Þjóðviljinn - 21.02.1965, Page 1
Sunnudagur 21. febrúar 1965 — 30. árgangur — 43. tölublað.
ÍSRÖNDIN
FYRIR
YEST-
FJÖRÐUM
í GÆR
LANDHELCISCÆZLAN
/f/./OOO
í FYRRA JÓKST HEILDARVERÐ-
MÆTI ÚTFLUTNINGSINS UM 187«
■ Á síðastliðnu ári hækkaði heildarverðmæti útflutn-
ingsins um hvorki meira né minna en 18 af hundraði, að
því er Jóhannes Nordal seðlabankastjóri sagði í frétta-
auka sem hann flutti í útvarpið í gærkvöld fyrir hönd
banka síns. Ýmsum mun finnast þetta fagnaðarefni og
augljós undirstaða bættra lífskjara launþega, en banka-
stjórinn sagði hins vegar að hann teldi „nyjar hættur
fólgnar í þeirri aukningu peningamagns og greiðslugetu
sem átt hefur sér stað á árinu“!
■ Greinargerð bankastjórans fjallar annars einkum um
ástandið í gjaldeyris- og peningamálum og var í heild á
þessa leið:
„Upplýsingar liggja nú fyrir
um ýmsa mikilvæga þætti efna-
hagsmálanna á árinu 1964, svo
að hægt er að draga í megin-
dráttum upp mynd af þróuninni
á árinu, enda þótt margt eigi
eftir að skýrast betur og endur-
skoðast, þegar lokið er öflun ná-
kvæmari tölulegra gagna. Ég
mun hér fyrst og fremst gera
að umræðuefni þróunina í gjald-
eyris- og peningamálum.
Enginn einn þáttur í íslenzk-
um þjóðarbúskap er . eins af-
drifaríkur fyrir afkomu þjóðar-
innar og þróunin í utanríkis-
viðskiptum og gjaldeyrismálum.
í þeim efnum má segja, að árið
1964 hafi verið hagstætt, heild-
arverðmæti útflutningsins hækk-
★ Á sjöttu síðu blaðsins í dag
★ er birtur kafli úr bók eftir
★ bandaríska skáldið James
★ Baldwin sem nefnist „Æska
★ í Harlem”.
aði um 18% frá árinu áður og
var það að þakka bæði auknum
sjávarafla og hagstæðara verði
á erlendum mörkuðum. Einnig
er útlit fyrir, að duldar tekjur
hafi aukizt verulega, einkum þo
af flugsamgöngum og ferða-
mönnum. Á móti þessum auknu
gjaldeyristekjum kom hinsvegar
enn meiri aukningur innflutn-
ings, svo að vöruskiptajöfnuður-
inn varð óhagstæður um 874
milj. króna, á móti 670 milj. ár-
ið 1963. Þessar tölur gefa þó
engan veginn rétta mynd af
raunverulegri þróun gjaldeyris-
málanna á árinu 1964. í fyrsta
lagi er þess að geta, að á árinu
voru flutt inn skip og flugvélar
fyrir 950 milj. kr., þar af námu
flugvélakaup 460 milj. og inn-
flutningur fiskiskipa 391 milj.
Er þetta 570 milj. kr. meiri inn-
flutningur skipa og flugvéla en
á árinu 1963, sem þó var yfir
meðallagi í þeim efnum. Mun-
aði hér mestu um tvær vélar
Loftleiða, sem til samans kost-
uðu 435 milj. kr. Séu þessi skipa-
og flugvélakaup frá talin reynd-
ist aukning innflutnings á árinu
aðeins 8%, eða miklu minni en
aukning útflutningsins, svo að
vöruskiptajöfnuður án skipa og
flugvéla batnaði um 370 milj.
kr. frá árinu 1963.
F.nnþá eru ekki fyrir hendi
nægilega traustar upplýsingar til
þess að hægt sé að áætla
greiðslujöfnuðinn við útlönd í
heild með nokkurri nákvæmni.
