Þjóðviljinn - 26.01.1965, Blaðsíða 2
2 SIÐA
ÞJ6ÐVILJIM
Þriðjudagur 26. janúar 1965
Upplýsingar norska sjávar-
útvegsmálaráðherrans
Um sl. áramót átti Magnús
Andersen sjávarútvegsmálaráð-
herra Noregs viðtal við NTB
og gaf ýmsar upplýsingar við-
víkjandi sjávarútvegi Norð-
manna á sl. ári.
Ráðherrann sagði að fiskafli
Norðmanna á árinu 1964 hefði
numið 1,4 milj. tonna, að verð-
mæti upp úr sjó 780 milj. n.
kr. Til samanburðar sagði
hann, að á árinu 1963 hefði
fiskaflinn verið reiknaður á
sama hátt 1,18 miljón tonn, og
verðmætið þá upp úr sjó ca.
700 miljón n. kr.
Þorskaflinn sl. ár var 170
þús. tonn, og því 3,300 tonn-
um minni en árið áður. Hins-
vegar óx síldaraflinn miðað
við árið á undan, um 212 þús.
tonn.
Eftir þeim tölum sem fyrir
lágu taldi ráðherrann, að út-
flutningsverðmæti fiskafurða
mundi aukast um ca. 100 mili.
n. kr. samanborið við 1963.
og þá verða ca. 1100 miljónir
norskra króna.
Ráðherrann sagði að selveiði
Norðmanna í Nýfundnalands-
ísnum hefði verið góð á ár-
inu, en frekar léleg í Vest-
urísnum. 1 allt veiddu Norð-
menn 253 þús. seli, að verð-
mæti 37,6 miljónir n. kr. mið-
að við aflann óunninn. Þetta
er talin þeirra verðmesta sel-
veiði síðan heimsstyrjöld lauk.
Þá kom ráðherrann inn á
það að þorskaflinn við Norð-
ur-Noreg hefði verið í rýrara
lagi á árinu, en hinsvegar hefði
ufsaveiðin við Norður-Noreg
orðið ein sú allra mesta og
á tímabili valdið nokkrum
erfiðleikum hjá vinnslustöðv-
unum, enda hefði ársaflinn
hækkað úr 107 þús. tonnum
1963 í 143 þús. tonn 1964.
Ráðherrann taldi að Norð-
mönnum hefði yfirleitt gengið
vel á fiskmörkuðum heimsins,
að undanteknum saltfiskmark-
aðnum i Brasilíu sem hefði að
--------—------------------------<$>
ýmsu leyti brugðizt. Síldar-
mjöls- og síldarlýsismarkaðinn
taldi hann vera tryggan nú.
Magnus Andersen sjávarút-
vegsmálaráðherra lýsti áhyggj-
um sínum í viðtalinu útaf
minnkandi fiskigengd í Norð-
ur-Atlanzhafi. Taldi hann hik-
laust að um ofveiði væri að
ræða og þyrfti að |era rót-
tækar ráðstafanir gegn vax-
andi fiskleysi í norðurhöfum.
Hann sagði að Norðmenn hefðu
reynt að ljá þessu máli lið
á vettvangi alþjóðastofnana, en
meira yrði að gera. Hans taldi
að aukning möskvavíddar
hamlaði að vísu gegn ofveiði,
en taldi hinsvegar slíkar sam-
þykktir, þó góðar væru, ekki.
fullnægjandi eins og á stæði.
Hann talaði um nauðsyn víð-
tækrar samvinnu þjóða á milli
til að stöðva ofveiðina, og tal-
aði um í því sambandi að
koma þyrfti á ströngu eftirliti
á úthafinu, þar sem hver þjóð
hefði rétt til að rannsaka í
annarra þjóða skipum hvort
sambykktum væri hlýtt.
