Þjóðviljinn - 20.02.1965, Side 4

Þjóðviljinn - 20.02.1965, Side 4
4 SlÐA Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk- urinn. — Ritstjórar: tvar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson, Sigurdur Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19. Simi 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 á mánuði. Meginatriii O'l | íhaldsblöðum er oft að því vikið að með júní- samkomulagi verkalýðshreyfingarinnar, ríkis- stjórnarinnar og atvinnurekenda hafi náðst ein- hverskonar varanlegt „jafnvægi“ í kjaramálum, og sé það versta verk ef verkalýðsfélögin eða vondir menn innan þeirra reyni að raska þessu ímyndaða jafnvægi! Ekki er það kunnugt að nein- ir forystumenn verkalýðshreyfingarinnar hafi lagt þennan skilning í samkomulagið, heldur var al- gengara að heyra það kallað vopnahlé eða frest, sem atvinnurekendum hafi verið gefinn til að átta sig á þeirri staðreynd að verkamenn og aðrir laun- þegar hafa búið við skarðan hlut undanfarin ár og munu sækja rétt sinn. frl [ ályktun Alþýðusambandsþings um kjaramálin, sem fram var lögð af nefnd manna með hinar ólíkustu stjórnmálaskoðanir og samþykkt einróma af Alþýðusambandsþingi, af mönnum úr öllum stjórnmálaflokkum, segir orðrétt: „Sú staðreynd blasir því við, að verkafólk hefur ekki fengið sinn eðlilega og réttláta hluta úr vaxandi þjóðartekj- um undanfarin ár. Afleiðingin-hefur orðið sú? að verkafólk hefur yfirleitt neyðzt til þess að lengja vinnudaginn í sífellu og vinna meira og meira á lögskipuðum frídögum. Á þann hátt hefur tekizt að hækka árstekjur verkafólks, en raunveruleg lífskjör hafa þrátt fyrir það rýrnað“. \r) J beinu framhaldi af þessum forsendum tók Al- þýðusambandsþing fram nokkur þau at- riði, sem það taldi að verða ættu aðalatriði í kjara- baráttunni á þessu ári. Var það sagt í ályktun þingsins með þessum orðum: „29. þing Alþýðu- sambands íslands telur að í samningum þeim sem verkalýðsfélögin eiga fyrir höndum á komandi vori, beri að ieggja höfuðáherzlu á eftirfarandi þrjú atriði: 1. — Kaup verði hækkað allverulega, þannig að hlutur verkafólks í þjóðartekjum verði leiðréttur og stefnt að því að dagvinnutekjur nægi meðal- fjölskyldu til menningarlífs. 2. — Vinnutími verði styttur án skerðingar á heildartekjum. 3. — Orlof verði aukið. Þingið leggur áherzlu á að áfram verði haldið samningum um réttlátar ráðstafanir í húsnæðis- málum almennings, um setningu laga um vinnu- vernd og ýmis önnur réttinda- og hagsmunamál alþýðufólks“. því er þetta rifjað upp nú, að telja verður að um þessi atriði sé full eining í verkalýðshreyfing- unni. Engum' þarf að koma á óvart þó verkalýðsfé- lögin móti kröfur sínar samkvæmt einróma álykt- un Alþýðusambandsþings og fylgi þeim eftir af einbeitni og þunga. Og frá því Alþýðusambands- þing gerði samþykkt sína, hafa þau ótíðindi gerzt að ríkisstjórnin hefur gert ráðstafanir sem verka- lýðshreyfingin telur brot á júnísamkomulaginu. Til þess verður einnig að líta þegar verkalýðs- hreyfingin mótar kröfur sínar í vor. — s. ÞJðÐVILJINN Laugardagur 20. febrúar 1965 Hæstaréttardómur útaf kröfu um afsal fyrir kjallaraíbúð Málavöxtum er þannig lýst í héraðsdómi: 1 maí-mánuði árið 1962 fól Jón Brynjólfsson