Þjóðviljinn - 05.12.1964, Side 2
I
Eina
færa leiðin
Oft er erfitt að eiga orða-
stað við Morgunblaðið vegna
þess að rithöfundarnir á
þeim bæ leggja annarlega
merkingu í orð tungunnar.
Þannig heldur blaðið þvi
fram að „efnahagslegt sjálf-
stæði einstaklingsins” sé í því
fólgið að örlítill hluti þjóð-
arinnar eigi öll framleiðslu-
tæki og allar þær auðlindir
sem standa undir atvinnulífi
þjóðarinnar og geti skammt-
að öðrum hlutskiptið. Víst
eru slíkir atvinnurekendur
og eignamenn „efnahaglega
sjálfstæðir einstaklingar”, en
sjálfstæði beirra er fengið
með því að auka ósjálfstæði
annarra. Sé almennt talað
um hlutskipti einstaklingsins
verða menn að hafa þjóðar-
heildina í huga, að öðrum
kosti er aðeins verið að berj-
ast fyrir litlum forréttinda-
hópi. Það skilur á milli Morg-
unblaðsins og Þjóðviljans í
þessu efni að Morgunblaðið
vill ekki viðurkenna að efna-
hagslegt lýðræði er jafrí ó-
hiákvæmilegur þáttur nú-
tímasamfélags og önnur svið
lýðréttinda. I augum Morg-
unblaðsmanna er lýðræði að-
eins form. sem er í þvf fólg-
ið að menn skrifi kross bak
við tjald á fjögurra ára
fresti eftir vel skipulagða á-
róðursherferð, en síðan skuli
örfámennur hópur fara með
stjórn landsmála og atvinnu-
mála samkvæmt leiðsögn
þeirri, sem lesa má af komp-
ási gróðahyggjunnar. Þjóð-
viljinn telur að vaxandi lýð-
ræði verði að vera leiðsögn
nútímamanna á öllum svið-
uf, einnig þegar teknar eru
ákvarðanir um nýtingu auð-
linda og atvinnufyrirtækja;
því verði auðlegð þjóðarbús-
ins að vera sameign þjóðar-
innar allrar í ýmsum mynd-
um. Aðeins með fjárhagslegu
lýðræði er hægt að tryggja
að .efnahagslegt sjálfstæði ein-
staklingsins’ verði sameigin-
legt hlutskipti landsmanna
allra, en ekki forréttindi Ift-
ils hóps.
Það er rétt hjó Morgun-
blaðfnu að lýðræði er erfitt
í framkvæmd, og það er auð-
velt verk að níða tilraunir
og mistök á þeirri braut. Hitt
er augljóst að ef mannlegt
samfélag á að þróast til
aukinnar fullkomnunar er
vaxandi lýðræði á öllum svið-
um eina færa leiðin. Þeir
menn sem beita sér gegn
fjárhagslegu lýðræði eru
einnig andvfgir efnahagslegu
sjálfstæði einstaklingsins.
— Austri.
Stærsta bókasafn
landsins i einkaeign
til sölu
Bókasafn Kára B. Helgasonar, áður eign Þorsteins
heitins Þorsteinssonar, sýslumanns, með miklum
viðauka, er til sölu í einu lagi, ef viðunandi tilboð
fæ'st fyrir 1. febrúar 1965.
Safnið hefur verið flokkað eftir efni, og fylgir
hverjum flokki spjaldskrá yfir einstakar bækur.
Öll eintök i safninu verða afhent innbundin.
Sölu safnsins hefur á hendi Böðvar Kvaran, Sól-
eyjargötu 9, er jafnframt veitir nánari upplýsing-
ar í síma 17606 kl. 20—22 fyrst um sinn.
Kópavogsbúar
Dagheimilið við Habraut. verður til sýnis bæjar-
búum, sunnudaginn 6. des- kl. 14—17.
Konur eru vinsamlega beðnar að koma ekki á
hælamjóum skóm.
Leikvallarnefnd.
HðDvnnHN
Silli & Valdi opna
nýja verzlun í dag
■ I dag opna Silli & Valdi nýja nýlenduvöruverzlun að
Austurstræti 17 hér í borg og jafnframt verður rekin
þama kjötverzlun undir handleiðslu Þorbjöms Jóhannes-
sonar í Borg.
■ Verður nýlenduvöruverzlunin með sjálfsafgreiðslusniði
og er á fyrstu hæð í nýju stórhýsi, sem þeir félagar hafa
látið byggja og er langt komið og hefur smíðin tekið
sautján mánuði.
Verzluunin er staðsett hjá ein-
m helzta samgöngupunkti borg-
arinnar, þar sem Lækjartorg er
með strætisvagnaleiðir í allar
áttir. Eru verzlunarhúsakynni
björt og smekkleg og vöruúrval
ótrúlega mikið samankomið á
einum stað. Verzlunarstjóri
verður Baldvin Guðnason frá
Akureyri. Verzlunarinnréttingu
sá Skúli Norðdahl, árkitekt um
Þá verða líka á þessari fyrstu
hæð: Fe-ðaskrifstofan Útsýn,
Steinþór & Jóhannes með gull-
smíðavinnustofuur og verzlun og
Þorsteinn Davíðsson með snyrti-
vöruverzlun.
Er fyrsta hæðin samtals 400
fermetrar að stærð en fimm
hæðimar þar fyrir ofan 300 fer-
metrar hver. En húsið sjálft er
samtals 7700 rúmmetrar að
stærð.
Þessa daga er verið að ljúka
við samninga við væntanlega
leiguhafa í húsinu og hefur
Skipafélagið Jökull þannig leigt
aðra hæðina og á þriðju hæð
verður Einar Sigurðsson, ríki
með skrifstofur og einnig Lands-
samband fiskiðnrekenda og enn
ofar verða Atlantor, útflutnings-
firma Magnúsar Z. Sigurðssonar
Framhald á bls. 9.
ORÐSENDINú
frá Efnagérðinni Val
Að gefnu 'tilefni tilkynnist hér með, að
framleiðsluvörur okkar eru einungis seld-
ar til verzlaria og söluskattsskyldra aðila.
Efnagerðin VALUR.
Karlmannaföt
Verð frá kr. 1.998,00.
TERYLENEBUXUR
Verð kr. 698,00.
Klæðaverzlunin
Klapparstíg 40 — Sími 14415.
Auglýsingasíminn er 17500
Áðalskrifstofur Samvinnutrygginga og Líftryggingafélagsins Andvöku hafa nú
verið fluttar úr Sambandshúsinu við Sölfhólsgötu i nýtt hús við Ármúla 3.
Ennfremur liefur skrifstofa Sjódeildar verið flutt úr Bankastræti 7 á sama stað.
Samvinnutryggingar hafa nú i 18 ár leitazt við að vcita fullkomna tiygginga-
þjónustu, þæði með ýmsum nýjungum á sviði trygginga og með nútima skrif-
stofutækni.
Mcð bættum húsakynnum eiga Samvinnutryggingar hægar með en áður að veita
nýjum og gömlum viðskiptavinum hetri þjónustu og bjóða þá vellvomna i
Ái-múla 3.
SAMVINNUTRYGGINGAR