Þjóðviljinn - 17.10.1964, Blaðsíða 3
Laugardagur 17. oktöber 1964
ÞlðÐVILTINN
SlÐA 3
Spiegelmálið alræmda hef ur
nú verið vakið upp að nýju
KARLSRUHE 16/10 — Saksóknari ríkisins í yest-
ur-Þýzkalandi höfðaði á föstudag mál gegn Rudolf
Augstein, útgefanda vestur-þýzka vikublaðsins
„Der Spiegel", aðalritstjóra blaðsins, Conrad Ahl-
ers, og liðsforingja einum í hernum. Öllum er
mönnum þessum gefin landráð að sök. Þetta var
opinberlega tilkynnt í Karlsruhe í dag.
Þessi málshöfðun kemur tveim
árum eftir Spiegel-málid svo-
nefnda, sem varð eitt mesta
hneykslismál eftirstríðsáranna í
Vestur-Þýzkalandi og hafði í
för með sér. að Konrad Aden-
auer neyddist til þess að reka
vamarmálaráSherra, sinn, Franz-
Josef Strauss, úr stjórninni.
Kýsti heræfingu
„Der Spiegel“ haf'ðj þá birt
grein með harðri gagnrýni á
vestur-þýzka herinn, og héldu
Mannaskipti
Framhald af 1. síðu.
sína og þrír nánir samstarfs-
menn Krústjoffs aðrir. Eru
það þeir Oleg Trojanofskí, sem
verið hefur um árabil túlkur
Krústjoffs, Vladimír Lebedef
og Alexander Sjúiskí, einn
helzti sérfræðingur hans í land-
búnaðaTmálum.
Óbreytt utanríkisstefna
Við móttökuathöfn í Kreml á
föstudag lýstu sovézkir embætt-
ismenn því yfir við erlenda
fréttamenn, að ekki væri að
vænta neinna breytinga á ut-
anríkisstefnu Sovétríkjanna við
þessi mannaskipti í æðstu stjórn
landsins, e hinsvegar gáfu þeir
í skyn, að breytinga væri von
í áætlunarbúskap og iðnaðar-
málum. Er þetta í samræmi við
orðsendingu, sem Sovétstjómin
hefur sent ríkisstjómum ýmissa
landa, þeirra á meðal Banda-
ríkjastjóm, og ítrekað þar að
Sovétríkin muni sem fyrr leggja
megináherzlu á friðsamlega
sambúð ríkja og alþjóðasam-
vinnu.
Svíarnir smygl-
uðu líka bréfum
STOKKHÖEMI 16/10 — Sænsku
liðsforingjamir tveir, sem smygl-
uðu vopnum og skotfærum fyrir
tyrkneska Kýpurbúa, smygluðu
einnig bréfum milli Tyrkja í
Kokkina og Lefka. Þetta kemur
fram í kærunni á hendur liðs-
foringjunum, en hún var birt
í dag. Láðsforingjarnir heita
Hélge Hjalmarsson og Lars
Lindh og eru 30 og 27 ára að
aldri. Þeir eru kærðir fyrir gróf
afbrot í starfi sínu og geta sam-
kvæmt lagabókstafnum hlotið
allt að sex ára fangelsi. Hinn
opinberi ákærandi lagði á það
áherzlu. að hegðun Svíanna 2ja
hafi orðið þess valdandi að
rýmaði traust Kýpurbúa á
sænska herliðinu á eynni. Verk-
efni þess sé nú sýnu erfiðara.
Cole Porter látinn
SANTA MONICA 16/1 j. — Hinn
heimsþekkti bandaríski óperettu-
höfundur Cole Porter andaðist
á sjúkrahúsi í Santa Monica í
Kalifqrníu á fimmtudagskvöld.
Hann varð 73 ára gamall.
Rudolf Augstcin
yfirvöld því fram, að greinin
hefði haft inni að halda upp-
lýsingar. sem leynilegar hefðu
átt að vera með tilliti til ör-
yggis landsins. 1 greininni var
ítarlega lýst heræfingu á veg-
um Nato og undirstrikuð sú
skoðun blaðsins, að vamir
Vestur-Þýzkalands væm hvergi
nærri fullnægjandi.
Handtökur og húsrannsókn
Nærri þrem vikum eftir að
blaðið hafði birt grein sína
framkvæmdi leynilögreglan • hús-
rannsókn í aðalstöðvum blaðs-
ins í Hamborg, og skrifstofum
þess í Bonn. Rudolf Augstein
og með honum tíu menn aðrir
voru settir undir lás og slá
og sakaðir um landráð Þeim
var þó öllum smám saman
sleppt. Ritstjórnarskrifstofur
blaðsins í Hamborg voru lok-
aðar um mánaðartíma, og lög-
reglan lagði hald á um 209
skjalamöppur fullar af pappír
úr skjalasafni blaðsins. Var
möppunum ekki aftur skilað
fyrr en að ári liðnu.
