Þjóðviljinn - 20.02.1965, Side 2
1 A-flokki teflir margt gamalkunnra skákmanna. Á 1. borði fyrir Stjómarráðið teflir Baidur Möii-
SÍÐA
MÚSVILIINN
Laugardagur 20. febrúar 19.65
PÁLL BERGÞÓRSSON veðurfrœðingur:
A thugasemd um veðráttu og
ísmyndanir við Búrfell
1 viðtali við Morgunblaðið
lætur Eiríkur Briem rafmagns-
veitustjóri ríkisins hafa eftir
sér þessi orð um ísmyndanir í
Þjórsá:
„Þetta mál hefur verið at-
hugað mjög gaumgæfilega, og
er niðurstaða dr. Gunnars Sig-
urðssonar sú, að undanfarin 10
ár hefði olíukostnaður vegna
ístruflana við Búrfell aukið
reksturskostnað 1. virkjunar-
stigs um ca, 2%.
Það er mál út af fyrir sig.
að hér er ekki minnzt á ann-
að en kostnað við 1. virkjun-
arstig, sem er auðvitað geró-
líkt því þegar farið verður að
nota mikinn hluta af rennsli
Þjórsár til virkjunarinnar.
Sleppum þó spakmælinu hans
Stefáns G. um hálfsannleikann,
en víkjum að veðrinu og ísn-
um.
1 þessum „gaumgaefilegu at-
hugunum" hefur ekki verð
stuðzt við aðrar veðurathugan-
ir en skýrslur frá Hæli £ Hrepp-
um. Sú stöð er álíka langt frá
ármótum Þjórsár og Tungnár
eins og Þingvellir eru frá
Reykjavík. Geta menn ímynd-
að sér, að erfitt muni að á-
ætla veðrið í slíkri fjarlægð
frá veðurstöð, jafnvel þó að
veðurfræðingar hefðu verið
fengnir til þess. Hér geta því
strax orðið verulegar skekkjur,
sem út af fyrir sig gætu um-
turnað þeirri tölu, sem raf-
magnsveitustjórinn nefnir.
Þetta er þó ekki það versta,
og heldur ekki það, sem nú
skal nefnt, hvernig farið hefur
verið með þessar veðurathug-
anir.
Notaðar hafa verið formúlur
til að reikna kælingu árvatns-
ins út frá lofthita, vindf" og
skýjahulu. Þessar formúlur eru
meir en 30 ára gamlar, settar
fram af hinum kunna norska
ísafræðingi Devik. Við þær er
þó sérstaklega eitt athugavert.
Nýrri athuganir, og raunar
ýmsar eldri, sem Devik mun
ekki hafa haft handa á milli
árið 1931, sýna að áhrif vinds-
ins til kælingar eru stórum
meiri í hvassviðri en hann ætl-
aði, jafnvel þótt reikningar
hans stæðust I hægum vindi.
Skal ég þessu til stuðnings
benda á bók hins ágæta veð-
urfræðings Suttons, er út kom
1952, Micrometorology. Verstu
ísmyndanirnar koma nú ein-
mitt í hvassri norðanátt, og þá
verður þetta atriði sérlega'
mikilvægt, jafnvel svo að kæl-
ingin verði 50% meiri en
reikningarnir sýna.
Við þetta bætist svo annað.
Devik sýnir fram á, að kæl-
ing árvatnsins fer mjög eftir
þurrki loftsins. Til þess hefur
ekkert tillit verið tekið í þess-
um reikningum. En einmitt i
verstu ísáveðrum, norðan
froststormi, er loftið oft tiltak-
anlega þurrt á þessum slóð-
um. 1 5 stiga frosti og 40 hnúta
vindi (8 vindstigum) með -4-15
stiga daggarmarki mundu þess-
ar tvær skekkjur í útreikn-
ingunum geta numið nærri
100%, þ. e. kælingin yrði helm-
ingi meiri en áætlað er, ein-
mitt þegar verst gegnir. Það
munar um minna.
Setjum þó svo, að allt þetta
væri gott og blessað, áætlað
veður og útreikningar stæðust.
Þá er eftir erfiðasti hjallinn,
að finna þau kælingarmörx,
er svara til þess að rennsli
fari að truflast. Er óhætt að^
segja, að um þetta renna menn I
að mestu blint í sjóinn, svo
mjög er þetta háð aðstæðum |
öllum á staðnum. Nægir að
benda á, að ekki hefur veðr-
átta verið neitt hagstæðari þá
undanförnu áratugi, þegar Eli-
iðaárstöðin hefur gengið
snurðulaust að kalla, heldur
en þegar hún var ofurseld sí-
felldum truflunum vegna að-
stæðna, sem reyndar voru ekki
ólíkar því sem verður við Búr-
fell.
