Þjóðviljinn - 23.12.1964, Page 2

Þjóðviljinn - 23.12.1964, Page 2
 2 SÍÐA MðÐVIUINN Midvikudagur 23. desember 1964 HREINSUN Hreinsum teppi og húsgögn fyrir jól. SÍMI 37434. Húseigendafélag Reykjavíkur mót mælir hækkun á fasteignaskötfum Blaðinu hefur borizt eftir- farandi frá stjórn Húseigenda- félags Reykjavíkur: Stjóm Húseigendafélags R- víkur leyfir sér hér með að mótmæla hugmyndinni um nýja fasteignaskatta og færir fyrir þvi eftirfarandi rök: Allt frá byrjun síðari heims- styrjaldar hefur viðleitni lög- gjafarvald&ins beinzt í þá átt að þrengja kost húseigenda ýmist með húsaleigulögum eða sérstökum eignasköttum. Má þar fyrst nefna húsa- leigulögin, sem enn eru að nokkru í gildi, nr. 30 frá 1952, og ennfremur lög nr. 22 frá 1950, og nr. 44 frá 1957, þar ' sem sérstakir eignaskattar námu allt að 25% í hvort skipti. Algengara mun vera á ís- landh en í nokkru öðru landi, sem til er vitað, að íbúðir séú í sjálfseign íbúanna. Meginþorri allra íbúða í Kaupstöðum jafnt sem sveit um er f sjálfsábúð eigenda. Þessi þróun er tiltölulega nýtt fyrirbæri. og ber flestum saman um að hún stefni í rétta átt. Hin síðari ár hefur mikill fjöldi heimilisfeðra komið sér upp eigin húsnæði með frábærum dugnaði, og er frámtak þeirra lofsvert. Hins vegar er einnig nauð- synlegt að ávallt sé til nægj- anlegt leiguhúsnæði fyrir þá, sem ekki hafa bolmagn til þess að koma sér upp eigin húsnæði. Undanfarin ár hefur eigi verið árennilegt fyrir menn að leggja í byggingu slíkra húsa, en öruggt má telja að alveg taki fyrir slíka við- leitni með tilkomu nýrra fasteignaskatta, og væri slíkt miður, því nóg er húsnæðis- eklan samt. Tillitslaus hækkun fasteigna- skatta á fbúðir myndi því eigi aðeins fæla menn frá bygg- ingu leiguhúsa, heldur einnig valda því að fjöldi heimila missti eigin íbúðir. Sérstaklega kæmi þetta illa við barnmarg- ar fjölskyldur, því þær búa eðlilega í stærra húsnæði, og skattabyrðin leggðist því þyngra á þær. Stjórn Húseigendafélags Reykjavíkur varar stranglega við því, að nú sé gripið til op- inberra úrræða, sem torveldi mönnum að eignast þak yfir höfuðið, og bendir á nauðsyn þess, að leitað verði annarra ráðstafana til lausnar á efna- hagsvandamálum. Fjölsóttar sam- komur íslend- Félag íslendinga í London hélt fullveldisfagnað og aðai- fund 5. desember s.l. Um 130 félagsmenn og gestir voru mættir. Formaður félagsins, Jóhann Sigurðsson flutti skýrslu um starfsemi félagSins á árinu. Haldnir voru 5 skemmtifundir, auk stjórnarfunda, og' mættu á skemmtunum félagsins um 500 manns. Formaður gat þess að ritari félagsins, Sigurður Markússon, hefði flutzt búferlum til Þýzka- lands, en við störfum ritara tók Gylfi Sigurjónsson. I stjórn félagsins voru kjörn- ir: Formaður Jóhann Sigurðs- son, ritari Gylfi Sigurjónsson, gjaldkeri Helga Kalman og meðstjórnendur Elínborg Ferr- ier og Ray Mountain. Endur- skoðendur voru kjörnir Eiríkur Benedikz og Karl Strand. Lang- rækni Glaumbær Salir Glaumbæjar verða opnir á gamlárs- kvöld. t— ☆ ☆ ☆ Tvær hljómsveitir leika til kl. 4 e.m.n. ☆ ☆ ☆ Matarkort afhent á skrifstofu Glaumbæjar daglega frá kl. 1—5. ☆ ☆ ☆• ATH.: Um síðustu áramót seldust ALLIR miðar upp á svipstundu. Nú er að ljúka þeirri miklu kauptíð sem kennd er við fæðingu Jesú frá Nazaret. Hverskonar