum sömu
slóðum en ekkert hafði þá frétzt
um veiði. Leitarskipið Fanney
hafði lóðað þarna á ágætar torf-
ur af síld en hún stóð djúpt.
Ægir. sem er nokkru norðar,
fann einnig sild en hún stóð
líka djúpt en var þó að grynna
á sér.
Ágætis veiðiveður var á mið-
unum í gærkvöld, logn en þoku-
slæðingur. Um fjörutíu skip
munu enn halda áfram veiðum
fyrir austan.
S- Víetnam
SAIGON 24/9 — Fréttir berast
af klögumálum herstjórnarinnar
í Saigon í garð Bandaríkja-
manna og miklum ágreiningi
þeirra á milli, hvemig snúast
skuli við uppreisn þjóðflokkanna
í fjöllunum í Mið-Víetnam.
Bandarískur hershöfðingi er
nú farinn til fundar við þessa
uppreisnarmenn. Bandaríkja-
menn halda því fram að fjalla-
búar séu hinir mestu stríðs-
menn sérstaklega eftir þjálfun-
ina, sem þeim var veitt og muni
þeir trúir vinum sínum Banda-
ríkjamönnum, en þó muni þeir
heldur ganga í lið með Víetkong,
en sætta sig við yfirráð stjóm-
arinnar í Saigon.
og kosnir verða starfsmenn
þingsins og nefndir.
Þingfundur hefst að nýju á
morgun, laugardag kl. 19 f.h. og
verður þá flutt skýrsla sam-
bandsstjórnar, skýrslur deilda og
reikningar sambandsins lagðir
fram. Einnig verður lögð fram
skýrsla frá ritnefnd Neista og
reikningar blaðsins. Síðan hefj-
ast umræður um skýrslu stjóm-
ar sambandsins og reikningana.
Að loknu matarhléi hefst fund-
ur að nýju kl. 2 e.h. og verður
þá umræðum haldið áfram. Síð-
an verða fluttar framsögur fyr-
ir stjórnmálaályktunum og fyrri
umræða um þær fer fram. Eftir
kaffihlé verða rædd félagsmál.
Kl. 9 á laugardagskvöldið verð-
ur svo efnt til kvöldvöku.
Á sunnudag kl. 10—12 f.h.
sitja nefndir að störfum en eftir
5 ggg;
Gunnar Guttormsson forseti.
Æskulýðsfylkingarinnar.
hádegi fer fram síðari umræða
um þingmál. Að loknu kaffihléi
he.fst fundur að nýju kl. 16.30
og fer þá fram kosning sam-
bandsstjórnar fyrir næsta kjör-
tímabil og síðan verður þing-
inu slitið.
Það er sorglegt að sjá, hve hin
dagblöðin eru furðulega óábyrg
og skilningslaus á þessi mál.
Kommúnistahatrið og gamla
pólitíska moldviðrið er í al-
gleymingi, en varla grillir nokk-
um tíma á sjálfan kjarna máls-
ins. Ritstjórar þessara blaða
þykjast ekki vita, að samningur
um sölu á niöurlagðri síld fyrir
70 miljónir króna táknar vinnu
fyrir hundruð atvinnulausra
manna á Norðurlandi og vinnu-
laun fyrir tugi miljóna. Ef slík-
ur samningur verður gerður eins
og nú eru horfur á. munu
hundruð manna hætta við að
leysa upp fjölskyldu sína eða
yfirgefa heimili sín. Markaður
fyrir fullunna síld getur bein-
línis bjargað mörgum byggðar-
lögum norðanlands frá því að
leggjast í auðn.
Sum dagblöðin eru með efa-
semdir um, að sölumöguleikar
séu fyrir hendi og að minnsta
kosti verði ekki um mikið magn
að ræða. Óvissan er þó ekki
meiri en svo, að stjórn S.R., sem
heyrir beint undir atvinnumála-
ráðherra, hefur fyrir nokkrum
dögum samþykkt að kaupa til
að byrja með 4000 tunnur af
kryddsíld til niðurlagningar á
Siglufirði. Verksmiðjan þar hef-
ur staðið ónotuð um skeið, og
viðkvæði ráðamanna hefur allt-
af verið, að engir markaðir
væru fyrir hendi. En aðeins
þessar 4000 tunnur munu veita
þrjátíu manns atvinnu frá ára-
mótum og fram að síldarvertíð
og svo aftur 2—3 mánuði næsta
haust eða þar til sumarsíldin
Framhald á 9 .síðu.
LR ræður leikara
fyrir fast kaup
t viðtali við fréttamenn i
gær skýrði Sveinn Ein-
arsson leikhússtjóri Leikfé-
lags Reykjavíkur frá því að
nú í haust hefði Leikfélagið
í fyrsta sinn ráðið nokkra
leikara upp á fast mánaðar-
kaup en til þessa hafa leik-
arar hjá LR aðeins fengið á-
kveðnar grciðslur fyrir hvert
Ieikkvöld og þær raunar
mjög lágar. .
