Þjóðviljinn - 09.01.1965, Page 12
Utvegsbankamálið fer aftur til saksóknara:
STJÓRN STARFSMANNAFÉLAGS-
INS TÓK EKKI ÁMINNINGUNNI!
Laugardagur 9. janúar 1965 — 30. árgangur — 6. tölublað.
Frá aðalfundi ÆFR
er Sigríður Sigurðardóttir með silfurbikarinn og nokkrir íþróttamenn er hlutu
Fremst á
■ í gær var mál stjórnar^
Starfsmannafélags Útvegs-
bankans tekið fyrir í saka-
dómi Reykjavíkur og var
öll stjómin þar mætt. Lýstu
stjórnarmenn því allir yfir
að þeir myndu ekki taka á-
minningu fyrir brot gegn
lögum nr. 35/1915, sem þeir
voru ákærðir fyrir, þar sem
þeir viðurkenndu ekki að
hafa gerzt brotlegir við þau
lög. Verður málið því sent
saksóknara ríkisins á nýjan
leik til fyrirsagnar.
í gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
Halldóri Þorbjörnssyni saka-
dómara um afgreiðslu málsins
fyrir sakadómi í gær.
„Hinn 12. nóvember f.á. sendi
saksóknari ríkisins sakadómi
Reykjavíkur beiðni um að rann-
sókn færi fram út af því atviki,
að starfsmenn Útvegsbanka ís-
lands komu eigi til vinnu mánu-
daginn 2. nóvember 1964.
Rannsókn þessi fór síðan
fram og var endurrit af henni
afgreitt til saksóknara 20. nóv-
ember.
Með bréfi dags. 7. þ.m. hefur
saksóknari sent sakadómi málið
á ný, og segir í bréfinu: ....
„samþykkt er að máli þessu
verði lokið með áminningu á
hendur stjórn Starfsmannafélags
Útvegsbankans, þeim Adolfi
Björnssyni, bankafulltrúa, Aust-
urbrún 2, Gunnlaugi Björns-
syni, bankafulltrúa, Bogahlíð 26,
Sigurði Guttormssyni, banka-
fulltrúa, Kaplaskjólsvegi 49,
Þorsteini Kjartani Friðrikssyni,
deildarstjóra, Álfheimum 62, og
Þóru Ásmundsdóttur, bankafull-
trúa, Laufásvegi 75, öllum í
Reykjavík, fyrir brot gegn 1. gr.
nefndra laga nr. 33, 1915, enda
láti allir stjórnarmenn við þau
málalok sitja.“
Málið var tekið fyrir í saka-
dómi hinn 8. janúar. Komu hin
ákærðu þá fyrir dóm. Lýstu þau
öll yfir því, að þau myndu ekki
taka áminningu fyrir brot gegn
lögum nr. 33, 1915, þar sem þau
viðurkenni eigi að þau hafi
gerzt brotleg við þau lög.
Framhald á 9. síðu
Maðuriisn esm
ekki fundinn
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Vestmannaeyjum
hefur Ieitin að sjómanninum, sem
verið hefur týndur síðan á
þriðjudagskvöld, enn engan á-
rangur borið.
Var í gær gerð viðtæk leit að
manninum í bænum og nágrenni
hans, en eins og fyrr greinir bar
hún engan árangur. í dag mun
hans verða leitað í höfninni.
Hér er um að ræða Stefán
Pálsson sjómann til heimilis að
Háteigsvegi 13 í Vestmannaeyj-
um. Er hann kvæntur og á 7
börn.
Þorsteinn Marelsson
prentarí var
kjörínn íormaður
Aðalfundur Æskulýðsfylking-
arinnar í Reykjavík var haldinn
í fyrrakvöld og var hann all-
fjölsóttur.
Ólafur Einarsson, fráfarandi
form., setti fundinn og flutti
skýrslu fráfarandi stjórnar.
Guðvarður Kjartansson las síð-
an reikningana.