Haraldi Guð- mundssyni löggiltum fasteigna- sala að selja kjallaraíbúð sína í húsinu nr. 28 við Skaftahlið í Reykjavík fyrir 380 þúsund krónur. Á eigninni hvíldi lán hjá Andvöku að upphæð ca. 53.000,00, er fyrri eigandi henn- ar hafði skuldbundið sig til að aflétta ásamt fleiri lánum. Síðari hluta sumars þetta ár var Sigurður Árnason að leíta fyrir sér hjá fasteignasölum borgarinnar um kaup á íbúð við sitt hæfi. Meðal þeirra fasteignasala sem hann leitaði til var Haraldur Guðmundsson, er benti honum á ýmsar í- búðir, er til greina gætu kom- ið, þar á meðal kjallaraíbúð Jóns. Kvað S:gurður fasteigna- salann hafa lýst því yfir, að eign þessi væri með öllu kvaða- laus. Hinn 3. sepíember 1962 gerði Sigurður, fyrir milli- göngu Haralds Guðmundsson- ar, 350 þúsund króna kauptil- boð, í eign þessa og skyldi kaupverðið greiðast þannig: „1. Kaupandi greiðir í pening- um við afsal kr. 150.000,00. Kaupandi greiðir eftirstöðvar kaupverðsins við afsal, með því að gefa út skuldabréf á 1. veðrétt í hinum selda eignar- hluta með 7% ársvöxtum pg jöfnum afborgunum á næstu 10 árum frá afnotadegi að telja kr. 200.000,00. Samt. kr. 350.000,00” í kauptilboði þessu var það tekið fram, að eignin skyldi vera laus 1. 10. 1962, og skyldi seljandi hafa arð og afnot af henni til þess tíma. Ennfrem- ur var þess getið, að afsal skyldi fara fram, þegar tilboð- ið hefði verið samþykkt,, en það stæði til 4/9 1962 kl. 6 e:h. Er tilboð þetta var komið i eignina, kveðst fasteignasalinn hafa sagt Jóni frá því. Hafi Jón þá sagt, að Karl Jónsson læknir ætti eign bessa með sér. Hinn 4/9 1962 samþykkti Jón tilboð þetta „með því að söluverð sé kr. 380.000,00”. Samdægurs féllst Sigurður á þetta gagntilboð með svofelldri áritun á nefnt kauptilboð: „Samþykkur framanritaðri breytingu”. Fasteignasalinn kveðst nú strax hafa látið Jón vita um þetta samþykki Sigurðar og jafnframt beðið hann um afsal fyrir eigninni, en eignarheim- ild Jóns byggðist ekki á af- sali heldur þinglýstum kaup- samningi. Fasteignasalinn aflaði sér nú veðbókarvottorðs um eignina. Kom þá í Ijós, •* að fyrmefnt Andvökulán hafði verið háð gengi í sterlingspundum, og var komið upp í u.þ.b. 123 þúsund ísl. kr„ eftir að búið var að afnema pundagreiðsl- una. Þetta kveðst fasteignasal- inn hafa látið Jón vita og ennfremur, að ekkert hefð' verið greitt niður af láni þessu. Þá kvaðst fasteignasal- inn einnig hafa bent Jóni á, að f kaupsamningi (eignar- heimild) Jóns hefði ekkert ver- ið tekið fram um geymslur eða hlutföll, og þyrfti að k'ppa þessu í lag með samþykki meðeigenda áður en Sigurði yrði veitt afsal. Hafi Jón þá ekki talið sig hafa tryggingu fyrir meiru en kr. 40.000,00 upp f Andvökulánið og taldi öll vandkvæði á, að hann gæti flutt lán þetta af c'gninni. Yrði hann þvf að hætta' við söluna. Sag^ist fasteignasalinn þá hafa tjáð honum, að hann gæti hætt við þetta sfn vegna, og skyldi hann enga sölulauna- kröfu gera á hendur honum. enda kæmu þeir Sigurður og Jón sér saman um þetta. % Næsta dag kveður fasteigna- salinn Jón hafa komið á skrif- stofu sfna og sótt þar samn- inga sína og veðbókarvottorð. Hinsvegar hélt fasteignasalinn eftir káuptilboðjnu og afhenti það síðar Sigurði, enda