Þjóðviljinn - 17.10.1964, Blaðsíða 4
4 SIÐA
Utgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson.
Rítstjóm, afgreiðsla. auglýsingax, prentsmiðja, Skólavörðust 19,
Sími 17-500 (5 linur) Áskriftarverð fel. 90,00 á mánuði
500 leiguíbúðir
J^inn þáttur húsnæðismálanna sem reyrzt hefur í
hnút sem torleyst vandamál er skortur á leigu-
húsnæði, og þá ekki sízt í Reykjavík og annars
staðar í bæjum Suðvesturlandsins. Hér á landi
verður það vandamál enn flóknara en annars
vegna þess, að heita má að lítt mögulegt eða ó-
mögulegt sé fyrir barnafjölskyldur, að ekki sé tal-
að um barnmargar fjölskyldur, að fá á leigu gott
íbúðarhúsnæði. Og alltof víða er beinlínis okrað
með húsaleigu, húsaleigan verður svo stór hluti af
tekjum höimilisfyrirvinnunnar að óskiljanlegt má
teljast hvernig takast má að svara öðrum óhjá-
kvæmilegum útgjöldum fjölskyldu af því sem eft-
ir verður þegar búið er að borga húsaleiguna. Þar
á ofan bætast ýmsar kvaðir sem verða að teljast
óeðlilegar, eins og hin mikla fyrirframgreiðsla,
sem algeng er. Og hús ganga hér svo ört kaupum
og sölum á braskmarkaði að leigjendur geta sjald-
an verið lengi öruggir um í þeim sviptingum, að
þeir fái að halda húsnæði sínu.
Jjað er því sannarlega þörf á þeim ráðstöfunum
sem þrír þingmenn Alþýðubandalagsins, Einar
Olgeirsson, Ragnar Arflalds og Eðvarð Sigurðsson, *
leggja til í frumvarpi á Alþingi þessa dagana. Þar
er ríkisstjórninni heimilað að láta reisa á næsta
ári, 1965, 500 fbúðir, sem síðan verði* leigðar út,
eftir nánari reglum sem frumvarpið kveður á'.um,
en þar er m.a. það ákvæði að leigan megi ekki
nema meiru en 8% af kostnaðarverði íbúðanna.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að fela megi Húsnæð-
ismálastjórn ríkisins framkvæmdir í málinu, og
ákvæði er um heimild til 200 miljóna króna lán-
töku til þessara framkvæmda.
piutningsmenn taka skýrt fram að með þessu
frumvarpi sé ekki aetlunin að ráðast á megin-
vanda húsnæðismálanna, en boða aðrar og yfir-;
gripsmeiri tillögur af hálfu Alþýðubandalagsins'
um það mál. En hér er gripið á bráðabirgðaráð-
stöfunum sem gætu létt hundruðum fjölskyldna
húsnæðisvandræðin, sem víða sverfa sárt að og
geta jafnvél reynzt óleysanlegt vandamál.
Bernsk viðbrögð Vísis
Jjegar mikið er um að vera í alþjóðamálum verð-
ur oft slíkt fjaðrafok í vissum íslenzkum blöð-
um, að engu er líkara en þau láti einvörðungu
stjórnast af einhvers konar bemskum viðbrögðum,
án þess að hugsun fullorðinna manna komist þar
að. Dæmi um slíkt er Vísir í gær og fábjánalegt
hnútukast hans til Þjóðviljans.
JJm alþjóðamál er fjallað í Þjóðviljanum af algeru
ofstækisleysi og jafnan leitazt við að auðvelda
lesendum yfirsýn og miðla fræðslu eins og tök er
á. Sú afstaða er andstæða hinna bernsku viðbragða
Vísis, þar sem fordómar og kreddur, gegnsýrt
bandarisknm áróðri, má sín allta’f meira en íslenzk
hugsun -’-rr TH-urði heimsmálanna.
-----------þjúÐVILJINN-------------------------------
Sjálfkjörið var í allar fasta
nefndir beggja þingdeilda
□ Fundir voru í báðum deildum Alþingis í gær
og voru þar kosnar fastanefndir deildanna. Sjálf-
kjörið var í allar nefndir þar eð ekki komu í
neinu tilfelli fram fleiri uppástungur í þær, en
kjósa átti 7 þingmenn í hverja nefnd. Fer hér á
eftir upptalning á nefndamönnum í hvorri deild.