Þá var tekið til við stjórnar-
kjör og hlutu þessir kosningu.
Formaður; Þorsteinn Marels-
son, prentari, varaformaður
Guðvarður Kjartansson, skrif-
stofumaður, ritari Rannveig
Haraldsdóttir, prófarkalesari,
gjaldkeri Bjarni _ Zópóníasson,
spjaldskrárritari Ólafur Orms-
son verkamaður og meðstjórn-
endur eru þeir Arnmundur
Bachmann, stud. ju., Gunnar
Óskarsson, Guðmundur Magnús-
son og Sævar Númason.
Endurskoðendur voru kjömir
þeir Gísli B. Björnsson og Einar
Ásgeirsson og varaendurskoð-
andi Gísli Gunnarsson.
Að stjórnarkosningunni lok-
inni var Suður-Afríkumálið rætt
og urðu um það fjörugar um-
ræður svo að ekki gafst tími til
að afgreiða endanlega stofnun
fulltrúaráðs ÆFR.
Nánar verður sagt frá fund-
inum í Æskulýðssíðunni' á
fimmtudaginn kemur.
stig við kjörið. Talið frá vinstri: Eyleifur Hafstein sson, Kjartan Guðjónsson, Guðmundur Gíslason,
Jón Þ. Ólafsson, Hrafnhildur Guðmundsdótti r og Ragnar Jónsson. (Ljósm. Þjóðv. G.M.)
arsans
Mikil pressugleði var í Nausti
í gærdag og blússuðu þar marg-
ar myndavélar og íþróttafrétta-
ritarar blaðanna voru með skrif-
færin á lofti, en þarna var lýst
kjöri íþróttamanns ársins á veg-
um félags íþróttafréttaritara.
Að þessu sinni var kjörin ung
handboltastúlka að nafni Sig-
ríður Sigurðardóttir í Val og
var henni afhentur skínandi
fagur silfurbikar við þetta tæki-
færi að viðstöddum heiðursfor-
seta ÍSÍ Benedikt G. Waage og
forseta ÍSÍ Gísla Halldórssyni.
Þá útdeildi Atli Steinarsson,
formaður félagsins aukaverð-
launum til níu annarra íþrótta-
manna fyrir athyglisverðan á-
rangur á síðastliðnu ári.
Annars urðu úrslitin í þessu
kjöri sem hér segir:
Sigríður Sigurðardóttir, hand-
knattleikur, 66 _ stig, Þorsteinn
Hallgrímsson, ÍR, körfuknatt-
leikúr, 47 stig, Valbjörn Þor-
láksson, KR, frjálsar íþróttir,
40 stig, Guðmundur Gíslason,
ÍR, sund, 35 stig. Ragnar Jóns-
son, FH, handknattleikur, 22
stig, Kjartan Guðjónsson, ÍR,
frjálsar íþróttir, 17 stig, Hrafn-
hildur Guðmundsdótir, ÍR, sund,
15 stig, Þórólfur Beck, Glasgow
Rangers, knattspyrna, 15 stig,
Gunnlaugur Hjálmarsson, Fram,
handknattleikur, 14 stig, Eyleif-
ur Hafsteinsson, ÍA, knatt-
spyrna, 14 stig.
Þá hlutu eftirtaldir átta í-
þróttamenn stig. Magnús Guð-
mundsson, ÍBA, Sigríður Sigurð-
ardóttir ÍR, Ólafur Guðmunds-
son, KR, Jón Þ. Ólafsson, ÍR,
Hörður Kristinsson, Ármanni,
Óskar Guðmundsson, KR, Hall-
grímur Jónsson, ÍBV, og Ingólf-
ur_ Óskarsson, Fram.
íþróttamaður ársins var sem
sagt kjörin Sigríður Sigurðar-
dóttir úr Val fyrir hæfni í
handknattleik.
