Þjóðviljinn - 09.01.1965, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 09.01.1965, Qupperneq 7
Laugardagur 9. janúar 1985 HÓÐVILIINN SfÐA de Gaulle ætlar að leggja NATO að velli árið 1969 Sigurvegarinn i átökum Vesturveldanna á HÖnu ári lœtur kunngera stefnu sína nœsta kjörtimabil Undanfamar vikur hafa birzt i New York Times greinar eftir Cyrus L. Sulzberger þar sem höfundur kveðst rekja „undirstöðuatriði franskrar ut- anríkisstefnu eftir óyggjandi heimildum." Sulzberger, sem er sonur aðaleiganda hiiís bandaríska stórblaðs og yf- ir fréttariturum þess erlendis, hefur lengi haft aðsetur í Par- ís. Hann er frá fornu fan' kunnugur de Gaulle forseta og hefur margsinnis átt við hann einkaviðtöl. Lítill vafi leikur á hver sú „óyggjandi heimild" er sem gerií Sulzberger fsert að staðhæfa hvað Frakklands- forseti hyggst fyrir á nae^tu ámm. Forsetakoisningar eiga að fara fram í Frakklandi und- ir lok ársins. Enn hefur de Gaulle ekkert viljað láta hafa eftir sér um hvort hann hyggst gefa kost á sér til endurkjörs, en í greinum Sulzbergers örl- ar ekki á vafa um að han^ bjóði sig fram á ný. Eins og aðrir sem til þekkja j Frakk- landi telur hinn bandaríski blaðamaður víst að de Gaulle nái endurkjöri verði hann á annað borð í framboði. Engar ýkjur eru að de Gaulle standi um þessi áramót á hátindi valdaferils síns. f des- ember vann hann á einni viku tvo stjómmálasigra sem stað- festa svo ekki verður um deilt að honum hefur orðið mikið ágengt í sókninni að því mark- miði að gera Frakkland að for- usturíki í Vestur-Evrópu, leið- töga sem sameini meginlands- ríkin svo þau geti komið fram sem sjálfstæður aðili bæði gagnvart Sovétríkjunum í austri og Bandaríkjunum í vestri. Báða þessa sigra vann franska stjórnin á kostnað Vestur-Þýzkalands, eina keppi- nauts síns um forustuhlutverk- ið á meginlandi Vestur-Evr- ópu. Fyrri sigurinn vannst á fundi ráðherra Efnahagsbanda- lagsríkjanna j Brussel. Innan þess tima sem de Gaulle hafði tilsett náðist samkomulag um samræmingu verðlags á land- búnaðarafurðum í bandalags- ríkjunum sex Frakklandsfor- seti hafði hótað að stjórn hans myndi hætta allri þátttöku I starfi EBE væri lokaákvörðun um verð á komi ekki tekin á þessum fundi. Lengi'vel þráað- ist vesturþýzka stjórnin við og vildi fresta málinu fram til ársins 1966. Hugðist Erhard forsætisráðherra forða sér með þvi móti undan reiði bænda i þingkosr.ingunum næsta haust, en samræming hlaut að hafa i för með sér lækkun á búvöru- verðj í Vestur-Þýzkalandi, þar sem það er hærra en i nokkru öðru landi EBE vegna óhag- kvæmra búnaðarhátta vestur- þýzkra bænda. En de Gaulle reyndist framsýnni en Erhard Þegar til úrslita dró stóðu vest- urþýzku ráðherrarnir uppi ein- ir síns liðs á fundinum i Brussel. Öll hin Efnahags- bandalagsríkin, framkvæmda- stjóm bandalagsins og meira að segja Bandaríkjastjóm studdi málstað Frakka. de Gaulle hafði öll trompin á hendinni, skýlaus ákvæði Róm- arsamningsins, vonir bænda í nágrannaríkjum Vestur-Þýzka- lands um greiðari aðgang að vesturþýzka markaðnum og hagsmuni bandarískra