Þrír listar komu fram við kosningarnar, A-listi
studdur af stjórnarflokkunum, B-listi studdur af
Framsóknarmönnum og C-listi studdur af Al-
þýðubandalaginu.
ÞINCSJÁ ÞJÓÐVILJANS
Efri deild
FJÁRHAGSNEFND: Af A-
lista Ólafur Björnsson, Magn-
ús Jónsson, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson og Jón Þorsteins-
son, af B-lista Karl Kristjáns-
son og Helgi Bergs. og af C-
lista Björn Jónsson.
S AMGÖNGUMAi, ANEFND:
Af A-lista Bjartmar Guðmunds-
son, Jón Þorsteinsson. Jón
Árnason og Magnús Jónsson,
af B-lista Páll Þorsteinsson og
Ásgeir Bjarnason, og af C-lista
Björn Jónsson.
LANDBÚNAÐARNEFND:
Af Alista Sigurðúr Ó. Ólason.
Bjartmar Guðmundsson, Jón
Árnason og Jón Þorsteinsson,
af B-lista Ásgeir Bjamason og
Páll Þorsteinsson og af C-
lista Björn Jónsson.
SJÁVARÚTVEGSNEFND: Af
A-lista Jón Árnason, Eggert G.
Þorsteinsson, Sigurður Ó. Óla-
son og Þorrvaldur Garðar
Kristjánsson, af B-lista Helgi
Bergs og Ólafur Jóhannesson
og af C-lista Gils Guðmunds-
son.
HEILBRIGÐIS- OG FÉ-
L AGSMÁL ANEFND: Af A-
lista Auður Auðuns, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson. Jón Þor-
steinsson og Bjartmar Guð-
múndsson, af B-lista Karl
Kristjánsson og Ásgeir Bjama-
son og af C-lista Alfreð Gísla-
son.
IÐNAÐARNEFND: Af A-
lista Magnús Jónsson, Þorvald-
ur G. Kristjánsson, Auður
Auðuns og Eggert Þorsteinsson,
af B-lista Hermann Jónasson
og Helgi Bergs og af C-lista
Gils Guðmundsson.
MENNTAMÁLANEFND: Af
A-lista Auður Auðuns, Ólafur
Bjömsson, Jón Þorsteinsson og
Bjartmar Guðmundsson, af B-
lista Páll Þorsteinsson og Karl
Kristjánsson og af C-lista
Gils Guðmundsson.
ALLSHERJARNEFND: Af A-
lista, Magnús Jónsson, Ólafur
Björnsson. Eggert Þorsteinsson
og Sigurður Ó. Ólason, af B-
lista Ólafur Jóhannesson og
Hermann Jónasson og af C-
lista Alfreð Gíslason.
Neðri deild
FJÁRHAGSNEFND: Af A-
lista Davíð Ólafsson, Matthias
Á. Mathiesen, Jónas ' G. Rafn-
ar og Sigurður Ingimundarson,
af B-lista Skúli Guðmundsson
og Einar Ágústsson og af C-
lista Lúðvík Jósepsson.
SAMGÖNGUMÁLANEFND:
Af A-lista Sigurður Bjarnason.
Guðlaugur Gíslason, Sigurður
Ágústsson og Benedikt Grön-
Laugardagur 17. október 1964
dal, af B-lista Bjöm Pálsson
og Sigurvin Einarsson og af-
C-lista Ragnar Amalds.
LANDBÚNAÐARNEFNÐ: Af
A-lista Gunnar Gíslason, Jón-
as Pétursson Benedikt Grön-
dal og Sverrir Júlíusson, aí
B-lista Ágúst Þorvaldsson og
Bjöm Pálsson og af C-lista
Hannibal Valdimarsson.
SJÁVARÚTVEGSNEFND: Af
A-lista Sverrir Júlíusson. Pét-
ur Sigurðsson, Guðlaugur
Gíslason og Birgir Finnsson, af
B-lista Gísli- Guðmundsson og
Jón Skaftason og af C-lista
Lúðvík Jósepsson.
IÐNAÐARNEFND: Af A-
lista Jónas G. Rafnar, Sigurður
Ágústsson, Matthias Á. Mat-
hiesen og Sigurður Ingimund-
arson. af B-lista Þórarinn Þór-
arinsson og Gísli Guðmundsson
og af C-lista Eðvarð Sigurðs-
son.
