Þjóðviljinn - 26.09.1964, Side 1
Laugardagur 26. september 1964 — 29. árgangur — 218. tölublað.
BLADBURÐUR
Þjóðviljann vantar nú þegar fólk til blaðburðar í þessi hverfi:
SKJÖL — KVISTHAGA — LÖNGUHLÍÐ — LAUFÁS-
VEG — ÞÖRSGÖTU — NJÁLSGÖTU — MEÐALHOLT
HÖFÐAH VÉRFI — TJARNARGÖTU — KLEPPSVEG.
Ríkisstjórnin mætir verðhækkun á mjólkurafurðum með:
85 KR. NIDURCRCIÐSLU
HVIRJU K6. AF SMJÖRI
Mikil undirbúningsvinna heíur verið að þingi ÆF í Hafnarfirði
þessa daga og sjást hér að vinnu Gunnar Guttormsson og Rogn-
valdur Hannesson, í Tjarnargötu 20.
ÞING Æ.F.
SETT í GÆR
Nú eru aðeins 10 dagar
eftir þar til dregið verður og
því að verða síðustu forvöð
að gera ráðstafanir til þess
að gera upp fyrir það sem
sent hefur verið. 1 dag höf-
um við opið frá 9—12 að
Týsgötu 3. Þeir sem fengið
hafa senda miða ' utan
Reykjavikur geta gert upp
við umboðsmenn okkar á
hverjum stað. Nöfn þeirra
voru birt f blaðinu í gær.
En þeir sem ekki ná til
þeirra geta sent okkur upp-
gjör beint. Utanáskrift okk-
ar er Happdrætti Þjóðvilj-
ans Týsgata 3.
Nú erum við að sjá fyrir
endann á því að við getum
gert fokhelt á Skólavörðu-
stíg 19. Það er eins og þið
sáuð á myndinni í gpr ver-
ið að stilla gluggana í upp-
sláttinn qg væntanlega verða
þeir steyptir í næstu daga.
Við ættum því að geta gert
okkur vonir um að þegar
dráttur fer fram í happdrætt-
inu verði húsið orðið fokhelt.
Þótt ekki sé beinlínis gert
ráð fyrir að þetta fé sem
við erum að safna nú í happ-
drættinu fari í þetta nema
það gangi vel, þá er okkur
það mikils virði að geta lok-
ið þessu verki, af því að við
það skapast meiri og betri
aðstaða fyrir allt starf við
blaðið. Hins vegar skortir
nokkuð enn á að við höfum
fengið upp í hallann á blað-
inu sem er nú brýnasta verK-
efni okkar, og verðum við að
tryggja það í þessu happ-
drætti og næsta að svo verði.
Við væntum því að hver og
einn sem hefur fengið senda
miða geri full skil og þá
mun okkur vel ganga.
Opið kl, 9-12
í dag
□í fyrrakvöld auglýsti Framleiðsluráð landbún-
aðarins haustverð á mjólk og mjólkurafurðum og
kom það til framkvæmda í gær. Samkvæmt því
hækkar mjólkurlítrinn um 90 aura frá því sem
hann hefur verið frá 1. september sl. Þá hækkar
og verð á osti, skyri og rjóma mikið þar sem þær
vörur eru allar óniðurgreiddar. Til þess að mæta
þessari hækkun og halda vísitölunni óbreyttri hef-
ur ríkisstjórnin ákveðið að hækka niðurgreiðslu
úr ríkissjóði á smjöri um kr. 50.60 kílóið eða úr
kr. 34.35 í kr. 84.96.
Haustverð á mjólk er nú sama
og í fyrrahaust kr. 5,75 lítrinn
í lausu máli, 6,00 í flöskum og
6,40 í hyrnum. Niðurgreiðsla
I gærkvöld var 21. þing Æsku-
lýðsfylkingarinnar sett i Góð-
templarahúsinu í Hafnarfirði.
Forseti ÆF Gunnar Guttorms-
son setti þingið. Þá flutti Einar
Olgeirsson ávarp til þingsins frá
Sameiningarflokki alþýðu, Sósí-
alistaflokknum.
