Þjóðviljinn - 30.09.1964, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 30.09.1964, Blaðsíða 2
2 SIÐA mmmi HÖÐVIUINR Miðvikudagur 30 september 1964 Margvísleg viðfangsefni ASV á liðnu kjörtímabili ágás$ ■ Eins og skýrt var frá í fréttum Þjóðvil'jans sl. sunnudag, var átjánda þing Alþýðusambands Vestfjarða haldið á ísafirði dagana 24. og 25. þ.m. Hér fara á eft- ir nokkrar nánari fréttir af stðrfum þingsins, einkum þeim þætti úr skýrslu for- seta sambandsins, sem fjall- ar um störf þess á liðnu kjörtímabili. Þingið sátu 29 fulltrúar víðsvegar að af sambandssvæð- inu, en það nær yfir allt Vest- fjarðakjördæmi. Gestir þingsins voru: Hanni- bal Valdimarsson, forseti ASl og Baldvin Þ. Kristjánsson út- breiðslustjóri Samvinnutrygg- inga, og flutti hann fræðsluer- indi á þinginu um tryggingar Forseti A.S.V., Björgvin Sighvatsson, setti þingið og bauð gesti og þingfulltrúa vel- komna til þingsins. Þá minn'- ist hann forsetafrúar Dóru Þórhallsdóttur og ræddi um þau óbrigðulu bönd trausts og vináttu, sem um langt árabil hafa legið á milli vestfirzkra byggðariaga og heimilis hinnar látnu tignarkoou. Einnig minntist Björgvin þeirra með- lima vestfirzku verkalýðssam- takanna, sem látizt höfðu á kjörtímabilinu. Forsetar þingsins voru kjörn- ir þeir Marías Þ. Guðmunds- son, Isafirði og Pétur Péturs- son, Isafirði. Þingritarar voru kjörnir þeir Eyjólfur Jónsson, Flateyri og Karvel Pálmason, Bolungarvík. Björgvin Sighvatsson flutti skýrslu stjóroarinnar um starf- semi A.S.V. á kjörtímabilinu. Fyrst og fremst hefir verið unnið að kaupgjalds- og kjara- málum, en um margra ára skeið hefir sambandið haft með höndum alla samninga fyrir félögin, og hafa því gilt heildarsamningar, sem taka til allra Vestfjarða varðandi kaup og kjör landverkafólks og sjó- manna, — <þ.e. háseta, mat- sveina og vélstjóra.) Stjórn A.S.V hefir alltaf lagt ríka áherzlu á sem nánast og bezt samstarf við sambands- félögin um kjaramálin og því undirbúið öll slík mál í nánu samstarfi við félögin, meðal annars með því að kalla saman sérstaka fulitrúaráðs- fundi. Á kjörtímabilinu hélt stjórnin alls 13 fundi. A þess- um fundum voru tekin til með- ferðar yfir 60 málefni, öll varðandi kaupgjaldsmálin eða önnur hagsmunamál verka- lýðssamtakanna. Á 9 af þess- HnaiardeiU gefíð fé til tækjakaupa Vísindanefnd Atlanzhafs- bandalagsins hefur veitt j«rð- efnafræðirannsóknum Iðnaðar- deildat Atvinnudeildar háskól- ans styrk að unphæð $ 10.063 tíl kaupa á röntgen spektro- graf. Tæki þetta e»' viðbót viö röntgentæki, «em jarðefna- fræðirannsóknirnar fengu fyr- ir rúmu ári. Þau kaup vom lað nokkru styrkt ur Vísinda- sjóffi. Tæki þau, sem Atlanzhafs- bandalagið gefur að þessu einni, verða notuð til rann- sókna á jarðefnafræði jarð- hitasvæðanna, eínkum með tilliti til efnabreytinga, sem verða á milli heita vatnsins og þess bergs, sem það streymir um. Með tæki þessu er unnt að framkvæma efna- greiningar á föstum og fljót- andi sýnishomum