Lauslegar áætlanir benda þó til
þess, að þrátt fyrir hinn gífur-
lega innflutning skipa og flug-
véla hafi greiðsluhallinn á við-
skiptum með vörur og þjónustu
í heild verið innan við 300 milj.
kr. eða aðeins lítið eitt meiri
en 1963. Með því einu að sleppa
hinum tveimur flugvélum Loft-
leiða úr innflutningstölunum.
hefði orðið lítilsháttar greiðslu-
afgangur á árinu. Verður að
telja þetta hagstæða niðurstöðu,
ekki sízt samanborið við árið
1963, en þá versnaði greiðslu-
jöfnuðurinn mjög verulega. Mik-
ið erlent lánsfé kom inn á árinu
enda voru flugvéla- og skipa-
kaupin að verulegu leyti greidd
með erlendum lánum. Greiðslu-
hallinn kom því ekki fram í
gjaldeyrisviðskiptum bankanna
og batnaði gjaldcyrisstaðan á
árinu um 281 milj kr., en jafn-
framt lækkuðu stutt vörukaupa-
lán erlendis um 78 milj. kr.,
enda höfðu verið settar strang-
ari reglur um notkun þeirra.
Heildarlántökur til langs tíma
á árinu numu 880 milj. kr., þar
af voru lán einkaaðila um 740
milj. kr., en þau voru að lang
miestu leyti vegna skipa- og
flugvélakaupa. Endurgreiðslur
lána námu um 420 milj., svo að
útistandandi lán í heild hækk-
uðu um 460 milj. Útistandandi
lán ríkis og annarra opinberra
aðila lækkuðu hins vegar um
90 milj. kr. á árinu. Námu ný
opinber lán um 140 milj. kr.,
en endurgreiðslur 230 milj. kr.
Sný ég mér þá að þróun pen-
ingamála, en gagnkvæm áhrifa-
tengsl eru á milli hennar og
annarra meginþátta í þróun
efnahagsmála, svo sem fram-
leiðslu, utanríkisviðskipta og
verðlags. Mun hagstæðara hlut-
fall varð á milli útlána og inn-
lána bankama á árinu 1964 en
árið áður. Endurspeglaðist þetta
í batnandi stöðu bankakerfisins
gagnvart Seðlabankanum og
bættri gjaldeyrisstöðu.
Heildaraukning í útlánum
banka og sparisjóða áárinuvarð
707 milj kr., sem er nokkru
minna en 1963, en þá var út-
lánaaukningin 763 milj. Spari-
fjáraukning varð einnig nokkru
minni, 715 milj. á móti 724 milj.
árið áður. Meginbreytingin fólst
í því, að veltiinnlán í bönkum
og sparisjóðum jukust nú um
314 milj., en höfðu lækkað um
64 milj. á árinu 1963. Bar þetta
vott um bætta lausafjárstöðu
fyrirtækja, og endurheimt þess
trausts sem um skeið virtist
glatað síðari hluta árs 1963. Hið
hagstæða hlutfall milli útlána
og innlána bankakerfisins, sem
þannig skapaðist, kom fram í
því, að heildarstaða banka og
sparisjóða og annarra innláns-
stofnana gagnvart Seðlabankan-
um batmaði um 400 milj. kr. á
árinu, þar af var aukning inn-
lánsbindingar 305 mil. Allt þetta
hefur sivo leitt til þess, að pen-
ingamagn og greiðslugeta í
höndum almennings, fyrirtækja
og banka var mun meiri í árs-
lok 1964 en í lok undanfarins
árs.
Ein meginbreytingin í þróun
Framhald á 9. síðu.
X roef/9/>/?,?
VOC ^
1 gærmorgun fór flugvél Landhelgisgæzlunnar í ískömiunarflug og
flaug hún fyrst noröur fyrir Vestfirði og síðan austur með landi.
Meðfylgjandi kort er teiknað samkvæmt upplýsingum er áhðfn
flugvélarinnar gaf kl. 10 í gærmorgun og skýrir það sig að mestu
sjálft. Þess er þó rétt að geta að ísröndin er ekki samfelld heldnr
er hér um íshroða að ræða og nær ísröndin miklu Iengra austur
með Norðurlandi en kortið nær. Þá tákna tölurnar á kortinu f jölda
togara og báta er voru að veiðum á hverjum stað. Voru togaram-
ir flest allir brezkir. Kortið er teiknað af Landhelgisgæzlunni.
Pólitískt fjör í Saigon
Khanh aftur við vðld
SAIGON 20/2. — Atburðir gerast nú hraðar í Suður-Viet-
nam en frá verði sagt. í gær var skýrt frá því í blöðum
að Khanh hershöfðingja hafi verið steypt af stóli. En í
dag berast svo þær fréttir, að hershöfðingjabylting sú
sem stefnt var gegn Khanh, hafi mistekizt og hafi hann
nú aftur tryggt sér yfirráð yfir hernaðarlega mikilvægum
stöðum í borginni.