útflytj- enda, sem ekki gátu búizt við neinum tollalækkunum í Evr- ópu í Kennedy-viðræðunum svokölluðu hefði ekki áður náðst samkomulag innan EBE um komverðið. IBrussel tókst de Gaulle að gera að engu tilraun Vest- ur-Þjóðverja til að beita efna- hagslegu bolmagni í þágu sér- hagsmuna sinna innan EBE. Skömmu eftir að vansvefta ist að hann hafði undirritað stjómarskjal sem að margra áliti jafngildir dauðadómi yf- ir þessu óskabami vestur- þýzkra og bandarískra hem- aðarsinna. Með plaggi þessu er Rusk og McNamara landvamaráð- herra skipað að sjá uúi að und- irmenn aðhafist ekkert sem aukið geti á sundrungina í NATÓ og Johnson lýsir yfir að hann' muni aldrei fallast á neina áætlun um kjarorku- vígbúnað bandalagsins sem ekki hafi verið borin undir Frakklandsstjóm frá öndverðu og rædd ýtarlega við hana. Jafnframt var leyst upp sú deild bandariska utanríkis- ráðuneytisins sem undanfarna mánuði hefur undirbúið stofn- un kjamorkuflotans. Loks var styrjöldina síðari og tók á sig fasta mynd í skipulagi og starfsháttum NATÓ. Nú em aðstæður allt aðrar, og de Gaulle hefur einsett sér að Atlanzhafsbandalagið skuli líða • undir lok að fjórum árum liðn- um, segir Sulzberger í fyrstu greininni af þeim sem getið var í upþhafi þessa máls: „de Gaulle ætlar að segja Frakk- land úr NATÓ þegar Atlanz- hafssáttmálinn rennur út á öndverðu ári 1969, en hyggst í staðinn gera annan banda- lagssáttmála í annarri, losara- legri og ekki eins samfelldri mynd . . . Hershöfðinginn á- lítur að bandalag Vesturveld- anna eigi að haldast við lýði, eða að minnsta kosti eigi sumir aðilar NATÓ, svo sem Banda- ríkin og Frakkland, að eridur- nýja heit um að koma hver de Gaulle veifar til fólks á einu ferðalagi sínu um Frakkland. ópu séu henni samþykk. Það getur ekki orðið fýrr en jafn- vægi rikir í Evrópu, en það á langt í land. Sameining Þýzkalands hlýtur því að drag- ast svo árum eða áratugum skiptir. Meðan það ástand rík- ir vill de Gaulle að Frakkar eigi vinsamleg og náin sam- skipti við Vestur-Þýzkaland, en hann er staðráðinn í að gera engan skapaðan hlut til að efla hernaðarmátt nágranna sinna í austri, allra sízt stuðla að því að þeir fái umráð yfir kjam- orkuvopnum. Evrópa nær frá Atlanzhafi til Úralfjalla, er viðkvæði de Gaulle, og vandamál eins og Þýzkalandsmálið sem snerta alla Evrópu verður að leysa innan þeirrar heildar. Samein- ing Þýzkalands verður að bíða þangað til Evrópa er sameinuð. Franski forsetinn játar að þetta eigi enn langt í land, en hann er ekki í neinum vafa um að þróunin beinist í þá átt. Hann hafnar tillögum sovét- stjómarinnar um griðasátt- mála milli hemaðarbandalag- anna í austri og vestri, en hyggst gera allt sem í hans valdi stendur til að greiða fyr- ir viðskiptum og kynnum þjóð- anna í Austur- ,og Vest'ur-Evr- ópu. M.T.