Þjóðviljinn - 21.02.1965, Síða 6

Þjóðviljinn - 21.02.1965, Síða 6
6 SIÐA UTVARPS- GEISLUN FRÁ TUNGLINU Eftir dr. Vsjevolod Troitskíj, prófessor í stærðfræði og eðlisfræði Það er talsverður munur á eðlisfræðilegri og bergfræðilegri samsetningu efnanna á yfirborði tunglsins og efnanna sem neðar liggja. Á síðustu árum hafa verið gerðar athuganir á útvarpsbylgj- um, sem tunglið sendir með margvíslegri tíðni. Þessar rannsóknir hafa leitt í ljós margt nýtt og áður óþekkt um eðli tunglsins á yfirborði þess, og efnin, sem þar eru, allt niður í nokkurra metra dýpt. Otvarps-stjömufr. hafa ný- lega náð mjög eftirtektarverð- um árangri við að athuga tunglið á meðan á tuglmyrkva stendur. Prófessor Troitskij, sem starfar við útvarpseðlis- fræðivísindastofnunina í borg- inni Gorki, hefur látið frá sér fara þessa greinargerð: — Otvarpsbylgjur þasr, sem tunglið sendir, koma frá tungi- berginu. Með því að rannsaka bylgjur þessar, má fá vitn- eskju um hitastig og breyting- ar á því í berglögunum undir yfirborði tunglsins, og vegna þess að breytingar þessar eru háðar eðli þessara efna, má afla sér þekkingar á samsetn- ingu og eðli þeirra með því að athuga hitastigið í hinum ýmsu berglögum tunglsins. At- huganir á hitabreytingum á einum „sólarhring“ á tunglinu taka mánuð, því sólarhringur tunglsins er mánuður, en þeg- ar tunglið myrkvast, gerist breytingin miklu hraðar, en tunglmyrkvi stendur aldrei lengur en 4—5 klst. Af mæl- ingum á útvarpsgeislun á „tungl-sólarhring”, eða mán- uði, hefur mátt ráða margt um eðli og eigindir efnanna í tunglinu niður í allt að því hálfan annan metra. Þegar tunglið myrkvast þ.e.a.s., þeg- ar skuggi jarðarinnar fellur á tunglið, kólnar það ekki að marki lengra niður en rétt undir yfirborðið, eða um 10 cm., og kallast betta efsta lag „lunit”. Hingað til hafa menn ekki haft neina áreiðanlega vit- neskju um það hve miklar hitabreytingarnar verða meðan á tunglmyrkva stendur, og stafar það af því hve smávægi- legar þær eru. Þær eru ekki nema 3—5 af hundraði eða 6 til 10 gráður miðað við það hitastig, sem fyrir er (mælt í útvarpsbylgjum) og auk þess gerast breytingarnar hægt fyrstu 3—4 klst. eftir að myrkvinn byrjar. Á þessum tíma verða breytingar á magn- arakerfi útvarpsfirðsjárinnar, og tunglið nær að renna nærri helminginn af braut sinni yfir himininn. Þetta breytir mót- I I I I * Nokkur orð vegna ræðu Lagercrantz i. * i i Norræn samvinna, norræn stjómmál, norræn menn- ing hafa nú verið rædd, étin og drukkin um hríð í höfuð- stað landsins og virðulegir gestir eru farnir hver til síns heima Og það var mikið tal- að. Því miður er fátt úr þeim ræðum eftirminnilegt, enda varla til þess ætlazt Þeim mun ánægjulegra var að heyra allt í einu lifandi rödd Rödd annars þeirra tveggja manna sem að þessu sinni voru heiðraðir sem einhverj- ir ágætastir fulltrúar nor- rænna bókmennta. Olofs Gagercrantz Flestum íslendingum mun svo farið sem þeim er þess- ar linur skrifar: við þekktum ekki rithöfundinn Lager- crantz Norðurlönd eru reynd- ar ekk' alltaf jafn nálæs hvert öðru og við hefðum máske viljað Fn nú þekkjum við nafn hans að minnsta kosti. Og við höfum heyrt þá ræðu sem hann flutti við af- hendingu bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs nú i vikunn I Istuttri ræðu, mæltri fram við hátíðlegt tækifæri, kemst færra til skila en við gjarna vildum. En þessi ræða Lagercrantz verður okkur engu að síður skemmtileg lýsing á aðlaðandi og sterk- um persónuleika, glöggsýn- um húmanista, einlægum ást- manni skáldskaparins. Og honum tókst furðuvel í stuttu máli, að tengja sam- an það verk um Dante, sem verðlaunin voru veitt fyrir og trú sína á gildi skáldskapar- ins Hann minntist á það, að Dante og samtíð hans hafi litið á móður náttúru og sög- una eins og stórkostlegt rit- verk frá hendi drottins. Þeim var ekki nóg að sjá og