Þjóðviljinn - 29.12.1964, Page 4
I
©
4 SIÐA
ÞT6ÐVILTINN
Þriðjudagur 29. desember 1964
Ctgefandi: Sameiningarflolclíur alþýðu — SósíaListaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Slgurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V BYiðþjófsson.
Ritstjóm, afgreiðsia. auglýsingar. prentsmiðja, Skólavörðust 19.
SímJ 17-500 (5 linur) Áskriftarverð ki 90.00 á mánuði
Svikin viðreisnarloforð
jþegar ríkisstjórnir taka við völdum birta þær ein-
att stefnuskrá sína, auglýsa þau afrek sem bráð-
um eigi að vinna. Engin hérlend ríkisstjórn hefur
verið jafn stórtæk við þá iðju og sú sem nú situr,
upphaflega sendi hún loforð sín í prentaðri bók'
inn á hvert heimili með ærnum tilkostnaði sem al-
menningi var gert að greiða. Efndirnar hafa þó
orðið þær að ekki stendur steinn yfir steini í
þessari framtíðarhöll viðreisnarinnar. Kjarninn í
loforðunum’ var sá að fellt skyldi niður hið flókna
bókhaldskerfi þjóðarbúsins, verðuppbætur og nið-
urgreiðslur og annar þvílíkur. peningaflutningur,
og í því skyni var gengi krónunnar lækkað. En
þótt gengislækkanirnar hafi orðið tvær er upp-
bótakerfið með meiri blóma en nokkru sinni fyrr
í sögu þjóðarinnar. Niðurgreiðslur á_vöruverði ein-
ar saman eru nú 543 miljónir króna á ári, sam-
kvæmt áætlunum ríkisstjórnarinnar, og nema allt
að því helmingi á verðlagi sumra vörutegunda. Út-
flutningsuppbætur hafa farið sívaxandi og eru
stundum margfalt meiri en það verð sem fyrir
vörurnar fæst erlendis. Styrkir til togaraflo’tans,
bátaútvegsins og frystihúsanna birtast í hinum
margvíslegustu myndum, og ráðamenn stjórnar-
flokkanna hafa gefið í skyn að enn verði bætt við
það kerfi í vor. Er þetta kerfi allt orðið svo marg-
þætt og flókið, að ekki mun veita af hinum nýja
rafeindaheila sem Háskóla íslands hefur áskotnazt
’til þess að greiða úr flækjunum, ef hann hrekkur
þá til.
|Jpphaflega sagðist stjórnin ætla að standa eða
falla með stefnu sinni. Viðreisnarhöllin er hrun-
in, en ráðherrarnir sitja sem fastast í rústunum.
*
Fjársvik
jpjármálaráðherra skýrði frá því í útvarpsumræð-
unum um. daginn að niðurgreiðslumar — 543
miljónir króna á ári — lækkuðu vísitöluna um
19,4 stig. Eins og kunnugt er stendur söluskattur-
inn undir niðurgreiðslunum, vöruverð er hækkað
til þess að hægt sé að lækka það. Ef vísitalan gæfi
rétta mynd af verðlaginu myndi söluskatturinn
hafa nákvæmlega sömu áhrif til hækkunar og
niðurgreiðslurnar til lækkunar, þannig að stefna
ríkisstjórnarinnar í verðlagsmálum jafngilti þeirri
iðju að moka sandi í botnlausa tunnu. En vísitalan
gefur ekki sanna mynd, heldur hagnast ríkisstjórn-
in, á því að greiða niður „réttar“ vörutegundir,
Þannig er undirstaða niðurgreiðslukerfisins raun-
veruleg fjársvik, launþegar eru sjálfir látnir greiða
niður verð á nauðsynjum sínum til þess að halda
vísitölunni og kaupgjaldinu í skefjum. — m.
EIN ÖRSTUTT AFMÆUSKVEÐJA
\
I miðjum jólaönnunum rifj-
ast það upp, að á mánudag-
inn kemur 28. þ.m. verður
Magnús Á. Árnason listamað-
ur sjötugur að árum — trúi
því, hver sem vill.
1 mínum augum hefur hann
ekkert elzt, síðan ég sá hann
fyrst inni á Kirkjusandi fyrir
tveimur, þremur áratugum.
Engan mann íslenzkan
kann ég að nefna, sem hef-
ur lagt lag sitt við eins marg-
ar listagyðjur með jafngóðum
árangri og Magnús. Hann er
málari og myndhöggvari ágæt-
ur svo sem alþjóð veit — si-
ungur og leitandi í listsköpun
sinni. Fasrri vita ef til vill,
að Magnús er skáld gott og
afburðasnjall þýðandi eins og
Tagore-þýðingar hans bera
vitni um, auk þess er hann
lagasmiður. En málara- og
höggmyndalistin hafa. átt huga
hans fyrst og fremst.
Maður með atorku Magnús-
ar og eðlislæga listhneigð hefði
allt eins orðið framúrskarandi
á sviði skáldskapar og tón-
smíða hefði hann gefið sér
tíma til að sinna þeim.
Auk hinna nánu kynna af
þessum listagyðjum, hefur
Magnús verið mikill félagsmað-
ur og er ennþá.
. Ég veit, að hann hefur ver-
ið myndlistarmönnum betri
en enginn í samtökum þeirra
og má sem dæmi nefna, að
ágóðanum af málverkasýningu,
sem opnuð verður á annan dag
jóla á verkum Magnúsar og
annarra listamanna í Kópa-
vogi í bókasafni Kópavogs í
Félagshemilinu — verður var-
ið til nýs sýningarskála lista-
manna. En hans er orðin hin
brýnasta þörf eins og kunnugt
er.
