Þjóðviljinn - 23.03.1965, Side 1
dmiinn
Þriðjudagur 23. marz 1965 — 30. árgangur — 68. tölublað
Hvað er apartheid? — 7. síða
Árni Bergmann: Menn og menntir
— 6. síða
Viðurkennt í Washington
Bandaríkin beita eiturgasi í
stríðinu í Suður- Vietnam
Nýjar loftórásir á staði í
Norður-Vietnam um helgina
SAIGON OG WASHINGTON 22/3 — Sú frétt sem
borizt hafði frá Saigon var staðfest í Washington
í dag, að Bandaríkjamenn notuðu eiturgas í hern-
aði sínum í Suður-Víetnam. Bandarískir talsmenn
hafa varizt allra frétta þegfar þeir hafa verið spurð-
ir hvaða gas væri um að ræða, aðeins sagt að það
væri ekki banvænt. Bandarískar og suðurvíet-
namskar flugvélar gerðu enn um helgina loftárás-
ir á staði í Norður-Víetnam.
Varðskipið Óðinn
búið myndratsjá
— eitt af 15 fyrstu skipunum í heimf!
□ Landhelgisgæzlan hefur nú látið koma fyrir í Óðni
svokallaðri myndratsjá og mun Óðinn eitt 15 skipa 1 víðri
veröld, sem hafa slíkt tæki. Myndratsjáin hefur einkum
4>þýöingu sem sönnunargagn fyrir landhelgisdóminn.
Fréttin um að Bandaríkjamenn
hefðu notað eiturgas í Suður-
Vietnam var fyrst höfð eftir tals-
manni bandarísku herstjómar-
innar í Saigon. Hann harðneitaði
að segja hvers konar gas væri
um að raeða og hann neitaði
einnig að segja nokkuð um hvort
gasið væri enn notað.
— í>etta er gas sem veldipr
óþægindum og er notað þegar
miklar róstur eru, sagði tals-
maðurinn í Saigon og annað
höfðu blaðamenn ekki upp úr
honum.
f Washington hafa talsmenn
landvarnaráðuneytisins sagt að
gasið sem um ræðir sé ekki
banvænt. Það sé notað til að
„koma í veg fyrir að óbreyttir
borgarar séu beittir ofbeldi“.
Þeir eru sagðir benda á að í
fréttinni frá Saigon hafi verið
sagt að gasið hafi verið notað
í hemaðaraðgerðum þegar
„skæraliðar Vietcongs hafi dreift
sér meðal óbreyttra borgara eða
hafi ætlað að taka þá höndum“,
og af því má ráða að gasið
hefur ekki verið notað í eigin-
legum bardögum, heldur hefur
því verið sáldrað yfir byggðar-
íög þar sem skæruliðar hafast
við, en þeir hafa sem kunnugt
er meirihluta landsins á valdi
sínu.
Isinn rekur
nær landi
Samkvæmt upplýsingum Veð-
urstofunnar í gærkvöld var
norðvestan átt fyrir norðan
og norðaustan land í gær og
rekur ísinn til suðvesturs og
færðist hann heldur nær land-
inu. í skeyti frá Grímsey kl.
5 síðdegis í gær sagði að það-
an sæist samfelld ísbreiða frá
norðvestri til austurs 4—6
sjómílur undan landi og rak
hana hægt til suðvesturs.
Við Horn og Langanes var
ísinn svipaður og undanfarna
daga en hann rekur þar fram
og aftur og er landfastur
annað slagið. í gær var ísinn
farið að reka suður með
Austurlandi allt suður undir
Glettinganes og er sigling
viðsjál á þessum slóðum nema
í björtu.
Samkvæmt frásögn norsku
fréttastofunnar NTB sem hefur
frétt sína eftir Keuter virðast
talsmenn bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins hafa farið undan
í flæmingi þegar þeir voru
spurðir um þessa eiturgasnotkun
Bandaríkjamanna enda er notk-
un eiturgasg í hemaði bönnuð
í alþjóðasáttmála. Við spumingu
um hvort Bandaríkin legðu til
eiturgasið var svarið að það
yirtist augljóst mál, en viður-
kennt var að þyrlum sem dreifa
eiturgasinu væri stjómað af
bandarískum flugmönnum.
Nýjar loftárásir
Á sunnudag gerðu sprengju-
Clugvélar stjórnarinnar í Saigon
studdar bandarískum orustuþot-
um miklar loftárásir á skotmörk
í Norður-Vietnam. Þetta var
fjórða árásarferðin á átta dög-
um.
26 sprengjuflugvélar af gerð-
inni Skyraider réðust á stöðvar
um 30 km. fyrir norðan 17.
breiddarbauginn sem skiptir
Vietnam. Sprengjum var varpað
á um 40 byggingar við Vu Cong
og skotið úr byssum á þær.
Bandarísku orustuþoturnar sem
voru með í ferðinni skutu eld-
flaugarskotum á loftvamavirki.
í dag réðust svo bandarrísk-
ar þotur á radarstöð um 95 km
frá landamærunum. Viðurkennt
er að ein bandarísku árásarflug-
vélanna hafi verið skotin niður,
en sagt að þyrla hafi bjargað
flugmanninum.
