Þjóðviljinn - 25.09.1964, Page 12
Hverjar veria jólahækur Helgafells?
□ Rúmlega tuttugu bækur verða gefnar út á þessu
ári á vegum Helgafells og eru ýmist komnar á mark-
aðinn eða á leiðinni á svokallaðan jólamarkað.
ö Er þetta afkastamesta útgáfuár Helgafells síðan
það hóf starfsemi sína fyrir aldarfjórðungi.
□ Það er bara þessi klassiska spurning. Verður verk-
fall?, sagði Ragnar Jónsson á fundi með fréttamönn-
um í gær.
Ný bók eftir Laxness
Jólabækur Helgafells verða
þessar í ár:
Ný bók eftir H.K.L. er
væntanleg á markaðinn og
nefnist hún Sjöstafakver. Eru
það sjö smásögur og hafa
lengi verið í smíðum. Smá-
sögur í bókarformi hafa ekki
komið út í tvo áratugi eftir
Kiljan. — Þá kemur endur-
útgáfa af Bami náttúrunn-
ar og ritar Laxness formála
að þeirri útgáfu.
Málverkabók Gunnlaugs
Blöndal, listmálara kemur nú
á markaðinn og átti raunar
að koma út fyrir síðustu jól,
en tafðist vegna verkfalls
prentara.
Óbirt ádeilukvæði
eftir Stein
Þá er væntanleg heildar-
útgáfa af Ijóðum og ritgerð-
um eftir Stein Steinar og
þar á meðal mörg kvæði,
sem ekki hafa birzt áður í
bókum og jafnvel kvæði, sem
aldrei hafa birzt á prenti.
Til er þarna ríma með tugi
erinda og kvæði frá skálda-
keppni um lýðveldisstofnun-
ina og olli þá hneykslun og
sendi Steinn það undir dul-
nefni og kallaði „Söng lýð-
veldisflokkanna á Þingvöll-
um 17. júní 1944”. Þetta er
hrottalegt ádeilukvæði og ill-
yrt og þótti ekki prenthæft
á þeim árum. Ritgerð eftir
Kristján Karlsson, bók-
menntafræðing um skáldið
fylgir með.
Þá kemur einnig út bók-
in „Rejse u<jen Löfte”,
danskar þýðingar á Ijóðum
Steins „Ferð án fyrirheits”,
eftir Poul P M. Pedersen.
Bækur Steins eru nú ekki
lengur til hjá forlaginu.
Bók á ensku um
Jesús
Þá er væntanleg bók á
ensku hjá forlaginu og heit-
ir Ævi Jesú, eftir Ásmund
Guðmundsson, fyrrverandi
biskup. Er bókin prýdd lista-
verkum eftir Ásgrím og Mugg.
Þessi bók er þýdd eftir ís-
lenzkum texta.
Þá eru þegar komnar út
hjá forlaginu jólabækur eins
og Kjarvalsbók Thors Vil-
hjálmssonar, íslenzk list, sem
afhent hefur verið til A.S.I.
til dreifingar og Mælt mál,
eftir Davíð Stefánsson.
Fyrir jólin er væntanleg
bók um Fjallkirkju Gunnars
Gunnarssonar, og eru það sex
ritgerðir eftir ung skáld og
er undir ritstjóm Hannesar
Péturssonar.
Skáldkona Sunn-
lendinga
Ný skáldsaga er væntanleg
í haust eftir Ragnheiði Jóns-
dóttur. Það er skáldkona
Halldór Laxness — sjö
nýjar smásögur
Steinn Steinarr — óbirt kvæði
um lýðveldisstofnunina
okkar Sunnlendinga, segir
Ragnar. Ennfremur er von á
pólitísku sagnfræðiriti eftir
Arnór Hannibalsson og fjall-
ar hún að mestu um Sam-
einingarflokk alþýðu Sósíal-
istaflokkinn.
Þá kemur út ritgerðarsafn
eftir Einar Ólaf Sveinsson
og ljóðaþýðingar eftir Geir
Kristjánsson. Ennfremur bók
eftir Jónas Hallgrímsson
með teikningum eftir Ragnar
Lár.
Ráðherrasonur og ást-
ir Kirkegaards
Óstytt útgáfa af Oliver
Twist og Blindi tónsnilling-
urinn í þýðingu dr. Páls Egg-
erts Ólasonar og Guðmund-
ar skólaskálds og prakkara-
sögur eftir Hendrik Ottósson.
