Þjóðviljinn - 30.09.1964, Page 12
/
Opið til kl. 7 í kvöld - HAPPDRÆTTI ÞJÓDVILJANS
Þessi mynd er tckin skömmu eftir lendingu í Eyjum X. október 1939. Taiið frá vinstri Agnar Koe-
fod Hansen, flugmáiastjóri, sem þá var 24 ára og flugmaður vélarinnar. Bergur Gíslason, stór-
kaupmaður, sem þá var 31 árs og var farþegi með vélinni. Bergur var þá mikill áhugamaður
fyrir hröðu sporti. Var til dæmis snjall á mótorhjólum og hafði mikinn áhuga fyrir flugi.
25 ÁR FRÁ ÞVÍ FYRST
VAR FLOGIÐ TIL EYJA
wmm
Miðvikudagur 30. september 1964 — 29. árgangur — 221. tölublað.
Nýr námsstjóri fyrir Norðurland
Skipun banka-
stgórnarfull-
trúa mót-
mœlt
1 gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
Félagi starfsmanna Landsbanka
íslands:
Eftirfarandi ályktun var gerð
á fundi í Félagi starfsmanna
Landsbanka íslands, í dag:
„Almennur fundur í Félagi
starfsmanna Landsbanka íslands,
haldinn þriðjudaginn 29. sept.
1964, mótmælir harðlega skipun
Björgvins Vilmundarsonar í
stöðu fulltrúá bankastjórnar
Landsbankans. Jafnframt harm-
ar fundurinn þá stefnu banka-
ráðsins, sem augljós er með
þessari stöðuskipan, að lítils-
virða hæfni, reynslu og trúnað
starfsmanna, sem gengt hafa á-
byrgðarstöðum innan bankans.“
Smysloff og
Uhlmann efsfir
Smysloff og austur-þýzki
skákmeistarinn Uhlmann urðu
sigurvegarar á minningarmóti
um Capablanca, sem staðið hef-
ur yfir í Havana á Kúbu að
undanförnu. Hlutu þeir 16 vinn-
inga úr 21 skák. Meðal kepp-
enda voru margir fremstu skák-
menn heims, svo sem Taimanoff,
Pachmann, Evans, Stáhlberg,
Donner og Robatsch, svo að
þessi árangur Uhlmanns er mik-
ill sigur fyrir hinn unga skák-
mann.
Neistí, málgagn Æskulýðsfylk-
ingarinnar, er nýkomið út. Það
er 3. tölublað 2. árgangs. Rit-
nefnd Neista skipa nú Hallveig
Thorlacius, ritstjóri, Þorsteinn
frá Hamri og Eyvindur Eiríks-
son. Gísli B. Björnsson sá um
útlit blaðsins.
Káputeikningu blaðsins gerði
Gunnlaugur Stefán Gíslason.
A 2. síðu er minningargrein
um Ara Jósefsson skáld. Þá er
greinin í tilefni þings þar sem
rætt er um undirbúning Fylk-
ingarþingsins, sem nú er nýlok-
ið,
í þessu blaði Neista heldur á-
fram greinaflokkurinn „Af ís-
lenzku þjóðfélagi“. Þar ritar
Gunnar Guttormsson grein, sem
hann nefnir Iðnfræðsla í deigl-
unni. Þá er þýdd grein eftir
Bertrand Russell, sem nefnist
Mannlífi ógnað. Grein þessa
skrifaði Russell fyrir málgagn
Alþjóðasambands lýðræðissinn-
aðrar æsku (WFDY), „Æsku-
lýður heimsins“ og kom hún í
2 tbl. þess 1964.
Þá ritar Gísli B. Björnsson,
Ristil um reisu sína á WAY-
þing í Bandaríkjunum. Á átt-
Á morgun 1. október eru 25
ár líðin síðan lent var í fyrsta
sinn í Eyjum. Þá dáð vann
Agnar Koefod-Hansen nú fiug-
málastjóri.
undu síðu er ljóð eftir Þorstein
frá Hamri, sem aldrei hefur
komið á prenti áður og kaliar
skáidið það „Komið út undir
bert Ioft.“
Þá eru fjórar síður í blaðinu
notaðar til kynningar á verkum
fimm ungra listamanna. Þar eru
ein eða tvær myndir eftir hvern
þeirra ásamt ýmsum persónuleg-
um upplýsingum. Listamennirn-
ir eru Kristján J. Guðnason,
Guðmundur Á. Sigurjónsson,
Hallsteinn Sigurðsson, Jón Reyk-
dal og Einar Hákonarson, allir
úr Reykjavík.
Þá er birtur kafli úr stefnu-
skrá Æskulýðsfylkingarinnar í
æskulýðsmálum þar sem fjallað
er um stofnun heimilis og sér-
stök vandamál sveitaæskunnar.
Hjörleifur Guttormsson þýðir
stuttan kafla úr leikriti Bertolts
Brechts „Eymd og ótti þriðja
ríkisins“.