finna. segir hann, þeir vildu skilja Allt sem skapað er á iörðn á sér sína eigin og sjálfstæðu merkingu. sem er æðri og meiri en það sjálft. Okk- ur eru sköpunarverkin einn- ig bending. þó við trú- um ekki á guð Við skilj- um það þegar við horf- um á stjömurnar, að okkur ber að reyna áð skapa með sjálfum okkur innri stjömu- heim. En til að ævintýri hins innra stjömuheims geti haf- izt, til að listimar verði óum- deilanlegur þáttur af okkur 'iálfum — til þess Þarf viss- H6ÐVILIINN Sunnudagur 21. febrúar 1965 við útvarps-eðlisfræðistofnun háskólans í Gorki. Það var því að þakka að þetta þótti tiltækilegt að komnar voru fram nýjar útvarpsfirðsjár, sem taka millimetrasambandið. Sá heitir A. Kisljakof, sem rann- sóknimar gerði og er hann magister f eðlisfræði og stærð- fræði, en samverkamenn hans heita L. Fedosjév og A. Nau- mof. Fyrstu mælingar, sem mark var á takandi, voru gerðar þegar tunglið myrkvað- ist 6. júlí 1963. Þær voru svo hafðar til hlið- sjónar við nýjar mælingaað- ferðir, sem hafðar hafa verið síðan, þegar tunglmyrkvar eru athugaðir. Hinn fyrsti var 24. júní 1964 og hinn síðasti 19. desember 1964. 1 öllum j>essum rannsóknum tóku þátt margir vísindamenn frá útvarpseðlis- fræði- rannsóknarstofnuninni. Það kom í ljós, að mikil lækkun varð á magni útvarps- geislunarinnar. Rannsóknin leiddi í ljós gersamlega ó- þekkta hluti viðvíkjandi á- standinu í efsta laginu á yfir- borði tunglsins, hinu svokall- aða „lunit’’-lagi. Það sannaðist, að þunnt lag, sem liggur efst, l&iðir útvarps- bylgjur allt að því helmingi betur en efni þau, sem neðar eru. Eins og kunnugt er, er hinn virki leiðnistuðull hvers efnis háður efnafræðilegri samsetningu þess. Með því að betra saman leiðni þá sem mældist í „lunit’’-laginu og leiðnina á sömu bylgju- lengd hjá ýmsum steintegund- um hér á jörðinni, þióttust þeir verða þess vísari, að efsti hluti „lunit’’-lagsins sé samsettur úr venjulegum steintegundum, svo sem eldfjallaösku, móbergi og blágrýti mjög blönduðu járn- kalk- og kalíumildi. Einnig kunna að finnast þarna loft- steinar úr grjóti eða jámgrýti. Ef til vill er yfirborð tunglsins úr gljúpu, samanhnoðuðu loft- steinaryki, sem hefur verið að falla á tunglið um miljónir ára. Litlir loftsteinar úr jám- grýti kunna einnig að hafa átt mikinn þátt í myndun jám- ilda á yfirborði tunglsins. Það er raunar ekki óhugs- andi, að hin mikla leiðni á yf- irborði þess geti staðið í sam- bandi við hið sífellda aðstreymi af prótónum að yfirborðinu og áhrifum frá jóniseruðum geislunum utan úr geimi. Sænskur námsstyrkur Samkvæmt tilkynningu frá sænska sendiráðinu í Reykjavík hafa sænsk stjómarvöld ákveð- ið að veita Islendingi styrk til náms í Svíþjóð skólaárið 1965- 1966. Styrkurinn miðast við átta mánaða námsdvöl og nemur 600.00 sænskum krónum, þ.e. 700. 00 krónum á mánuði Ef styrk- þegi stundar nám sitt í Stokk- hólmi getur hann fengið sér- staka staðaruppbót á styrkinn. Til greina kemur að skipta styrknum milli tveggja eða fleiri umsækjenda, ef henta þyk- ir. Umsóknir sendist menntamála- ráðuneytinu, stjómarráðshúsinu við Lækjartorg, fyrir 1. apríl n. k. og fylgi staðfest afrit próf- skírteina og meðmæli. Umsókn- areyðublöð fást í menntamála- ráðuneytinu og hjá sendiráðum íslands erlendis. (Frá menntamálaráðu- neytinu). tökuskilyrðunum, þannig að boðin frá tunglinu rangfærast á ýmsan hátt. Til þess að kom- ið verði í veg fyrir þetta þarf fyrst og fremst að sjá um að hátíðnimagnari útvarpsfirð- sjárinnar vinni verk sitt stöð- ugt og jafnt. Á millimetrabylgjunum, sem koma frá yzta laginu í yfir- borði tunglsins, gerist meiri Iækkun á magni útvarpsgeisl- unarinnar meðan á tungl- myrkva stendur (allt að þvi 20—25%). Ekki auðveldar þetta mælingarnar, því að viðtöku- tækin eru miklu ónæmari fyr- ir millimetrabylgjum en sentí- metrabylgjum. Auk þess drekk- ur lofthjúpur