Alltaf er Magnús reiðubú-
inn að verða góðu málefni að
liði og stendur þá jafnan f
broddi ’lylkingar. Hánn hefur
starfað í mörgum fleiri félags-
samtökum. Um skeið var hann
formaður Vináttutengsla Is-
lands og Rúmeníu og vann þar
gott og mikið starf af sínum
alkunna dugnaði.
Hann hefur einn Islendinga
það ég veit haft málverka-
sýningu í Rúmeníu austur,
ennfremur hefur hann haldið
sýningar í Mexíkó og víðar.
Á yngri árum dvaldist hann
við nám í Bandaríkjunum. Það
er ekki aðeins, að Magnús flytji
list sína til annarra landa.
Þegar heim kemur flytur hann
marga skemmtilega og fræð-
andi fyrirlestra í útvarp um
þjóðir þær, sem haiin kynn-
ist á ferðum sínum. Er
skemmst að minnast erinda-
flokks hans um Mexíkó og
menningu þess lands.
Engan mann veit ég Magn-
úsi þjóðhollari, en jafnframt
er hann heimsborgari, ljúfur
og elskulegur í framgöngu allri
og gleymist þeim seint, sem
eiga því láni að fagna að
kynnast honum.
Eitt er það, sem honum
verður seint fullþakkhð. Hann
bar með sér hingað heim brúði
af Englandi þá indælustu konu,
sem ég veit — hina fáguðu og
aðláðandi listakonu Barböru
...........I
JÓLATRÉ
Skipstjóra- og stýrimannafé-
lagið ALDAN, og Stýrimanna-
félag íslands —
halda jólatrésfagnað sinn í Lídó, miðvikudaginn
6. janúar kl. 3 eh.
Dansleikur fyrir fullorðna hefst kl. 9.
Aðgöngumiðar fást hjá eftirtöldum mönnum:
Guðjón Pétursson, Höfðavík, sími 15334.
Jón B. Einarsson, Laugateig 6, simi 32707.
Kolbeinn Finnsson, Vesturgötu 41, sími 13940
Þorvaldur Árnason, Kaplaskjólsvegi 45, sími 18217.
Hörður Þórhallsson, Fjölnisvegi 18, sími 12823-
Andrés Finnbogason, Hrísateigi 19, sími 36107.
Herrafrakkar með spœ/
Stakirþkkar
KLÆÐAVERZLUNIN
Klapparstíg 40 — Sími 14415.
Sauma vél a ví ðeærðir
riósmvndavéla-
■^Acrerðir
FLJÖT 4FGREIÐSLA
SYLGJA
Laufasvegi |9 (bakhús)
siml 12656.
Ódýrqr
bœkur
Odýrustu bækurnar fáið
þið i
Bókinni h.f.
Skólavörðustíg 6.
William Morríá. Þau hjón eru
mér tákn þess þokkafyllsta,
sem ég þekki á þessu landi.
Þau eiga einn son barna Vífil,
sem stundar nám í húsagerð-
arlist í Mexíkó.
Um leið og ég óska þér
Magnús, konu og syni, að þú
megir halda fullri heilsu enn
um langa lífdaga til starfa að
hugðarefnum þínum, sem öll
auka á yndi og fegurð lífsins,
— þakka ég þér og allt ,mitt
skyldulið fyrir ótaldar á-
nægjustundir á heimili ykkar
hjóna.
Þótt þú segist ekki verða
heima á degi ykkar Bjarna
Thorarensen — fæ ég bara (
nefið hjá þér seinna.
Vertu alltaf blessaður og for-
láttu þessar flýtislínur hripað-
ar á Þorláksmessu.
Þinn einlægur
Hjálmar Ólafsson.
Tilkynning
Vegna áramótauppgjörs verða bankarnir í
Reykjavík, ásamt útibúum, lokaðir laugar-
daginn 2. janúar 1965.
Athygli skal vakin á því, að víxlar, sem
falla í gjalddaga miðvikudaginn 30. desem-
ber, verða afsagðir fimmtudaginn 31. des-
ember, séu þeir eigi greiddir fyrir lokunar-
tíma bankanna þann dag, kl. 12 á hádegi.
SEÐLABANKI ÍSLANDS.
LANDSBANKI ISLANDS.
BUNAÐARBANKI ÍSLANDS.
OTVEGSBANKI ÍSLANDS.
IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS H.F.
VERZLUNARBANKI ÍSLANDS H.F.
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS H.F.
Tiikynning frá Sínsa-
happdrættinu 1964
Dregið var hjá Borgarfógeta á Þorláksmessukvöld
og hringt í vinningsnúmer, sem voru þessi:
38458 Volvo-Amazon
51231 Volkswagen
18661 1. aukavinningur (15 þús. kr.)
41749 2. aukavinningur
N 6048 3. aukavinningur (Njarðvíkur)
60192 4. aukavinningur
K 1636 5. aukavinningur (Keflavík)
23942 6. aukavinningur
18202 7. aukavinningur
50828 8. aukavinningur
V 1846 9. aukavinningur (Vestmannaey'jar)
K 1885 10- áukavinningur (Keflavík.).
Styrktarfélag Iamaðra og fatlaðra.
Glaumbær
Salir Glaumbæjar verða opnir á gamlárs-
kvöld. —
☆ ☆ ☆
Tvær hljómsveitir leika til kl. 4 e.m.n.
☆ ☆ ☆
Matarkort afhent á skrifstofu Glaumbæjar
daglega frá kl. 1—5.
☆ ☆ ☆
ATH.: öm síðustu. áramót seldust ALLIR miðar upp á
svipstundu
l
4