Þjóðviljinn - 22.12.1964, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 22.12.1964, Blaðsíða 2
2 SlÐA ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 22. desember 1964 / Hækkun aöstöðugjalda og sparnaöur í rekstri leiöin til aÖ lækka útsvörin Tillögur AlþýSubandalagsins um auknar fekjur og sparnaS myndu lœkka úfsvör Reykvikinga um 85 miTiónir króna Lækkun útsvara Eins og ljóst er af frum- varpinu eru tekjur borgarsjóðs á rekstraryfirliti alls áætlaðar 685 milj. og 97 þús. kr. Tekj- ur borgarsjóðs samkv. frumv. þvf að fjárhagsáætlun borgar- sjóðs, er afgreitt var í des. sl. voru áætlaðar 554 milj. og 10 þús. kr. og eiga því tekjur borgarsjóðs að hækka nú mið- að við þá áætlun um hvorki meira né minna en 131 milj. og 87 þúsund kr. Svo sem kunnugt er hækk- aði borgarstjómin tekjuáætl- unina 9. júlí s.l. um 41 milj. 830 þús. Varð tekjuáætlunin þannig að lokum 595 milj. 840 þús. kr. Miðað við þá tekju- áætlun og lokaafgreiðslu fjár- hagsáætlunar hækkar tekjuá- ætlun að þessu sinni um 89 milj. 257 þús. kr. Nemur sú hækkun nær \5%. Liggur þó ekkert fyrir um að það verði endanleg hækkun og nægir í því sambandi að minna á þau ummæli borgarstjóra við fyrri umr. að svo kunni að fara að hækka verði tekjuáætlunina og þar með útsvörin síðar á næsta ári. Þessi ummæli borgarstjóra eru sannarlega enginn gleði- boðskapur fyrir útsvarsgj ald- endur, eins og ég hef fyrr vikið að, og sýna furðulegt skilningsleysi á því ástandi sem við búum við og nauð- sjm þess að forðast nýjar á- lögur á þrautpínda útsvars- greiðendur borgarinnar. í Við skulum þrátt fyrir allt vona að borgarstjórnin eigi eftir 'að öðlast annan og nýj- an skilning í þessu máli, sem forði því að til slíkra úrræða verði gripið á árinu. Lækkun útsvara Óþarfi er að orðlengja á þessu stigi um fyrstu breyting- artillögu okkar borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins við tekiu- áætlun frumvarpsins. Sú till. er um lækkun útsvarsuo .aæð- arinnar úr 446 milj. 297 þús. í 361 mílj. 372 bús. kr. Nemur lækkunin 84 milj. 925 þús. kr., eða um 19% frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpi borg- arstjórnarmeirihlutans. Er þessi lækkun út=-'’-”-ai>na af- leiðing af tekjuhækkunartillög- um okkar Alþýðubandalags- manna svo og af þeim spam- aðartillögum við rekstrarút- gjöld, sem lagðar hafa verið fram gf okkar hálfu. Önnur breytingartill. okkar við tekjubálk áætlunarinnar varðar tekjulið Húsagjöld. í frumv. eru fasteignagjöld, þ.e. húsa- og lóðagjöld áætluð 45 milj. kr. Húsagjöld 33 milj. „g lóðagjöld 12 milj. í fyrra voru þessi gjöld áætluð samtals 20 milj. kr. og hækka því nú um 25 milj. eða urn 125%. Er þetta afleiðing af hækkun husa- gjalda um 100% og lóðagjalda eignarlóða um 20Ö, eins og greint var frá við fyrri umr. Allt bendir til að giaidsto 1 fasteignagjalda af húseignum og gjaldstofn vat^ ■ katts eigi að vera nær sá sami. enda er það augljóst af lögum um þessi efríi og raunar viðurkennt af þeim sem mest hafa um frumv. fjallað. í greinargerð frumv. fyrir tekjuáætlun Vatnsveit- unnar er frá því greint, og vafalaust stuðst vjð þpkkingu vatnsveitustjóra, sem er form. fasteignanefndar Reykjavíkur, að fasteignamat húseigna í borginni verði í árslok 1964 1870 milj. kr. Við þetta er tekjuáætlun Vatnsveitunnar miðuð. Samkv. þessu ættu fasteignagjöld af húseignum að vera 37,4 milj. eða 4,4 milj. hærri en gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Hafa verður þó í huga nokkrar húseignir, sem undanþegnar eru fasteigna- gjaldi, og lækka því eitthvað gjaldstofninn. Er og á það að líta að innheimt húsagjöld 1963 námu