Strauss hröklaðist frá
Strauss missti sæti sitt í rík-
isstjóminni vegna þeirrar gíf-
urlegu athygli, sem hlutdeild
hans í handtöku Ahlers vakti.
Síðan hefur málið verið af yf-
irvaldanna hálfu látið kyrrt
liggja unz þeir Conrad Ahlers
og Rudolf Augstein eru nú sak-
aðir um að hafa stofnað öryggi
Vestur-Þýzkalands í voða með
því að taka við ríkisleyndar-
málum frá Alfred Martin, höf-
uðsmanni í hernum.
De Gaulle hélt
heim í gær
RIO DE JANEIRO 16/1» —
Charles de Gaulle, Frakklands-
forseti, Iauk á föstudag 26 daga
hringferð sinni um Suður-Amer-
íku. Hann hélt heimleiðis til
Parísar með flugvél frá Rio de
Janeiro í Brasilíu.
Á fimmtudagskvöld barst de
Gaulle fregnin um það að Krúst-
joff hefði lagt niður völd og sást
ekki bregða. Heimsókn hans til
Brasilíu stóð í þrjá daga og bar
ekki til tíðinda. Hringferð Frakk-
landsforseta hófst í Caracas í
Venezúela 20. sept. sl. og síðan
hefur hann heimsótt Kðlornbíu,
Equador, Perú, Bólivíu, Chile,
Argentínu, Paraguay, Uruguay
og Brasilíu. Maurice Couve de
Murville, utanríkisráðherra, hef-
ur verið í för með honum.
Einu teljandi óspektirnar í
þessari ferð de Gaulles áttu sér
stað í Cordoba í Argentínu, en
þar umkringdu Peronistar bíl
þann er de Gaulle og Arturo
Illia, Argentínuforseti, óku í.
Rúða var brotin í bílnum áður
en lögreglan beitti táragasi og
kylfum og dreifði mannfjöldan-
um.
Harold Wilson myndar stjórn
Framhald af 1. síðu.
og er mótframbjóðandi hans,
Griffith að nafni, sakaður um að
hafa notfært sér andúð kjós-
enda á þeldökkum innflytjend-
um og það á hátt sem Wilson
hefur kallað smánarblett á ensku
lýðræði. Það er hefð í enska
þinginu, að utanríkisráðherrann
eigi sæti í Neðri málstofunni, og
verður Gordon-Walker því vænt-
anlega tryggt öruggt þingsæti
þegar slikt kann að bjóðast.
George Brown, einn kunnasti
forystumaður Verkamannaflokks-
ins og fyrrum keppinautur Wil-
sons um forystu hans, hefur ver-
ið skipaður ráðherra þeirra mála,
er að hagþróun lúta. Hann verð-
ur einnig staðgengill Wilsons
þegar forsætisráðherrans fer ut-
an, . ida þótt Brown hafi ekki
formlega verið skipaður vara-
forsætisráðherra, enda slíkt ekki
venja í Englandi. Herbert Bow-
den verður ,,Lord President of
the Council“ og einnig hefur
Dennis Healey, kunnur Verka-
mannaflokksþingmaður, hlotið
sæti vamarmálaráðherra. Ed-
ward Short fær hið erfiða verk-
efni að verða „þingfundasmali“
Verkamannaflokksins. James
Callaghan hefur verið skipaður
fjármálaráðherra, en nöfn ann-
arra ráðherra verða birt á
morgun.
8-11
Höfum opið frá kl. 8 f.h. til kl. 11 e.h. alla daga
vikunnar virka sem helga-
Hjólbarðaviðgerðin
Múla v/Suðurlandsbraut
Sími 32960.
Kjarnasprenging
Framhald af 1. síðu,
Fréttin um kjarnasprengingu
Kínverja kom ekki á óvart. Fyr-
ir í’úmum hálfum mánuði skýrði
Rusk, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, frá því að búast mætti
við slíkri sprengingu alveg á
næstunni.
Víða var á það minnzt í dag
að nú væri ekki lengur stætt á
því að banna Kína aðild að SÞ.
Hækkerup, utanríkisráðherra
Dana, sagði að kjamasprenging-
in væri enn ein röksemd fyrir
því að taka Kina í SÞ og Er-
lander. forsætisráðherra Svía,
harmaði það að Kína skyldi ekki
þegar vera í samtökunum, svo
að landið hefði getað tekið þátt
í alþjóðasamstarfi til að hindra
frekari útbreiðslu kjarnavopna.