Þegar á þetta allt er litið,
undrar mann stórlega fullyrð-
ingar rafmagnsveitustjórans
Eiríks Briem um gaumgæfi-
lega athugun á þessu máli, og
þá ekki síður niðurstaðan með
nákvæmninni „ca 2%“. Er
þeim vísindamanni, sem hefur
fengö þessa útreikninga að
verkefni, dr. Gunnari Sigurðs-
syni, lítill greiði gerður með
slíkri misnotkun á lauslegum
getgátum hans um þessi efni.
Páll Bergþórsson.
Úrvalslið Reykja-
víkur í bæjakeppni
Handknattleiksráðið hefur
valið úrvalslið þau sem mæta
eiga úrvalsliðum Hafnarfjarð-
ar í bæjakeppninni á mánu-
daginn.
Lið karla er þannig skipað:
Sigurður J. Þórðarson, KR
Þorsteinn Björnsson, Ármann
Gunnlaugur Hjálmarsson, Fram
fyrirliði.
Sigurður Einarsson, Fram
Tómas Tómasson, Fram
Guðjón Jónsson, Fram
Jón Ágústsson, Val
Karl Jóhannsson, KR
Sigurður Óskarsson" KR
Gísli Blöndal, KR
Hermann Samúelsson, ÍR.
Reykjavíkurúrval kvennanna
verður þannig skipað:
Margrét Hjálmarsdóttir
Fram, Ása Jörgensdóttir Ár-
manni, Díana Óskarsdóttir Ár-
manni, Liselotte Oddsdóttir
Ármanni, Jóna Þorbergsdóttir
Ármanni, Sigríður Sigurðar-
dóttir Val (fyrirliði), Sigrún
Guðmundsdóttir Val, Vigdís
Pálsdóttir Val og Guðrún
Valgeirsdóttir Fram.
Enska stjórnin vill ekki
nýja ráðstefnu i Genf
LONDON 18/2 — Frá því var
skýrt í Lundúnum í gærkvöld,
að sænska stjómin hafi undan-
farna daga látið diplómata sína
ræða við bandarísku og sovézku
stjórnarinnar, um. gang roál.a í ,S-
Vietnam. Þá er það háft eftír
góðum heimildum, að enska
stjómin hafi vísað á bug þeirri
.tillþgu Spvétstjómarinnar . að
'kölíuð verði saman "ný Genfar-
ráðstefna vegna þessa máls.
Ekki er enska stjómin heldur
sögð fáanleg til þess að taka
neitt fmmkvæði í þessu máli.
Harold Wilson, forstætisráð-
herra, hefur rætt Suður-Viet-
nam við bandaríska sendihe.fr-
Fagn-
aðarefni
Alltaf hlýnar mér um
hjartaræturnar þegar í Ijós
kemur að málflutningur minn
hefur gagnleg ' áhrif. Fyrir
réttri viku benti ég á það á
þessum stað að Frjáls þjóð
hefði tekið furðulega afstöðu
til áformanna um innrás er-
lends auðmagns i grein sem
birt var nafnlaus á forsíðu
og var því jafnt siðferðilega
sem lagalega á ábyrgð Bergs
Sigurbjömssonar sem skráð-
ub er ábyrgðarmaður blaðs-
ins. ! þessari grein var Ein-
ar Olgeirsson hrakyrtur fyrir
andstöðu við málið og kom-
izt svo að orði: „Rökin í
þessu máli em fyrst og
fremst hagfræðilegs eðl's.
Allar þjóðir í austri sem
vestri, gamalgróin kapítal-
istaríki sem nýfrjáls þróun-
arlönd, keppa nú eftir er-
lendu ■ fjármagni f einhverri
mynd. Spurningin er því
fyrst og fremst um það, f
hvaða formi við eigum að
ve'ta erlendu f.iármagni inn
í landið, hvort hagstæðir
samningar náist hverju sinni,
hvort við eigum að veita út-
lendingum hiér rétt til eigin
atvinnurekstrar og þáíhvaða
hl'utföllum miðað við þjóðar-
framleiðslu okkar o.s.frv."
Gagnrýni mín hefur nú
leitt til þess að Frjáls þjóð
hefur breytt um afstöðu á
nýjan ieik. í síðasta tölu-
blað skrifar Bergur Sigur-
bjömsson grein undir fullu
nafni þar sem hann tekur
afstöðu gegn erlendri stóriðju
á Islandi. Einnig skrifar Ein-
ar Bragi grein þar sem hapn
sýnir fram á að stuðningur
Frjálsrar þjóðar við alúminí-
umhringinn sé í fyllstu and-
stöðu við fyrri stefnuyfirlýs-
ingar Þjóðvamarmanna.