ekki nema 15,9 milj. en þá var miðað við 1% af virðingarverði húsa án á- lags. Áætlun borgarstjóra um innheimtu húsagjalda í ór bendir til 16 milj. kr. tekna eða svipaðarar upphæðar og gert var ráð fyrir í fjárhags- áætlun ársins. Gjaldstofn húsa- gjalda hjá borgarsjóði er tal- inn 1587 milj. kr. á þessu ári en á næsta ári 1650 milj. kr. Ber þarna á milli 220 milj. f fasteignamati í húseignum og virðist þurfa á því nánari skýringar en hingað til hafa v.erið gefnar. Með tilliti til þessa teljum við rétt að reikna með nokkru hærri tekjum en gert er í frumv. af fasteignagjöldum húseigna. Höfum við þó ekki tekið sporið allt í samræmi við fasteianamat oe áæt.lun ''t-*ns- veitunnar, heldur hækkað liðinn um aðeins um 2 milj. í stað 4,4 eins og áætlun Vatnsveitunnar bendir þó til. Kann að vera rétt að veittur sé „umþóttun- artími“ til að koma innheimtu húsagjalda að fullu til sam- ræmis við opinbert fasteigna- mat húseigna í borginni, að sjálfsögðu með þeim undan- tekninguu: 1- ;ða. Þriðja breytingartiil. er varðandi tekjuliðinn Bygginga-r leyfi. í frumv. eru þessara teKj- ur áætl. 500 þús., reyndust í reikn. 1963 562 þús. í nýrri byggingarsamþykkt ■ borgar- stjórnar hefur þessi / .jaldstofn verið hækkaður um 100% og mun það taka gildi snemma árs. Augljóst er því að óhætt erí að hækka þennan tekjulið um 500 þús. kr. Fjórða breytingartill. er um að Leyfisgjöld fyrir kvik- myndasýningar hækki úr 1,7 milj. í 1,8 milj. eða um 100 þús. kr. Leyfisgiöldin reyndust nær 2 milj. 1963 og þótt þá kunni að hafa verið innheimt eitthvað af eldri skuldum, virðist ekki óvarlegt að áætla þessar tekjur 1,8 milj. árið 1965. Fimmta breytingartill. er um að tekjur samkv. Slu.nmtana- leyfi hækki um 50 þús. eða úr 250 þús í 300 bús. Tekiur bess- ar reyndust 281 þús. skv. reikn. 1963. Sjötta breytingartill. er um að áætla tekjur samkv. Leiga á íbúðarhúsalóðum 2 milj. kr. í stað 1,9 milj. í frumvarpinu. Tekjur þessar reyndust 1 milj. 914 þús. samkv reikn. 1963 og augljóst er að lóðum í leigu hefur fjölgað verulega siðan. Sjöunda breytingartill. varð- ar tekjulið Leiga af lóðum samkv. mati. í frumv. er tekjuliðurinn áætl. 5 milj. Hér er um að ræða iðnaðarlóðir og kemur Vs þeirra til endurmats árlega. 1963 reyndust tekjur samkv. þessu lið 5 milj. 894 þús. og sýnist því sízt óvarlegt að áætla liðinn 6,5 milj. í fjárhagsáætlun næsta árs. Attunda till. er um að tekj- aðar 1 milj. kr. í stað 300 þús. aðir 1 milj. kr. í stað 300 þús. í frumv. Tekjur þessar reynd- ust 980 þús. samkv. reikn. 1963. Níunda breytingartill. er um að áætlað framlag úr Jöfnun- arsjóði sveitarfélaga verði 88 milj. í stað 80 milj. í frumv. Er þessi áætlun okkar Alþýðu- bandalagsmanna trúlega frem- ur of lág en of h^ Því sú upp- hæð sem er í frurhv. er hrein fjarstæða. Árið 1962 var hluti Reykja- víkur I söluskatti áætlaður 32 milj. kr. Tekjumar reyndust samkv. reikningi 1962 38,7 milj. og fóru því 6,7 milj. fram úr áætlun. Jöfnunarsjóður Árið 1963 voru tekjur úr Jöfnunarsjóði áætlaðar 56,6 milj. í fjárhagsáætlun. Samkv. reikningi sama árs reyndust tekjur þessar 62,3 milj. Fóru 5,7 milj. fram úr áætlun. I ár eru þessar tekjur áætl. 75 milj. og borgarstjóri var svo varfærinn í yfirliti þvf, er hann gaf hér í borgarstjórn- inni 3. des. s. 1. um væntan- legar tekjur á þessu ári, að áætla framlag úr Jöfnunar- sjóði óbreytt frá fjárhagsá- ætlun þ. e. 75 milj.. kr. Þetta er vægast sagt hóflega áætlað hjá borgárstjóra miðað við reynslu undanfarinna ára. En afsökun hans kann að vera sú, að endanlega kemur ekki í Ijós fyrr en ríkið hefur gert tekjur ársins upp, hver hlutur