Þjóðviljinn - 29.12.1964, Blaðsíða 10
LÍTILL SKÍÐAKAPPI Á ARNARHÓL
Frumsýningunni
ágætlega tekið
Frumsýningargestir toku sýn-
ingu Þjóðleikhússins á söng-
leiknum „Stöðvið heiminn” á
2. í jólum ágætavel. Höfundar
leiksins eru þeir Anthony New-
ley og Leslie Brieusse, en leik-
stjóri Ivo Cramér og hljómsveit-
arstjóri Eckert Lundin, báðir
sænskir. Með aðalhlutverkin fóru
þau Bessi Bjarnason og Vala
Kristjánsson. Þýðandi er Þor-
steinn Valdimarsson. — Leik-
dómur Ásgeirs Hjartarsonar
birtist í Þjóðviljanum einhvem
næstu daga.
Meistaraverk
flutt í Landa-
kotskirkju
Tveir fyrstu hlutar Jólaórator-
íós Johans Seb. Bachs voru
fluttir í Krístskirkju í Landa-
koti sl. sunnudag. Það var Póly-
fónkórinn sem stóð fyrir flutn-
ingi þessa meistaraverks, auk
hljómsveitar og einsöngvara.
Stjómandi var Ingólfur Guð-
brandsson, en einsöngvarar Sig-
urður Björnsson, Guðrún Tóm-
asdóttir og Halldór Vilhelmsson.
Tónleika þessa sóttu eins
margir og kirkjan frekast rúm-
aði, en meðal áheyrenda var for-
seti íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson. Tónleikarnir voru end-
urteknir í gærkvöld.
Falleg jól
á Isafirði
ísafirði, 28/12 — Hvít jól voru
í ísafjarðarkaupstað og var
nokkuð um skreytingar í bæn-
um. Þannig skartaði jólatré á
Austurvelli frá vinarbænum
Hróarskeldu og einnig voru Ijós-
um prýdd jólatré á sjúkrahús-
túninu og upp við vatnsþró og
niður við höfnina að áralöngum
sið. Þá voru víða fallegar jóla-
skreytingar í görðum og á hús-
um og viðfelldinn jólaíblær á
kaupstaðnum.
Blíðalogn ríkti um jólin með
nokkru frosti og alhvítri jörð.
H. Ó.
Eyjabátur í
landhelgi
f gærmorgun tók varðskipið
Ægir Eyjabát að ólöglegum tog-
veiðum tvær sjómílur innan
fjögurra mílna markanna undan
Ingólfshöfða og fór varðskipið
með bátinn til Vestmannaeyja.
Landhelgisbrjóturinn heitir
Leó VE 400 og verður kveðinn
upp dómur í máli hans hjá bæj-
arfógetaembættinu einhvern
næstu daga.
Kviknaði í
Skjaldbreið og
Jóni Bjarnasyni
Kukkan fimm á aðfangadag
varð allmikil sprenging i eldhús-
inu um borð í m.s. Skjaldbreið,
sem lá við Ægisgarð. Tveir vakt-
menn voru um borð á vakta-
skiptum og gerðu slökkviliðinu
þegar aðvart.
Sprengingin varð í eldavélinni
og gaus þegar upp eldur og reyk
lagði um eldhúsið og ganga
skipsins. Brunatjón varð ekki
alvarlegt og tókst fljótt að ráða
niðurlögum eldsins.
Þá kom upp eldur í m.b. Jóni
Bjarnasyni við Grandagarð og
hafði gleymzt að slökkva á olíu-
eldavél í káetu, þegar skipið
var yfirgefið eftirmiðdaginn
annan jóladag. Varð vart við
eldinn klukkan sjö um kvöldið
og varð brunatjón ekki alvar-
legt.
Þriðjudagur 29. desember 1964 — 29. árgangur — 283. tölublað.
Tekst aS bjarga
Siísönnu Reith?
