Þjóðviljinn - 05.12.1964, Page 4

Þjóðviljinn - 05.12.1964, Page 4
4 SlÐA HÚDVILIINN Laugardagur 5. desember 1964 MomnuiNN Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sóslaiistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H Jónsson (áb), Magnús Kjartansson, Slgurður Guðmundsson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjarnason. Préttaritstjóri: Sigurður V FYiðþjófsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19. Síml 17-500 (5 linur) Áskriftarverð ki 90.00 á mánuði fíærð j stjórnmálaátökunum er engin framkoma verri en óhreinlyndi og flærð. Það er hægt að virða andstæðing þótt hann beiti sér fyrir verkum sem maður telur röng, ef' hann er hreinskilinn og stendur eða fellur með afstöðu sinni. En menn sem segja eitt og gera annað, menn sem vinna með svikum það sem þeir geta ekki framkvæmt á heiðarlegan hátt, ættu að vera óalandi og óferj- andi. Samt er þetta sú aðferð sem valdamenn á íslandi beita mest. Gott dæmi um það eru öll vinnubrögðin kringum skattpyndinguna sem til- kynnt var í sumar. Þær ranglátu álögur vöktu því- lík mótmæli að stjórnarvöldin gerðu sér ljóst að ekki var unnt að fá almenning til að sætta sig við þær með neinum eðlilegum fortölum, og þá var gripið til annarra ráða. Alþýðublaðið tók að sér það hlutverk að hamast dag eftir dag gegn skatt- ránsstefnu sinnar eigin ríkisstjórnar til þess að friða menn og vekja hjá þeim vonir um að rangs- leitnin kynni að verða leiðrétt með góðu. Þegar Alþýðusambandið lýsti yfir því að skattaálögurn- ar væru svik af hálfu stjórnarvaldanna við sam- komulagið um kjaramál frá því 1 vor, brá ríkis- stjórnin þegar við og tók upp samningaviðræður við fulltrúa launþegasamtakanna, en í því fólst samkvæmt venjulegum drengskaparreglum viður- kenning á því að leiðréttingar væri þörf. Síðan hef- ur ekkert gerzt. Vika hefur liðið eftir viku og mán_ uður eftir mánuð, en engin leiðrétting hefur feng- izt. Nú getur engum dulizt að framkoma stjórn- arvaldanna í sumar var einvörðungu skipulögð flærð til þess að draga allt á langinn og sefa reiði almennings og koma þannig í veg fyrir að hún brytist fram í aðgerðum sem hefðu nægt til þess að neyða stjórnarvöldin til undanhalds. Er ís- lenzkum skattþegnum sannast sagna gefið mikið langlundargeð er þeir láta þannig teyma sig áfram * þeim eyrum sem kennd eru við óvitrasta dýr jarðarinnar. Jgn nú þegar stjórnarvöldin þykjast vera laus úr gapastokknum, fæðist allt í einu hjá þeim skýr afstaða á nýjan leik. Meirihluti Sjálfstæðisflokks- ins í borgarstjórn Reykjavíkur leggur nú til að áætlun um útsvör á næsta ári skuli hækkuð um 12% frá þeirri síðustu, og borgarstjóri bætir því við að þessi upphæð verði áreiðanlega hækkuð til mikilla muna ef verkafólk dirfist að semja um nokkra kauphækkun á næsta ári. Um leið er við- urkennt í verki að öll fagurmælin í sumar um leiðréttingu á næsta ári voru vísvitandi ósann- indi sem valdhafarnir ætluðu sér aldrei að standa við. Og þegar þessar stórauknu byrðar koma til framkvæmda á næsta ári geta menn átt von á sama leiknum og í sumar; þá munu stjórnarblöð- in gráta krókódílstárum af samúð með gjaldþegn- um og ekki mun standa á því að skipuð verði nefnd á nefnd ofan með hinum fegurstu fyrir- heitum, meðan aðgangsharðir innheimtumenn hremma í verki æ stærri hluta af tekjum launa- fólks Ætla menn að viðurkenna þetta kaldrifjaða sjónarspil einusinni enn? — m. JÓLABAZAR SJÁLFSBJARGAR Það var glatt á hjalla í Mið- stræti 8 hér í bæ í fyrrakvöld og sátu þar nokkrir t'élagar í Sjálfsbjörgru, félagi fatlaðra við tómstundavinnu sína og var unnið af kappi við að gera muni á væntanlegan bazar á végimi félagsins, en hann verður hald- inn næsta sunnudag í MlR-saln- um að Þingholtsstræti 27. Húsfreyjan á heimilinu heit- ir Guðný Bjarnadóttir og var spaugsöm og létt í skapi og marga ánægjustund sagðist hún hafa haft af félögum sínum á þessum tómstundakvöldum, en þau hafa komið saman á hverju mánudagskvöldi í haust og vet- ur og jafnvel fjölgað kvöldun- um svona síðasta sprettinn fyrir bazarinn. Það hefur verið árlegur siður að halda svona bazar á vegum félagsins og eru þar seldir hand- unnir munir á jólafösfcunni og er þama margt eigulegra muna og sumt af þessu stílað á jóla- haldið eins