Þjóðviljinn - 26.09.1964, Page 8

Þjóðviljinn - 26.09.1964, Page 8
V 3 SlÐA ur enginn hjálpað mér. Ó, guð Önnur vændiskonan hló. Hlát- ur hennar barst tær og kven- legur upp mjóa gjána milli hús- anna. Þegar Jack horfði á þennan einmana Bandaríkjamann með upprétta arma og flaksandi frakka, var hann sem snöggvast sannfærður um að þetta væri drukkni maðurinn sem hafði slegið hann fyrsta kvöldið í Eóm. Svo lét maðurinn hand- leggina síga og fór að slangra áfram eftir götunni unz hann kom að götuljósinu. í ljósbjarm- anum sá Jack hann betur. Það var ekki drukkni maðurinn. — Ó guð minn góður, vældi maðurinn í eymd sinni og reik- aði áfram upp á gangstéttina og upp að dökkum húsveggnum. — Ó, guð, ég er aleinn .... Vill enginn hjálpa mér? Svo hætti hann sem snöggv- ast að hreyfa sig. Hann strauk hendinni gegnum hárið, dró djúpt andann og leit undirfurðu- lega í kringum sig. Svo hneppti hann að sér frakkanum, hnykti til höfðinu og gekk rösklega að götuhorninu og sveiflaði hand- leggjunum eins og hermaður á göngu og hvarf. Jack deplaði augunum. Allt þetta gerðist svo hratt og var svo kynlegt og skrýtið áð það var erfitt að trúa því að þetta hefði ekki verið ofsjónir, draum- ur í vöku. Andartak enn starði Jack á hornið, þar sem maður- inn hafði horfið, íhugaði hvort hann heyrði ennþá bergmálið af hinni veinandi rödd sem yfir- gnæfði eirðarlausan leik nætur- golunnar við gluggatjöldin og kallaði út í nóttina: — Aleinn .... aleinn .... Vændiskonan hló aftur, síðan flýttu konurnar tvær sér burt. Hann gekk aftur inn í her- bergið og lokaði á 'eftir sér. Hann gekk fram og aftur um gólfteppið með glasið í hendinni. Nóttin var hörð og hættuleg. Neyðaróp bárust neðan frá göt- unni. Það voru margir speglar í herberginu og minningarnar sóttu alls staðar að. Gyllta hót- elklukkan tifaði alltof hátt yfir dyrunum og vakti óþægilegar hugsanir. Neyðaróp hins drukkna, „aleinn", var eins og lifandi vera í herberginu, dóms- orð, ógnun. HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðslu og snyrtistofu STEINTI og DÓDÓ Laugavegi 18. III h (lyfta) SÍMI 2 46 16 P E R M A Garðsenda 21. — SlMI: 33 9 68 Hárgreiðslu og snyrtistofa. D 0 M 0 R I Hárgreiðsla við allra hæfi — TJARNARSTOFAN. - Tiamar götu 10 — Vonarstrætismegin - SIMI: 14 6 62. HARGREIÐSLUSTOFA AUSTURBÆJAR — (Man. Guðmundsdóttir) Laugavegi 13 — SIMl 14 6 56 — Nuddstofa 1 sama stað. Jack vissi að hann gæti með engu móti þraukað af nóttina í þessum köldu herbergjum. Allt d einu mundi hann eftir kven- hlátrinum neðan af götunni. Nú var hann næstum viss um að hann þekkti kvenmanninn, að það hefði verið þýzka stúlkan í rauðu skónum. Hann gekk í átt- ina til dyra. Það er hæfilegur endir á öllu þessu, að kveðja Róm í faðmi þýzkrar dragmellu. Því ekki það? Að Ijúka þessari 80 beisku ferð á beiskan hátt. Hann ætlaði að minsta kosti ekki að vera einn það sem eftir var næturinnar. Svo stanzaði hann. Orðið. Það hafði verið notað í kvöld .... — Dragmellan sem þú varst giftur .... Brjálæðisleg rödd Clöru. Því betra, hugsaði Jack grip- inn hefnigirni. Hví skyldi ég