Þá kom ráöherrann inn á
nauðsyn þess að auka fiski-
rannsóknir stórlega tii að
skapa meiri og víðtækari
bekkingu en nú væri fyrir
fyrir hendi á þessu sviði. •
Ráðherrann taldi líka mikla
nauðsyn á því að vinna sjáv-
araflann í miklu stærri stíl
til manneldis heldur en gert
hefur verið til þessa, og auka
þannig stórlega verðmæti þess
fisks sem veiddur er. Taldi
hann þarna mikla möguleika
fyrir hendi og mikið verk ó-
unnið. Þá boðaði hann aukna
leiðbeiningarstarfsemi viðvíkj-
andi, allri ..meðferð. á fiski.
Þetta eru aðeins sýnishom
af viðhorfum ráðherrans, eins
og þau komu fram i þessu
merka viðtali við NTB. Annars
virðast flestir sem um þessi
mál rita, hafa miklar áhyggj-
ur, sérstaklega vegna ört
þverrandi þorskafla í Norður-
Atlanzhafi.
Stórsíldarverð í Noregi
í vetnr
Kanadastjórn á nú
í erfiileikum
OTTAWA 23/1 — Minnihluta-
stjóm Frjálslynda flokksins í
Kanada á nú við erfiðleika að
stríða eftir að einn ráðherrann
hefur verið rekinn úr stöðu
sinni. Lester Pearson, forsætis-
ráðherra, sem hafði ætlað að
dveljast í Toronto yfir helgina,
kom í gærkvöld til Ottawa eftir
að hafa fvrr um daginn mælzt
til þess við Yvon Dupuis. þekkt-
an franskættaðan stjórnmála-
mann og ráðherra án ráðuneyt-
is, að hann hyrfi úr ríkisstjóm-
inni
Dupuis skýrði fréttamönnum
b?nn teldi. rétt að
hann hyrfi . úr stjóminni meðan
lögreglan rannsakaði það sem
ráðherran-n kallaði hneykslis-
mál og fjallar um það, hvort at-
kvæðagreiðsla skuli fara fram
um það í kiördæmi ráðherrans
hvort reisa skuli veðhlaupabraut.
Stjórnarandstaðan á þingi
hefur krafizt þess, að ríkis-
stjórnin gefi skýrslu um brott-
rekstur ráðherrans. Frá þvi í
nóvember hafa þrír ráðherrar
frá Quebec verið sakaðir um
bað að vera ekki hæfir um að
gegna stöðu sinni.
Stuttu eftir nýárið var aug-
And-
styggileg sjálfhelda
Þegar hernámsliðinu var
heimilað að stækka sjón-
varpsstöð sína á Keflavíkur-
flugvelli var flutt tillaga um
það á alþingi að stækkunar-
levfið yrði afturkallað, því
ekki hafði verið haft fyrir
því í upphafi að bera málið
undir þing fremur en aðrar
hernámsframkvæmdir Um-
ræðum um tillöguna var út-
▼arpað. og aliir málsvarar
stjórnarflokkanna voru sam-
mála um það að stækkunin
væri einber hégómi. með
henni væri aðeins verið að
bæta örlítið sjónvarnsskil-
yrði dátanná á vellinum, en
hitt væri hreinasta fjarstæða
að sjónvarpið drægi til
Reykjavíkur. enda væri her-
námsiiðinu sízt í hus að
reyna að smeygja sér inn í
friðhelgi íslenzkra heimila.
Meðal ræðumanna var Bene-
dikt Gröndal, formaður út-
varpsráðs, og hann lagði af
sérþekkingu sinni þunga á-
herzlu á það hvað stöðin á
Miðnesheiði væri kraftlítil og
ómerkileg Talið væri að
sjónvarpsstöð í Reykjavík
vrði að vera 5.000 vatta,
sagði Benedikt, og hélt á-
fram; „takið eftir, 5.000 vatta.