Sigríður er ein £if þessum
reykvísku húsmæðrum er vinn-
ur úti og stundar barnagæzlu í
Barónsborg og er gift Guðjóni
Jónssyni, sem er íslandsmeistari
í handknattleik. Það er Sigríður
líka.
Þau eiga þriggja ára dóttur.
Sigríður æfir tvö kvöld í viku
og segist hafa fómað sauma-
klúbbum fyrir íþróttir.
tafir við sorp-
hreinsunina vegna snjóa
Þjóðviljinn sneri sér í gær til
sorphreinsunar Reykjavíkur og
Ieitaði upplýsinga um það hvern-
ig gengi með sorphreinsunina í
borginni en undanfarna daga
hafa verið mikil vandræði með
sorphreinsunina vegna snjókom-
unnar um daginn.
Guðjón Þorsteinsson starfs-
maður hjá borgarverkfræðingi
sem hefur yfirumsjón þessara
mála á hendi skýrði svo frá að
í dag myndi verða lokið yfirferð
um borgina og ætti þá mestu
vandræðunum að verða lokið.
Hann sagði að mjög víða hefði
ástandið verið orðið slæmt en
þó einna verst í stórum íbúða-
blokkum.
Við sorphreinsunina starfa nú
93 menn með 19 bíla og milli
jóla og nýárs unnu einnig að
henni 12—15 skólapiltar og unnu
þeir í tveim flokkum á nóttunni.
Eru þeir nú hættir þar sem
skólamir eru byrjaðir aftur.
Vegna snjókomunnar um dag-
inn urðu mjög miklar tafir á
sorphreinsuninni bæði vegna ó-
færðar á götunum og eins sök-
um þess að víða var seinlegt og
erfitt að komast að sorptunnun-
um við húsin vegna skafla. Það
bætti svo ekki úr skák að um
jól og nýjár fellst alltaf til
miklu meira sorp en venjulega
og gat snjókoman því ekki kom-
ið á öllu óheppilegri tíma.
Bóndi í Álftafirði
hlaut bíl og bát
Ungur bóndi í Álftafirði á
Austurlandi, Snorri Guðlaugs-
son, hlaut vinninginn í haþp-
drætti Krabbameinsfélagsins,
bifreið og bát. Þau tvö happ-
drætti, sem Krabbameinsfélagið
hélt á sl. ári, gengu mjög vel
og er félagið þakklátt öllum
landsmönnum fyrir veittan
stuðning.
(Frá Krabbameinsfélaginu)'.
24 útköll og 8 slys
á 8 dögum
Á þeim átta dögum, sem liðn-
ir eru ‘ af nýja árinu hefur
slökkviliðið í Reykjavík verið
kallað 24 sinnum út, eða þrisv-
ar sinnum að meðaltali á dag.
En á sama tíma hafa orðið 8
slys á mönnum.
Hildur iosnaði úr strandinu
■ Vélskipið Hildur RE
380 strandaði í fyrradag um
kl. 3 miðdegis fvrir utan
Krossanes en innan við
Nunnuhólma á Eyjafirði um
300 m. frá landi. Skipið var
á leið til Akureyrar með
sement. Svartaþoka var yf-
ir en gott veður að öðru
leyti.
Er skipið strandaði var það
komið talsvert vestur fyrir
venjulega siglingaleið og sáu
skipverjar allt í einu svarta
þúst fram undan skipinu og var
það Nunnuhólmi. Sveigðu þeir
þá af leið til að forðast strand
en skipið lenti þá á skeri og
sat þar fast.
Ekkert fréttist til Hildar fyrr
en kl. 9 í fyrrakvöld, er bónd-
inn á Brávöllum i Glæsibæjar-
hreppi Pétur Guðjónsson sá
ljósaffang nndan landi. Fór hann
á flatbytnu út í skipið.
Ekki var hafizt hsnda við
björgunaraðgerðir þar serp ætl-
uinin var að ná skipinu ’út á
ftóðinu sL nótt.