Ó. Hver er lífsrétt- ur ófædds barns? Ráðherrar á NATÓ-fundinum í París. landbúnaðarráðherrar reikuðu út úr fundarsalnum í aðal- stöðvum EBE, settust utanrík- is- og landvarnaráðherrar á ráðstefnu í salarkynnum NATÓ í Paris. í fundarbyrj- un var vesturþýzki utanríkis- ráðherrann Schröder þess full- viss að á þessum vettvangi ætti hann hægt með að hefna ófara Schmúeker meðráðherra síus í Brussel. Frá því i apríl síðastliðið vor höfðu stjómir Bandaríkjanna og Vestur- Þýzkalands rekið ákaft eftir að lokaákvörðun um stofnun sameiginlegs kjarnorkuflota NATÓ skyldi tekin um áramót- in. Talsmenn bandaríska utan- rikisráðuneytisins höfðu meira að segja við orð að Bandarík- . in og Vestur-Þýzkaland myndu stofna kjamorkuflotann ein þótt öll önnur NATÓ-ríki neit- uðu að vera með. Schröder vissi ekki betur en þessi af- staða Bandaríkjanna væri ó- breytt og kom fram i samræmi við það. sætti til dæmis færi að móðga de Murville, utanrík- isráðherra Frakklands. En þeg- ar ræðuhöld Rusks, utanríkis- ráðherra Bandarikjanna, og Schröders stóðu sem hæst kippti Johnson Bandarikjafor- seti undan þeim fótunum. Hann lýsti yfir heima í Wash- ington að Bandaríkjastjórn væri „ekki skuldbundin" til að koma kjarnorkufloitanum á stofn, og skömmu síðar vitnað- bandarísku herstjóminni falið að undirbúa viðræður við franska hershöfðingja um sam- ræmingu hemaðaráætlana þeg- ar kjamorkusprengjuflugfloti Frakklands verður myndaður á þessu ári. Með þessum ráð- stöfunum viðurkenndi Johnson að Bandaríkin sjái sér ekki fært að fara sinu fram- innan NATÓ gegn vilja Frakklands. Þar með er de Gaulle veitt sú sérstaða innan bandalagsins sem bæði Eisenhower og Kenn- edy ' synjuðu honum um. Franski forsetinn heldur sitt strik, vis i sinni sök eftir unna sigra. Það sest bezt á áramótaræðu hans, þar sem hann hét á landa sma að leggja sig alla fram til að hamla gegn ítökum bandarískra auðhringa í frönsku atvinnulifi og varð- veita með því móti efnahags- legt sjálfstæði Frakklands. Ef Frakkar beittu ekki hugviti sínu og atorku af fremstu getu ættu þeir á hættu að verða „gérðir að nýlendu“. Þeir hlytu að hafna „yfirdrottnuninni sem við höfum kynnzt svo ræki- lega“ í hvaða mynd sem hún birtist, hvort heldur er sem Atlanzhafssamfélag, stórríki of- ar þjóðríkjunum eða samruni í stærri heild. Yfirdrottnun Bandaríkjanna yfir Vestur-Evrópu hlauzt af aðstæðunum eftir heims- öðrum til hjálpar ef ófrið ber að höndum . . . Enda þótt hættan á heimsstyrjöld sé úr sögunni, er ekki unnt að ganga frá því sem gefnu að engar hættur lejmist lengra framund- an. Enginn háski stafar nú af Austurveldunum, en slíkur háski getur risið á ný, án þess nokkru verði um það spáð hve- nær slíkt geti gerzt.“ de Gaulle álítur ennfremur, segir Sulz- berger, að Bandaríkjamenn hljóti að láta af hersetu í Vestur-Evrópu innan fyrirsjá- anlegs tíma. Þriðja grein Sulzbergers fjall- ar um afstöðu de Gaulle til Þýzkalánds. Þótt franski for- setinn hafi gert sáttmála um náið samstarf við Vestur- Þýzkaland, er ekki þar með sagt að honum sé umhugað að efla þetta nágrannaríki sitt. Hann hefur viðurkennt núver- andi landamæri Þýzkalands og Póllands og telur að styrjöld muni af hljótast ef Vestur- veldin reyni að sameina Þýzka- land á þann hátt sem stjórn- in i Bonn óskar. Dulles reyndi með valdjteínu sinni að knýja Sovétríkin