Þjóðviljinn - 17.10.1964, Qupperneq 6
g SlÐA
ÞIÖÐVILIINN
Laugardagur 17. október 1954
VIÐ NÁLGUMST FJARLÆGA HNETTI
Það er eríitt að ofmeta þá
atburði sem verið hafa að
gerast í geimnum. Gagarin,
Titof, Nikolajef, Popovitsj,
Bykovski, Valentina Tsjerés-
kova og bandarísku geimfar-
arnir þurftu að leysa verk-
efni sín af hendi ein og 6-
studd Nú vinna þrír sér-
fræðingar saman. Þetta er
sá meginmunur sem skilur á
milli geimferðar þriggja
manna áhafnar og eins
manns ferðanna, sem hafa
verið farnar til þessa.
Áhöfnin á þessari vísinda-
legu rannsóknarstöð í geimn-
um var dæmi þess. hvernig
geimför sem ferðast milli
hnatta í framtíðinni verða
K. FEOKTISTOF
í fyrsta skipti við geimrannsóknir voru ekki aðeins rann-
sóknartækin um borð í geimfarinu, en einnig einn af þeim
mönnum, sem gera þessi tæki og hafa mest not af upp-
lýsingunum sem þau veita.
Konstantin Feoktistof er vingjarnlegur, hávaxinn maður,
hárið er aðeins farið að grána og hann ber það með sér
að hann er menntamaður.
Hann sá um vísindatækin um borð í geimfarinu, Þar að
auki framkvæmdi hann 'margvíslegar rannsóknir, enda er
hann mjög reyndur vísindamaður, og hefur unnið við
fjölmargar rannsóknir og hefur gagngera þekkingu á
mörgum vísindagreinum.
Hann er Rússi fæddur í Voronesh, sem er ein af elztu
borgum í landiriu. 1949 lauk hann námi í verkfræði við
Baumann skólann í Moskvu, en þaðan hafa fjölmargir af
helztu visindamönnum Hússa lokið námi.
Feoktistof er ekki félagi í Kommúnistaflokknum.
Hann hefur hlotið tvö heiðursmerki fyrir árangur sinn
við störf í þágu sovézkra vísinda og verkfræði.
Vísindamaðurinn hefur þjálfað sig smám saman fyrir
geimferð og það löngu áður en tæknileg skilyrði voru fyr-
ir því, að hægt væri að senda vísindamann út í geiminn.
Hann varði miklu af tíma sínum til íþrótta, iðkaði leik-
fimi, knattspyrnu og skíðaferðir. Nú eru uppáhaldsgreínar
hans blak og körfubolti. Einnig hefur hann stundað fall-
hlífastökk.
Meðan a undirbúning geimferðarinnar stóð gekk Kon-
stantin Feoktistof undir sömu sérstöku þjálfunina og aðr-
ir af áhöfninni.
Einnig lærði hann að fljúga nýtízku flugvélum.
Hann er kvæntur og er kona hans þulur við sjónvarpið
i Moskvu.
mönnuð. Geimflugmaðurinn
Vladimir Komarov. fyrirliði
áhafnarinnar er vélaverk-
fræðingur, sem þekkir far-
kostinn út og inn. Vegna
þekkíngar og reynslu vísinda-
mannsins Konstantin Feokti-
stof getur áhöfnin fram-
kvæmt hinar margvíslegustu
vísindaat.huganir. Og stað-
reyndin, að Boris Jegorof,
læknir er um borð er mjög
athyglisverð. 1 fyrsta skipti
geta geimfarar treyst á lækn-
ishjálp, ef eitthvað kynni að
koma upp úti í geimnum.
Þégar verið var að þjálfa
þá fyrir geimferðina voru
þeir Komarof, Feoktistof og
Jegorof alltaf saman.
Þeir voru ekki aðeins
þjálfaðir saman, en fóru auk
þess saman á gönguferðir,
saman í kvikmyndahús og
leikhús. Reynsla sú, sem
fengizt hefur af þjálfun á-
hafnar geimfarsins er mjög
mikilvæg fyrir framtíðarferðir
milli hnatta; þegar félagar í
áhöfninni, sem hafa vanizt
hver öðrum á jörðu, verða
„óaðskiljanlegir” í geimför-
um á leið milli hnatta mán-
uðum saman og jafnvel ár-
um saman.