. Hér er verið að rífast um
50 vatta stöð á Keflavíkur-
flugvelli Eitt hundrað sinn-
um sterkari verður fyrsta
s'töðin okkar að vera Á þessu
s.iá menn stærðarhlutföllin
og hversu litlar þser stöðvar
eru og eftir því lélegar sem
við erum að deila um“
Ekki er að efa að bessi sér-
fræðilegu ummæli Benedikt.s
Gröndals hafi haft áhrif
Þarna talaði sá sem gerst
hlaut að vita, siálfur for-
maður útvarpsráðs, sá ís-
lendingur sem mest hafði
beitt sér fyrir innlendu sjón-
varpi og hlaut að hafa kann-
að allar aðstæður gaumgæfi-
lega. Var ekki meira mark
takandi á honum en ðbreytt-
um þingmönnum sem ekki
höfðu gert siónvarn að Iífs-
hlómi sínu? Við skulum kalla
Benedikt Gröndal siálfan til
vitnis: hann sagðf í blaði sínu
fyrir nokkrum dögum:
„Það er eðlilegt að hugs-
andi mönnum ógni það á-
stand að hið bandaríska sión-
varp skuli vera komið á
5-6000 heimili. og megi því
gera réð fvrir að 25—30 þús.
manns horfi meira eða minna .
á bað Þetta mál er ein and-
stvsgileg sjálfhelda".
Þetta ðgnarlega ástand og
þessi andstyggilega siálfhelda
stafar af því einu að tekið
var mark á Benedikt Grön-
dal fyrir þremur árum Og
vmsir sem daglega hafa fvr-
ir augum menningargálga þá
sem gnæfa á 5.0CiO húsum í
Revkjavík og nágrennj munu
velta því fvrir sér hvort
Benedikt Gröndal hafi sagt
vísvitandi ósatt á Albingi fs-
lendinga 28da febrviar 1962.
eða hvort hinn siálfskipaði
sérfræðingur hafj ekkert vit-
að um það viðfangsefni sem
hann þðttist vera að fræða
aðra um. — Austri.
lýst stórsíldarverðið á kom-
andi vetrarsíldarvertíð eins og
frá því er gengið með samn-
ingum. Bræðsluverðið hækkar
nokkuð frá því í fyrra, og er
þessi hækkun sögð tilkomin
vegna gróða síldarverksmiðj-
anna á lýsi og mjöli sl. ár.
Á hinu venjulega vetrar- og
vorsíldarsvasði allt til Norður-
Noregs, er samið um fast
bræðslusíldarverð yfir allan
tímann. Hinsvegar er bræðslu-
síldarverð í Norður-Noregi
bundið ákveðnu fituinnihaldi
síldarinnar. Fasta stórsíldar-
verðið er n. kr. 21,30 fyrir 100
lítra af síld. í íslenzkum krón-
um 196,20 fyrir málið. Verð-
ið á vorsíldinni n. kr. 19,50;
ísl. kr. 175,50 fyrir málið.
í Norður-Noregi er .stórsíld-
arverðið n. kr. 19,25 miðað við
10°/r fituinnihald, og verðið á
vorsíld n. kr. 15,35 miðað við
7% fitu. Þetta verður í isl.
kr. 173,25 og 138,15 fyrir mál-
ið. Fari fituinnihald síldarinnar
yfir þessar ákveðnu prósenttöl-
ur, þá hækkar verðið um n.
kr. 1,07 fyrir hverja fituein-
ingu, miðað við 100 lítra mál.
Og á sama hátt lækkar verð-
ið um sömu upphæð fyrir
hverja fitueiningu fari fitu-
innihald síldarinnar lengra nið-
ur en umtalað er, einnig mið-
að við 100 lítra mál.
Stórsíldar- og vor-
síldarverð til mann-
eldis
Fyrir síld til ísunar og út-
flutnings, frystingar, sérverk-
unar í salt og niðursuðu, greið-
ist eftirfarandi verð: Fyrir
stórsíld n. kr. 31,00 og fyrir
vorsíld n. kr. 29,00 fyrir upp-
mælda 100 lítra. Þetta verður
í ísl. kr. 186,00 og kr. 174,00
fyrir hverja 100 lítra.
Ef ríkið greiðir uppbætur á
stórsíldar- eða vorsíldarverðið
þá kemur það til viðbótar
þessu verði hér að framan,
sem er án uppbóta.