Vaialaust hafa hin löngu og ströngu ferðalög Krústjoffs verið erfið manni á hans aldri og
á þessu ári hefur hann verið svo að segja á s töðugu ferðalagi innan lands og utan. Myndin
er tekin af honum og Kadar forsætisráðherra í Búdapest í vor.
Við sem höfum þann starfa
að fylla dálka blaðanna
með markverðum tíðindum
héðan eða handan hálfkvíð-
um fyrir sumrinu, þeim tima
ársins -sem reynslan hefur
kennt okkur að sjaldnast er
að vænta mikilla viðburða.
Blaðamenn í öðrum löndum
kalla sumarið óvirðulegum
nöfnum, þeir tala um „ag-
urketid“ og „spinach season“,
mér er ókunnugt hvernig á
þeim nafngiftum stendur,
nema þessir ágætu ávextir
séu ekki taldir sérlega girni-
legir og eigi því vel við þær
fréttir sem að jafnaði ber-
ast að sumarlagi. Hver sem
ástæðan er, og sjálfsagt væri
hægt að láta sér detta ýmsar
í hug, er þessi reynsla frétta-
manna allóskeikul og hún
hefur þá heldur ekki brugð-
izt í sumar fremur en oftast
endranær. Sumarið hefur
Yerið óvenju viðburðalítið
á erlendum vettvangi, jafn-
vel „hið langa heita sumar“
sem búizt var við í Banda-
ríkjunum varð styttra og
svalara en flestir höfðu ætl-
að. En reynslan er einnig sú
að þegar fer að hausta má
fara að búast við tíðindum,
og sá fréttamaður er á rangri
hillu sem ekki hlakkar til
þess að geta sagt lesendum
sínum eða áheyrendum frá
merkisviðburðum, hverjir
sem þeir kunna að vera.
Sá sem þetta ritar minnist
þess ekki að jafn mörg
og mikil tíðindi hafi áður
borizt á einum eða tveimur
dögum og orðið hefur nú að
loknu þessu sumri. Manna-
skiptin í Moskvu, kjarnorku-
sprengingin í Kína, valda-
taka Verkamannaflokksins í
Bretlandi, allt eru þetta
heimsviðburðir, sem munu á
næstu misserum og árum
móta gang sögunnar, og októ-
bermánuður anno 1964 hefur
tryggt sér veglegan sess á
spjöldum hennar. En þótt
atburðimir muni þannig mið-
aðir við þennan mánuð árs-
ins er Ijóst að þeir eiga
sér allir langan aðdraganda.
Þegar fréttin af mannaskipt-
unum í Moskvu barst í fyrra-
dag, mátti ætla að ákvörðun-
in um valdaafsal Krústjoffs
hefði verið tekin án mikils
fyrirvara Hún kom þá líka
á óvart, þótt leiða mætti lík-
ur að því að hún hefði ver-
ið í bígerð nokkra hríð, og
ástæðurnar sem tilgreindar
voru, aldur og heilsubrestur,
gætu talizt harla sennilegar.
En þær frekari fréttir sem
bárust frá Moskvu í gær
benda eindregið til þess að
með hinum tilgreindu ástæð-
um hafi ekki verið sögð öll
sagan. Enn er óljóst hvað
gerðist í rauninni á mið-
stjómarfundinum i Moskvu
á miðvikudag, en nú þegar
virðist óhætt að fullyrða að
afsögn Krústjoffs hafi ekki
farið fram jafn snurðulaust
og látið var í skína í hinni
opinberu tilkynningu. Frétta-
ritarar segja nú að vænta
Mannaskiptín og
deilan við Kína
megi frekari frásagnar af því
sem á fundinum gerðist og
öllum aðdraganda manna-
skiptanna og sjálfsagt er að
geyma frekari útlistanir þar
til meiri vitneskja er fengin.
Það virðist nú augljóst að
hvemig sem mannaskipt-
in bar að séu þau í tengsium
við þær miklu deilur sem
staðið hafa undanfarið milli
kommúnistaflokka Sovétrikj-
anna og Kína. Yfirlýst við-
horf kínverskra leiðtoga hafa
verið slík að óhugsandi var
að sættir tækjust milli flokk-
anna á meöan Krústjoff
gegndi forustustörfum í Sov-
étríkjunum. Það kann að vera
að hann hafi sjálfur gert sér
þetta Ijóst og hafi því talið
heppilegra að segja af sér,
áður en sú ráðstefna komm-
únistaflokkanna sem boðuð
hefur verið í Moskvu 15. des-
ember kemur saman. Til
hennar voru boðaðir fulltrúar
25 kommúnistaflokka. auk
sovézka flokksins. Undirtektir
hafa ^erið dræmar, svo að
ekki se fastar að oi'ði kveðið.