Viðureign við Da Nang
Samtímis loftárásinni á Norð-
ur-Vietnam í dag voru hersveitir
Saigonstjómar sendar gegn
skæruliðum þjóðfrelsishersins í
næsta námunda við Da Nang,
þar sem Bandaríkjamenn hafa
mestu flugstöð sína í Suður-Viet-
nam. en hennar er nú gætt af
nokkur þúsund landgönguliðum
flotans, Um 60 bandarískar her-
þyrlur voru sendar með hermenn
Saigonstjómarinnar eina 20 km
frá Da Nang, en aðrir fóru
landleiðina. Ekkert hefur nánar
spurzt af þessari viðureign, en
Bandaríkjamenn hafa óttazt rð
skæruliðar væru að undirbúa
meiriháttar áhlaup á Da Nang.
Sagt er að þeir hafi komið
fyrir 105 mm fallstykkjum þar
í grenndinni.
Hörð gagnrýni
Brezka blaðið „Guardian“ fer
Framhald á 9. síðu
Fréttamenn vora í gær boðnir
út f varðskipið Óðin, en þar
var til sýnis myndratsjá sú, sem
getið hefur verið í fréttum í
sambandi við töku togarans
Bradman GY frá Grimsby fimm
mílur innan við fiskveiðilögsögu-
mörkin út af Stigahlíð við Isa-
fjarðardjúp 18. marz sl. 1 þetta
skipti var skipið í reynsluför en
atvikin höguðu því svo til að
togarinn var tékin í sama skipti.
Pétur Sigurðsson forstjóri
skýrði hið nýja tæki út fyrir
blaðamönnum. Sagði hann, að
það væri nánast útfærsla á rat-
sjánni sjálfri. Þetta er myndavéb
sem tekur mjmdir af ratsjárskif-
unni á fárra sekúndna fresti og
inn á myndina kemur svo
klukka, dagsetning o.fl. svo unnt
er að sjá staðsetningu landhelg-
isbrjótsins nákvæmlega út. Að
sjálfsögðu kemur tækið fyrst og
fremst að gagni, er framvísa
þarf sönnunum fyrir dómi og
eru myndir þessar hinar ákjós-
anlegustu í því skyni.
Það var árið 1961, að Iand-
helgisgæzlan fékk nasasjón af
því, að enskir ynnu að slíku
tæki við teikniborð og það hjá
sama fyrirtæki og framleitt hef-
ur ratsjámar í mörg varðskip-
anna þ.á.m. Óðin. Strax og full-
ljóst var, að hafin yrði fram-
leiðsla á myndsjánum var ákveð-
Framhald á 9. síðu.
<0
Þetta er mynd úr mynd-
ratsjá Óðins. Hvíti litur-
inn er Reykjavík.
MenntamálaráÍherra kvartar vegna
,misskilnings' utan þingdagskrár
Menntamálaráðherra kvaddi sér hljóðs utan dag-
skrár í efri deild Alþingis í gær og kvartaði undan
„misskilningi“ á ummælum sínum um kvikmynda-
eftirlit og sjónvarpið á Keflavíkurflugvelli. Eink-
um bar ráðherra sig illa að því er virtist vegna um-
mæla Þjóðviljans, en þau voru einungis byggð á
frásögn Alþýðublaðsins, Aðalbjargar Sigurðardótt-
ur og Guðjóns Guðjónssonar. Ráðherrann hrakti
ekki orð Aðalbjargar og Guðjóns svo að „misskiln-
ingurinn“ hlýtur að skrifast á reikning Alþýðu-
blaðsins!
Gylfi Þ. Gíslason kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár á Alþingi
í gær í tilefni skrifa Þjóðviljans
um orð hans þess efnis að hann
vissi ekki til að í Keflavíkur-
sjónvarpinu hefðu verið sýndar
myndir, sem bannaðar mundu
hafa verið í kvikmyndahúsum
í Reykjavík.
í frásögn Þjóðviljans var sú
ályktun dregin, að menntamála-
ráðherra vissi um að ósæmilegar
myndir hefðu verið sýndar í
Keflavíkursjónvárpinu m. a.
vegna þess að Guðjón Guðjóns-
son kvikmyndaeftirlitsmaður
tjáði blaðinu, að hann hefði af-
hent fcrmanni menntamála-
nefndar neðri deildar, Benedikt
Gröndal, flokksbróður Gylfa,
lista yfir 10 myndir sem hefðu
verið sýndar í Keflavíkursjón-
varpinu en hofðu aldrei fengizt
sýndar börnum í kvlkmynda-
Gylfi Þ. Gíslason
húsum hér. Ráðherrann fullyrti
hins vegar, að hann hefði ekk-
ert um þennan lista vitað.
Ekki hrakti ráðherrann á
neinn hátt, það sem Þjóðviljinn
sagði, um þetta mál, enda vitn-
isburður blaðsins byggður á upp-
lýsingum Aðalbjargar Sigurðar-
dóttur og Guðjóns Guðjónssonar,
sem annazt hafa kvikmyndaeft-
irlit hér um tíma og frásögn
Alþýðublaðsins.
Sagði ráðherra síðan, að það
væri fullkomlega á valdi ís-
lenzkra stjórnarvalda að banna
myndir í hermannasjónvarpinu
og endurtók síðan ummæli sín
frá umræðunum fyrir helgina,
sem hann taldi, að hefðu verið
misskilin.
Hafísinn hindrar
nú útgerð
á Skagaströnd
Ljótt er nú ástandið hjá þeim
Skagstrendingum. Ofan á lang-
varandi verkfall bætist nú haf-
ís, sem kemur í veg fyrir allar
fiskveiðar. Hefur ekkert fiskazt
á Skagaströnd í mánuð. Þá er
olíulítið á staðnum og mikill
kuldi af völdum íssins.
Má segja að þar nyrðra jaðri
við hreint neyðarástand.
i