'Verðið á síldinni til mann-
eldis í vetur er, lægra heldur
en það var í fyrra, og er
það rökstutt með því, að mein-
ingin sé að verka miklu meira
þannig af síld í ár heldur en
gert var í fýrtá, 'Ög"til þéss
að það sé mögulegt þurfi verð-
ið að lækka. 1 fyrra var lág-
marksverð á stórsíld og vor-
síld til manneldis, en nú er
samið um fast verð.
Lágmarksverðið , fyrra var
hannig fyrir stórsíld n. kr.
33,00 og n. kr. 32.00 fyrir vor-
síld; í ísl. kr. 198,00 og 192,00
fyrir hverja 100 lítra. Stórsíld-
in Iækkar þannig um ísl. kr.
12,00 hundrað lítrarnir. Og
vorsíldin lækkar um fsl. kr.
18.00 hundrað lítrarnir. Eins
og að framan segir er þessi
verðlækkun á stórsíld og vór-
síld til manneldis gjörð til að
auka og auðvelda markaðsöfl-
un fyrir þessa mögru síld.
Lifandi fisknr fluttur
landleið til Svílbióðar
I vetur fluttu Norðmenn lif-
andi fisk frá Þrándheimi ti'I
Svíþjóðar. Hér var um að
ræða 2 tonn sem flutt voru í
bar til gerðum tankbíl. Þessir
flutningar tókust með ágæt-
um og kom fiskurinn s.nrell-
lifandi á markað í Svíþjóð,
þar sem hann seldist fyrír
geypihátt verð. Búizt er við
að framhald verði á slíkum
fiskflutningum með tankbílum
í Noregi fyrst svo vel tókst
til í þessari reynsluferð.
Á undangengnum árum hafa
margar tilraunir verið gerðar
með flutning á lifandi fiski
með tankbflum og hafa þær
gengið misjafnlega. Þannig
hefur því verið slegið föstu,
að með áður jDekktum aðferð-
um, gæti fiskur lifað lengst í
14 klukkustundir á slíku land-
ferðalagi. En með þeirri að-
ferð sem Norðmenn notuðu
við fiskflutninginn í vefcur er
talið að lengja megi líf fisks-
ins upp í 20 klukkustundir i
slíkum flutningum með tank-
bílum. Hér getur því orðið um
talsvert verðmæta uppfinningu
að ræða.
TRÉSMIÐAFÉLAG
REYKJAVÍKUR
heUur félagsfund
í Breiðfirðingabúð í kvöld kl. 20.30.
Fundarefni: Nýir samningar.
Stjómin.
Meisturaféfag húsasmiða
heldur félagsfund í Baðstofu iðnaðarmanna þriðju-
daginn 26- þ.m. kl. 8.30.
DAGSKRÁ: 1. Kaup_ og kjarasamningar.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Senéisveinn ósí fyrir hádegi. — Gott kaup. 1 :
m&rs Tradmg Compan Klapparstíg 20. y h.f.
Tilboð óskast
í mótorbátinn Jón Helgason, ÁR 150, í því ástandi
sem hann nú er í á strandstað á Eyrarbakka.
Tilboð sendist Samábyrgð íslands, Reykjavík, eða
Vélbátaábyrgðarfélaginu Heklu, Stokkseyri, fyrir
28. janúar næstkomandi.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum.
Laust starf
Gjaldheimtan í Reykjavik óskar að ráða skrif-
stofumann með* verzlunarskólaprófi eða hliðstæðri
menntun.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna Reykja-
víkurborgar. Ums'óknir, er greini aldur og fyrri
störf, sendist undirrituðum fyrir 6. febrúar n.k.
Gjaldheimtustjórinn.
Ritari óskast
Staða ritara við Flókadeild Kleppsspítalans er laus
til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningum
opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýs-
ingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist
til Skrifstofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, fyr-
ir 6. febrúar 1965.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
i
Handavinnukennari éskast
Handavinnukennari óskast að Flókadeild Klepps-
spítalans. Laun samkvæmt reglum um láun opin-
berra starfsmanna. Umsóknir með upplýsingum
um aldur. menntun og fyrri störf sendist Skrif-
stofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29 fyrir 6. febrú-
ar 1965.
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.