Enn þá er ekki háegt að
meta alla þýðingu ferðar
þessarar geimrannsóknar-
stofu. Það verður ekki hægt,
fyrr en búið er að vinna úr
staðreyndum þeim, sem safn-
að var saman. Eitt er þó dag-
ljóst; við höfum nálgazt fjar-
læga hnetti verulega.
Árangur sovézkra vísinda
og vélaverkfræði er einfald-
lega aðdáunarverður. Fram-
farirnar gerast með geim-
hraða! 1 þróun flugsins liðu
mörg ár þangað til annar
maður komst með flugmann-
inum í vélina,
Þrir menn hafa nú unnið
saman í einu geimfari, og
það ekki nema þrem árum
eftir að Júri Gagarín flaug
fyrstur manna út í geiminn.
Rétt fyrir mánuði á 15.
alþjóðaþingi um stjarnsigl-
ingar í Varsjá var mest rætt
um vandamál í sambandi við
geimför með margra manna
áhöfn. Nú hefur slikt geim-
far farið á loft. Þó að það
hafi aðeins farið um jörðina,
en ekki siglt til annarra
stjarna er það samt komið á
loft!
Þessi geimferð ýtir við í-
myudunarafli okkar. Dagur-
inn er ekki langt undan,
þegar við munum bíða eftir
því að sjá glampandi hlut
birtast á himni — geimskip
á heimleið úr ferð til Mars
eða Venusar — eða kannski
frá næstu stjörnuþyrpingu
við okkur í geimnum.
Hópur geimfara var að koma aftur til stöðva sinna
úr hjólreiðatúr. Skuggsýnt var orðið og það fór að rigna,
svo geimfaramir leituðu skjóls undir eikartré. Valeri
Bykovski og Andrian Nikolayev fóru inn í skóginn tíl
þess að safna saman þurrum sprekum til að kveikja eld.
Hinir geimfaramir sátu og röbbuðu saman.
„Vitið þið hvað ég er að hugsa um“. sagði Vladimir
Komarov við félaga sína. „Um hjólin, þau gætu orðið okk-
ur að góðu gagni í geimnum. Þíð rekið upp stór augu,
en hugsið um málið. Þetta er ósköp einfalt. Sjáið tii . . . . “
„Meðan verið er í langri geimferð verða menn tvímæla-
laust að vera í góðri þjálfun. Til þess verða menn að
iðka leikfimi í geimfarinu. Það er ljóst mál. Hjörtu okk-
ar sem erum þjálfaðir geta misst mikið af starfsorku
sinni, ef þjálfuninni er ekki haldið við . og þá vitið
þið hvernig fer“.
„En reiðhjólin?" spurði einn af vinum hans.
„Vegna þess að hjól er ágætis þjálfunartæki, sérstak-
lega fyrir fæturna, og ef við bætum við teygjuböndum
til að æfa handleggina, þá mundi þetta halda við líkams-
þjálfun geimíarans við skilyrði þyngdarleysis og þar að
auki væri hægt að nota hjólkeðjuna til þess að hiaða
rafgeyma . . . . “
Þessi saga er dæmigerð.
Vladimir Komarof 37 ára gamall flugstjóri fyrstu geim-
skipsáhafnar í heimi er gagntekinn af köllun sinni. Hann
er alltaf að hugsa um eitthvað í sambandi við hana, koma
auga á eitt.hvað nýtt, gera uppfinningar . . .
Vladimir Komarof er fæddur í Moskvu 1927. Þegar hann
var tekinn í hóp væntanlegra geimfara hafði hann mikla
reynslu að baki sem flugmaður, einnig var hann þjálfað-
ur flugvirki. Hann útskrifaðist úr vélvirkjadeild flughers-
ins við Sjukovskij Akademíuna árið 1959.
Geimfararnir, félagar hans, hrósa honum á hvert reipi,
hvað hann sé vel að sér, skapgóður, staðfastur við nám
og hæverskur.
Komarof er ágætur íþróttamaður, en heldur mest upp
á blak á sumrin og ísknattleik á vetuma.