IIEILBRIGÐIS- OG FÉ-
L AGSM ÁL ANEFND: Af A-
lista Matthias Bjarnason, Guð-
laugur Gíslason, Jónas G.
Rafnar og Birgir Finnsson, af
B-lista Jón Skaftason og Ágúst
Þorvaldsson og af C-lista
Hannibal Valdimarsson.
MENNT AMÁL ANEFND: Af
A-li'sta Gunnar Gíslason, Ein-
ar Ingimundarson. Davíð Ól-
afsson og Benedikt Gröndal,
af B-lista Sigurvin Einarsson og
Bjöm Fr. Bjömsson og af C-
lista Einar Olgeirsson.
ALLSHER J ARNEFND: Af
A-lista Einar Ingimundarson,
Matthías Bjamason, Pétur Sig-
urðsson og Sigurður Ingi-
mundsson. af B-Iista Bjöm Fr.
Björnsson og Skúli Guðmunds-
son og af C-lista Ragnar Arn-
alds.
Stjórnarfrumvörp um verkamanna-
bústaði, hækkun orlofsíjár og fleira
Ríkisstjórnin hefur lagt fram
stjórnarfrumvarp un breyt-
ingu á lögunum um verka-
mannabústaði frá 1962 Þar er
lagt til, að hámarkskaupupp-
hæð láns verði hækkuð úr 300
í 450 þús. kr og ennfremur
að félagsmenn, sem verða að-
njótandi þessara lána' megi
ekki hafa hærri tekjur að með-
altali næstliðin þrjú ár á und-
an en 100 þús. kr. að viðbætt-
um 7500 kr fyrir hvert barn
á framfæri. Áður máttu tekj-
urnar skv lögum ekki vera
meiri en 65 þús. að viðbættum
2500 kr. fyrir hvert bam á
framfæri.
í athugasemdum með frum-
varpinu segir m.a. að hlutverk
verkamannabústaða hafi verið
að veita illa stöddum bióðfé-
Iagsþegnum aðstoð við að koma
yfir sig húsnæði með sæmileg-
um kjörum og vegna verðhækk-
ana síðustu ár nái lögin ekki
tilgangi sínum.
Hækkun orlofsfjár
ótjórnarfmmvarp var lagt
fram á Alþingi nýlega ' um
breytingu á lögum frá 1943 um
orlof. Breytingin er í því fólg-
in, að í stað 1V2 dagur komi
1% dagur og í stað 6% komi
7%.
í athugasemdum segir, að^
þetta lagafrumvarp sé í sam- *'
bandi við samkomulag það,
sem gert var hinn 5. júní síð-
astliðinn milli ríkisstjórnarinn-
ar, Alþýðusambands íslands og
Vinnuveitendasambands ís-
lands. Hafi ríkisstjórnin í sam-
ræmi við það ákveðið, að
beita sér fyrir lengingu orlofs
verkafólks úr 18 í 21 dag og
hækkun orlofsfjár úr 6 í 7%.
Hjúkrunarkonur
óskast að Borgarspítalanum í Reykjavík séfn fyrst.
Upplýsingar gefur yfirhjúkrunarkónan í síma
22413-
Reykjavík, 16. 10. 1964.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Hegningarlögin
Lagt hefur verið fram stjórn-
arfrumvarp um breytingu á
almennurn hegningarlögum. Er
í' þessari breytingu fjallað um
hækkun á lágmarki því, sem
miðað var við er sakfella skyldi
einhvern fyrir auðgunarbrot.
Skv. núgildandi lögum má
höfða mál gegn sökuViaut ef
tjón af brotinu nemur meira
en 1000 kr. Nú er lagt til að
viðmiðunartalan verði 3000 kr.,
enda hafi sökunautur ekki
reynzt sekur um auðgunarbrot
áður.
13 Framsóknarmenn hafa
borið fram frumvarp til laga
um vaxtalækkun og fleira. Þá
hafa Framsóknarþingmenn bor-
ið fram tillögu til þingsálykt-
unar um endurkaup Seðla-
bankans á framleiðslu- og hrá-
efnavíxlum iðnaðarins.
HVERT 9EM
LEIUIR LIGGJA
Auglýsingasíminn er 17500
Drengur eða stúlka
á aldrinum 14—16 ára óskast til sendiferða, síma-
vörzlu o.fl.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
O*
YQNDUÐ
FALLjEG
ODYR
Sjgurþórjónsson &co
iMnaœtnrfí U