Þjóðviljinn - 24.12.1964, Side 5
Fimmtudagur 24. desember 1964
ÞJðÐVILJINN
SÍÐA g
Hér á landi eru nú hafnar rannsóknir á norðurljósum. Þegar
hefur verið unnið mikið undirbúningsstarf, og áætlanir hafa
verið gerðar um frekari útvíkkun rannsóknanna. f því tilefni
komum við að máli við dr. Þorstein Sæmundsson stjörnufræð-
ing, við Eðlisfræðistofnun Hásk ólans, og skýrði hann okkur frá
mikilvægustu atriðunum í sambandi við rannsóknirnar.
Brotna svciglaga strikalínan sýnir legu háljósabaugsins á norðurhveli jarðar
samkvæmt beztu upplýsingum, sem fyrir liggja. Eins og sjá má Iiggur háljósa-
baugurinn m.a. yfír nyrzta odda Noregs, syðsta odda Grænlands, norður hluta
lslands, Novaya Zemlya, Xaimir- skaga, Alaska og Norður-Kanada.
Víðtækur undirbúningur að hefjast hérlendis við
NORÐURLJÓSA-
RANNSÓKNIR
9
8
7
e
8
4
3
ð
1
24
23
22
21
20
19
18
17
18
A myndinni sjást Ijósaskipti f Reykjavfk þ.e. hvenær nægilega
dimmt er til norðurljósaathugana um hver mánaðamót (punkta-
línur). Tölurnar hægra og vinstra megin sýna íslenzkan tíma.
Dæmi: Mánaðamótin júlí — ágúst, dimmt í 3 tíma. Mánaðamót-
ih desember — janúar 17 tíma.
Eins og kunnugt er, liggur
ísland sérstaklega vel við norð-
urljósarannsóknum, og telja
vísindamenn mjög mikilvægt,
að sem ítarlegastar athuganir
séu gerðar hér á landi.
Hér fer á eftir stutt viðtal
við dr. Þorstein um fram-
kvæmd rannsóknanna.
— Hvernig er þessum rann-
sóknum hagað?
— Sjálfar athuganirnar, þ.
e. gagnasöfnunin, fara aðallega
fram á tvennan hátt, í fyrsta
lagi með ljósmyndatökum með
sérstökum myi.davélum og svo
í öðru lagi með „sjónathugun-
um“, sem einstakir athugun-
armenn framkvæma og skrá
skýrslur um. Úr þessum gögn-
um er svo unnið á kerfisbund-
inn hátt, meðfram í samvinnu
við vísindamenn annarra landa.
— Kannski þú vildir segja
okkur nánar frá Ijósmyndatök-
unum?
— Eins og stendur höfum
við eina norðurljósamyndavél
í stöðugri notkun. Sú mynda-
vél stendur hér á Rjúpnahæð
sunnan við Reykjavík. Vél
þessi er sænsk smíði, og
keypti Veðurstofan hana hing-
að vegna Alþjóðlega jarðeðlis-
fræðiársins 1957, vegna mjög
eindreginna tilmæla, sem bor-
izt höfðu erlendis frá. Hafði
Eysteinn Xryggvason þá um-
sjón með myndatökunum sem
haldið var áfram við og við
til ársins 1960. Þá féllumynda-
tökur alveg niður, unz þær
voru teknar upp aftur á veg-
um Eðlisfræðistofnunar Há-
skólans í nóvember 1963. Síð-
an hefur Rjúpnahæðarvélin
stöðugt verið í gangi.
— En nú er komin hingað
ný myndavél.
— Já, hún er smíðuð í
Bandaríkjunum og er að mörgu
leyti ólík hinni fyrri og ætl-
unin er að setja hana upp
austur á Héraði, að Eyvindará
nærri Egilsstöðum. Það er afar
mikilvægt, að slíkar vélar séu
á fleiri en einum stað á land-
inu því að myndatökur á
hverjum stað geta stöðvazt
langtímum vegna skýja. Með
staðsetningu nýju myndavélar-
innar að Eyvindará aukast til
muna líkumar fyrir því, að
samfelldar upplýsingar fáist
um norðurljósin nótt eftir nótt.
— Er hægt að segja frá þvi
í stuttu máli, hvemig mynda-
vélarnar vinna?
— Jú, ef við stiklum á stóru
mætti segja, að kjarni mynda-
vélanna, bæði þeirrar sænsku
og bandarísku, sé Bolex kvik-
myndavél, sem er svissnesk
tegund, mjög vönduð að gerð.
Með sérstökum speglaútbúnaði,
sem komið er fyrir ofan við
kvikmyndavélina, fæst fram
mynd af öllum himninum í
einu, þ. e. niður að sjóndeild-
arhring allt í kring. Merkja-
ljós sýna áttir á bverri mynd
og hæð yfir sjóndeildarhring.
Við vélina er tengdur raf-
magnsmótor, sem sér um, að
hún taki mynd alltaf á ,mínútu
fresti, og er þá myndavélin
opin í fáeinar sekúndur í einu.
Notaðar eru 16 mm filmur, af-
ar ljósnæmar. Á hverri filmu
komast fyrir um 4000 myndir,
og endist filman því í fjórar
nætur nú þegar nótt er lengst.