Vladimir er giftur og á 13 ára son og 6 ára dóttur.
Va entina kona hans er bókavörður og sér honum auðvit-
að alltaf fyrir nýjum bókum, sem hann gleypti í sig.
Vladimir eyðir eins miklum tíma og hann getur með
fjölskyldu sinni, safnar t.d. frímerkjum með syni sínum.
/
ÁHAFNAR-
INNAR:
KOMAROF
Geimfarinn Vladimír
Komarof með
fjölskyldu «inni
YNGSTI FÉLAGINN
„Jæja vinir, hvernig líður ykkur í dag?“ í fyrsta skipti
var áhöfnin á geimfari ekki spurð þessarar spurningar frá
jörðu. Boris Jegorof læknir var með i förinni og hann
framkvæmdi fyrstu læknisrannsóknina í geimnum, svo
að segja um leið og Voskhod var komið á braut.
Fyrir þrem árum sumarið 1961 vqru nokkrir íbúanna
í „Stjörnuborg" (en þar eru þjálfunarbúðir og rannsókn-
arstöðvar sov. geimfara) að tala um þennan möguleika.
„Kannski er kominn tími til, að læknar fari að undir-
búa sig fyrir lengri ferðir út í geiminn”, spurði Pavel
Popovitsj einn af læknum geimfaranna. ;,Þegar allt kemur
til alls, hljóta þeir að hafa miklu betri aðstöðu til rann-
sókna á staðnum, en með mælitækjum af jörðu. Ef ein-
hverjum af áhöfninni líður ekki vel er hægt að gripa til
ráðstafana í tæka tíð. Hugsið ykkur bara, hve auðvelt
verður að safna mörgum vísindalegum staðreyndum. Og þá
verður hægt að gera uppgötvanir, og nota þær á geim-
sjúkrahúsinu. Er þetta ekki fyrirtaks hugmynd: Sjúkra-
hús í geimnum!“
„Nei, Pavel. Þetta er enn óralangt undan", sagði lækn-
irinn hlæjandi.
„En gætum við ekki alveg leikandi komizt af án lækna?“
skaut Valeri Bykovski inn í. „Til dæmis væri hægt að
bæta fyrirlestrum í líffærafræði, lífeðlisfræði og almenn-
um sj úkdómsgreiningum og kannski ofboðlitlu um skurð-
lækningar við á þjálfunarskrá okkar. Þá gætum við ver-
ið okkar eigin læknar í geimnum", lauk hann máli sínu
við góðar undirtektir viðstaddra.
„Nei, Valeri. Ég efast um það“, svaraði læknirinn.
„Læknir í geimnum verður að vera fær um að gripa til
allra hugsanlegra ráðstafana. Þekkingin sem til þess þarf
er árangur af margra ára starfi og reynslu, svo ekki sé
minnzt á námið sjálft“.
Þeir ræddu þessi mál áfram og veltu því m.a. fyrir sér
hvort hægt væri að framkvæma uppskurð í geimfari.
Þetta var fyrir þrem árum og þá grunaði engan hve-
nær sá söguiegi atburður ætti eftir að gerast, að læknir
yrði einn af áhöfninni í geimfari.
Boris Jegorof læknir er 27 ára gamall Moskvubúi. 1961
lauk hann námi við læknaskóla í Moskvu. Faðir hans sem
heitir einnig Boris er líka læknir og er mjög þekktur. Hann
er prófessor í læknisfræði í Moskvu.
Eins og aðrir af áhöfninni var Boris þjálfaður sam-
kvæmt sérstakri áætlun og hafði m.a. dvalið í líkani geim-
farsins til þess að æfa sig á tæknilegu hlið læknisfræði-
legu og líffræðilegu rannsóknanna, sem hann framkvæmdi
við þessar erfiðu aðstæður.
Eins og hinir er hann góður íþróttamaður, einkum gef-
inn fyrir fjallgongur og skíðaferðir.
Yngsti félagi áhafnarinnar er lika kvæntur. Kona hans
Eleonora er augnlæknir á sjúkrahúsi í Moskvu. Þau eiga
einn son, Boris.
L
i
i