Þjóðviljinn - 30.09.1964, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 30.09.1964, Blaðsíða 6
g SÍÐA ÞJðÐVILIINH Midvikudag'Ur 30 september 1964 Vilja með því öðlast aðgang að útvarpi og sjónvarpi í ensku kosningunum Forsætisráðherrann Sir Alec Douglas-Honie Kommúnistar i Englandi hafa nú ákveðið að bjóða fram í sama kjördæmi og Sir Alec Douglas-Home, forsætisráð- herra, og er þetta einn liður- inn í þeirri baráttu flokksins að öðlast fyrir kosningar að- gang að útvarpi og sjónvarpi, en Verkamannaflokkurinn og íhaldsflokkurinn þykja mjög einoka þá fjölmiðlun. Kjör- dæmið, sem hér um ræðir, heitir Kinross og er í Skot- landi. Frambjóðandi Kommúnista-^ flokksins heitir dr. Christoph- er Murray Gricve, en hann nýtur alþjóðlegrar skáldfrægð- ar undir dulnefninu Hugh MacDiarmid. Fæddur er hann árið 1892 og hefur tekið þátt í verkalýðshreyfingunni og stjómmálabaráttu hennar frá því hann var 16 ára gamall. Bak við sig hefur hann eitt- hvað um 40 Ijóðabækur. 5Er dr. Grieve skýrði frétta- mönnum frá framboði sínu lýsti hann forsætisráðherran- um sem Goldwater enskra stjómmála, hann væri einn þeirra, sem ábyrgð bæri á Múnchen-sáttmálanum ill- ræmda og hefði engum ham breytt síðan. Að sjálfsögðu gerir dr. Grieve sér engar vonir um að ná kosningu, enda er það ekki megintilgangurinn með fram- boðinu, en BBC og hið „óháða“ enska, sjónvarp hefur meinað kommúnistum í Englandi að- gang að útvarpi og sjónvarpi. En úr því Grieve hefur boðið sig fram til þings, getur hann farið í mál hvert sinn er Douglas-Home heldur ræðu í útvarp eða sjónvarp og kraf- izt þess að fá jafnan tíma til afnota. Er þetta samkvæmt enskum kosningalögum, sem hafa það takmark að skapa jafna aðstöðu fyrir frambjóð- endurna í hvérju kjördæmi. Nú er svo eftir að sjá hvern- ig tekst þessi tilraun til þess að brjóta niður þá einokunar- aðstöðu sem hinir stærri flokk- arnir hafa notið í útvarpi og sjónvarpi. Hörundsliturinn er brennimerki biökkumannsins, ekki hvað sízt í Guðs eigin landi, Bandaríkj- unum. Afstaðan til kynþáttamála veldur enn deilum með forsetaefnum Bandarikjanna, Goldwat- er lagðist gegn mannréttindalöggjöfinni og greiddi atkvæði gegn hcnni. — Hér sjáum við banda- riska lögregluþjóna misþyrma meðborgurum sinum. Skoðanakönnun aðeins óska- draumar borgarastéttarinnar í flestum löndum er skoðana- könnun orðin algengt vopn í '’kösnihgábaráttunhi. Og fram- bjóðendur dengja hver í koll- inn á öðrum síðustu tölum um ástand -og horfur, eitt, tvö eða jafnvel þrjú þúsund manns spurðir um álit sitt. O.s.frv. o. s. frv. En eftir undanfarn- ar kosningar í Danmörk og Svíþjóð, gerast þeir æ fleiri sem spyrja hvort yfirleitt sé nokkurt mark á skoðanakönnun takandi. ust útreikningar „séríræðing- anna“, að venjulegar líkur fyr- ir skekkjum hrökkva ekki til afsökunar. Skoðanakönnun er þannig á vesturlöndum oft- lega lítið orðin annað en óskadraumur borgarastéttarinn- ar, hjúpaður tölum. Greinileg- ast reyndist þetta í Svíþjóð, en útkoman með Dönum reynd- ist litlu betri, þ.e.a.s. nákvæm- ari. Einkakönnun benda til þess, að skoðana- könnun nægi til þess að vega og meta sigurlíkur og almenn- ingsálit. Nægir að minna á það, að Gallup spáði Dewey glæsi- legum sigri yfir Truman-. sem illu heilli reyndist rugl. Nú e: svo eftir að sjá, hversu mikið reynist að marka þann út- reikning stofnunarinnar, að Goldwater fái aðeins 29% at- kvæða. Churchill Hin nýja bók Heinesens er söguleg skáldsaga og gerist í Færeyjum á því herrans ári 1669.—Hér er vikið lítillega að tveim ritdómum um bókina og er annar norskur en hinn danskur Eins og kunnugt er heíur færeyska skáldið William Heinesen nú gefið út nýja bók sem nefnist „Det gode háb“. Tveir ritdómar hafa borizt um bókina hingað á Þjóðviljann, og skal lítillega á þá drepið en mönnum ella bent á að lesa bókina — Heinesen svíkur engan. f danska borgarablaðinu „Information“ ritdæmir Sven nokkur Holm bókina og vit- um við ekki hvað manna það er. f undiríyrirsögn segir á þessa leið: „Hin nýja skáld- saga Williams Heinesen kem- ur út í dag og er Ijómandi góð skemmtun. en hvað er hún annað?