■ RAUFARHÖFN 28/12 — Á Þorláksmessu kom hing-
að tíu manna björgunarsveit á vegum Bjargar h.f. undir
leiðsögn Kristins Guðbrandssonar til þess að ná þýzka
vöruflutningaskipinu, Súsönnu Reith, á flot, og hafa þeir
unnið óslitið alla jólahelgina að björgun skipsins.
Ljósmyndarinn okkar hitti þennan unga skíðakappa á Arnarhóli á sunnudaginn. Það skal tekið
fram til að koma í veg fyrir misskilning, að hann er alls ekki að detta þó svo kunni að virðast á
myndinni, því að hann dettur aldrei á skíðum, að því er hann sagði Ijósmyndaranum. Hins vegar
mun þetta vera einhver frægur Alpa-stíll er hann notar, sem við kunnum ekki nánari skilgrein-
ingu á. Hver veit nema hér sé á ferðinni efni í frægan skíðakappa. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Mikið veiðarfæratjón í
eldsvoða í Neskaupstaó
■ NESKAUPSTAÐ 28/12 — Klukkan fimmtán á jóla-
dag kom upp eldur í Fiskverkunarhúsi Ölvers Guðmunds-
sonar hér í kaupstaðnum og var suðurhlið hússins alelda
þegar slökkviliðið kom á vettvang tíu mínútum eftir að
eldsins varð vart.
Hér er um áð ræða þriggja
hæða timbur- og steinhús og
Síldveið-
in á Rauða
torginu
NESKAUPSTAÐ 28/12 —Þrjá-
tíu þúsund mál af síld liggja hér
á túnum, en bræðsla hefur Iegið
niðri í síldarverksmiðjunni yfir
jólin og er ekki ætlunin að hefja
bræðslu fyrr en eftir áramót.
Tveir síldarbátar fóru út héð-
an frá Norðfirði í gærmorgun
til síldveiða á Rauða torginu.
Það eru Sæfaxi II. og Björg NK
og fé.kk síðamefndi báturinn
svo stórt kast síðastliðna nótt,
að nótin sprakk og náðust þó
inn hundrað mál og er Björg
NK væntanleg inn í kvöld með
þá veiði.
íslenzku bátarnir eru að þyrp-
ast á Rauða torgið og má bú-
ast við einhverri veiði í nótt.
Vitað er um Sigurð Bjarnason og
Súluna að norðan og í dag um
Keflvíking og Höfrung III. á
miðunum.
Sæhrímnir lá við bryggju á
Seyðisfirði um jólin og flaug
skipshöfnin suður og dvöldu
skipsmenn hjá fjölskylaum sin-
um um jólin og flugu svo aftur
í dag austur og fer báturinn út
á miðin i nótt til veiða.
Mikið síldarmagn er ennþá
á Rauða torginu Qg sovézki flot-
inn heldur sig' þar ennþá og
verður þar fram í næsta mán-
uð og flytur sig þá á veiðisvæði
milli Hjaltlaridseyja og Færeyja.
Að gömlum sið flytur hann sig
svo i ofanverðum febrúarmán-
uði að Noregsströndum og veið-
if þar á útmánuðum og þaðan
tekur hann svo stefnuna norður
á bóginn aftur og heldur sig
við Jan Mayen í mai og júní
og er svo kominn út af Aust-
fjörðum í september, október,
nóvember og desember.
R. S.
geisaði eldurinn á annarri og
þriðju hæð hússins sunnan meg-
in.
Þama brann allmikið magn
af veiðarfærum og féll þakið
sunnan megin á húsinu og urðu
miklar skemmdir á húsinu. Að-
allega brunnu fiskilínur og net
af veiðarfærunum, en tvær sild-
arnætur sluppu óskemmdar enda
lágu þær norðan megin á ann-
arri hæð hússins. Þá tókst að
verja þrjú hundruð tunnur af
saltsíld á neðstu hæðinni og
vörubíl.