basði með tilliti til meginefna og margra snefilefna. Afköst tækisins eru mjög mikil, svo unnt verður að margfaida störf rannsókn- arstofunnar, án þess að bæta við nýju starfsfólki, en auk þess opnast möguleikar til efnagreininga, sem ekki var unnt að framkvæma áður vegna tæknilegra eða fjárhags- légra takmarkana. Sem dæmi um afkastaaukninguna má nefna, að efnagreining á sýn- ishomi af borkjarna frá heita- vatnsborun tekur þrjár vikur fyrir efnafræðing við venju- legar aðstæður, en með þessu nýja tæki getur aðstoðarmað- ur framkveemt sðrrru efna.grein- ingu með sambæefiegri eða betri nákvæirmi á etmrm eða tveini dögtmi. Umrædd styrkveiting. vís- indanefndarinnar er liður í vaxandi starfsemi Atlanzhafs- bandalagsins á sviði efnahags- mála. I þeún tilgangi að sóuðla að auknum hagvexti 1 með- limaríkjunum hefur banda- lagið lagt áherzlu á að styrk.ja udirstöðuatriði og þá sér- staklega vísindi og tæfcni. Með tilkomu hins nýja tækis opn- ast stórkostlegir mðguleikar hinum mikilvægu Jarðhita- svæðum landsins. Á Atianz- hafsbandalagið sérstáfcar bakk- ir skilið fyrir þessa mikilvægu styrkveitingu. Fulltrúi Islands í vísinda- nefnd AtlánzhafsbandalagsinS er próf. Snorri Hallgrimsson, eh forstöðumaður jarðefna- frasðirannsókna Iðnaðardeildar Atvinnudeildar háskólans er dr. Guðmundur Sigvaldason. (Frá Rannsóknaráði ríkisins) «>- um fundum voru mættir sér- stakir fulltrúar víðsvegar að af Vestfjörðum, enda voru þá sérstök kaupgjaldsmál til með- ferðar. Á kjörtímabilinu gerði A.S. V. eftirtalda samninga við Vinnuveitendafélag Vestfjarða um kaup landverkafólks: a) Hinn 28. jan. 1963. Þá hækkuðu allir kauptaxtar fyrri samnings um 5%, — ákvæð- isvinna hækkaði þó ekki b) Hinn 23. júní 1963 var samið um 7,5% kauphækkun á allt kaup. Tilfærslur til hækk- unar voru gerðar á milli taxta, t.d. hækkaði fiskvinna upp í 2. taxta. Samið var um gleggri aldursskiptingu varðandi kaup unglinga. c) Hinn 22. des. 1963. Þá samið um 15% kauphækkun á allt kaup. Hafnarvinna og vinna við frystitæki flutt milli taxta til hækkunar. Þessi samningur var byggð- ur á því samkomulagi, sem gert var að tiktuðlan ríkis- sáttasemjara og sérstakrar sáttanefndar, er ríkisstjórnin skipaði d) Hinn 4. júlí 1964 var gerður nýr samningur. Þá samið á grundvelli Dagsbrún- arsamnings, þó haldið ýmsum ákvæðum úr fyrri samningi. Þessi samningur byggður á samkomulagi því. sem gert var á milli Alþýðusambands lslands. samtaka atvinnurek- enda og rikisstjórnarinnar um ráðstafanir t.il að stöðva verð- bólgu og til kjarabóta fyrir verkafólk. e) . Þá . hafa á tímabilinu verið gerðir tveir samningar um á- kvæðisvinnu við slægingu á fiski. Þeir samningar em nú lausir, 0 Einn samningur hefur ver- ið gerður um ákvæðisvinnu við skelflettingu á rækjum. Þeim samningi var sagt upn á s.l. vori og er þvi ósamið um þá vinnu enn. g) 1 sambandi við hina al- mertnu samninga verkafólks hefir alltaf verið samið um vaktavinnu í síldar- og fiski- mjölsVerirsmiðjum. Nýr