Þjóðviljinn - 23.03.1965, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 23.03.1965, Qupperneq 2
2 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. marz 1965 FISKIMÁL - Eftir Jóhann J. E. Kúld Síldarflutninga þarf ai undirbúa ffyrir sumarið Flutningur á síld til hagnýt- ingar i salt og í bræðslu hafa mikið verið til umræðu nú á þessum vetri og er það að von- um. Á sumarsíldveiðum er hver afladagur dýr, og veltur á miklú að hann sé vel hagnýtt- ur. Ef skip tefjast að óþörfu frá veiðum sökum þess að þau losna ekki við aflann í nær- liggjandi höfnum, þar sem sölt- unarstöðvar, verksmiðjur hafa ekki undan, þá verður að leita annarra úrræða. Við þekkjum slíkt ástand, það hefur endur- tekið sig hér hvert einasta sum- ar í miklum síldarárum. En þrátt fyrir þessa bitru reynslu, þá eru þeir lærdómar sem af henni hafa verið dregnir harla litlir. Skipulagsmál þessa mik- ilvirka atvinnuvegar, sem þjóð- arbúskapur okkar oft stendur eða fellur með, virðist ennþá í dag vera í ótrúlega miklum molum. Sé síldin á Austfjörðum og vinnslustöðvar hafi þar ekki undan þá vantar öll úrræði til að flýtja bræðslusíld til Norð- urlandshafna til vinnslu þar. Þannig hefur þetta verið. Þó hafa Norðmenn í tugi ára flutt og skipulagt flutninga á síld heima hjá sér að vetrarlagi og þá farið með hana ekki skemmri vegalengdir, heldur en hér þarf að gera. Og um margra ára skeið hafa þeir flutt bræðslusíld af sumarsíldarmið- unum hér við land, bæði á veiðiskipunum sjálfum og flutn- ingaskipum sem fermd hafa verið á hafi úti. Ég held því að reynsluna skorti ekki á þessu sviði ef menn vilja eitthvað af henni læra. Flutningar á bræðslusíld þurfa ekki að vera vandamikið mál, það þarf aðeins einhvem aðila sem skipuleggur þessa flutninga og stendur ábyrgur fyrir því að þeir séu fram- kvæmdir þeghr með þarf. I í veiðihrotum bíða sildarskipin oft langtímum löndunar. Að beygjí ja sig 1 hinu tætingslega Reykja- víkurbréfi sem Bjami Bene- diktsson sendi frá sér í fyrra- dag er að finna kafla sem heitir „Góðir gestir”. Þar eru talin upp nöfn nokkurra kunnra manna sem eiga það eitt sameiginlegt að þeir hafa einhvem tíma stigið fæti á ls- land. Er forsætisráðherra ekki sízt hugleikið að ,,nú fyrir ; nokkrum dögum mátti lesa um, að hershöfðingi að nafni Karch, foringi landgöngulið- anna, sem Bandaríkjastjóm nýlega sendi til Suður-Viet- nam, hefði á sínum tíma dvalizt um skeið á Islandi, sennilega þegar Bandaríkja- menn komu hingað fyrst 1941. Þá hefur hann verið ungur að árum og er ólíklegt, að nokk- ur hér minnist hans síðan”. Enda þótt Karch þessi hafi ekki látið eftir sig nein spor hérlendis er hann engu að síður flokkaður til „góðra gesta“, og geta gæðin þá ekki verið fólgin í öðru en því að forsætisráðherra Islands finnst hann þannig eftir krókaleið- um komast í persónulega snertingu við hina saurugu styrjöld Bandaríkjamanna í Vietnam. Er slíkt harla ein- kennilegt og ógeðfellt keppi- ReffC En kannski er gleði Bjama Benediktssonar yfir því að hafa um skeið dvalizt í nám- unda við þann mánn sem nú stjórnar morðárásum í Viet- nam hugsuð sem hæfilegur aðdragandi að annarri setn- ingu í sama pistli: „í marg- háttuðum samskiptum Banda- ríkjanna og Islands síðustu 25 ár, hafa Bandaríkin, sem eru voldugusí allra, aldrei látið lsland, sem er