Uppreisnarmenn höfðu um
tíma ýmsa þýðingarmikla staði
á valdi sínu, m.a. útvarpsstöð-
ina. En Khan gat tryggt sér
stuðning ýmsra aðila innan hers-
ins, þeirra á meðal yfirmanns
flughersins. Tókst liði hans að
endurheimta útvarpsstöðina
skömmu eftir miðnætti í nótt
leið, og kvaðst það þá vera á
góðum vegi með að umkringja
höfuðstöðvar uppreisnarmanna.
Tilkynnt hafði verið að Kiem,
sendiherra Suður-Vietnam í
Washington, myndi fljúga sem
Borgar-
sjúkra-
húsið í
Fossvogi
Borgarsjúkrahúsið
í Fossvogi og sleif-
arlagið við bygg-
ingarframkvæmd-
ir þar var mjög til
umræðu á fundi
borgarstjórnar R-
víkur sl. fimmtu-
dag. Frá ræðu Guð-
mundar J. Guð-
mundssonar borg-
arfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins er
nánar sagt á 5. s.
blaðsins í dag —
en hér er mynd af
iúkrahússbygg-
->gunni eins og
hún nú lítur út.
Sjá síðu
©
snarast heim og taka við stjóm-
artaumum, og hafði hann haft
bjartsýn ummæli þar um sjSlfi-
ur. Hinsvegar hefur Kiem ekki
fengizt til að láta neitt uppi
um þessa síðustu atburði.
Sá maður sem ber forsetataðl
í Suður-Víetnam, kom fram f út-
varpi nokkru síðar og _ sagði að
stjómmálaforingjar og herfoiv
ingjar þjóðarinnar myndu senn
koma saman á sáttafundi tii að
ræða síðustu atburðL
Ranger á tungíinu
PASADENA 19/2. f morgun
lenti tunglfar Bandaríkjamanna
á tunglinu og hefur þessi tilraun
tekizt með ágætum.
Geimfarið, sem var 366 kiló að
þyngd, skall á yfirþorði tungls-
ins með 9440 kílómetra hraða
á klukkustund. Ljósmyndunar-
tæki geimfarsins störfuðu ágæt-
lega og sendu um fjögur þúsund
myndir til jarðar. Þær myndir
eru sagðar sérstaklega góðar
sem komu frá geimfarinu rétt
áður en það lenti á tunglinu.
Bandaríkjamenn sendu í fyrra
upp geimfar, sem fór mjög nó-
lægt tunglinu og sendu þá
mikinn fjölda ágætra mynda til
jarðar, en ekki hafa bandarísk-
ar sendingar áður lent á þessum
næsta nágranna okkar í geimn-
um.
Ljósmyndunar- og útsending-
artækin áttu að sterfa síðustu
tólf mínúturnar áður en Ranger
lenti, en þá yrði geimfarið kom-
ið í 2100 km fjarlægð frá yfir-
borði tunglsins.
Amerískar sjónvarpsstöðvar
bjuggust við að geta sýnt fyrstu
myndirnar 8—12 klukkustund-
um eftir lendinguna.
Flytur erindi um sprungu-
myndanir í steyptum húsum
Eins og kunnugt er gætir þess
talsvert, að sprungur komi fram
í gólfum og veggjum steyptra
húsa hér á landi. Ýmsar orsalí-
ir munu vera hér að verki, en
til þess,a hafa markvissar athug-
anir ó þessu vandamáli ekki
farið fram. Ýmsir aðilar hafa
látið í ljósi áhuga á því, að
vandamál þetta væri tekið til
gaumgæfilegrar athugunar, en
lítt hefur verið aðhafzt, þar sem
byggihgafrasðilegar rannsóknir
hafa að mestu legið í láginni
undanfarin ár. Nú standa von-
ir til að Byggingafræðideild At-
vinnudeildar Háskólans hefji
rannsóknarstarfsemi í þágn
byggingaiðnaðarins á víðari
grundvelli, en áður hefur verið
og láti m. a. til sín taka ofan-
greint vandapiál.
Iðnaðarmálastofnun Islands
og Byggingaþjónusta Arkitekta-
félags Islands hafa gengizt fyr-
ir því í samráði við Bygginga-
fræðideild Húsnæðismálastofn-
unarinnar, Meistarasamband
byggingamanna, byggingafulltrú-
ann í Reykjavík, Verkfrasðinga-
félag ísfands o.fl. aðila að fá
hingað sérfróðan mann til fyr-
irlestrahalds og viðræðna um
sprungur í steinhúsum.