til undanhalds aust- ur á bóginn. en þegar Rússar sýndu ekki á sér neitt farar- snið vissi hann ekki hvað ti! bragðs skyldi taka og gafst upp. Sameinings Þýzkalands með friðsamlegum hætti getur ekki átt sér stað að dómi de Gaulle nema ríki Austur- Evr- Á hið ófædda barn rétt til lífs strax þegar 'lErjóvgun hef- ur átt sér stað? Þessi spurn- ing var umræðugrundvöllur á ráðstefnu um mannréttindi í vanþróuðum löndum, sem Sameinuðu þjóðimar kvöddu saman fyrr á þessu ári I höf- uðborg Afganistans, Kabúl. Skýrslan frá þessari ráðstefnu hefur nýlega verið birt og kemur þar fram hvernig for- mælendur hinna vanþróuðu landa líta á þetta tímabæra vandamál. Með tilliti til þeirrar offjölg- unar fólks og þeirrar fátæktar, sem er megineinkenni margra landa í Asíu, voru margir ræðumenn þeirra skoðunar, að ekki væri úr vegi að leitast við, a.m.k. um stundarsakir, að takmarka barnsfæðingar með tiltækum ráðum. Á það var bent, að slík stefna stríddi ekki gegn hinum ýmsu trúar-ý- brögðum í Asíu, og að ákveðin riki og óháð samtök einstak- linga berðust fyrir henni þar. Að því er varðar spurning- una um, hvort takmarka bæri barnsfæðingar eftir að frjóvg- un hefði átt sér stað, voru menn ekki á einu máli. Ýmsir ræðumenn voru þeirr- ar skoðunar, að virða bæri rét’; barnsins til lífs frá því andartaki þegar frjóvgun ætti sér stað. Mörg trúarbrögð að- hyllast ótvírætt þessa megin- reglu, sem á rætur sínar í rétti hvers einstaklings til að lifa, sögðu þeir og vitnuðu jafnframt til mannréttindayfir- lýsingarinnar. Aðrir ræðumenn slógu var- nagla og vildu hafa fyrirvara. Var rætt fram og aftur um þá fullyrðingu, að lífið hæfist á stund frjóvgunarinnar, og bentu margir á vísindaleg rök fyrir því, að í eiginlegum skilningi væri ekki hægt að tala um „líf“ einstaklingsins fyrstu þrjá mánuði meðgöngu- tímans. Menn studdu að vísu hið al- menna bann við fóstureyðing- um, sem finna má í löggjöf flestra landa, en viðurkenndu jafnframt, að á öllum skeið- um meðgöngutímans gætu komið upp kringumstæðurj sem réttlættu fóstureyðingUj einkum þegar læknar gætu fært rök að því, að líf móð- urinnar væri í hættu eða heilsu hennar alvarlega ógn- að, ef fæðing ætti sér stað. Líta bæri á rétt móðurinnar sem jafnmikilvægan rétti hins ófædda bams, ef ekki mikil- vægari. Að áliti þessara ræðumannaj ætti fóstureyðing líka að vera leyfileg til að girða fyrir að vanþrcska eða vansköpuð börn Framhald á 9. síðu. 1964 var eitt hlýjasta ór um 30 ára hil Samkvæmt upplýsingum sem Þjóðviljinn fékk hjá Veðurstof- unni í gær var meðalárshiti í Reykjavík á síðastliðnu ári 5,7 stig, eða 9,7 stigum hærri en meðalhiti áranna 1931 — 1960. Aðeins 5 ár hafa verið jafnhlý eða hlýrri það sem af er þessari öld. Hlýjast var árið 1941 en þá var meðalárshitinn 6,4 stig. Úr- koman í Reykjavík var á ár- inu 786 mm eða í tæpu meðal- lagi. Langmest var úrkoman í janúar. Sólskinsstundir i Reykjavík mældust 1305 á árinu og er það heldur meira en í meðal- lagi. Sólríkasti mánuðurinn var ágúst. * i i J

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.