Eru þær nýjar af nálinni og
auðvitað úr vesturbænum.
Endurtekningin, eftir Sör-
en Kirkegaard er væntanleg
í þýðingu Þorsteins Gylfa-
sonar og skrifar hann ítar-
legan formála að henni.
Efni hennar er sótt í ástir
Kirkegaards og Regínu Ol-
sen.
Tvær nútímaskáld-
sögur
Á næsta ári eru væntan-
legar tvær nútímaskáldsögur
eftir Jóhannes Helga og Ingi-
mar Erlend Sigurðsson. Er
þetta 400 síðna bók eftir
Ingimar Erlend og hefur
hann setið í hálft annað ár
við samningu hennar. Jó-
hannes Helgi situr á prests-
setrinu í Hrisey og er í miðj-
um klíðum. Eru betta hvoru-
tveggja ádei’lusögur á ís-
lenzkt þjóðlíf og kernur
blaðaheimurinn þar við sögu.
Þá hefur Helgafell fengið
útgáfurétt á hinni nýju bók
eftir William Heinesen og
eru tveir menn famir að
handfjatla hana til þýðingar.
Hún ber nafnið „Det gode
Háb“ og kom út fyrir viku í
Kaupmann ahöfn.
Taka James Barrie var dæmd ólögleg
I fyrradag var kveðin upp
dómur í máli brezku togaraskip-
stjóranna tveggja sem Óðinn tók
að ólöglegum veiðum í landhelgi
út af Barða fyrr í vikunni. Var
skipstjórinn á togaranum Wyre
Vanguard dæmdur í 260 þúsund
króna sekt og afli og veiðarfæri
gerð upptæk en máli hins skip-
stjórans, Richards Taylor á
James Barrie, var visað frá
dómi þar eð taka hans hefði
ekki farið fram samkvæmt al-
þjóðareglum.
Þessi dómsniðurstaða er byggð
á því m.a. að Óðinn var að elt-
ast við báða togarana í einu og
kom hann fyrr að Wyre
Vanguard og taldi dómurinn að
skipstjórinn á James Barrie
hefði haft ástæðu til að ætla að
stöðvunarmerkjum varðskipsins
hefði verið beint einvörðungu að
þeim togara en ekki að James
Barrie. Þá er talið í niðurstöð-
um dómsins að þar sem hlé varð
á eltingaleik Óðins við James
Barrie á meðan varðskipsmenn
voru að fara um borð í hinn
togarann þá hafi taka hans ekki
verið lögleg samkvæmt alþjóða-
lögum.
Dómur þessi var eins og áður
segir kveðinn upp á ísafirði og
var bæjarfógetinn þar í forsæti
dómsins. Sakadómari ríkisins
hefur áfrýjað dómnum til
Hæstaréttar.
Erlingur Gíslason, Sævar Helgason og Guðrún Ásmundsdóttir í
Sunnudagur í New York. — (Ljósm.: Myndiðn).
íeikfélagið sýnir 6
leikrit fyrir jól
| | Næstkomandi laugardag hefst 68 leikár Leikfélags
Reykjavíkur með endursýningu á leikritinu Sunnudagur í
New York eftir Norman Krasna sem félagið sýndi 29
sinnum hér í Reykjavík seinnipartinn í fyrravetur. Fyrsta
nýja frumsýningin á vegum félagsins verður hins vegar
um miðjan október á leikritinu Vanja frændi eftir Tsjekof.
Leikfélagið frumsýndi Sunnu-
dag í New York í janúar sl. og
sýndi leikinn 29 sinnum hér í
Reykjavík og 27 sinnum úti á
landi í sumar. Leikstjóri er
Helgi Skúlason.
Leilcendur verða þeir sömu og
í fyrra nema hvað Helgi Skúla- j
son mun fara með hlutverk þau j
er Brynjólfur Jóhannesson lék
í veikindaforföllum hans og
Helga Backmann fer með hlut-
verk Margrétar Ólafsdóttur sem
er erlendis. Aðrir leikarar eru
Guðún Ásmundsdóttir, Erlingur
Gíslason. Gísli Halldósson og
Sævar Helgason.