Þá eru í blaðinu tvær greinar
eftir Ölaf Einarsson: Um náms-
laun og Skipulag félagslífsins.
Og aftast í ritinu er grein um
skipulagsmál ÆF eftir Leif Jó-
elsson.
Þá er í ritinu Spjall, Frá
ÆFH og margt fleira.
Árin 1919 og 1920 var fyrst
reynt að lenda í Vestmanna-
eyjum en án árangurs. Síðan
var sá orðrómur á kreiki að
engin leið væri að lenda þar
unz bæjarstjórn Vestmanna-
eyja undir forystu Kristjáns
Linnet bæjarfógeta fór þess á
leit við Agnar, að hann gerði
tilraun til að lenda þar. Þá
hafði Agnar til umráða tveggja
sæta vél af gerðinni KLEM 25
og hafði þegar lent á u.þ.b.
50 stöðum víðsvegar á landinu,
sem aldrei hafði verið lent á
áður.
Á þessari vél fór Agnar síð-
an í könnunarflug yfir Eyjar og
tókst ekki að finna neinn stað
þar sem hættulaust var að
lenda. Þá gripu Eyjabúar til
þeirra ráða að fjarlægja girð-
ingar og afmörkuðu svæði til
lendingar sem var innan við
hundrað metra langt
1. október 1939 rann svo upp
og varð síðan merkur dagur í
sögu Vestmannaeyinga. Agnar
Eftir einn mánuð hyggst Véla-
deild SÍS sýna almenningi nýj-
ustu gerðir af Chevrolet bifreið-
um og vom þær allar teknar út
úr leyniskemmum 24. september
síðastliðinn og eru nú á leiðinni
til landsins. Verður sýningin 1
hinu nýja húsnæði hennar að
Ármúla 3 hér í bæ. Eru þetta
allt árgerðir 1965 og verða þess-
ar bifreiðir sýndar: Chevrolet,
Chevelle, Chevy II og Corvair.
Helztu breytingar á þessum bí'I-
um má rekja til áhrifa frá ev-
rópskum sportbílum, þar sem
línan er eilítið bognari í útliti
lagði af stað ásamt Bergi Gísla-
syni, sem nú er stórkaupmaður
í Reykjavík, til Vestmannaeyja.
Veðurskilyrði voru sæmileg suð-
vestan 3 vindstig. Eftir að hafa
flogið ■ einu sinni yfir lending-
arstaðinn ákváðu þeir Bergur
að láta til skarar skríða og
lendingin tókst en mjóu mun-
aði. Þar með hafði flugvél lent
i fyrsta sinn í Vestmannaeyj-
um.
En ekki var björninn endan-
lega unninn, því nú þurfti að
komast af stað úr Vestmanna-
eyjum og á því voru ýmsir
örðugleikar. En það tókst einmg
eftir glæfralegt flugtak.
Nú er flugvél Agnars geymd
og er ætlunin að hún fari á
byggðasafn Vestmannaeyinga.
Ekkert varð um reglulegar
flugsamgöngur til Eyja meðan
á stríðinu stóð en 1946 var
hafizt handa við lagningu flug-
vallar, og frá 1947 hafa stöð-
ugar áætíunarflugferðir verið
þangað.
þeirra, en hingað til hefur hlið-
arlínan verið þráðbein.
Piltur og
stúlka féllu
í höfnina
★ í fyrrinótt um kl. 2.30 vildi
það óhapp til við höfnina að
ungur maður sem var að koma
frá borði í Brúarfossi féll í höfn-
ina. Félagi hans sem með hon-
um var varpaði sér til sunds
og tókst að halda honum uppi
þar til hjálp barst en það var
ekki fyrr en eftir nær hálftíma
að lóðsbóturinn kom á vettvang
og voru þeir þá orðnir mjög
þrekaðir. Voi-u þeir fluttir í
slysavrðstofuna og dvöldust þar
það sem eftir var nætur.
★ Um það bil hálftíma síðar
féll stúlka í höfnin út af Faxa-
garði. Piltur sem var þar nær-
staddur stakk sér á eftir henni
og gat haldið henni uppi unz
lögreglan kom á vettvang og
náði þeim upp. Voru þau einnig
flutt í slysavarðstofuna.
Akureyri, 29/9 — Nýr náms-
stjóri fyrir barnafræðslustig
í Norðlcndingaf jórðungi hefur
verið ráðinn. Er það Valgarður
Fimm umferðum er nú lokið
í Haustmóti Taflfélags Reykja-
víkur, sem hófst hinn 20. þ.m.
Keppendur eru 14 í meistara-
flokki og verða tefldar 9 um-
ferðir eftir Monradkerfi.