Blíðalogn var um daginn og
hefði getað farið ver með inn-
anstormi, þar sem þrjátíu tonn
af benzíni á vegum B.P. var
þarna?* utan megin í fimmtíu
metra fjarlægð og tveir þrjú
hundruð tonna olíugeymar eign
B.P. og Essó og voru báðir
fullir af olíu.
Það tók slökkviliðið tvo
klukkutíma að ráða niðurlögum
eldlsins. Eignir voru lágt vá-
tryggðar og er þetta mikið tjón.
ölver Guðmundsson, útgerðar-
maður gerir meðal annars út
vélbátinn Þráin á síldveiðar.
Fyrri björgunartilraunir höfðu
verið reyndar með því að toga
í skipið í hánorður af sjó og
hafði skipið flutzt eitthvað til á
Kotflúðinni og allar þessar til-
raunir reynzt árangurslausar.
Þessi björgunarsveit hefur haft
annan hátt á björgun skipsins og
toga þeir í skipið af landi yfir
Kotvíkina og nota til þess þrjá
trukkbíla og átta rása blakkir og
hafa flutt skipið um fimmtán
metra á flúðinni og ætla að ná
skipinu á flot klukkan sjö í
kvöld á háflóði og horfir fremur
vel um björgun.
Mikill leki hefur verið á skip-
inu og hafa þeir jafnframt unnið
við að þétta skipið og nota tvær
tíu tommu dælur og eina sex
tommu dælu til þess að halda
í horfinu og er ætlunin að flytja
skipið að hafnarbryggjunni á
Raufarhöfn, ef það losnar og
þétta það enn frekar og gera
það sjófært til Reykjavíkur og
þar fer skipið í slipp.
Björgunarmenn telja að fyrri
björgunartilraunir hafi fremur
spillt fyrir björgun skipsins og
t^lja , það,, einu , færu leiðina að
toga 1 skipið af landi og ná því á
flot út á Kotvíkina.
Vélbáturinn Kristinn hefur
annazt flutninga að skipinu frá
sjó og hafnsögumaðurinn á
Raufarhöfn hefur verið með í
ráðum um björgun skipsins, en
hann heitir Baldvin Björgvins-
son.
Annars hefur þessi flokkur
sunnanmanna fengið inni í ein-
um síldarbragganum hér á Rauf-
arhöfn og höfðu með sér kokk
til þess að matreiða jólamatinn
í öUu annríkinu. — H.R.
Jólatónleikar
Sinfóníunnar
eru í kvöld
Jólatónleikar Sinfóníusveitar
Islands verða haldnir í kvöld
Háskólabíói og hefjast þeir kl.
21. Stjórnandi tónleikanna er
Proinnsías O’Duinn.
Þetta eru sjöttu tónleikar Sin-
fóníunnar á þessu starfsári og
jafnframt hinir síðustu er Pro-
innsías O’Duinn stjómar að
þessu sinni. Á efnisskránni eru
þrjú verk: Forleikur að Próme-
þeusi, opus 43, eftir Beethoven,
Sinfónía nr. 6 í C-dúr eftir
Schubert og er þetta í fyrsta
sinn sem hún er flutt hér á
landi, og loks er Scheherazade,
opus 35, eftir Rimsky-Korsa-
kof.
Næstu tónleikar Sinfóníunnar
verða haldnir 7. janúar n.k. og
stjómar Igor Buketoff þeim.
Dagana 9.—10. desember sl.
hélt Sinfóníuhljómsveitin 'fema
skólatónleika í Háskólabíói og
sóttu þá nær 3000 unglingar.
Tónleikar Sinfóníunnar hafa ver-
ið mjög vel sóttir í vetur, oft-
ast nær fullt hús, og áberandi
hve margt af ungu fólki sækir
tónleikana.
Fyrirspurn frá nokkrum útvegsmönnum og sjómönnum:
Hvers vegna er ferskfiskverð hér
50% lægra en í nágranalöndunum?
