Þjóðviljinn - 24.12.1964, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 24.12.1964, Qupperneq 4
4 SlÐA HðÐVIUINN r'immtudagur 24. desember 1964 Teikningar Karols Baraniecki Pólverjar hafa allgott skopskjm enda veitir ekki af, búsettum á milli erfiðra stórþjóða- Á síðari árum hafa skoptímarit upplifað mikið blómaskeið þar í landi, og skal fyrst nefna það fræga rit Szpilki, sem hefur stungið á mörgum blásnum belg valdgír- ugra manna og hrokafullra. Og því má heldur ekki gleyma að pólsk blöð og tíma- rit eru full af svipuðu efni og hin eigin- le?u skooblöð. Mikið ber á skopteikningum — kannski stendur skopteikningin hvergi með slíkum blóma sem í Póllandi. Hér fara mareskon- ar teikningar — sumar ákaflega pólitískar og er þá gjarna stefnt gegn hemaðarbrölti Þjóðverja, aðrar grípa á einhverfu öðru furðulegu úr daglegu lífi, en líklega ber einna mest á sérkennilegum leik að fjar- stæðum, og þar hafa pólskir máske náð lengst. Teikningar þær sem hér birtast á síð- unni eru eftir Karol Baraniecki. Og það var dóttir teiknarans sem bar þær inn hingað, Danuta Baraniecka, sem hér hefur dvalizt á landinu í nokkra mán- uði ásamt manni sínum. Og smíðað smá skartgripi úr leir og gipsi og teiknað. Því hún er líka skopteiknari og hefur unnið fyrir það fræga blað Szpilki. Teiknar textalausar seríur um ákveðin temu — til dæmis um leik fangans að kúlunni sem hann er hlekkjaður við, um jarðar- farir og annað skemmtilegt. Og hún hefur undirbúið skýrslu um fs- landsferð handa Szpilki, þar sem stillt verður saman ljósmyndum og teikningum af ýmsum skoplegum og sérkennilegum hlutum og fáum við máske að sjá eitthvað af því síðar. En faðir hennar, sem á myndirnar hér á síðunni, er mjög reyndur orðinn í faginu. Hann er fæddur í Lvov og gekk þar á listaskóla. Árið 1928 byrjaði hann að teikna í tímaritið Pociegiel og kom víða við síðar. í heimsstyrjöldinni teikn- aði hann fyrir blöð fyrsta pólska hers. ins. Eftir stríð hefur hann unnið víða, m. a. fyrir Szpilki, Swiat og Karuzela. Hann hefur tekið þátt í ýmsum sýning- um — allt frá Kína til Berlínar. Nú skalt þú skríða inn í sjónvarpið og sjá um seinni hluta dagskrárinnar. Þjóðsaga og veruleiki

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.