Vegna samanburðarrann-
sókna er nauðsynlegt, að hver
mynd sé nákvæmlega tímasett.
Með tilliti til þessa höfum við
látið smíða kristalklukkur sem
eiga að stjórna myndatökun-
um. Klukkur þessar eru svo
nákvæmar, að skekkjan nem-
ur ekki meiru en sekúndu á
mánuði, eða jafnvel sekúndu
á ári, þegar gangurinn hefur
verið stilltur rétt. Björn Krist-
insson verkfræðingur í Raf-
agnatækni hf. hefur smíðað
þessar kristalklukkur, sem eru
hin mesta völundarsmíði.
í sambandi við myndatök-
urnar er þess að gæta, að raf-
magnsstraumurinn má aldrei
rofna, því að þá kemur skekkja
1 tímasetninguna, og getur slíkt
valdið alvarlegum ruglingi við
úrvinnslu myndanna. Til þess
að koma í veg fyrir þetta er
rafgeymir tengdur við kristal-
klukkuna og myndavélina, og
tekur geymirinn við samstund-
is, ef rafmagnið frá kerfinu
rofnar. Þess á milli helzt geym-
irinn í fullri hleðslu.
Á Rjúpnahæð hafa starfs-
menn Landssímans séð um að
opna myndavélarhúsið og se<tja
vélina í gang þegar rökkvar,
og slökkva á henni aftur þeg-
ar birtir eða veður spillist.
Hafa þeir rækt þetta starf með.
prýðv Nýja vélin að
ará verður í umsjá bóndans
þar, Vilhjálms Jónssonar, sem
jafnframt sér um veðurathug-
anir fjrrir Veðurstofuna. Sú vél
verður mun betur varin fyrir
veðri en hin fyrri, þar sem
hún er undir plasthjálmi. Einn-
ig er hægt að láta myndavél-
ina með plasthjálmi og öllum
útbúnaði síga niður í þar til
gert hús, sem undir henni er
og loka þaki hússins fullkom-
lega. Myndatökuútbúnaður all-
ur er að sjálfsögðu upphitaður
með rafmagni, og svo er einn-
ig um vélina á Rjúpnahæð.
Húsið utan um bandarísku vél-
ina var teiknað og smiðað hér;
var það Óskar Ágústsson hús-
gagnasmiður hér í borg sem
það gerði og fórst honum það
afbragðsvel úr hendi.
— En hvað er svo að segja
um athugunarmennina?
— Það er umfram allt nauð-
synlegt að fá glögga menn I
sem flestum sveitum landsins
til að fylgjast með norðurljós-
unum. Myndavélarnar eru að
vísu fullkomnar, en þó er
margt í fari norðurljósanna,
sem ekki kemur skýrt fram á
myndum, og eins er hitt at-
hugandi, að skýjað getur verið
á þeim stöðum, sem mynda-
vélarnar eru, þótt heiðskírt sé
annars staðar. Enn fremur er
ekki víst, að þau norðurljós,
sem sjást t.d. frá Vestfjörðum,
sjáist alltaf héðan frá Reykja-
vík, a.m.k. ekki ef þau eru
langt í norðri.
Til glöggvunar og leiðbein-
ingar fyrir norðurljósaathug-
unarmenn hef ég tekið saman
bækling um norðurljós og
norðurljósaathuganir. Bæk-
lingnum er skipt í tvo hluta,
fyrri hlutinn fjallar um eðli
og einkenni norðurljósa og
skýrir markmið rannsóknanna
en síðari hlutinn er útskýring
á táknkerfi því, sem nú er
notað við lýsingu norðurljós-
unarmenn í hendur sérstök
eyðublöð, sem þeim er gert
að útfylla og auk þess leið-
beiningar um útfyllingu beirra.
— Kannski þú segir mér eitt-
hvað um það sem við hefðum
að réttu lagi átt að byrja á að
tala um þ.e. norðurljósin sjálf.
— Norðurljósin eru mest í
2000 — 3000 km fjarlægð frá
norðurskautinu og mynda
sveiglaga belti umhverfis það.
Miðja sveigsins er segulskaut
jarðarinnar en ekki heimskaut-
ið.
Hliðstæð norðurljósunum eru
suðurljósin, sem eru í rauninni
sama fyrirbærið og norðurljós-
in. Það væri í rauninni þörf
fyrir eitt heiti yfir bæði fyrir-
bærin til að komast hjá mis-
skilningi og hef ég í leiðbedn-
ingabókinni, sem við ræddum
um áðan leyft mér að nota
samheitið segulljós fyrir hvort-
tveggja.
Norðurljósin eru oftast nær
í liðlega 100 km fjarlægð frá
jörðu en hæðin hefur komizt
upp í 1000 km og niður í 70
km.
Framhald á 7. siðu.
«
Þarna er hluti úr norðurljósafilmu. Stóri hringurinn sýnir allan
himininn niður að sjóndeildarhringnum. HáJfhringirnir eru hlut-
ar af öðrum norðurljósamyndum og teknar á mínútu fresti.
Eyvmd-
gildi í byrjun hins alþjóðlega
„Sólkyrrðarárs“, sem nú stend-
ur yfir. • ... » , .
. Auk bækllngsins. fá ' athug-'