vera að fara út úr húsinu? Það er dragmella í fjölskýldunni. Hann gekk að símanum. — Ungfrú Carlotta Lee, bökk fyrir, sagði hann og reyndi að gera rödd sína virðulega og ábyrga til að halda sínu góða mann- orði við símaborðið. Hann leit á klukkuna. Tíu mínútur yfir þrjú. Þetta er skilnaðarsök, að vekja fyrrverandi eiginkonu klukkan þrjú að nóttu. — Já? sagði Carlotta. Rödd hennar var syfjuleg. — Carlotta, sagði Jack. — Klukkan er tíu mínútur yfir þrjú. Má ég koma og heimsækja þig? Það varð stutt þögn. Svo sagði hún: — Það er herbergi númer þrjú hundruð tuttugu og fjögur. Dyrnar eru opnar. En það varð engin hefnd þrátt fyrir allt. Þannig varð það alls ekki. Þau lágu hvort við annars hlið í myrkrinu í breiðu rúm- inu. Herbergið var lítið og inni- lokað, heitt loftið mettað af ilmi sem hann taldi sig búinn að gleyma og feykti honum nú með sér til annarra vistarvera, sem hann hafði fyrir löngu sagt skil- ið við. Þau höfðu sofið saman með alvöru, eins og fólk sem hefur svarið að framkvæma hátíðlega skipun. Þau höfðu elskað hægt og sefandi. Þau höfðu elskað af alúð og viðkvæmni eins og þau vissu bæði að þau geymdu eitt- hvað leynilegt og brothætt sem þyrfti að fara varlega með. Þau höfðu elskað með áfergju og ofsa, eins og árin hefðu fyllt þau stjórnlausu hungri, sem engin ein ástarathöfn gæti full- nægt. Þau höfðu elskað af þekk- ingu og með gleði og forundran sem í fyrsta sinn. Þau voru heima og í framandi landi, elsk- endur og ókunnug, uppnumin og jarðbundin. Loks höfðu þau elsk- að með gieði og fyrirgefningu og langvarandi fyrirgefandi gleði yfir hvort öðru. Hún lá í handarkrika hans. Hann kom varlega við hana. Hörundið var dásamlega mjúkt. Hoid, mundi hann frá því í kap- ellunni, hold. Hún dæsti syfjulega, sæl og ÞJÓÐVILIINN Laugardagur 26. september 1964 ánaegð. Við erum ánægð í hold- inu, hugsaði hann, við erum blessuð í holdinu, við erum glöð og heilög í holdinu, við höldum holdið hátíðlegt. Við búum yfir vitneskju um og vissu fyrir dauða holdsins og við erum al- búin að greiða með holdi okkar í dagsbirtunni fyrir gleði nætur- innar. Apaköttur guðs, hugsaði hann. En talsvert af tilraunum guðs- stendur í sambandi við ást, á- nægju, skilning. Ef það eru við- skipti, þá eru þau ekki ósann- gjörn. Þeir eru blygðunarsamir, mundi hann, og para sig aðeins að næturlagi og með leynd og eigi sameinast þeir heldur hjörðinni strax, lieldur baða sig fyrst í ánni .... í nótt, hugsaði hann, höfum við parað okkur að næturlagi og með leynd og eigi höfum við heldur samein- azt hjörðinni. Við erum að nálg- ast fílinn að siðgæði. Þegar máninn er nýr, mundi hann, halda þeir til ánna, þar sem þeir hreinsa sig hátíðlega og baða sig og hafandi þánnig heilsað plánetunni hverfa þeir aftur inn í skógana .... Tunglið er nýtt í kvöld, hugs- aði hann, mitt fljót er Tiber. Hann færði höndina að brjósti hennar, strauk niður eftir síð- unni , og mjöðminni. Líkami hennar var ekki lengur hinn dá- samlegi ungi kroppur frá Cali- forníumorgnunum. Drættirnir voru orðnir mýkri, formin á- valari, hún yrði alltaf fullþung- lamaleg