Guðmundur Sigurjónsson er
efstur með 3% vinning og bið-
skák, Björgvin Víglundsson og
Björn Jóhannesson eru með 3
Sl. mánudag fór fram kosn-
ing fulltrúa á Alþýðusambands-
þing í Verkalýðsfélaginu Esju
í Kjós. Kosningin fór fram á
fundi í félaginu og var Bryn-
Haraldsson, sem verið hefur
kennari við Barnaskóla Akur-
eyrar undanfarin ár.
vinninga og biðskák. Björn á
unna biðskák ,gegn Benóný
Benediktssyni, en Björgvin á
skiptamun yfir í biðskák gegn
Guðmundi Sigurjónssyni.
Sjötta umferð verður tefld í
kvöld og biðskákir annað kvöld.
Teflt er í MÍR-salnum við Þing-
holtsstræti.
jólfur Guðmundsson kjörinn
aðalfulltrúi félagsins. Hlaut
hann 7 atkvæði en fulltrúaefnl
íhaldsins 5 atkvæði
BLAÐBURDUR
Þjóðviljann vantar nú þegar fólk til blaðburðar í þessi hverfi:
VESTURBÆR: Kvisthagi — Skjólin — Seltjarnarnes I. — Tjamar-
gata.
AUSTURBÆR: Laufásvegur — Njálsgata — Grettisgata — Berg-
þórugata — Freyjugata — Háteigsvegur — Höfðahverfi — Klepps-
vegur — Brúnir — Langahlíð — Heiðargerði — Bústaðahverfi.
KÓPAVOGUR: Blaðburður — Laus hverfi i austur- og vesturbæ.
Nýtt, f jölbreytt
hefti af Neista
Komnir úr leyniskemmunum
Malbikunarframkvæmdir á Selfossi
SELFOSSI, 28/9.
í gærmorgun var hafizt handa
við malbikun á Austurvegi á
Selfossi. Er búizt við að malbik-
uninni ljúki á fimmtudagskvöld.
Kaflinn, sem malbikaður er nú
nær frá Landsbankaútibúinu og
litið eitt vestur fyrir Ölfusárbrú
Eyjabátar halda austur
Vestmannaeyjum, 29/9 —
Nokkrir Eyjabátar eru nú á för-
um austur til síldveiða eftir þær
góðu fréttir, sem borizt hafa
þaðan af miðunum síðustu daga.
Það eru Kristbjörg, Ófeigur III.,
2000 fjár færra slátrað en í fyrra
Sauðárkróki, 29/9. — Slátrun
stendur nú sem hæst hér á
Sauðárkróki. Búizt er við að
slátrað verði um 36 þúsund
fjár hjá Kaupfél. og er það
um 2000 færra en í fyrra. Hjá
Verzlunarfélaginu verður hins
Ný brú yfir Búðará
Reýðarí'irði, 29/9 — Nýlokið
er við að byggja brú yfir Búð-
ará í þorpinu og er það hin
mesta bæjarprýði.
Síðastliðna tvo mánuði hefur
vinnuflokkur undir stjórn Sig-
Fimm umferðum lokið á Haust
móti TR
KOSIÐ TIL ASÍ-ÞINGS
Sjálfkjörið hjá húsgagnasmiðum
Sveinafélag húgagnasmiða
kaus fulltrúa á þing Alþýðu-
sambands Islands á félagsfundi
sl. fimmtudagskvöld. Urðu full-
Sjálfkjörið í Grafarnesi
GRAFARNESI í Grundarf. 29/9
Siðdegis í gær rann út frestur
til að skila framboðslistum til
fulltrúakjörs til Alþýðusam-
bandsþings í Verkalýðsfélaginu
Stjörnu í Grafarnesi. Aðeins
Esja í Kjós kýs fulltrúa á ASÍ-þing
eða að þeim kafla sem áður
hafði verið malbikaður.
Framkvæmdir við undirbún-
ing malbikunarinnar hafa staðið
yfir í allt sumar og mun ekki
vera ætlunin að fara út í frek-
ari framkvæmdir í haust.
Huginn II., ísleifur IV. og B»g-
ur. Þá er vitað um Guðmund
góða RE, Engey Re, Ásbj'öm
RE, Jörund II. og Sólrúnu frá
Bolungarvik og Pétur Sigurðs-
son RE. — Már.
vegar slátrað svipuðum fjölda
og í fyrra eða 7—8 þúsund fjúr.
Dragnótabátar hafa veitt vel
að undanförnu og er talsverð
vinna við nýtingu aflans. —
H.S.
urðar Jónssonar verið hér við
byggingu hinnar nýju brúar.
Búizt er við að brúín verði
tekin í notkun um miðjan októ-
ber. — B.J.
trúamir sjálfkjörnir. Aðalfull-
trúi var kjörinn Bolli Ólafsson,
en til vara Ottó Malmbérg.
einn listi barst og var hann bor-
inn fram af stjóm og trúnaðar-
mannaráði. Aðalfulltrúi félags-
ins á AS-þing var kosinn Sigur-
vin Bergsson en varafulltrúi
Sigurður Lárusson.