Sextíu þingfulltrúar sitja þing-
ið frá fylkingardeildum hvaðan-
æva að af landinu.
Að loknum þessum ávörpum
fór fram kosning starfsmanna
þingsins. Forseti var kjörinn
Hrafn Magnússon, ÆFR og vara-
forsetar þeir Logi Kristjánsson,
ÆFH og Kristján Guðmunds-
son ÆFG.
Ritarar þingsins voru kosmr
Bjarni Zóphaníusson, ÆFR og
Gylfi Guðjónsson, ÆFR.
Þá var kosið í þrjár nefndir
á þinginu. Þær voru þessar:
Stjórnmálanefnd. Þar hlutu
kosningu: Logi Kristjánsson, Æ.
F.H., formaður nefndarinnar.
Svavar Gestsson, ÆFR, Stefán
Sigfússon, ÆFR, Þorsteinn Ósk-
arssom, ÆFR, Rögnvaldur
Hannesson, ÆFR, Gísli Gunn-
arsson, ÆFR og Birgir Stefáns-
son ÆFN.
Félagsmálanefnd. Þar hlutu
kosningu: Gísli B. Bjömsson,
ÆFR, formaður nefndarinnar.
Sólveig Einarsdóttir, ÆFR, Mar-
ía Kristjánsdóttir, ÆFH, Harpa
Karlsdóttir, ÆFV og Guðvarð-
ur Kjartansson, ÆFR.
Laga- og skipulagsnefnd. Þar
hiutu kosningu: Hrafri Magnús-
son, ÆFR, formaður nefndarinn-
ar. örlygur Benediktsson, ÆFH,
Framhald á 2. síðu.
Flokksþingfö
20. nóvember
Flokksþing Samein-
ingarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins hefst
20. nóv. í Reykjavík.
Þetta er f jórtánda þing
Sósíalistaflokksins, en
þau eru haldin annað
hvert ár samkvæmt
flokkslögunum.
VíStækt
verkfali
úr ríkissjóði er nú kr. 4,72 á
lítrann af mjólk í lausu máli
og kr. 4,77 á mjólk í flöskum
og hyrnum. Hefur hún hækkað
um 40 aura á lítrann.
Ostur, rjómi og skyr
Verð á smjöri verður 90.00
krónur kílóið af gæðasmjöri,
78,00 kr. af II. flokki og 75,00
af heimasmjöri. 1 fyrrahaust
var verðið á smjörkílóinu kr.
103,55, en hækkaði í kr. 123,00
1. marz s.l. þannig að lækkun-
in nú er kr. 33,00.
Engin niðurgreiðsla
Verð á öðrum mjólkurvörum
verður sem hér segir:
Ostur 45% kr. 113,00 kg., ost-
ur 30% kr. 81,30 og mysuostur
kr. 44,80.
Rjómi kr. 74,60 litrinn í
lausu máli og kr. 74,90 í flös.k-
um. Rjómi 1/4 lítri í hyrnum
kostar kr. 19.15.
Skyr kr. 18.75 hvert kg.
Engin niðurgreiðsla er á
rjóma, ost og skyr og hæ'^ka
þessar vöiur því allar í verði.
Skyr hækkar um kr. 2,15kg. m;ð-
að við það verð, sem gilt hefur
síðan 1. marz s.L, rjóminn um
kr. 9,60 lítrinn, 45% ostur um
kr. 17,20 kílóið og mysuostur kr.
4,45 kílóið.
Alþingi verður
sett 10. okt.
■ í gær barst Þjóðviljan-
um eftirfarandi fréttatil-
kynning frá forsætisráðu-
neytinu um setningu Al-
þingis:
B Forseti íslands hefur, að
tillögu forsætisráðherra,
kvatt Alþingi til fundar
laugardaginn 10. október
1964. Fer þingsetning
fram að lokinni guðsþjón-
ustu, er hefst í Dómkirkj-
unni kl- 13.30.