samn- ingur um þessa vinnu var gerður ttm mánaðaarxSfcia september s 1. h) Á s.l. sumri var í fyrsta skipti gerður heildarsamning- ur um kaup vélgæzlumanna í frystihúsum á Vestfjörðum, og tekur þessi samningur til allra byggðarlaga í fjórðungnum. Þá gerði ASV eftirgreinda samninga við Útvegsmannafé- lag Vestfjarða um kaup og kjör vestfirzkra vélbátasjó- manna: a) Hinn 29. desember 1962 var gerður nýr samningur um línu-, botnvörpu- og netaveið- ar, sem fól í sér ýmsar launa- og kjarabætur sjómönnum til handa, auk þess, sem kaup- gjaldsliðir höfðu fyrr á árinu verið hækkaðir um 13% til samræmis við launahækkanir verkafólks. Inn í þennan samning var tekið ákvæði, sem tryggir sjó- mönnum sömu hækkun á launaliði sjómannasamnings- ins og verkafólk fær samkv. samningum A.S.V. við Vinnu- veitendafélag Vestfjarða, og skal sú hækkun gilda frá sama tíma og kaup landverkafólks hækkar. b) Fyrsti samningur um kaup og kiör sjómanna á síld- veiðum eftir setningu gerðar- dómslaganna sumnrið 1962, var gerður 15. júní 1963. Enda bótt sjómannasamtökin í öðrum landshlutum hcfðu. er sá samninf'ur var gerður, samið við L.f.Ú um síldveiðikjörin, trvggir sá samningur vestfirzk- um síldveiðisjómönnum hag- stæðari skiptakjör en annars staðar eru í gildi. Á kjörtímabilinu tók A.S.V. þátt í samstarfi launþegasam- taka A.S-f. um kaupgjaldsmál- in og sendi m.a. fulltrúa á ráð- stefnur, sem A.S.T. boðaði til. A.S.V hefur onna skrifstofu á Isafirði og er hún upplýsinga- miðstöð fyrir sambandsfélögin. auk þess sem hún veitir þeim margvíslega aðra fyrirgreiðslu. Forseti A.S.V. gat þess í skýrslu sinni, að vert væri að geta þess, að atvinnurekendur og útvegsmenn á Vestfjörðum hefðu í öllum samskiptum sín- um við verkalýðssamtökin sýnt þeim skilning og lipurð í hví- vetna. Að lokinni skýrslu stjórnar- innar fluttu fulltrúar hinna einstöku sambandsfélaga skýrsl- ur um starfsemi félaga sinna, og um atvinnuástand og at- vinnuhorfur á hinum ýmsu stöðum. f þeim skýrslum kom fram mikill fróðleikur. Þá voru tekin fyrir álit og Framhald á 9. síðu. Málanám allan veturinn fyrir 200 króna gjald! □ í dag er síðasti dagur til innritunar í Náms- flokka Reykjavíkur, en kennsla hefst í þeim á morgun, 1. október. í námsflokkunum er enn sem fyrr hægt að læra tungumál og allmargar aðrar námsgreinar við vægu gjaldi, þannig kostar málanám allan veturinn með tveim tímum í viku einungis innritunargjaldið, sem nú er 200 krónur. Hér er sagt frá námsgrein- um Námsflokkanna í vetur, og *nnar fróðleikur tim þá: Námsflokkarnir, sem nú hafa starfað 1 25 ár, hafa kennslu í rúmlega 20 námsgreinum og í mörgum námsgreimim er kennelan sniðin við mismun- andi þekkingarstig þátttakend- anná; þannig er t.d. í ensku 1.—6, flokkur, i dönsku 1.—5. flokkur, í þýzku 1.—3. flokk- ur, f frönsku 1.—2. flokkur, í spönsku 1 —2. flokkur, i bók- færslu 1.—2. flokkur og í ís- lenzku 1.