Þjóðviljinn - 13.02.1965, Síða 1
★ Félag róttækra stúdenta
gengst fyrir fundi annað
kvðld í gylta salnum á Hótel
Borg og hefst hann kl. 20.45.
Umræðucfni fundarins er
„STAÐA SÖSlAUISMANS A
NORÐURLÖNDUM.”
DIOflVIUINN
Laugardagur 13. febrúar 1965 — 30. árgangur — 36. tölublað.
230 manns komu hingað í qœr meS þrem flugvélum
13. fundur Norðurlunduráðs
verður settur í Rvík í dug
Stuðu sósíulismuns á Norðurlöndum
★ Ræðumenn eru: Aksel
Larsen formaður sósíalistíska
þjóðarflokksins í Danmörku
og Einar Olgeirsson, formað-
ur Sameiningarflokks alþýðu
— Sósíalístaflokksins.
★ Ekki er gert ráð fyrir
frjálsum umræðum að ræðun-
um loknum en fundarmönn-
um gefst tækifæri til að bera
fram fyrirspumir.
★ öllum heimill aðgangur.
Trygve Lie við komuna á flugvöllinn í gær og Cappelen sendi-
herra Norðmanna til hægri.
EFTA-málin eru mikilvægust
13. þing Norðurlandaráðs hefst í hátíðasal Há-
skóla íslands í dag. Hinir erlendu gestir komu
hingað í gær en alls munu það vera rösklega 250
fulltrúar, sem sitja fundinn.
Aksel Larsen, formaður danska SF-flokksins, Einar Olgeirsson og
Lúðvík Jósepsson.
Fréttamenn áttu stutt viðtal
við Trygve Lie norska efnahags-
málaráðherrann, fyrrv. aðalritara
SÞ. við komu hans á flugvöllinn
í gær._____________
Allsherjsrat-
kvæðagreiðsla
BSRB er í dag
Stjórn Bandalags starfsmanna
ríkis og bæjá minnir ríkisstarfs-
menn á allsherjaratkvæða-
greiðslu um uppsögn kjarasamn-
inga í dag kl. 2—10.
Kjörstaður fyrir Reykjavfk,
Kópavog og Seltjarnarnes er f
gagnfræðaskólanum við Vonar-
stræti, (gamla Iðnskólanum).
Sjá nánar auglýsingu frá yf-
irkjörstjóm BSRB í dagblöðun-
um í dag.
Ráðherrann sagðist telja
vandamál EFTA, friverzlunar-
bandalags Evrópu mikilvægustu
málin, sem fyrir þennan fund
Norðurlandaráðs kæmu. Þrjú
Norðurlandanna eiga aðild að
EFTA þ. e. Svíþjóð, Noregur og
Finnland.
Lie sagðist vongóður um að
Sameinuðu þjóðunum tækist að
yfirstíga fjárhagsörðugleika þá.
sem samtökin eiga í. Ekki vildi
hann neitt segja, um það, hvaða
leiðir væri bezt að fara í þeim
bfnum, en leið yrði að finna
hið allra bráðasta.
Aðspurður sagðist hann hafa
verið fylgjandi upptöku Kína í
Sameinuðu þjóðanna frá 1955 og
væru Norðurlöndin öll þeirrar
skoðunar, en ekki sagðist hann
vita um afstöðu íslands til þess
máls.
Ráðherrann sagðist einu sinni
áður hafa komið til Islands og
var það fyrir síðari heimsstyyrj-
öldina.
Mikið kalsaveður var í Rvík
þegar frændur okkar frá
Norðurlöndunum komu hingað
síðdegis í gær. Fyrsti hópurinn
kom um kl. hálf fjögur. Voru
það Norðmenn og Finnar, alls
83. Klukkan um 5 komu svo
Danir og Svíar.
Það voru flugvélar fráíslenzku
flugfélögunum, sem fluttu hina
erlendu gesti. Óhapp kom fyrir
flugvél dönsku fulltrúanna
skömmu eftir að hún var komin
á löft svo að snúa varð við og
taka aðra flugvél.