“ Rildómarinn telur Heinesen ekki hafa „framið“ hér neitt meistara- verk, enda þótt bókin sé til skiptis skemmtileg og drama- tísk. Eins og lesendur „Þjóð- viljans“ munu minnast úr viðtali, sem fréttamaður „Land og Folk“ átti við Heinesen og birt var hér í blaðinu, kvaðst höfundur vilja gera sitt til þess að brjóta niður þann múr, sem reistur væri milli Salómons konungs og Jörgens hatta- makara — í þessu dæminu lesandans og skáldsins. Þessi ummæli hins færeyska skálds virðast hafa farið meir en litið i betri taugar ritdóm- arans, hann segir að vísu, að sem skemmtun sé bókin ó venjuleg að gæðum, en þyk- ir slikt hvergi nærri nóg. f „Dagblaðinu" norska birt- ist svo ritdómur um bókina og stendur undir JB, sem gæti staðið fyrir Johan Borg- en. Og hér er ekki sparað hrósið, fyrirsögnin ein næg- ir sem dæmi: „Ny, stor Heinesen*. Ritdómarinn vík- ur einnig að áðurnefndum ummælum Heinesens, og seg- ir slíkar yfirlýsingar í meira lagi hættulegar. En ritdóm- arinn kveðst ekki geta séð að Heinesen hafi á nokkurn hátt brugðizt, allra sízt list- rænt, og bætir við, að það sé nú raunar óhugsandi. í stuttu máli sagt kveður JB. hver sem hann kann að vera, þessa nýju bók Heinesens „dýrlegt ævintýri“ — enda þótt hún sé skemmtileg, en slíkt virðist nú álitið höfuð- glæpur af mörgum hinum ungu rithöfundunum. Bókin er ella söguleg skáld- saga og gerist í Færeyjum. Peder Börrcsen er einn herr- ans þjónn og eitt hjartans bam sem kemur til Þórshafn- ar 1669. Og þar eiga við orð sjóferðavísunnar fornu, að „ástandið er ekki gott, á henni Jósefínu". „Danskur djöfull" í fógetalíki, „pínir alþýðuna" sem bezt hann getur og það er hreint ekki svo lítið. Fyrr en klerkur veit af er hann orðinn spámaður og frelsis- hetja öreigalýðsins við höfn- ina og berst á tvennum víg- stöðvum: Við glæpalýð fógeta og freistingar í eigin barmi, Bakkus konung sjálfan. Fram af síðum bókarinnar stiga svo persónurnar eins og Heine- sen einn getur skapað þær, og hafi menn lesið „Slag vind- hörpunnar“ þarf ekki að lýsa því fólki nánar. Þess skal að lokum getið. svona rétt til uppfyllingar, að Gyldendal gefur bókina út, hún er 346 blaðsíður og kost- ar 39,50 kr. danskar. Bókin mun vera komin í bókabúðir hér í Reykjavík og víst er um það, að margir munu hyggja gott til glóðarinnar. laus eftir 65 ára fangelsi Laus úr fangclsi! ESTCOURT — Lítill bær í Suður-Afríku, Estcourt að nafni, hefur nú gefið út op- inbera tilkynningu þess efnis, að Sir Winston Churchill hafl verið látinn laus úr fangelsi bæjarins. Bak við þessa frétt felst saga frá þeim tíma, er Chur- chill var fréttaritari í Búastríð- inu. 1899 var hann tekinn til fanga af ibúunum í Estcourt, en beið þess ekki, að hann slyppi laus, heldur gerði sér lítið fyrir og brauzt úr dýfl- issunni. Það er ekki fyrr en nú, sem honum er flóttinn fyr- irgefinn. Afleiðingin af öllu þessu hef- ur svo orðið sú, að flokkamir eru hættir að treysta þeim fyr- irtækjum, sem við skoðana- könnun fást, en framkvæma heldur sína eigin. Fólkafiokk- urinn í Svíþjóð sá sig þannig tilneyddan að framkvæma sína Það er afstaða Goldwatcrs til kjarnorkuvopna sem fremur öðru'veldur því að samkvæmt skoðlanakönnunum — hversu áreiðanleg scm hún nú er — þora aðeins 29% bandarískra kjósenda að ljá honum atkvæði sitt. — Undir myndinni stcnd- ur: „Mamma, hversvegna eru hinir krakkarnir hræddir að lejka við mig?“ eigin könnun og hefur lýst því yfir, að hann sé sannfærður um það, að þær tölur úr hinni opinberu skoðanakönnun, sem birtar voru rétt fyrir kosning- ar, hafi verið rangar, enda bendir atkvæðamagn flokksins sterklega til þess, að svo sé. f Bandaríkjunum hefur Lynd- on B. Johnson komið á lagg- imar sinni eigin skoðanakönn- un fyrir forsetakosningar, og j Barry Goldwatcr líka. SHk einkakönnun hefur auk þess þann kost með sér, að hagræða má útkomunni, eða í versta falli þegja alveg um hana — eins og Goldwater hefur gert. Gallup f Englandi er beðið með mik- illi eftirvæntingu eftir úrslit- um kosninganna 15. okt. næst- komandi. Þar rekur hver skoð- anakönnunin aðra, og ber víst engum tveim saman. Þekktasta stofnunin, sem við skoðana- könnun fæst, er annars Gallup- stofnunin í Bandaríkjunum. Þykir hún hin vandasta að virðirigu sinni og vill reynast heiðarleg í alla staði. Þó hef- ur sú stofnun gert á tíðum furðulegar skyssur sem sízt — Góður pókerspilari hef- ur allar aðstæður til þess að inna af hendi flókna vinnu. — Góður pókerspilari þarf ekki að vinna! (Salon Gahlin). Kommúnistinn Óskadraumur borgara- stéttarinnar Það hefur nefnilega komið í ljós, að Svíar ætluðu sér aHt annað, en skoðanakönnun sagði til um. Svq mikill mis- brestur reyndist á því, að stæð- Kommúnistar bjóða nú fram gegn Sir Alec Douglas-Home

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.