Jöfnunarsjóðs verður af sölu- skatti og innflutningsgjöldum ársins. Ég hygg að reynslan eigi eftir að sanna nú sem fyrr, að framlag úr Jöfnunarsjóði til borgarsjóðs verði verulega hærri en fjárhagsáætlun þessa árs og yfirlit borgarstjóra gerði ráð fyrir. Þessu til viðbótar er rétt að hafa í huga, að ekki fer hjá því að áætlaðar tekjur eigi eftir að endurskoðast til um- talsverðrar hækkunar við end- anlega afgreiðslu fjárlaga. Reyngjan hefur jafnan orðið sú að upphaflegri áætlun um tekjur af söluskatti og aðflutn- ingsgjöldum hefur verið breytt til verulegrar hækkunar við lokaafgreiðslu fjárlaga. Spá mín er sú að svo verði enn og ekki síður nú en áður. Sjálfsagt er að játa að hátt- virtum borgarstjóra og öðr- uni aðalhöfundum fjárhagsá- ætlunarfrumvarpsins er nokk- ur vorkunn, að hafa verulega hliðsjón af áætlun fjárlaga um tekjur Jöfnunarsjóðs, en ég fæ þó ekki betur séð af greinar- gerð frumv. en að hægt hefði verið að áætla hlut Reykjavík- ur 86‘<!milj. samkv. skiptiregl- um sjóðsins og að tekjum hans óbreyttum frá fjárlaga- frumvarpi. Innheimta söluskattsins, sem er annar aðaltekjustofn Jöfn- unarsjóðs, er sem kunnugt er f algerum ólestri. Stórum upp- hæðum er stolið undan af kaupsölustétt landsins án þess að nokkuð sé við sagt eða að- hafzt af hálfu ríkisstjómar og skattayfirvalda. Verður nú ekki að vænta þess að á þessu geti orðið og verði að gerast breyting á næsta ári. Þ. e. að raunveru- leg söluskattsinnheimta komi til skila? Með hliðsjón af framansögðu teljum við Alþýðubandalags- menn sfzt af öllu of langt gengið eða óvarlegt að áætla framlag úr Jöfnunafsjóði til Reykjavíkurborgar á næsta ári 88 milj. eða 8 milj. hærra en í frumvarpinu. Hygg ég að reynslan eigi einnig eftir að staðfesta betta. , Aðstöðugjöldin Tíunda breytingartill. okkar við tekjuáætlun frumvarpsins er varðandi lið Aðstöðugjöld. Þetta er annar hæsti tekjulið- ur fjárhagsgætlunarinnar. Tekj- ur af þessum lið voru f ár á- ætlaðar 78 milj. en em nú á- ætl. 88 milj. eða 10 milj. kr. hærri. Aðstöðugjöld þessa árs vora við álagningu f ágúst s. 1. 83 milj. 795 þús. kr. Aðstöðugjöld til innheimtu, eftir lækkanir framtalsnefndar, voru 4/12 1964 talin 83 milj. 31 þúsund og 800 kr. samkv. upplýsingum aðalbókhalds borgarinnar. Er þetta 5 milj. hærri upphæð en áætlað var. Borgarstjóri var hinsvegar várfærinn, að vanda* ÍStoSí te og vildi ekki reikna með nema 78,8 milj. tekjum af aðstöðu- gjöldum í yfirliti sínu 3 des. síðast liðinn. Fram að þessu hefur Rvík- urborg ekki notað nema að vissu marki heimild í 3. kafla laga nr. 51/1964 til innheimtu aðstöðugjalda samkv. 8. gr. laganna, sbr. reglugerð um „sama efni nr. 81/1962. Flestar tegundir atvinnureksturs hafa ekki verið látnar greiða nema nokkurn hluta hins lögheim- ilaða gjalds. Rejmdum við borg- arfulltrúar Alþýðubandalags- ins að fá þessu breytt við af- greiðslu málsins og um leið • fjárhagsáætlun í des. 1963, í þeim tilgangi að lækka út- svarsbyrðina sem lögð er á al- menning. Meirihluti borgar- stjómar þ. e. fulltrúar Sjálf- stæðisflokksins, hindruðu þessa leiðréttingu og héldu þar með hlífiskildi yfir greiðendum að- stöðugjalda á kostnað hins al- menna . útsvarsgreiðanda, þ. e. fyrst og fremst laúnþegans. Ekki mun fjarri lagi að gera ráð fyrir því að fyllsta notkun heimildar í lögum til innheimtu aðstöðugjalda myndi tvöfalda tekjur borgarsjóðs samkv þessum tekjulið. Þýddi það að tekjur af aðstöðugjöldum myndu fara yfir 170 miljónir króna. Enda þótt atvinnurek- éndur og fyrirtæki hafi að sjálfsögðu margar leiðir til að velta aðstöðugjaldagreiðslum af sér yfir á aðra, þar sem