var nú í ljós komið, að hann (Sigurð- ur) hélt fast við framangreint kauptilboð. Fasteignasalinn kveðst hafa skýrt Jóni frá þessari afstöðu Sigurðar og sagt honum að hann yrði að semja um þetta við hann, en Jón hafi eigi sinnt þessum á- bendingum, þrátt fyrir það, að fasteignasalinn kvaðst ítrekað- ar tilraunir hafa gert til að fá hann til þess. Hinn 20. sept. 1962 reit líg- maður Sigurðar Jóni svohljóð- andi bréf: „Til mín hefur leit- að Sigurður Árnason, hús- um leið og þeir hafi samþykkt tilboð hvors annars 4. sept. 1962. Stefndi, Jón Brynjólfsson, krafðist sýknu vegna þess að e gi hafi verið kominn á end- anlegur og skuldbindandi samningur milli aðiljanna að- allega af því að eigi hafi ver- ið um það samið, hvernig greiða skyldi þá 30 þúsund kr. hækkun er orðið hafi á sölu- verði íbúðarinnar. Héraðsdómari féllst á rök stefnanda og taldi að kominn hafi verið á bindandi samn- ingur milli aðiljanna um sölu íbúðarinnar „enda skiptir það hér engu máli um gildi þessa samnings. þótt ákvæði hafi 000,00, sem greiðast skyldi með kr. 150.000,00 í peningum við útgáfu afsals og kr. 200.- 000,00 með skuldabréfi, tryggðu með 1. veðrétti í hinum selda eignarhluta. Skyldi skuldabréf- ið ásamt 7% ársvöxtum af- borgast á ■ 10 árum frá afnota- degi íbúðarinnar, þ.e. frá 1. október 1962. Hinn 4. septem- ber 1962 ritaði aðaláfrýjandi (Jón) svohljóðandi yfirlýsingu á kauptilboðið: „Samþykkur framanrituðu tilboði með því að söluverð sé kr. 380.000,00.” Þá ritaði gagnáfrýjandi hinn 4. september 1962 á kauptil- boðið: „Samþykkur framanrit- aðri breytingu”. Þess er eigi getið í samningi aðilja, hvern- ig þær kr. 30 þús. er kaupverð- ið átti að hækka um, skyldu greiðast. Fór því um það atriði eftir meginreglunni i 14. gr. laga nr. 39/1922, þ.e. greiðabar þær í peningum við útgáfu af- sals. Gagnáfrýjandi hefur aldrei boðið þessa greiðslu fram, heidur haldið því fram, að skuldabréf það, sem i samningnum greinir, ætti að hækka um hana. Þar sem gagnáfrýjandi þannig hefur eigi gert löglegt greiðslutilboð, er aðaláfrýjandi nú eigi bund- inn við kaupsamninginn, og ber því áð taka kröfu hans um sýknu i málinu til greina. Eftir atvikum er rétt, að málskostnaður i héraði og fyr- ir Hæstarétti falli niður.” Sératkvæði prófessors Magnúsar Torfasonar „Svo sem rakið er í hinum áfrýjaða dómi komast á. bind- andi kaupsamningar með að- ilum um kjallaraíbúð aðalá- frýjanda í húsinu nr. 28 við Skaftahlíð. Samningur þessá var ófullkominn að því leyti, að eigi var sérstaklega ákveð- ið hvenær og hvernig gagná-- frýjandi skyldi greiða þær kr. 30.000,00, sem kaupverðið var hærra en upphaflegt tilboð hans. Er þá rétt að skýra samn- ing aðila svo, að aðaláfrýjandi hafi mátt krefjast þess, að gagnáfrýjandi greiddi þessa fjárhæð í reiðufé, er hann fengi afsal fyrir fbúðinni. Samkvæmt gögnum málsins og svo sem nánar greinir í héraðsdómi neitaði aðaláfrýj- andi frá öndverðu að efna kaupsamning aðila. Gagnáfrýj- andi lýsti sig hins vegar reiðu- búinn til að efna samninginn Framhald á 9 síðu. ■ Fyrir skömmu kvað Hæstiréttur upp dóm í máli, sem Sigurður Árnason hús- gagnasmiður, Efstasundi 2, höfðaði gegn Jóni Brynjólfssyni endurskoðanda Grettis- götu 54 „til