Þjóðviljinn - 13.02.1965, Síða 10

Þjóðviljinn - 13.02.1965, Síða 10
VARAST BER AÐ FESTA KAUP Á ÓLEYFISÍBÚÐUM í KJÖLLURUM Eru lóðarréttindalausar og ekki lánhæfar hjá Húsnæðismálastjórn Töluverð brögö eru að því að í kjöllurum ný- byggðra húsa séu án leyfis byggingaryfirvalda innréttaðar smáíbúðir sem síðan eru til sölu á almennum markaði. íbúðir þessar eru óleyfisíbúð- ir og því ekki lánhæfar samkv. reglum Húsnæðis- málastjómar, enda hafa þær engin lóðarréttindi. Þetta kom fram í stuttu sam- tali sem ÞJÖÐVILJINN átti við Guðmund Vigfússon, full- trúa Alþýðubandalagsins í Hús- naeðismálastjóm, í tilefni af aug- lýsingum sem birzt hafa að undanförnu frá stjórninni um þetta efni. Sagði Guðmundur að fyllsta ástæða væri til að vara fólk við að festa kaup á kjall- araíbúðum nema hafa áður gengið úr skugga um að þær séu í leyfi bygygingaryfirvalda og njóti lóðarréttinda. . — Er mikið um að slíkar ó- leyfisfbúðir séu innréttaðar í kjöllurunum? — Svo virðist vera a.mJi. hér í Reykjavik. Hér er byggt hlut- fallslega mest af sambýlishús- um og yfirleitt er af skipulags- og byggingaryfirvöldum til þess ætlazt að kjallararýmið sé tíl sameiginlegra afnota sem geymslur, þvottahús o.fl. fyrir f- Stórhríð og fárviðrí á Norður- og Austurkndi ísinn var að lóna frá landi í gær Sfðdegis ( fyrradag gerði snöggt norðanáhiaup með frosti og snjókomu. Hófst það á Vestfjörðum og gekk síðan austur yfir Iandið og í gær- morgun var komið vonzku- veður um Iand allt. Snjóaði mikið i gær fyrir norðan og norðaustan og veðurhæðin fór upp í 11 vindstig á Mýr- um í Alftaveri síðdegis í gær. Síðdegis í gær var veðrið farið að ganga niður á Vest- fjörðum en þá var það verst á austanverðu landinu, víð- ast 9—10 vindstig. Frost var víðast 7—10 stig en þó var aðeins eins stigs frost á Fag- urhólsmýri síðdegis í gær. Snjókoma var mikil norðan- lands í gær en minni þegar kom sunnan til á Austfirði. Mest mældist 16 mm á Stað- arhóli í Þingeyjarsýslu, 11 á Sauðárkróki og 10 á Raufar- höfn. ísinn, sem í fyrradag varð Iandfastur á stóru svæði frá Rit að Homi virtist heldur vera að lóna frá landi i gær. Nokkuð íshrafl var þó út af Straumnesi og Kögri fyrir hádegið en þó var þar fært skipum í björtu. Islaust var undan Galtarvita en ofurlít- ill íshroði inn á fjörðunum. Þá var íshrafl í mynni Dýra- fjarðar í gær. stæiur um 873,7milj. kr. ■ Þjóðviljanum hefur borizt bráðabirgðayfirlit Hagstofu íslands um verðmæti útflutnings og innflutnings í des- ember sl- og í heild á árinu 1964. -------------------------------® í desember nam innflutning- urinn alls 887,9 miljónum króna (617 milj. kr. 1963), þar af skip og flugvélar 368,9 milj. kr. (245,9 milj. kr.) Otflutningur- inn nam 481,3 milj. kr. (473,2 milj. kr.). Var vöruskiptajöfn- uðurinn því óhagstæður í mán- uðinum um 406 miljónir króna (143,7 milj. kr.). Vöruskiptajöfnuðurinn á árinu 1964 var í heild óhagstæður um 873,7 miljónir króna (669,6 milj. Sigurður Árnason. Endurkjörinn for- maður í 15. $inn Aðalfundur Verkalýðsfélags Hveragerðis var haldinn s. 1. sunnudag. Stjórn félagsins var kjörin einróma en hana skipa: Sigurður Árnason formaður, Sig- urður Helgason varaformaður, Þorsteinn Sigvaldason ritari, Ól- afur Guðmundsson féhirðir, Gunnar Magnússon fjármálarit- ari og meðstjórnendur Stefán Valdimarsson og Rögnvaldur Guðjónsson. í varastjórn voru kjörin Guðmundur Sigurðsson, Ragna Ólafsdóttir og Jón Guð- mundsson. Sigurður Árnason hefur nú verið formaður félagsins í 15 ár. Á fundinum