Alls voru það um 230 manns,
sem komu hingað í gær og verða
fundarmenn rösklega hálft þriðja
hundrað. I gær kl. 18 hófst for-
setaráðstefna en þingið verður
sett í hátíðasal Háskólans í dag
kl. 11. Síðan verður fundinum
framhaldið eftir hádegi í dag.
Meðal þeirra, sem sitja þetta
13. þing Norðurlandaráðsins eru
29 ráðherrar og 69 þingmenn. 1
hópi ráðherranna eru t.d.
Trygve Lie frá Noregi, en for-
sætisráðherrann Einar Gerhard-
sem kemur ekki hingað eins og
til stóð, Per Hækkerup, utan-
ríkisráðherra Dana, en forsætis-
ráðherrann Jens Otto Krag kem-
ur á þriðjudaginn, dómsmálaráð-
herra Finnlands J. O. Söder-
hjelm og fleiri. Þá sitja þingið
allir íslenzku ráðherramir og
fimm þingkjömir fulltrúar.
Þá má nefna bókmenntaverð-
launahafan Olof Lagercrantz,
Aksel Larsen formann SF-flokks-
ins danska, Poul Möller, for-
mann danska íhaldsflokksins og
fleiri.
Rafmagn skammt-
að vegna ístrufl-
ana í Soginu
Rafmagn var skammtað í R-
vík og nágrenni í gærkvöld, tekið
af einstökum bæjarhverfum
nokkra stund til skiptis. Ástæð-
an var, að því er Rafmagnsveit-
ur Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
tilkynntu, ístruflanir í Sogi_
„Men De harjo et!
vv
Aksel Larsen, formaður SF-
flokksins danska, var einn þeirra
sem töfðust vegna hreyfilbilun-
ar á flugvél Loftleiða. Þrátt fyr-
ir nokkuð erfiða ferð var hann
býsna hress og urðu hinir mestu
fagnaðarfundir með honum og
Einari Olgeirssyni, formanni
Sósíalistaflokksins á flugvellin-
um í gær.
Fréttamenn áttu sfcutt viðtal
við Larsen. Hann sagðist bjart-
sýnn á það að við fengjum
handritin hingað heim til Is-
lands, líklega yrðu þessi mál þó
ekkj rædd opinberlega á fundi
Norðurlandaráðs hins vegar
yrðu þau án efa mjög ofarlega
á baugi manna á milli bak við
tjöldin.
Larsen sagði, að frá sínu
sjónarmiði væru samgöngumál-
in yfir Eyrarsund hvað mikil-
vægust þ.e. bygging brúar yfir
sundið. Hins vegar taldi hann
samvinnu Norðurlandanna á
hinum ýmsu sviðum í sameigin-
legum hagsmunamálum mjög
mikilvæg mál, sem ræða þyrfti
ýtarlega.
Gunnar Scram ritstjóri Vísis
spurði Larsen hvort hann áliti
rétt að stofna SF-flokk á Is-
landi „Men De har jo et” svaa>
aði Lansen, að bragði.
i-
Brezkur togari
strandaði í gær
í Seyðisfirði
Sncmma í gærmorgun strand-
aði brezkur togari f Seyðisfirði
Annar brezkur togari reyndi að
draga hann á flot skömmu síðar
en tókst ekki. Ekki var talin á-
stæða til að óttast um togarann
og hélt skipshöfnin sig um borð
í gær.
Rýrar bœfur fyrir óSaverSbólgu:
DAGSBRÚNARKAUPIÐ Á
AÐ HÆKKA UM KR0NU!
BÁTUR MEÐ TVEIM MÖNNUM TÝNDUR
Arangurslaus leit í gær
Á sjöunda tímanum á föstudagsmorguninn fór vél-
báturinn Valborg GK 243, sem er frambyggð 7 tonna
trilla, frá ísafirði og ætluðu skipverjarnir sem eru
tveir að sigla bátnum til Grindavíkur. Hefur ekkert
spurzt til bátsins síðan og var hafin leit að honum síð-
degis í gær, en hún hafði engan árangur borið í gær-
kvöld er blaðið átti tal við Slysavarnafélagið laust
fyrir miðnætti.