Leikaramir sem félagið
hefur ráðið eru sjö að tölu
og hafa á undaníörnum ár-
um verið helztu starfskraft-
ar Leikfélagsins en þeir eru:
Brynjólfur Jóhannesson, GísJi
Halldórsson, Guðrún Ás-
mundsdóttir, Helga Back-
mann, Helgi Skúlason, Krist-
ín Anna Þórarinsdóttir og
Sigríður Hagalín. Aðrir leik-
arar sem munu leika hjá
Leikfélaginu í vetur fá greitt
ákveðið kaup fyxir hvert
leikkvöld eins og áður var
en sú þókknm> hefur verið
hækkuð nokkuð
LeikhússtjörinR sagði að
það væri fyrst og fremst
aukin fjárveiting frá Reykja-
víkurborg sem hefði gert fé-
laginu kleift að fara út á
þá braut að ráða leikara fyr-
ir fast kaup. Kaup það, sem
félagið greiddi væri að visu
ekki eins hátt og það sem
Þjóðleikhúsið greiðir fast-
ráðnum leikurum sinum, en
engu að ísíður væri hér um
mjög þýðingarmikla breyt-
ingu að ræða í starfsháttum
Leikfélagsins og verður þetta
væntanlega spor í þá átt að
hér rísi upp borgarleikhús.
Við þessa breytingu batnar
aðstaða til æfinga td. mjög
mikið þar sem leikaramir
geta nú æft að deginum til
en áður voru þeir að sjálf-
sögðy bundnir við önnur
störf á þeim tíma og urðu
því að æfa á kvöldin. Er á-
stæða til að óska Leikfélag-
inu tii hamingju með þessa
nýbreytni í störfum þess.
Brynjólfur Jóhannesson ald-
ursforseti hinna föstu lcikara
LR.
422 þús. mál og t.
til Seyðisf jarllar
SEYÐISFIRÐI 24/9 — Á Seyðisfirði hefur nú verið land-
að 422 þús. og 500 málum síldar. Þar af hefur verið sent
norður til Siglufjarðar 95.300 mál og ,til Krossaness og
Hjalteyrar 23-200.
Þá hefur verið sett í bræðslu
á Syðisfirði um 304.000 mál og
úr því fengizt um 8500 tonn af
mjöli og 8200 af lýsi. Saltað hef-
ur verið í um 92.000 tunnur og
mun það að útflutningsverðmæti
vera 95—100 miljónir.
Söltunarstöðvar em hér níu.
og eru þessar hæstar:
Ströndin 18.300, Hafaldan
17.000, Sunnuver 16.000, Valtýr
Þorsteinsson 9.100, Neptúnus
8.000.
Hér er í dag eindæma gott
veður. Saltað er enn á þrem
söltunarstöðvum, en gengur
seint sökum þess, hve margt
fólk er farið úr bænum.
Farið sparlega með vatnið
Undanfama daga hefur verið
Hilfinnanlegur vatnsskortur í
sumum hverfum Reykjavíkur
þar sem lítið vatn er orðið í
Gvendarbrunnum sökum þurrka
í sumar. Á þriðjudag ræddi Þór-
oddur Sigurðsson vatnsveitu-
stjóri um vatnsskortinn í frétta-
auka útvarpsins og skoraði á
menn að fara spart með vatnið.
Sagði vatnsveitustjóri í viðtali
við Þjóðviljann í gær að þessi
áskorun hefð borið þann árang-
ur að mun betra ástand hefði
verið í vatnsmálunum í gærdag
og bað blaðið að koma því á
framfæri við menn að halda á-
fram að spara vatnið um tíma.
Fjörutiu Eyiabmar:
Stunda humar-
og fiskitroll
Þessar myndir eru teknar
um borð í Þórunni frá Vest-
mannaeyjum og var þá bát-
urinn staddur undan Ingólfs-
höfða. Það er nýbúið að inn-
byrða fiskitrollið og vcrið að
gera að aflanum og slóginu
hent útbyrðis og flýtur á
sjónum í kring. Mávagerið
sækir að bátnum og ætli
menn geti ekki gert sér í hug-
arlund þá miklu hljómkviðu
samfara góðri matarlyst frá
þessum vinum sjómanna.
Fjörutíu bátar hafa stund-
að fiski- og humartroll frá
Eyjum í sumar og hófu þeir
fyrstu veiðar 15. maí. Afli
þeirra til dagsins í dag er
hjá mörgum 240 til 250 tonn
og sækja margir þessir bátar
veiðar ennþá. Nokkuð hefur
borið á gæftaleysi í septem-
ber og eru sumir hættir.
Eyjabergið og Suðurey
hafa stöðugt siglt með aflann
til Aberdeen í sumar og hafa
fengið margar góðar sölur.
Flestir bátanna hafa látið
sér nægja að leggja inn afl-
ann í frystihúsin í Eyjum og
hefur það skapað dágóða at-
vinnu. — (Ljósm. B.M.).
f