og aðventukranzar, englabörn, kertaskreytingar, tágavara og dreglar, veggteppí, kjólar, svuntur og hverskonar fatnaður á drengi og stúlkur. Hér á myndinnl er Guðrún Guðmundsdóttir með nokkra af mununum sem hún hefur unnið að undanförnu. Þarna eru meðal annars dreglar og veggteppi og er haglega unnið. Guðrún hefur þó aðeins aðra hendina vinnufæra og lofa verkin meistarann. (Ljósrn. GM.). Happdrætti DAS Dregið hefur verið í 8. fl. Happdrættis DAS um 200 vinn- inga og féllu vinningar þannig: Ibúð eftir eigin vali kr. 500.000, kom á nr. 64175 umboð Seyðis- firði. Opel Caravan Station-bif- reið kom á nr. 24343 umboð Aðalumboð. Vauxhall Victor fólksbifreið kom á nr. 9354 umboð Sigr. Helgadóttur. Bif- reið eftir eigin vali kr. 130.000. kom á nr. 44176 umboð Aðal- umboð. Bifreið eftir eigin vali kr. 130.000, kom á nr. 51159 umboð Egilsstaðir, Húsbúnaður eftir eigin vali fyrir kr. 25.000, kom á nr. 37880. Umboð Aðal- umboð. Húsbúnaður eftir eigin- vali fyrir 20.000 kom á nr. 18874 Umboð Aðalumboð og nr. 55550 umboð verzlun- in Réttarholt. Húsbúnaður eftir eigin vai fyrir kr. 15.000 kom á nr. 6428, 58249, 62726. umboð Aðalumboð. Eftirtalin númer hlutu húsbúnað fyrir kr. 10.000, hvert: 17891, 21996, 22694, 34528, 38646, 39899, 47554, 51840, 64538. (Birt án óbyrgðar). BOMBAY 4/12 — Páll páfi, sem um þessar roundir er stadd- ur í Bombay, beindi í dag þeirri áskorun til allra þjóða heims, að þær leggi til hliðar nokkurn hiuta þess fjár, sem varið er til vígþúnaðar, og myndi þetta fé síðan hjálparsjóð fyrir hin fá- tækari lönd. Hvað skeður 9. des. Þá verða tímamót í sögu íslenzkra ljósmyndara. 9. DES. Eru allir þessir munir fallegir á að líta og unnir af elskusemi og nærgætni af fólki, sem á sumt erfiðan leik í lífsbarátt- unni og stendur höllum fæti vegna fötlunar. Margt af þessu fólki öðlasfc aukið sjálfstraust vegna þessar- ar vinnu sinnar og getur í mörg- inn tilfellum líka glaðst sem meistarar yfir verki sínu. Fé- lagar í Sjálfsbjörgu hafa tak- mark að stefna að, — það er að koma sér upp húsi yfir þessa starfsemi sína, — er og rétt að geta þess, að margir einstakling- ar innan félagsins hafa unn- ið heima að þessum munum á bazarinn. Þessi tómstundavinna hafði áður inni að Marargöfcu 2 hér í bæ, en þar er nú hafinn rekstur á vinnustofum. Félagar í Sjálfsbjörgu eru nú 254 hér í Reykjavík. Bazarinn að Þingholtsstræti 27 verður á morgun og verður fjölbreyttur að vanda. @ ENNLENT LAN RÍKISSJ0ÐS ÍSLANDS 1964 VERDTRYGGt) SPARISKÍRTEINI UTBOÐ FjórmólaráSherra hefur ákveSið aS nota heimild í lögum nr. 59 frá 20. fyrra mán- aSar til þess aS bjóSa út 25 milljóna króna lán í formi verStryggSra spariskír- feina til viSbótar 50 miirján krðna láns- útboSi frá 21. náv. sl. Skilmálar eru hinjr sömu og viS fyrra útboSiS, en helztii þeirra eru sem hér segir: Hlutdeildarbréf lánsins eru nefrid spariskírteini, og eru þau Öll gefin út til handhafa. Þau eru í þremur stærð- um, 500, 2.000 og 10.000 krónum. Skírteinin eru lengst til 10 ára, en frá 10. janúar 1968 er handhafa í sjálfsvald sett, hvenær hann fær skír- teini innleyst. Vextir greiðast eftir á og í einu lagi við innlausn. Fyrst'u 5 árin nema þeir 6% á ári, en fara síð- an hækkandi, eftir því sem handhafi dregur innlausn,. og verða tæplega 9,2% á ári síðasta ár lánstímans. Innlausnarverð tvöfaldast á 1.0 árum. ★ ★ Við innlausn skírteinis greíðir ríkis- sjóður verðbót á höfuðstói, vexti og vaxtavexti í hlutfalli við þá hækkun, sem kann að hafá örðið á vísitölu byggingarkostnaðar frá útgáfudegi skírteinis til gjalddaga þéss. Fastir gjalddagar skírteiná eru 10. janúar ár hv.ert, í fyrsta sinn 10. janúar 1968. Skírteinin eru undanþegin framtals- skyldu og eru skattfrjáls á sama hátf og sparifé. Innlausn spariskfrteinq fer fram í Seðlabanka fslands. Frekari upplýsingar er aÖ fá hjá sölu- aðilum. í ráði er að hafa á boðstólum sér- stök gjafaumslög fyrir þá, sem vilja nofa bréfin til jólagjafa eða annarra gjafa. VerStryggSu spariskíifeinin eru til sölú í Reykjavík hjá öllum bönkum og útibúum- þeirra og nokkrum verðbréfasölum. Utan Reykjavíkur eru spariskírteinin seld hjá útibúum allra bankanna óg stærri spari- sjóðum. 4. desember 1964 SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.