jarðarinnar í sig millimetrabylgjurnar í miklu ríkara mæli en sentímetra- bylgjurnar. Þess vegna eru slíkar athuganir oftast nær gerðar í háfjöllum, 3—5 km ofan við sjávarmál. Árið 1963 voru hafnar mæl- ingar á geislum tunglsins bæði við tunglmyrkva á millimetra- bylgjum og sentímetrabylgjum Merkjasöludagur Kvenna- deildar SVFR í dag Hinn árlegi merkjasöludagur Eins og að undanfömu rennur Kvennadeildar Slysavamafélags- allur ágóði af merkjasölunni til ins i Reykjavik er í dag starfsemi S.V.F.l. og nú í ár sér- s-unnudag, sem er Góudagurinn. staklega til kaupa á þyril- 1 dag verða því merki deild- vængju. arinnar afhent sölubömum í öll- Það eru vinsamleg tilmæli um bamaskólum borgarinnar og Kvennadeildarinnar til foreldra einnig í Sjómannaskólanum, að leyfa bömunum að selja merkjasalan hefst klukkan 9 ár- merkin, og styrkja þannig gott degis. málefni. Olof Lagercrantz og Karle Blrger Blomdahl cftír afhendingu norrænna bókmcnnta- og tónlistarv crðlauna á þrit'Judag. um skilyrðum að vera full- nægt. Lagercrantz tekur und- ir þau orð Dantes, að það sé tilgangurinn með lífi manns- ins, að hann geti þroskað með sér allt sem í honum bj.- af tilfinningum og gáf- um. Til þess að svo megi verða, þarf friður að ríkja, menn verða að vera frjálsir undan amstri og erfiði brauð- stritsins. Til að aevintýrið mikla geti hafizt þurfum við frið og frelsi undan brauðstriti — þessi orð eru lesin yfir ábyrg- um fulltrúum þeirra þjóða, sem þrátt fyrir allt þekkja einna bezt allra þjóða bless- un friðarins og einna sízt hafa áhyggjur af daglegu brauði, Þetta er ágæt kenn- ing, og auðvitað verða fáir til að mótmæla henni. En hún getur vakið upp ýmsar spurn- ingar sem sjálfsagt yrði erf- itt að svara. Því miður hefur því aldrei verið svarað á full- nægjandi hátt, hvaða þjóðfé- lagslegar forsendur eru lík- legar til að tryggja -það að sköpunarverk listrænt standi með blóma. Við höfum máske ákveðnar grunsemdir, en það er erfitt að fá á þeim sann- færandi staðfestingu. Og um framtíð skapandi listar á hin- um tiltölulega farsælu Norð- urlöndum vitum við auðvitað ókaflega lítið. En Lagercrantz minnist líka á aðra hlið þessa máls, þá hlið sem er um margt auð- veldari, sem að minnsta kosti er auðveldara að ræða um á málþingum. Hann segir: Mér hafa verið veitt verðlaun fyr- ir listina að lesa bók og það gleður mig. Ljóðið er til þótt margir eigi bágt með að t-úa bví. Hinn ■guðdómlegi glcði- leikur Dante, Njálssaga! Sjö bræður Kivis, kvæði Werge- lands, leikrit Strindbergs og ævintýri Andersens eru sam- timabókmenntir. Gangið að bókahillunni og þér munuð sjá að bækumar standa þama hlið við hlið. Takið þær niður og þér munið sjá að orð þeirra tala sínu máli enn í dag. Ganga Dante um Víti, Hreinsunareldinn og Paradís var ekki gengin einu sinni, heldur í hvert sinn sem einhver fylgir honum eftir. Listin að lesa er þess vegna listin að skilja að látn- ir lifa . Listin að lesa, að vekja hina dauðu, er ein hinna nauðsynlegu greina listarinnar ■ . • Listin að lesa — vissulega er hún ekki ómerkur þáttur i því mikla ævintýri sem Lagercrantz ræðir um og vildi að sem flestir okkar rötuðu í. Og það hlýtur að vera miklu fleirum en hon- um sjálfum ánægjuefni, að þessi list hefur nú verið heiðruð að nokkru. Huesjóna- menn, sem láta sig dreyma um gullaldarríki í framtíð- inni, útópistar, eru margir hverjir djarfir menn; sumir hafa látið í ljós vonir um bjóðfélag þar sem allir skapa. Látum svo fjarlæga hluti ó- rædda aö sinni. Hitt er svo annað mál, að þeir sem hafa lært hina merku list Lager- crantz, listina að lesa, þeir hafa vissulega feneið aðild að sköpunarstarfi. Útbreiðsla þeirrar listar, fastur sess hennar í þjóðfélaginu — betta er verkefni, sem í þeim löndum er hér héldu þing, er bæðí brýnt — raunhæft. Á. B. I I ! I !

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.