Mönnum telst svo til að að-
eins ellefu flokkar, að þeim
sovézka meðtöldum, hafi fall-
izt á, skilyrðislaust og án
nokkurs fororðs. að senda
fulltrúa á ráðstefnuna. Kín-
verski flokkurinn og þeir
flokkar í hópnum sem hon-
um fylgja fastast að málum
hafa ýmist hafnað boðinu eða
virt það að vettugi. Aðrir, og
þar má einkum nefna ítalska
flokkinn, hafa varað við
þessari ráðstefnu og dregið í
efa að nokkurt gagn gæti
hlotizt af henni. Hvort sem
Krústjoff hefur verið að-
alhvatamaður ráðstefnunnar
og þess uppgjörs við kín-
verska kommúnista sem
greinilega stóð til að færi
fram á henni eða aðrir áttu
þar meiri hlut var til hennar
boðað í hans nafni sem leið-
toga sovézka flokksins, og
hinnar dræmu undirtektir
voru því áfall fyrir stefnu
hans og starfsaðferðir. Það er
sjálfsagt engin tilviljun að
þeir menn sem fyrstir verða
að víkja úr embættum eftir
mannaskiptin í Sovétríkjun-
um hafa allir staðið í
fremstu víglinu í því áróðurs-
striði sem sovézkir og kín-
verskir kommúnstar hafa háð
af miklu kappi, en báðir —
því miður — af minni forsjá,
undanfarin misseri. Það skal
látið ósagt hvort brotthvarf
Krústjoffs og ýmissa wáinna
samstarfsmanns hans nægir
(51 að greiða götu fyrir sátt-
um og samkomulagi milli
ráðamanna í Moskvu og Pek-
ing. En því fer áieiðanlega
raíög fjarri að það eitt dugi
til að jafna dedurnar. Þótt
ætla megi, eins og hér hefur
verið gert, að afsögn Krú-
stjoffs sé tengd deilunum við
Kínverja, þá er það víst að
hinir nýju sovézku ráðamenn
hafa í öllum meginatriðum
sömu viðhorf og hann. I ó-
staðfestri en sennilegri frétt
segir að hann hafi verið
gagnrýndur fyrir það hvemig
hann hafi haldið á málum.
en ekki fyrir þarrn málstað
sem hann hélt fram. Sú
gagnrýni er ekki ný; hún var
megininntak minnisblaða
Togliattis heitins.
Það er vitaskuld tilviljun,
en næsta furðuleg þó, að
Kínverjar skyldu sprengja
fyrstu kjamasprengju sína
einmitt þegar Krústjoff hafði
láfið af embætti. Eitt atriðið
í gagnrýni þeirra á fram-
komu Sovétríkjanna í þeirra
garð í stjómartíð hans var
að þau hefðu svikið gerða
.-.amninga um aðstoð í kjam-
orkuvísindum og þarmeð við
smíði kjamavopna. Hin nýja
kjarnasprengja Kínverja á
sér auðvitað langan aðdrag-
anda; þeir hafa unnið að
smíði hennar mörg undanfar-
in ár og hafa ekki farið dult
með að það vekti fyrir þeim
að koma sér upp fullkomn-
um kjarnavígbúnaði. Það er
ástæða tii að harma að þeir
töldu sig ekki eiga annars
kost, en kjarnasprenging
þeirra er staðfesting á stór-
veldisaðstöðu þeirra og ber
jafnframt vitni um öra tækni-
þróun, þótt enn kunni að líða
nokkur ár þar til þeir verða
jafnokar hinna stórveldanna
í þeirri list að kunna að út-
rýma öllu mannkyni á nokkr-
um andartökum. En hún er
jafnframt þörf áminning 511-
um þeim sem haldið hafa að
hægt væri til frambúðar að
láta sem stærsta og elzta
menningarþjóg heimsins væri
ekki til. Það er leitt til þess
að vita, en er þó tímanna
tákn, að múgdrápstæki sé
slíkri þjóð nairðsynlegur að-
göngumiði að eðlilegum sam-
skiptum við aðra. Það er á-
stæða . til að fagna því að
Kínverjar hafa strax boðizt
til þátttöku í ráðstefnu stór-
veldanna um algert bann við
kjarnavopnum, en aðeins
slíkt bann gæti endanlega
bægt frá dyrum hættunni á
kjarnorkustríði. í>að boð hef-
ur sem vænta mátti vakið hin
venjulegu skilorðsbundnu við-
brögð í Washington, en eng-
inn vafi^ er þó á því að nú
þegar Kínverjar hafa eignazt
kjarnasprengjuna verður þeim
ekki lengur meinað um þann
sess á ráðstcfnum þjóðanna
sem þeim hefur lengi borið
°g það fyrir aðra og ákjós-
anlegri verðleika. ás
/