þess að fá hann dæmdan til að láta stefnanda í té afsal fyrir kjallaraíbúð- inni í húsinu nr. 28 við Skaftahlíð“. Dóm- ur þessi mun vafalaust vekja nokkra at- hygli, a.m.k. í þeim hópi (sem fer örf stækkandi) manna er við fasteignavið- skipti fást. gagnasmiður, Efstasundi 2, Reykjavík. Hann hefur sýnt mér samþykkt kauptilboð um eignarhluta yðar í húsinu nr. 28 við Skaftahlíð, hér í borg- inni, dags. 3. ög' 4. þ. m. Um- bjóðandi minn kveðst óska þess að fá nú þegar afsal fyr- ir íbúðinni í samræmi við til- boðið, enda hefur hann jafnan verið fús til að standa við það af sinni hálfu, svo sem yður er kunnugt”. Hinn 25. s.m. ritaði lög- maður Sigurðar Jóni enn bréf, þar sem hann -ítrekaði fyrri kröfu sina um það, að Jón gæfi út afsal fyrir eign- inni, ella myndi hann höfða mál á hendur honum til þess að fá hann dæmdan, að við- lögðum dagsektum, til útgáfu afsals fyrir íbúðinni. Þessari kröfu hafnaði Jón, enda kvaðst hann hafa litið svo á, að fasteignasalinn hefði afhent sér sölugögnin á þeim forsendum, að ekkert yrði úr kaupunum. Enn héldu bréfaskiptin á- fram milli málsaðilja, þar sem‘ sömu kröfur og mótmæli voru endurtekin, en hvorki rak né gekk í samkomulagsátt. Hinn 11. júlí 1963 skrifaði Jón lögmanni Sigurðar bréf og sendi honum í því afsals- uppkast fyrir kjallaraíbúðinni. í bréfi þessu tjáði Jón sig reiðubúinn til að skrifa undir afsal til Sigurðar gegn því, að kaupverð íbúðarinnar yrði kr. 410 þúsund kr„ enda yrði málssókn og málskostnaður niður felldur á hendur honum. Tilboði þessu svaraði lögmað- ur Sigurðar i bréfi þar sem hann kvað Sigurð geta fallizt á það fyrir sitt leyti, að gefa kr. 400 þúsund fyrir kjallara- íbúðina, enda yrðu greiðslu- skilmálar nokkuð á annan veg, en Jón hafði lagt til. Þá var þess jafnframt getið í bréfinu, að næðist eigi samkomulag á þessum grundvelli áskildi Sig- urður sér allan rétt gagnvart Jóni í samræmi við hið upp- haflega tilboð sitt. Á þetta var ekki fallizt og var því mál höfðað. Steínandi, Sigurður Árnason, studdi stefnukröfur sínar þeim rökum, að lögum samkvæmt hafi verið kominn á gildur og bindandi samningur milli að- iljanna um sölu íbúðarinnar verið um það í kauptilboðs- forminu að sá aðili, er gangi frá tilboðinu eftir að það hef- ur verið samþykkt, skuli greiða millilið sölulaun eins og hon- um ’TSgfði" borið ef af kaupum hefði orðið”. Úrslit urðu því þau í héraði að Jón Brynjólfs- son var dæmdur til að láta af hendi afsal fyrir fyrrnefndri kjallaraíbúð að viðlögðum dag- sektum. Dómur Hæsta- réttar Jón undi ekki þessum dómi og skaut málinu til Hæstarétt- ar, þar sem málsúrslit urðu allt önnur og þó ekki ágrein- ingslaust. 1 dómi Hæstaréttar segir: „Hinn 3. septembér 1962 gerði gagnáfrýjandi (Sigurður) kauptilboð í kjallaraíbúð hússins nr. 28 við Skaftahlíð f Reykjavík, ásamt öllu því, er henni fylgdi, fyrir kr. 350,- <&- O. J. Olsen flytur erindi í Aðventkirkjunni sunnudaginn 21. febr. klukkan 8,30 e.h. Erindið nefnist: Bandaríkin í ljósi Biblíuspádóma. Hvaða stórtíðinda er að vænta þaðan? ALLIR VELKOMNIR. Aðstoðarmaður Lagtækur aðstoðarmaður óskast á vinnustofu vora. AXEL EYJÓLFSSON Sími 10117 og 18742.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.