Þjóðviljanum barst í gær eft-
irfarandi fyrirspum frá nokkr-
um sjómönnum og útgerðar-
mönnum:
„Þar sem verðlagsnefnd sjáv-
arútvegsins situr nú þessa dag-
ana á rökstólum til að ákveða
verð á ferskfiski fyrir komandi
vertíð, og þar sem segja má að
gert sé út um örlög útvegsmanna
og fiskimanna hinna minni fiski-
skipa, sem ekki hafa síldina upp
á að hlaupa, þá langar okkur að
koma þessari fyrirspum á fram-
færi:
Hverjar eru orsakir þess að
ferskfisksverð hér á Islandi er
u.þ.b. 50% lægra heldur en í
nágrannalöndunum, þar sem
fiskur er unninn á sama hátt
og fyrir sömu markaði?
Við teljum okkur eiga kröfu
til að fá upplýsingar, hvað verði
um þriðjung hins raunverulega
fiskverðs.
Rr vinnuhagræðing svona
miklu skemmra á veg komin
hér. heldur en t.d. í Færeyjum?
Eða hví fer verðlagsnefnd ekki
inn á nýjar leiðir, með fleiri
verðflokkum t.d. kassafisk? Og
væri ekki úr vegi, að ferskfisk-
matið styddi þá tilraun að
„kassa fisk“ þegar lítið veiðist,
og á þeim bátum sem aðstöðu
hafa til þess.
Eða seilist ríkisvaldið svona
miklu dýpra í vasa íslenzkra
fiskverkenda heldur en gert er
hjá Dönum og Norðmönnum?
f fullri vinsemd viljum við
benda á, að fiskverð er svo lágt,
að það gefur hlutasjómönnum
ekki meira í aðra hönd, með
ELDUR íb. v. MARl
Að kvöldi annars jóladags kom
upp eldur í botnvörpungnum
Marz við togarabryggjuna í
Reykjavíkurhöfn. Eldurinn kom
upp í lúkar skipsins og urðu all-
miklar skemmdir þar.
Vaktmaður veitti fyrst athygli
miklum reyk er lagði út um
lúkarinn og kom slökkviliðið á
vettvang klukkan hálf níu og
réðist það til niðurgöngu með
grímur en varg frá að hverfa
vegna hitans.
Framhald á 6. síðu.
eðlilegum aflabrögðum, en þeir
geta haft við algenga landvinnu.
Leiðir beinlínis til þess að
menn fást ekki á bátana, fyrir
utan það að bátamir verða ekki
gerðir út styrkjalaust, nema
veiðamar svari kostnaði.
Valdimar Einarsson
Jón Sigurðsson
Pétlir Stefánsson
Halldór Bjamason
Gísli Gunnarsson
Tómas Sæmundsson
Guðjón Sigurðsson
Jón Guðjónsson
Guðni Sigurðsson
Jón Þórarinsson
Jóhannes Guðjónsson
Kristján Jóhannsson.
Fyrirspurn þessi hefur ver-
ið send öllum dagblöðum borg-
arinnar“.
Verkfall yfirvofandl á
Háfunum suBvestanlands
■ Enn hefur enginn árangur orðið að samningaunaleit-
unum í deilu sjómannasamtakanna á Suðvesturlandi og
útgerðarmanna um kjarasamninga sjómanna. Nýr sátta-
fundur hefur verið boðaður í dag, þriðjudag, kl. 2. Sam-
eiginleg samninganefnd sjómannasamtakanna sem hlut
eiga að máli stendur í samningaviðræðunum.
■ Eins og kunnugt er hafa sjómannasamtökin í Reykja-
vík, Hafnaifirði, Keflavík. Akranesi og Grindavík boðað
veikfall á bátaflotanum frá os með 1. janúar hafi samning-
ar ekki tekizt fyrir þann tíma.
1