fámenn- ast hinna Sameinuðu þjóða, kenna aflsmunar”. Islending- ar eiga trúlega að þakka Bandaríkjunum þá mildi að þau skuli þó ekki senda Karch hingað aftur eftir að hann er orðinn fullnuma í starfi sínu, svo að við losnum við að verða fyrir sprengju- árásum og loga í benzínhlaupi þess ríkis sem’ er „voldugast allra”. Hitt er algert ranghermi að samskipti Bandaríkjanna og Islands séu til marks um mildi þeirra í valdbeitingu. Engujn dettur í hug að ráða- menn Bandaríkjanna beiti aðrar þjóðir ofbeldi af ein- hverskonar sálsýki; nái þeir sinu fram án valdbeitingar eru þeir auðvitað allshugar fegnir, hvort sem reynir á afl þeirra í Vietnam eða á Is- landi. Og víst hafa Banda- ríkjamenn látið Islendinga fhma hverra væri rnátturinn og dýrðin, til að mynda þeg- ar ráðamenn hins volduga stórveldis neituðu því í stríðs- lok að standa við loforð Roosevelts forseta um brottför hersins frá landi hinnar minnstu þjóðar. Ólafur Thors lýsti þá yfir því að vegna afls- munarins hefði hann neyðzt til að gera Keflavíkursamning- inn. Síðan er Bjarna Bene- diktssyni og ýmsum öðrum forustumönnum íslenzka rík- isins orðið svo tamt að beygja sig fyrir valdinu, að þeir eru famir að líta á þær stellingar sem hið qðlilega ástand. — Austri. Noregi ber ábyrgð á þessum málum Síldarsamlagið sem er sameiginlegur félagsskapur út- gerðarinnar og sjómanna, enda eiga norskir sjómenn mikið meira en helming allrar fiskút- gerðar þar í landi og ekki sízt af þeim sökum hefur verið tek- ið með meira viti og þekkingu á þessum málum þar heldur en hér. Sem sagt, flutningar á bræðslusíld eiga ekki að vera neitt mikið vandamál í sjálfu sér. Þeir eru frekar skipulags- legt og fjárhagslegt atriði, sem þó á að vera hægt að leysa á hagkvæman hátt ef að því er gengið af viti og manndómi. Flutningar á söltun- arsild erfíðari Vmsir hafa spurt mig, hvort ég 'áiíti -gerlegt að flytja söltun- arsíld frá Austfjarðamiðum til Eyjafjarðarhafna og Siglufjarð- ar. Þessari spumingu svara ég hiklaust játandi, hvað við kem- ur gæðunum á hráefninu. Hins vegar mundu slíkir flutningar verða talsvert dýrari heldur en þegar um síld í bræðslu er að ræða. En óefað má lækka þenn- an kostnað, sé málið rétt upp tekið frá byrjun. Hér á eftir mun ég rifja upp nokkur úr- ræði til að koma síldinni ó- skemmdri á áfangastað. Ég vil þá byrja á elztu aðferðinni, hún er einföld og fyrir henni er meira en hálfrar aldar reynsla. En þessi aðferð er sú að „skúffa” síldinni, orðið að „skúffa” er komið úr norsku. Norðmenn innleiddu það i ís- lenzkt mál þegar þeir hófu hér síldarsöltun um aldamótin. Þeg- ar síld er skúffuð, þá er henni mokað upp í tunnur, eins og hún kemur úr sjónum og salti kastað í tunnuna með hverjum mokstursháfi. Þannig er hægt að flytja síld til söltunar hvert á land sem vera skal. Fyrir því er gömul reynsla, sem þómarg- ir virðast vera famir að gleyma á þessum hraðfleygu tímum tæknialdar. Þessi aðferð var aðallega notuð á erfiðum sfld- arsumrum, þegar lítil veiði var. Skip sem fengu smáslatta skúffuðu þá síldinni í tunn- ur, svo að þau þyrftu ekki að fara strax að landi með hana. Eftir að Norðmenn hófu hér söltun á síld á opnu hafi, þá var þessi aðferð oft notuð *tii i að bjarga síldinni þegar veður 1 spilltist og skip voru með sfld ■ á þilfari. Þannig var þáj^^in