kaupsýslumenn hafa auglýst varning sinn af Sívaxandi ástríðuþunga, og allir hafa reynt að taka þátt í peningakapphlaupinu mikla, ef þeir höfðu eitthvað það á boðstólum sem laðað gæti al- • menning til viðskipta. Þannig kemst maður alltaf í öruggt jólaskapum leið og maður sér hina árvissu auglýsingu frá Austurbæjarbíói í tilefni af fæðingu frelsarans um „hina vinsælu og djörfu nektardans- mynd Strip tease“ ásamt mynd af kvenmanni nokkrum sem er ber ofan að nafla og hefur framan á sér brjóst sem minna á þann ágæta kodda, rest-best. Þessi aug- lýsing varð þó í ár áhrifa- meirj en nokkru sinnj fyrr, þvi næst undir henni skip- aði Morgunblaðið annarri, svohljóðandi: „Safnaðarfólk! — Finnið muninn á því að taka þátt f guðsþjónustu í kirkjunni sjálfri og hlusta á guðsþjón- ustu við útvarostækið yðar — Margeir J. Magnússon. Miðstræti 3 A.“ Sá Margeir sem þannig auglýsir selur ekki guðsþjón. ustur svo vitað. sé, hvorki i kirkju né útvarpi. Hins veg- ar hefur hann ekki síður en aðrir fundið ástæðu til að minna á tilveru sína í bess- ari jólakaupt.íð. Hann verzl- ar semaé með frá, rejklu bjsiiS~ synjavöru sem peningar nefn- ast og leigir mönnum þá gegn hæfilegum tryggingum og góðum vöxtum. Ef menn þurfa á smáláni að halda fyr- ir jólin, til að mynda vegna þess að þeir hafa fundið ein- tómar kvittanir í launaum- slaginu sínu, minnir. auglýs- ingin í Morgunblaðinu þá á hvar hinn góða Samverja sé að finna. Og þótt þent sé á annað í auglýsingunni er það eflaust aðeins til marks um sannkristilegt hugarþel hins hjálpsama manns, bótt. vel megi raunar vera að hann hafi komið sér upp víxlara- borði í einhverri kirkjunni. Sá maður, sem Margeir J. Magnússon telur sig vera orð- inn auglýsingastjóra fyrir í hjáverkum, kom eitt sinn inn í musteri í Jerúsalem: „Og hann fann í helgidóminum þá sem seldu naut óg sauði og dúfur, og víxlarana sitjandi þar. Og hann gjörði sér svipu úr köðlum o.g rak allt út úr helgidóminum, bæði sauðina og nautin; og bann steypti niður smápeqingum víxlar- anna og hratt um borðum þeirra. Og við dúfnasalana sagði hann; Takið þetta þurt héðan; gjörið ekki hús föður míns að verzhmarbúð.“ Fyrir þessar sakir var hann sem kunnugt er handtekinn og dæmdur og krossfestur lif- andi sem b-''ltinoarrnagUr ,cg ofbeldisseggur En sú stétt sem rekin var út úr muster- inu forðum heldu„ áfram að hrósa sigri öld eftir öld og tengja athafnir s;nar við ör- lög hans Það er mikil lang- ’-ekai — GLÆSILEGT URVAL AF YETRARKÁPUM, REGNKÁPUM, REGNHLÍFUM, REGNHÖTTUM, TÖSKUM og FÓÐRUÐUM SKINNHÖNZKUM. Kjörgarði. BERNHARÐ LAXDAL Kjörgarði. [C AMERÍSKAR BAÐVOGIR 15 gerðir. — Verð kr. 340,00. * Helgi Magnusson & Co. Hafnarstræti 19 — Sími 13184 og 17227. !» v!; £ Bótagreiðslur almanna- trygginga í Reykjavík. Bótagreiðslum lýkur á þessu ári kl. 12 á hádegi á aðfangadag og hefjast ekki aftur fyrr en á venjulegum greiðslutíma bóta í janúar. Tryggingastofnun ríkisins. Vélstiórafélag fslands og Mótorvélsffórafél. fslands halda sameiginlega jólatrésskemmtun fyrir börn félagsmanna sunnudaginn 27. des. n.k. kl. 15,30 að Hótel Borg. Miðasala á skrifstofumum. Skemmtinefndirnar. NÝ SENDINC af SVÖRTUM GLANSANDI REGNKÁPUM. Verð kr. 595,00. BERNHAim LAXDAL Kjörgarði.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.