En ekki þurfti að bíða svo
lengi, því Hildur losnaði
skömmu fyrir hádegi í gær. Var
Hún ósködduð með öllu svo og
sá vamingur, sem hún hafði
innahborðs.
Hildur er 366 smálestir, eikar-
skip, smíðuð 1945. Hún er eign
Kristjáns Eiríkssonar, útgerðar-
manns I Reykjavík. Hún hét áð-
ur Baldur og þar áður Pólstjarn-
an.
Ávarp til þjóðarinnar
í,Að Bjarkarstíg 6 á Akur-
eyri stendur hús Davíðs Stef-
ánssonar frá Fagraskógi. Hús
þetta lét Davíð sjálfur reisa
og bjó þar meir en tvo ára-
tugi. Húsið með öllu sem i
því er minnir á Davíð einan.
Hver hlutur. geymir brot af
hugsun hans og smekk. Hér
kvað hann ýmis fegurstu ljóð
sín og segja má, að sjálf þögn
hússins sé eitt af ljóðum
skáldsins.
Þegar við andlát Davíðs var
um það rætt, að heimili þjóð-
skáldsins yrði að varðveita
eins og hann skildi við Það
hinzta sinni.
Tækifærið var einstakt tii
þess að geyma minningu and-
legs höfðingja og mikils Is-
Iendings. Allir virtust sam-
mála. Aðeins þyrfti einhverja
til að hefjast handa.
Nú hefur
riðið á vaðið með því að
kaupa hið dýrmæta bókasafn
skáldsins. Erfingjar hafa gef-
ið húsmuni Davíðs og list-
muni. Eftir er húsið eitt, og
virðist einsætt, að hér komi
til hlutur þjóðarinnar allrar.
Davíð var meira en Akureyr-
ingur eða Eyfirðingur. Hann
var Islendingur, þjóðskáldið,
sem langa ævi naut meiri ást-
sældar en flest, ef ekki öli
íslenzk skáld fyrr og síðar.
List hans öll stóð djúpum
rótum í íslenzkri þjóðmenn-
ingu og þjóðarsál.
Hér er það einmitt þjóð-
arinnar allrar að sýna þakk-
læti í verki og ræktarsemi. Á
því vaxa allir.
Áhugamenn á Akureyri, á-
samt stúdentafélaginu á Ak-
ureyri hafa tekið höndum
saman um að efna til sam-
skota með þinðinni til kaupa
á húsi Daviðs.
Vér treystum því, að þeim
mörgu Islendingum viðsvegar
um land, sem sótt hafa yndi
f ljós Davíðs Stefánssonar á
Akureyrarbær , liðnum árum, sé bað l.iúft að
gjalda svo skuld sína við
skáldið. að þeir leggi eitthvað
af mörkum til þess að heimili
Daviðs frá Fagraskógi megi
varðveitast sem eitt af véum
íslenzkrar menningar.
. Dagblöðin í Reykjavík sem
og önnur blöð í bæjum lands-
ins eru beðin að birta ávarp
þetta og jafnframt pr þess
væntzt, að þau taki á móti
framlögum. Einnig er mælzt
til þess við unnendur Dav-
íðs út um land f sveit og við
sæ, að þeir hafi forgöngu um
fjársöfnun og geta þeir snú-
ið sér til einhvers úr fram-
kvæmdanefnd og fengið serida
söfnunarlista. Verða nöfn _
einstakra gefenda færð inn i j
sérstaka bók, sem verður !
geymd í húsi Davíðs. Gjald-
keri söfnunarinnar er Harald-
ur Sigurðsson. Útvegsbankan-
um. Akureyri. Pósthólf 112.
f framkvæmdanefnd.
Guðmundur Karl Pétursson.
Þórarinn Bjömsson,
Brynjólfur Sveinsson.
Sigurður O. Bjömsson,
Sverrir Pálss^^.
Freyja Eiriksdóttir,
Ragnheiður Árnadóttir.
Aðalgeir Pálsson.
Haraldur Sigurðsson.”