I gærmorgun var farið að
grennslast eftir bátnum þa
sem ekkert hafði heyrzt
hans. Var auglýst eftir bát
um í hádegisútvarpinu r
skip og bátar beðin að hyggja
að honum á þeim slóðum þar
sem hans er helzt að vænta
eða á svæð nu út af Vesc-
fjörðum og suður að Snæ-
fellsnesi. Hófu tvö varðskip ■
og Pétur Thorsteinsson leit |
að bátnum síðdegis í gær á :
þessum slóðum en vegna veð- j
urs var ekki hægt að leita ;
með flugvélum.
Álitið er að heyrzt hafi í
bátnum frá Sandi á fimmtu-
daginn milli kl. 4 og 5 að
hann væri að kalla á Pat-
reksfjarðarradíó en ekki er
v'tað með vissu hvort það
hefur verið þessi bátur.
Á Valborgu eru tveir menn, ■
báðir frá Hvammstanga.
■ Frá og með næstu mánaðamótum kemur loks til iramkvæmda vísitöluuppbót sú
á kaup sem var einn liður í samkomulagi verklýðsfélaga, ríkisstjómar og atvinnurek-
enda í fyrra. Skal þá koma til framkvæmda verðlagsuppbót sem nemur 3,05% af grunn-
launum og öðrum hliðstæðum greiðslum.
■ Almennt Dagsbrúnarkaup sem nú er kr. 33,81 á klukkustund á þannig að hækka
um kr. 1,03 og kemst upp í 34,84. Þetta kaup á síðan að haldast marz, apríl og maí, en
1- júní á að endurskoða vísitöluuppbótina á nýjan leik í samræmi við vísitölu maímán-
aðar.
Þegar samkomulegið um verð-
lagsuppbót á kaup var gert í
fyrra var framfærsluvísitalan 163
stig, og var ákveðið að líta á það
sem nýjan grunn. Því skyldi
verðlagsuppbótin nema 0.61%
fyrir hvert nýtt vísitölustig sem
bættist við, og þar sem vísitala
framfærslukostnaðar hefur nú
hækkað um 5 stig upp í 168 stig
verður heildaruppbótin um
næstu mánaðamót 3.05%. Skal
greiða verðlagsuppbótina á viku-
laun og mánaðarlaun þannig að
sleppt sé broti úr krónu, sem
ekki nær hálfri krónu, en annars
hækkað í heila krónu.
Framfærsluvísitalan hækkaði
annars fyrsta febrúar um eitt
stig vegna nýja söluskattsins og
hækkunar á fiskverði.
Allir liðið neyzluvísitölunnar
hækkuðu:
★ Vísitalan fyrir „matvörur”
hækkaði um þrjú stig og er
nú komin upp í 205 stig.
★ Vísitalan fyrir „hita, rafmagn
og fl.” hækkaði um tvö stig
og er nú komið upp í 152
stig.
★ Vísitalan fyrir „fatnað og I
álnavöru” hækkaði um eitt ]
stig og er nú komin upp í 169
stig.
★ Vísitalan fyrir „ýmsa vöru
og þjónustu” hækkaði um eitt
stig í 194 stig.
★ Meðalvisitalan fyrir „vörur
og þjónustu” hækkar um tvö
stig og kemst upp í 191 stig.
Annað banasiysið í
Rvíkurhöfn á viku
I gærkvöld upp úr kl. hálf tíu
féll maður í sjóinn af togaranum
Sigurði, þar sem hann Iá við
togarabryggjuna.
Mikil ísing var á togaranum
og mun manninum hafa skrikað
fótur á hálkunni með þeim af-
leiðingum að hann féll í sjóinn.
Þegar hann náðist upp á bryggj-
una var hann meðvitundarlaus
og var þegar í stað fluttur á
Slysavarðstofúna en þegar þang-
að kom var hann látinn.
Togarinn var að koma úr sigl-
ingu til Þýzkalands í gær. Mað-
ur þessi fór í land, strax er
skipið lagðist að bryggju en var
að koma um borð aftur er slys-
ið vildi til.
Hinn látni var miðaldra mað-
ur, kvæntur og stóð kona hans
á bryggjunni er slysið varð.
Þetta er annað banaslysið á
örfáum dögum, sem gerist með
svipuðum hættí^ þ.e. að maður
fellur í sjóinn hér niður á höfn-
inni í Reykjavík