í nýtízbu fötum, og hann vissi að hún gæti aldrei litið svo í spegilinn án þess að hugsa með söknuði um hina horfnu fegurð. En hinn þétti, þjálfaði líkami hafði í nótt veitt honum djúpa gleði, fullkomnun- arkennd, sem hann hafði aldrei fyrr fundið til. — Það er ekki eins og að sofa saman, hvíslaði hann í eyra henni. — Það er eins og að keyra kornið í hlöður. Hún hló. — Það er til spænskt máltæki, sagði hún. — Karl- menn viðurkenna það ekki, en þeim fellur vel við feitar konur, sæt vín og tónlist Tchaikovskís. Þau hlógu saman undir á- breiðunni. Það var opinn hlátur, heilbrigður hlátur milli gamalla vina, góðra elskenda, sem hafa fyrirgefið hvort öðru og notið hvors annars. Hann töfraði burtu afturgöngur, hreinsaði sársaukann úr miriingunum, varpaði skynsamlegum, mann- legum bjarma yfir kvíða og hug- boð. — Feit kerling, sagði hann og klappaði henni á öxlina. — Ég vissi að þetta hlaut að koma fyrir, sagði hún. — Á einn eða annan hátt, einhvern tíma. — Já, sagði hann. Þegar það hafði gerzt, fannst honum það líka hafa verið óumflýjanlegt. — Við gátum ekki látið hatr- ið standa, sagði hún. Þau lágu þögul nokkra stund. — Ferðu á morgun? spurði hún. — Já. Hafnarfjörður Bókasafnið vill ráða mann til afgreiðslustarfa hálf- an daginn frá 1. okt. n.k. Umsóknir sendist bókaverði fyrir 30. þ.m. Stjórnin. Sölubörn — Sölubörn Mætið í eftirtalda skóla á morgun og seljið merki og blað Sjálfsbjargar. REYKJAVÍK: Mýrarhúsaskóli, Melaskóli, Öldugötu- skóli, Miðbæjarskóli, Austurbæjarbarnaskóli, Hlíða- skóli, ísaksskóli, Laugarnesskóli, Laugalækjarskóli, Langholtsskóli, Vogaskóli, Breiðagerðisskóli, Ár- bæjarskóli og í skrifstofu Sjálfsbjargar, Bræðra- borgarstíg 9. KÓPAVOGUR: Digranesskóli og Kársnesskóli. SILFURTÚN: Bamaskólinn, Silfurtúni. HAFNARFJÖRÐUR: Bamaskólinn við Skólabraut og Öldutúnsskóli. GÖÐ SÖLULAUN Sjálfsbjörg, félag fatlaðra, Reykjavík. VísitölubréfSogsvirkjunar Að óbreyttu rafmagnsverði reiknast 40,43% vísi- töluhækkun á nafnverð E-flokks Sogsvirkjunar- bréfa frá 1959, þegar þau falla í gjalddaga hinn 1. nóvember n.k. 24. september 1964. SEÐLABANKI ÍSLANDS. VÖRUR - - - ^,',p _ Kokómalt - Kaffi - Kakó KRON búðirnar. Skrifstofu- og verzlunar— fóik Suðurnesjum Allsherjaratkvæðagreiðsla Skrifstofu- og verzlunarmannafélags Suðurnesja til 29. þings Alþýðusambands íslands, verður háð mánudaginn 28. sept. og þriðjudaginn 29. sept. kl. 16—24 báða dagana. — Kosið verð- ur í Sjálfstæðishúsinu í Keflavík. Kjörstjórn. SKIPATRYGGINGAR Tryggingar á vörum í flutningi á eigum skipverja Heimistrygging hentar yður Veiðarfæra Aflafryggingar TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIR" LINDARGATA 9 REYKJAVIK SlMI 2 1 260 SlMNEFNI sSURETY FERÐIZT MEÐ LANDSÝN # Seljurn farseðla með flugvélum og skipum . Greiðsluskilmálar Loftleiða.- # FLOGIÐ STRAX - FARGJALD GREITT SÍÐAR # Skipuleggjum hópferðir og ein- staklingsferðir REYNIÐ VIÐSKIPTIN FERÐASKRIFSTOFAN L/Á N O S V N Tr TÝSGÖTU 3. SÍMI 22890. — P.O. BOX 465 — REYKJAVÍK. UMBOÐ LOFTLEIÐA.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.