j geynid í fáa daga þar til hægt var að hausskera hana eða kverka og leggja niður í tunn- ur. Síld sem hafði verið skúff- að var alltaf pækluð með full- sterkum pækli væri hún hálf- an sólarhring eða lengur geymd til verkunar. Fæling á sfldinni Sé hægt að kæla síld niður í 0 gráður á Celsius strax eftir að hún er dauð, þá er með því hægt að margfalda geymsluþol hennar sem hráefnis. Það er ekki nema svo sem áratugur síðan rússneskur efnaverkfræð- ingur uppgötvaði það að kæl- ing sem framkvæmd er nógu snemma getur haft úrslitaáhrif á gæði vörunnar og bragð. Fram að þeim tíma voru Rúss- amir lengi búnir að glíma við( að sjóða niður hraðfrystar sar- dínur, en árangurinn varð sá að sardínan var ekki jafn bragðgóð eins og þegar hún var soðinn niður alveg ný upp úr sjónum. Rússamir dældu sar- dínunni frá nótinni með fisk- dælu. Þegar þeir höfðu upp- götvað mátt kælingarinnar á undan frystingunni, þá komu þeir fyrir kæliútbúnaði í sam- bandi við dælinguna. Með þess- ari aðferð fengu þeir sardínuna með sama bragði eins og hún var soðin niður strax fersk upp úr sjó. Síðan hafa menn sannfærzt 68í tói <S> - auðvitað veljið þér i :i :ri Sjónvarp. Án hurða: kr, 20.935,00 Með hurð: kr. 22.375,00 Sjónvarp með FM-útvarpi. Án hurða: kr. 24.845,00 Með hurðum; kr. 26.235,00 JEJTJTTJRA. BELUA ' s Sjónvarp með FM útvarpi og STEREO-plötuspilara. Verö kr. 32.400,00. BELLA MUSICA 997 Flötuspilari með FM-útvarpi, verð kr. 6.250,00 tooi WaOVAdOONVBM-IH Segulbandstæki með þremur hröðum, verð kr. 9.300,00. úm það betur og betur, víðs- vegar um heim, að kælífi^' áetn framkvæmd er nógu snemma, hún getur haft úrslitaáhrif um gæði og geymslu á fiski og sfld. Síld sem kæld væri niður í 0 gráður á Celcius strax og hún hefði verið veidd, t.d. á Aust- fjarðamiðum, hana á að vera auðvelt að flytja í kældri lest, eða ísvarða til hvaða hafnar sem vera skal á Norðurlandi til vinnslu, hvort sem er í frystingu eða salt. Ég held Iíka að ég muni það rétt, að í fyrra- sumar, áður en sfldarsöltun hafði verið leyfð, þá lét kunn- ur athafnamaður flytja sfld til söltunar á Siglufirði frá Aust- fjarðamiðum og voru þeir flutningar sagðir hafa tekizt vel. En einmitt sú síld var kæld niður með ís. Væru slíkir flutningar fram- kvæmanlegir sökum kostnaðar? Það er mjög eðlilegt að um það sé spurt. Náttúrlega hafa slíkir flutningar talsverðan kostnað í för með sér framyfir það að geta hagnýtt sfldina til manneldis á nærliggjandi höfn- um við veiðisvæðið. Af þeim sökum mundu þeir ekkj koma til greina, svo lengi sem haegt væri að losna við síldina á næstu höfnum í salt. En setj- um nú svo, að skip kæmi með góða söltunarsíld og hvergi væri hægt að losna við hana í salt á höfnum f nánd við veiðisvæðið sökum anna, en á- ríðandi að fá þessa síld upp í gerða samninga. Hvað væri þá eðlilegra en að hafa einhver úrræði með að flýtja 'hana þangað sem söltunarstöðvar biðu með fólk og aðstöðu til að taka á móti henrti? Ég held að ekkert væri eðlilegra. 1 slíku tilfelli sern þessu, ber ekki að einblína á kostnaðar- hliðina eina. 1 fyrsta lagi yrði slfkur farmur unniö í saltsíld miklu verðmætari í"útflutningi, að öllum líkindum um helm- ingi hærri upphæð en þá sem flutningi nemur miðað við af- Frarohald á 9. síðu. t I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.