—2. flokkur. I mörg- um þessara námsgreina skipt- ist hver flokkur I nokkrar deildir og er þannig mögu- leiki á því að velja um mis- muhandi tíma á kvðldin. Aðrar bóklegar námsgreinar eru: algebra (bókstafareikning- ur), íslenzka fyrir útlendinga — í þessum flokkum verður kennt á þýzku, dönsku og ensku — sálarfræðí leikhús- kynning og bókmenntakynn- ing, og foreldrafnæðsla (um uppeldi barna), Sérstök ástæða er til að minnast á bókmenntakynningu á erlendum bókmenntum, sem er ný námsgrein f Námsflokk- um Reykjavíkur. Lesnir verða kaflar um einstök tímabil og höfunda, síðan verða lesin verk eða kaflar eftir höfundana, að svo miklu leyti sem hægt er í íslenzkum þýðingum. Kennsl- an fer fram í fyririestra- og samtalsformi. Kennari verður Ólafur Jónsson bókmennta- fræðingur. Námsflokkarnir hófu leik- hússkynningu í fyrsta sinn sl. vetur. Rætt var um leikritun, leiksviðstækni, leikhúsferðir, sviðsetningu og túlkun leik- stjóra og leikenda á leikritum. Flokkurinn í leikhússkynningu starfar áfram f vetur með nokkuð breyttum viðfangsefn- um. Kennari verður Sveinn Einarsson leikhússtjóri. ForeldrafræðsIaH starfar í tveim flokkum og verður í öðrum flokknum rætt um upp- eldi barna fram að 7 ára aldri og umgengni við þau, kenndir leikir, söngvar, föndur o. fl. við hæfi ungra barna og eftir áramót verður kennt ágrip af uppeldis- og sálarfræði barna í fyrirlestra- og samtalsformi. I hinum flokknum, sem fjall- ar um uppeldi 7—12 ára baroa, verða tekin til meðferðar flest sömu atriði, en miðað verður við böm á skólaaldri. Einnig verur rætt um samvinnu heim- ila og skóla, nesti og matar- æði skólabama og uppeMis- 1eg vandamál þeirra. Af verklegum greinum verða þessar kenndar: föndur (bein, horn. leður, bast, tágar, fílt Framhald á 9. siðu. Berklavörn Reykjavik Eins og að undanfömu verður kaffisala í Breið- firðingabúð á berklavarnardaginn, sunnudaginn 4. október, frá kl. 3—6 síðdegis. Þser konur sém hugs- uðu sér að gefa kökur, vinsamlegast hringi f síma 20343, Fríða Helgadóttir, eða 32044, Laufey Þórð- axdóttir, eða þá í skrifstofu S.f.B.S. sími 22150. Balletskóli Eddu Scheving Kénnsla hefst mánu- daginn 5. október. Kennt verður í K.R. bús- inu við Kaplaskjólsveg. Innritun í síma: 23-500 daglega frá kl. 1—5 e.h. Austurbæingar athugið að hraðferð Austurbær/Vesturbær stoppar við KR-húsið. Sendisveinar óskast Hafið samband við skrifstofuna, sími 17-500. DIOflUinH BALLETTSKÓLINN LAUGAVEGI 31 tekur til starfa 5. október. Kenndur verður ballett í barna- og unglingaflokk- um fyrir og eftir hádegi. Einnig verða hinir vin- sælu dag- og kvöldtímar kvenna. Kennarar við skólann eru: Björg Bjamadóttir, Winnie Schubert, Kristín Kristinsdóttir, Lilja Hallgrímsdóttir. Upplýsíngar og innritun fer daglega fram í síma 37359 kl. 4—6 e.h. Eldri nemendur ganga fyrir og eru því beðnir að hafa samband við okkur sem fyrst. CONSUL CORTINA bflalelga magnúsar sklpholll 21 slman 21100-21183 ^iaukur Gju&mundóóon HEIMASÍMI 21037 4 \

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.