DETROIT 25/9 — Samninga-
umleitanir milli bílaverksmiðj-
anna General Motors og Sam-
bands bandariskra bifreiðastarfs-
manna um nýja kjarasamninga
fóru út um þúfur á föstudag.
Hófst þegar verkfall við allar
bilaverksmiðjur fyrirtækisins og
j taka um 260 þúsund verkamenn j
| þátt í því.
j Áður hefur bifreiðastarfs- j
mönnum tekizt að ná samkomu- j
lagi við Chrysler og Ford bíla- j
verksmiðjumar, að vísu ekki
nema einni klukkustund áður en
verkfall hafði verið boðað. Fé- ,
j lagið hafði boðið verkamönnum j
; samskonar kjör og þar var um '
I samið og Walter Reuther, for- >
maður Sambands bifreiðastarfs-
manna, kvað tilboðið vera að-
gengilegt. Hann lagði hinsvegar
áherzlu á það, að verkamenn
hefðu áhuga á fleiru en einum
saman peningum, þeir ættu
heimtingu á mar.nsæmandi með- !
Framhald á 2 síðu I ÞeSS* mPd Cr tCkÍn VÍð setninsu Gagnfræðaskóla verknáms í gærdag í Tjarnarbæ. Það var falleg-
-------------------^ur og frískur hópur, sem þar sat á stólum og hyggur nú á vetursetu við nám. (Ljósm. Þjóðv. G.M.)
Nær fímm þús. nemendur
gagnfræðaskólum I vetur
*
i
□ í gærdag voru skólar gagnfræðastigsins settir
hér í Reykjavík og verður í vetur kennt í fjórtán
skólum víðsvegar um bæinn.
FasL að fimm þúsund nemendur hér í bænum
setjast nú í skóla gagnfræðastigsins og er það þrjú
hundruð nemendum fleira en á síðasta skólaári.
Nær þrjú hundruð gagn-
fræðaskólakennarar hefja nú
prikið á , loft í nafni menntun-
ar og ögunar hér í bæ. Þar af
verða fast að tvö hundruð fasta-
kennarar og tæpir hundrað
stundakennarar og eru þeir
færri nú en á síðasta skóla-
ári.
Hvað eru margir bekkir í
skólum gagnfræðastigsins hér í
Reykjavík? Þeir ' eru hundrað
sjötíu og átta og er það átfa
deildum fleira en í fyrra. Hvern-
ig ski'ptast þær? Fyrsti bekkur
hefur fimmtíu og tvær deildir,
annar bekkur hefur sömu tölu,
þriðji bekkur, hefur fjör.utíu og
átta deijdir og fjórði bekkur
hefur tuttugu og sex deildir.
Þá eru seytján landsprófs-
deildir, sjö verzlunardeildir, ell-
efu verknámsdeildir og ellefu
almennar 3. bekkjardeildir.
Að lokum má geta tveggja
framhaldsdeilda fyrir nemendur,
sem setið hafa eftir í ýmsum
deildum á liðnu skólaári.
Stærstu gagnfræðaskólarnir
hér í bæ eru á þessum vetri;
Hagaskóli með sjö hundruð nem-
endur, Réttarholtsskóli með sex
hundruð og fimmtíu, Vogaskóli
með sex hundruð nemendur og
Gagnfræðaskóli Austurbæjar
með fjögur hundruð nemendur.
Þá má geta þess, aö Gagn-
fræðaskólinn við Vonarstræti
hefur verið felldur niður og
þangað flytur nú Gagnfræða-
skóli Vesturbæjar starfsemi sína,
en hann var til húsa hjá Jóni
Loftssyni vestur við Selsvö
fyrravetur. Þar fellur nú ni
skólahald að sinni.
Málarar kusu
í qœrkvöld
í gærkvöld fór fram kjör full-
trúa Málarafélags Reykjavikur
á væntanlegt þing A.S.Í. Þessir
hlutu kosningu á fundi í félag-
inu.
Aðalfulltrúi Lárus Bjamfreðs-
son og til vara Sigursveinn H.
Jóhannesson.