var mættur Þór- ir Daníelsson framkvæmdastjóri Verkamannasambands íslands. kr. 1963). Heildarinnflutningur- inn nam alls 5649,6 milj. kr. (4715,9 milj. kr.), þar af skip og flugvélar 949,8 milj. kr. (379,0 milj. kr.). Hins vegar var flutt út fyrir samtals 4775,9 milj. kr. (4046,3 milj. kr.). Innflutningur skipa og flug- véla á árinu 1964 skiptist svo: Fiskiskip 391,4 milj. kr. (276, 1 milj. kr.). Onnur skip 98,2 milj. kr. (92,7 milj. kr.). Flug- vélar 460,1 milj. kr. (10,2 milj. kr.). Af flugvélunum kostuðu hin- ar tvær stóru Loftleiðavélar einar saman kr. 435,7 miljónir. búðirnar á hæðunum. Bygginga- meistarar og hlutafélög, sem byggja hér verulegan hluta af sambýlishúsunum eingöngu í gróðaskyni, hafa hinsvegar oft gerzt berir að því að innrétta hluta af kjöllurunum sem íbúð- ir eftir á, og þá auðvitað á kostnað hinna sameiginlegu af- nota af kjallararýminu. — Og þessar íbúðir ganga út? — Þetta eru yfirleitt smáíbúð- ir, 2ja herb. og eldhús, og fólk kaupir þær í algeru hugsunar- leysi vegna íbúðaskortsins og að þær eru oft aðeins ódýrari en íbúðir á hæðum. Fólk treyst- ir því að íbúðirnar séu láns- hæfar og jafnvel leyfðar af byggingaryfirvöldum, en á svo eftir að reka sig á að út á þær fæst hvergi lán vegna réttinda- leysis. — Húsnæðismálastjóm hefur áður sent frá sér aðvaranir um þetta efni? — Stjómin hóf aðvaranir sín- ar til almennings um þetta efni í árslokin 1963 og hélt þeim á- fram á s.l. ári. Eigi að síður halda áfram að berast umsókn- ir um lán út á þessar íbúðir og virðist sala þeirra enn vera í fullum gangi. Er því óhjá- kvæmilegt að vara fólk enn al- varlega við að festa sig í þessu neti, gæta þess að kaupa alls ekki kjallaraibúðir í nýjum húsum án þess að hafa áður gengið úr skugga um að þær séu í fullu leyfi. En til þess þarf kaupandinn að krefjast teikningar af seljanda og ganga úr skugga um að hún sé árituð af byggingarfulltrúa. Sé hún það ekki er tilgangslaust að festa kaup á íbúðinni með það í huga að sækja um lán frá Húsnæð- ismálastjóm, þar sem stjómin veitir aðeins lán út á íbúðir, senf hlotið háfa samþykki við- komandi byggingaryfirvalda. — En er ekki hægt að hindra þennan verzlunarmáta og losa fólk við óþægindi og tjón með bættu eftirliti byggingaryfir- valda? — Það er vafalaust mögulegt Framhald á 7. síðu. Fylkingin Félagar. Æskulýðsfylkingin heldur kvikmyndasýningu fyrir börn félaga í flokki og fylkingu á morgun klukkan 2 í Tjaraargötu 20 (saln- um). Margar skemmtileg- ar og fallegar barnamynd- ir. skrifstofan Tjarnargötu 20 — Sími 17513. Laugardagur 13. febrúar 1965 — 30. árgangur — 36. tölublað. SPRAUTAÐ GEGN FLENSU Verið er að sprauta ýmsa starfshópa með varnarlyfi gegn inflú- ensunni sem geisar í Austur-Evrópu. Þessi mynd er tekin um borð í Gullfossi við hafnarbakkann i Reykjavík í fyrradag, fimmtudag, en þá var öll áhöfnin sprautuð. Það er Jón Egilsson matsveinn, sem verið er að sprauta og Magnús Ölafsson læknir sem á spraut- un.ni heldur. Gullfoss lagði af stað í gær í eina vetrarferð sína, með viðkomu í Hamborg, Rostock, Kaupmannahöfn og Leith. Stiórnarkosning í Múrarafé- laginu er í dag og ó morgur í dag og á morgun fer fram stjórnarkjör í Múrarafélagi R- víkur og eru tveir listar í kjöri. Listi borinn fram af stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins og listi vinstri manna borinn fram af Sigurði Ólafssyni og fleirum. Á lista stjórnarinnar er sú breyting helzt frá því í fyrra að Hilmari Guðlaugssyni er stillt upp sem formanni en Einar