Þetta er einskært fagnaðar-
efni, og dregur ekkert úr
þótt þpir félagar virðist
kunna mér persónulega litl-
ar þakkir fyrir ábendingarn-
ar. Ég eftirlæt þeim sjálfum
að samræma hinar skemmti-
legu lýsingar sínar á hugar-
ástandi mínu; Bergur Sigur-
bjömsson segir nefnilega að
ég sé „geggjaður”, en Einar
Bragi að ég hafi „fengið
Berg Sigurbjömsson á heil-
ann”. — Austri. m
ann í Lundúnum, David Bruce,
og í Moskvu hefur Sir Humphrey
Trevelyan, sendiherra, átt við-
ræður um málið við sovézka
varautanríkisráðherrann, Sergei
Lapin. Sovétríkin og England
voru sem kunnugt er í forsæti
á Genfarráðstefnunni sem fjall-
aði um málefni Vietnam eftir
ósigur Frakka við Dien Dien
Phu................ ........
Gengið frá kaup-
unum á olíuskipi
til síldarflutninga
Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
an að Kletti hefur nú endan-
lega gengið frá kaupum á olíu-
flutningaskipi, sem nota á til
síldarflutninga í komandi fram-
tíð. Ýmsar breytingar verða
gerðar á skipinu áður en það
verður afhent hinum nýju eig-
endum í maímánuði n.k.
er og á 1. borði fyrir Útvegsbankann Gunnar Gunnarsson en þessar tvær sveitir hafa skipzt á um
að vinna keppnina. Þessi myn,d er tekin fyrir tveimur eða þremur árum en þeir. áttust ,enn
við á miðvikudagskvöldið Baldur og Gunnar og sigraði Baldur að þessu sinni. — Á myndinnj
sést líka Aki Pétursson er teflir á 2. borði fyrir Stjómarráðið. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
33 sveitir taka
Skákkeppni stofnana
S. 1. miðvikudagskvöld var
fyrsta umferð I Skákkeppni
stofnana 1965 tefld í Lídó. 35
sveitir voru skráðar tii Ieiks i
5 flokkum en tvær þeirra
mættu ekki og munu vera
hættar við þátttöku, íslenzkir
aðalverktakar í B-flokki og
Morgunblaðið í D-flokki. Úr-
slit í 1. umferð urðu þessi.
-------------------------------_<ý
Veiðimenn í skógum Tékkóslóvukíu
A þessu ári verður efnt til allmikillar sýningar á hverskonar veiðitækjum og veiðibúnaði í borg-
inni BRNO í Tékkóslóvakíu, en þar í landi er veiðisport mikið iðkað, ekki hvað sízt fuglaveiðar
í skógum eins og myndin sýnir.
A-flokkur:
Búnaðarbankinn 1. sv., 3új
— Almenna byggingafél. %•
Hreyfill, 1. sv., 3 — Lands-
bankinn, 1. sv., 1, Stjómar-
ráðið, 1. sv., 3 — Útvegsbank-
inn 1, Veðurstofan sat hjá.
B-flokkur:
Raforkumálaskrifstofan '3 —
Loftleiðir Keflavíkurflugv. 1, ■
Pósturinn 2V2 — Raffnagnsv.
1% Samvinnutryggingar 2 •—
Bamaskólar Reykjavikur, 1 sv.
2 vinninga.
C-flokkur:
Hreyfill, 2. sv., 3 — Lands-
síminn, 1. sv., 1, Búnaðarbank-
inn, 2 sv., 2% — Barnaskól-
ar Reykjavíkur, 2 sv. 1'/?,
Landsbankinn, 2. sv., 2V2 —
Verðgæzlan IV2. Þjóðviljinn
sat hjá.
D-flokkur:
Prentsm. Edda 3V2 -— KRON
1. sv., V2. Flugfélagið 3V2 —
S.tjórnarráðið, 2 sv.. 1/2. Stræt-
isvagnarnir — Hreyfill 3. sv„
ólokið.
E-flokkur: m
Laugarnesskólinn 3V2 — Bæj-
arleiðir V2. Bifreiðaleigan Fal-
ur 2 — Bræðurnir Ormsson 2.
KRON 2. sveit, 2V2, — Héð-
inn IV2, Landssíminn, 2. sv.$
sat hjá.