þau eru talin til kostnaðar við rekstur einstaklinga og fyrir- tækja, þá teljum við fulltrúar Alþýðubandalagsins ekkert á- horfsmál, með tilliti til ofur- þunga útsvaranna og brýnnar nauðsynjar á að lækka útsvars- upphæðina, að borgin beri að nota lagaheimildina til inn- heimtu aðstöðugjalda í langt- um ríkari mæli en verið hef- ur. Er því okkar tillaga að heimildin verði nú notuð að fullu, með þeirri undantekn- ingu að nýlenduvöruverzlun, kjöt- og fiskverz'lun og brauð- sölubúðir greiði 0,5%. Að ööru leyti geram við ráð fyrir að fylgt verði heimild laganna, þannig að fiskiskip og flugvél- ar greiði 0,5% eins og nú er, vérzlunarskip l°/o, þ. e. ó- breytt, hverskonar iðnrekstur 1,5% í stað 0,9°/f(, og allur annar atvinnurekstur 2%, í stað'0,7 — 2% eins og nú er samkv. gjaldskrá aðstöðugjalda. Æskilegt hefði verið að fá gjaldskrá aðstöðugjalda með þessum berytingum og öðrum, sem fram hafa komið frá full- trúum Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksms, reiknaða út, samkv. gjaldstofni aðstöðu- gjalda ársins 1964. Mér skilst að þetta sé þó talið meira verk en svo að unnt sé að vinna það á skömmum tíma. Hins vcgar virðast þeir, sem gerst þekkja þessi mál og mest hafa um þau fjallað, vera um það sammála, að full notkun laga- heimildarinnar myndi þýða tvöföldun aðstöðugjaldaupp- hæðarinnar í framkvæmd. Mér virðist sundurliðun á á- Iagningu aðstöðugjalda 1964 eftir gjaldflokkutn, sem ég hef fengið f hendur, eindregið styðja þessa skoðun. Við Alþýðubandalagsmenn í borgars.tjórn teljum þó rétt að fara varlega í sakir, bæði vegna undantekningarákvæða í tillögu okkar og að upphæðin er ekki að fullu þekkt. Það er því okkar tillaga að áætl- uð aðstöðugjöld verði ..aðeins ákveðin 148 milj. kr. í stað 88 milj. í framv. Sú hækkun nemur 60 milj. kr.v í nýjum tekjum fyrir borgarsjóð og veldur Iangsamlega mestu um möguleika þeirrar lækkunar á útsvarsupphæðinni, sem gert er ráð fyrir í okkar tillögu. Ellefta og síðasta till. okkar til hækkunar á tekjuáætlun er um að liðurinn Dráttarvextir verði áætl. 700 þús. í stað 500 þús. í frumv. Tekjur á þess- um lið reyndust 694 þús.. þeg- ar árið 1963, samkv. reikningi þess árs. Hér hafa þá verið raktar og rök.studdar nokkuð þær til- lögur til hækkunar á tekjuá- ætlun borgarsjóðs. sem við flytjum, borgarfulltrúar AI- býctubandalagsins. Samtals nema , tekjuhækkunartillögur okkar 73 milj. 150 bús. kr og hækka þær, ef samþykktar verða, aðrar tekur borgarsióðs en útsvör, úr 238.8 milj. í framv. í 311 milj. 950 bús. kr. og útsvörin geta lækkað um samsvarandi upphæð að viðbættum spárnaöi á gjalda- liðum rekstraráætlunar, sem næst mun að vikið. en þær Framhald á 9 .síðu. aaaavvwvvvvvvvv\avvvvvvwvvvvvvvvvvv\vvvvvwvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvv\vvv\/\avvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvv\vvvvvvvvvvvi Á laugardag birtist hér í blaðinu íyrsti hluti ræðu Guðmundar Vig- fússonar, borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins, við síðari umræðu um fjárhagsáætlun Reykjavíkur 1965 á borgarstjórnarfundinum á föstu- dagskvöld. ; Hér fer á eftir sá kafli ræðunnar, sem fjallar um tekjuáætlun borg- arsjóðs og þær breytingartillögur, sem borgarfulltrúar Alþýðu- bandalagsins fluttu vjð þann hluta áætlunarfrumvarpsins, en þær voru allar felldar af íhaldsmeirihlutanum. WWVWVVVVA/VWVWVVVVVWVVVVVVVVVWVVWWVVVVVVWVVVWVVVVVV VWWWVVWWVWWWWWWVWWWWVA/VAAA/VA/\AAA/VAAA/VAVWV\A/\A Úr ræðu Guðmundar Vigfússonar á fundi borgarstjórn- ar Reykjavíkur um fjárhagsáætlun borgarsjóis 1965 /

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.