Enn Hart í bak
I fyrravor hætti Leikfélagið
við sýningar á öðru leikriti þótt
það væri þá enn sýnt fyrir fullu
húsi. Það er lekritið Hart í bak
sem búið er að sýna hér alls 195
sinnum sem er algert met. Verða
sýningar á því teknar upp aftur
síðar í haust.
Vanja frændi
Um miðjan október mun Leik-
félagið frumsýna Vanja frænda
eftir Tsjekkof en það hefur aldr-
ei fyrr verið sett á svið hér á
landi. Þýðingu leikritsins gerði
Geir Kristjánsson úr frummál-
inu. Æfingar hófust í fyrravor
og voru teknar upp aftar 1.
september s. 1.
Leikstjóri verður Gísli Hall-
dórsson og fer hann jafnframt
Framhald á 9. síðu.
SKILADAGUR í DAG
til hægðarauka fyrir þá sem
hafa fengið senda miða á
þessum stöðum og eins geta
þeir er vilja eignast miða í
þessum flokki happdrættisins
snúið sér til þeirra og fengið
keypta miða:
Hafnarfjörður: Hjörtur Gunn-
arsson, Háabarði 14.
Kópavogur: Bjöm Kristjáns-
son, Lyngbrekku 14.
Ytri Njarðvík: Oddbergur Ei-
ríksson.
Keflavík: Sigurður Brynjólfs-
son.
Sandgerði: Sveinn Pálsson.
Grindavík: Kjartan Kristó-
fersson.
Vestmannaeyjar: Hafsteinm
Stefánsson.
Selfoss: Þórmundur Guð-
mundsson.
Eyrarbakki: Andrés Jónsson.
Stokkseyri: Frímann Sigurðs-
son.
Hveragerði: Björgvin Áma-
son.
Akranes: Pa'll .TÓhannesson.
Borgarnes: Cfigeir Friðfinns-
son.
Hellissandur: Sfcúíl Atexamd-
ecsson.
Ólafsvík: Elías Valgeirsson.
Stykkishólmur: Jóhann Rafns-
son.
ísafjörður: Halldór Ólafsson.
Skagaströnd: Friðjón Guð-
mundsson.
Sauðárkrókur: Skafti Magn-
ússon.
Akureyri: Þorsteinn Jónatans-
son.
Húsavík: Gunnar Valdimars-
son.
Egjlsstaðir: Sveinn Ármason.
Ólafsfjörður: Sæmundur Ól-
afsson.
Siglufjörður: Kolbeinn Frið-
bjarnarson.
Seyðisfjcrður: Jóhann Svein-
bjömsson.
Neskaupstaður: Örn Scheving.
Eskifjörður: Jóhann Klausen.
Höfn Homafirði: Benedikt
Þorsteinsson.
Vík í Mýrdal: Guðmundur
Jóhannsson.
Hvammstangi: Skúli Magnús-
son.
Raufarhöfn: Guðmundur Lúð-
víksson.
Blönduós: Guðmundur Theó-
dórs: ,n.
Grundarfjörðar: Jóhann Ás-
mundsson.
í dag höfum við almennan
skiladag í happdrættinu og
verður opið hjá okkur frá kl.
9—7 í kvöld. Það eru vinsam-
leg tilmæli til allra sem koma
því við að koma til okkar í
dag og létta þannig undir
með okkur síðustu dagana
og einnig er okkur fjár vant
þessa dagana venju fremur.
Nokkrar deildir gerðu skil í
gær og hækkuðu nokkuð í
prósentu; enn heldur þó deild-
in í Teigunum sínu sæti. í
dag má hins vegar búast við
breytingum ef að líkindum
lætur en í fyrramálið birtum
við ' næst deildasamkeppnina
í blaðinu. Þeir sem búa úti á
landi geta haft samband við
umboðsmenn okkar þar eða
sent okkur skil beint. Utaná-
skriftin en Happdrætfi Þjóð-
viljans, Týsgötu 3.
Hér fer á eftir sfcrá wsi-
bo;ðsmanrra ofcfcar úfi á tewdi
Þessa dagana er unnið af fullum krafti við byggingu nýju hæðarinnar ofan á Þjóðvilja-
húsið. í gær var verið að hífa gluggagrindurnar upp og hér sjást smiðirnir vera að fást
við það að koma þeim fyrir á sínutn stöðum. — (Ljósm. Þjóðv. G.M.).
OPIÐ TIL KL. 7 í KVÖLD