Jónsson núverandi formaður er settur í sæti varaformanns. Mun það gert vegna þess hve stjórn- inni hefur gengið' erfiðlega und- ir forustu Einars að ná samn- ingum við ativinnurekendur um kaup og kjör en samningar fé- lagsins eru enn lausir þótt flecf önnur félög iðnaðarmanna séu búin að semja. Listi vinstri manna er þann- ig skipaður: Bergsteinn Jónsson formaður, Ragnar Hansen vara- formaður, Matthías Jónsson rit- ari, Stefán E. Jónsson og Haf- steinn Sigurjónsson meðstjórn- endur. Þykir Bergsteinn sérlega traustur maður og hæfur til for- mennsku. Kosningin hefst í dag kl. 13 og stendur yfir til kl. 21. Verð- ur henni haldið áfram á morg- un og lýkur annað kvöld kl. 22. Múrarar. Fylkið ykkur nm lista vinstri manna við stjórnar- kjörið. Herranótt Menntaskólans Grímudans eftir Holberg Á Herranótt í ár leika menntaskólanemendur í R- vík gamanleikinn Grímudans eftir Lúðvík Holberg, einka- vin skólafólks í meir en öld. Frumsýning er á mánudags- kvöld. Fyrirsvarsmenn leiknefnd- ar, Guðmundur Björnsson og Þórhallur Sigurðsson, sögðu fréttamönnum þessi tíðindi í gær. Sem og oft áður varð klassískur gamanleikur um miklar ástir og enn meiri misskilning fyrir valinu, enda heppnist slík verk lítt reynd- um en fjörmiklum leikurum úr hópi skólafólks betur en nútímaleikrit. Nemendur hafa gert lítið að því að fara í smiðju til annarra við undirbúning þessarar sýningar, nema þeir hafa að sjálfsögðu ráðið leik- stjóra. Sá er Benedikt Áma- son, sem sjálfur rataði fyrst upp á sviðið einmitt á Herra- nótt, það var árið 1951, og hefur síðan verið fjórum sinnum kvaddur til að stjórna Menntaskólasýning- um. En þýðinguna hefur skólapiltur gert, Þorsteinn Helgason úr fimmta bekk. Það er því öldungis víst að leikurinn hefur ekki verið sýndur áður hérlendis. (Að vísu hefur það heyrzt að Hjörtur Halldórsson söng- kennari hafi þýtt leikinn á mjög ungum aldri og self þýðinguna á tíu krónur, en af hennj hafi ekkert spurzt síðan). Leiktjöldin teiknaði og málaði Bjöm Bjömsson. fimmtubekkingur og er því lofað að þau séumikið augna- yndi og leiknefnd smíðaði þau sjálf. Og kvartett nem- enda sér um tónlistina. Það er þröngt í Mennta- skólanum og þröngt í Iðnó og erfitt starf og timáfrekt að koma upp slíkri sýningu. En þeir leiknefndarmenn töldu það af og frá, að þess- ir erfiðleikar drægju nokkuð úr miklum og skemmtilegum áhuga nemenda: þeir sem einu sinni hafa ánetjast Herranótt í neðri bekkjum yfirgefa það fyrirtæki ekki Holbcrg. síðan fyrr en skólavist er lokið. Þrettán leikarar komafram á sýningunni. Þórhallur Sig- urðsson leikur Henrik, þjón- inn, sem flækir öll mál og leysir öll mál í klassískum gamanleikjum. Hliðstæðu hans, Pemillu þjónustustúlku leikur Halla Hauksdóttir. Pétur Lúðvíksson, sem á Herranótt í fyrra lék höfuð- dárann hlýtur að bera þung- an kross hins ástfangna unga manns. Og föður hans leik- ur Þórður Vigfússon. Lára Ragnarsdóttir er ástfangna stúlkan. Átta nemendur dansa menúett grímubúnir á milli fyrsta og annars þáttar — fyrr á tímum voru leik- gestir gjarna grímuklæddir líka og stigu þennan dans á sviðinu, en bví verður að vísu ekki komið við hér, þvi miður. Frum~”"t verður mánudags- kvöld - - ■ Iðnó verða sýn- ingar :ns bann dag vik- unnar- hinsvegar mun sýnt í Tiarnarbæ á föstudaginn kemur svq og laugardag. Þá hafa leikarar fullan hug á því að heiðra Akureyringa með heimsókn sinni. Leikskráin er ágætt rit undir ritstjórn Þórhalls Sig- urðssonar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.