Þjóðviljinn - 23.03.1965, Side 3

Þjóðviljinn - 23.03.1965, Side 3
Þriðjudagur 23. marz 1965 ÞIÖBVILIINN SÍÐA Nýtt Rangerfar, Geminifar í dag KENNEDYHÖFÐA 22/3 — Enn einu Rangerfari (nr. 9) var í gær skotið til tunglsins frá tilraunastöðinni á Kennedyhöfða og á morgun, þriðjudag, er ætlunin að senda á loft Gemini-far með tvo menn innanborðs. Þegar síðast fréttist var Rang- er 9. á réttri leið og átti að hæfa tunglið í nágrenni við ákvörðun- arstaðinn á miðvikudagsmorgun. Ranger 9. hefur meðferðis sjón- varpstökuvélar og mun sem fyr- irrennarar hans senda myndir til jarðar af yfirboði tunglsins. Ferðinni er heitið til gígs sem nefnist Alphonsus og er um 100 km að þvermáli, en fjallshlíð- amar um 3.000 metra háar, og telja sumir stjömufræðingar sig hafa orðið vara við eld í honum. Geimfarið Á morgun, þriðjudag, er ætl- unin að loks verði úr því að Bandaríkjamenn sendi á loft hið svonefnda Gemini-far með tvo menn innanborðs, þá Virgil Grissom og John Young, en upp- haflega stóð til að sú ferð yrði farin á síðasta ári og henni hef- ur verið frestað aftur á síðustu vikum. Nokkrar horfur voru þó á því í dag að henni yrði enn frestað, þar sem veðurútlit var Gangan mikla í Alabama frá Selma til Montgomery hafín Þúsundir hermanna gœta göngufólksins ó leiðinni, göngunni á aS Ijúka í Montgomery á fimmtudag SELMA 22/3 — Þúsundir manna lögöu í gær upp í hina miklu göngu sem mannréttindasamtök blökkumanna standa fyrir frá Selma til Montgomery, höfuðborgar Ala- bamafylkis. Johnson forseti hefur skipað fjölmennu her- liði að gæta göngumanna á leiðinni, en húii er 80 km löng og ætlunin að göngumenn komi til Montgomery á fimmtudaginn. Virgil Grissom og John Young. ekki talið gott. Ætlunin er að þeir Grissom og Young fari þrjár ferðir umhverfis jörðina. Leonof og Beljaéf verða í Bajkonor nokkra daga enn MOSKVU 22/3 — Sovézku geim- fararnir Beljaéf og Leonof eru nú , komnir til geimrannsóknar- stöðvarinnar við Bajkonor í Kasakstan í Mið-Asíu og munu þeir dveljast þar nokkra daga meðan gerðar verða á þeim at- huganir til að ganga úr skugga um að þeim, og þá sérstaklega Leonof, hafi ekki orðið neitt meint af ferðinni út í geiminn. Frá þeim stað þar sem þeir lentu Voskod XI fóru þeir til bæjarins Perm í UralfjöIIum og ræddu við fréttamenn á flug- vellinum þar áður en þeir héldu suður til Bajkonor. — Ég gat séð allt mjög greinilega, sagði Leonof. Spurningum blaða- manna hvemig honum hefði verið innanbrjósts þegar hann steig út í geiminn svaraði Le- onof: — Ég vissi svo sem að ég myndi ekki hitta neinn sem ég þekkti. „Pravda“ segir að læknir einn og trésmiður hafi fyrst komið að geimförunum eftir að þeir voru lentir og höfðu þeir farið á lendingarstaðinn á skíðum. Johnson forseti skipaði fylkis- hernum í Alabama að gæta göngumanna og þúsund manna liði úr Bandaríkjaher sem er í herbúðum í Georgia hefur einn- ig verið sagt að vera við öllu búið. Forsetinn gerði þetta eft- ir að Wallace fylkisstjóri hafði lýst yfir að hann treysti sér ekki til að láta vemda göngu- menn. 1 göngunni taka þátt menn víða að úr Bandaríkjunum, hvítir menn og svartir, en í fararbroddi þegar lagt var á stað frá Selma voru ýmsir helztu forvígismenn í mannréttinda- baráttu blökkumanna; þar var einnig dr. Ralph Bunche, vara- framkvæmdastjóri S. Þ. Fyrsti áfanginn var stuttur því að numið var staðar skammt frá Selma þar sem vopnuð lög- regla réðst gegn göngumönnum fyrir hálfum mánuði. Þar voru beðnar bænir og haldinn fund- ur og þar héldu margir kyrru Auðhringar i Bandarikjunum uðstoða stjórn Verwoerds WASHINGTON 22/3 — Formað- ur apartheid-nefndar Sameinuðu þjóðanna, Gíneufulltrúinn Achk- ar Marof, fór í dag hörðum orð- um um bandarísk auðfélög sem lyfta undir stjóm Verwoerds í Suður-Afriku og stuðla að kyn- þáttakúgun þar. Marof sem talaði á ráðstefnu í Washington gegn kynþáttaof- sóknunum £ Suður-Afríku sagði að stórveldin hefðu fram að bessu ekki tekið málefni Suður- Afríku föstum tökum þrátt fyrir ítrekuð tilmæli Sameinuðu þjóð- ahna um að beita stjómina þar efnahagslegum refsiaðgerðum. Það væri ekki einungis að þesum tilmælum hefði ekki ver- ið sinnt, heldur hefðu bandarísk auðfélög veitt stjóm Verwoerds mikinn stuðning með því að stór- auka fjárfestingu sína í Suður- Afríku. Meðal þessara félaga væru General Motors, Chrysler, og Caltex-olíuhringurinn. fyrir um nóttina. En í dag var aftur haldið af stað. Göngumenn voru nú miklu færri en í gær, m.a. vegna þess að dómari kvað upp þann úrskurð að á nokkrum hluta leiðarinnar væri vegurinn svo mjór að ekki mættu nema 300 vera í göngunni þann spöl- inn. Það verða aðeins nokkur hundruð manna sem ganga alla leiðina, en búizt er við að mjög muni fjölga í hópnum þegar hann nálgast Montgomery á fimmtudaginn. I gær og aftur í dag fundust heimatilbúnar sprengjur sem hafði verið komið fyrir í svert- ingjahverfi í borginni Birming- ham í Alabama, skammt frá kirkju þeirri þar sem fjórar Xitlar blökkustúlkur biðu bana í sprengingu fyrir tveimur árum. Sprengjurnar voru gerðar ó- virkar, en þær munu hafa ver- ið stilltar þannig að þær spryngju samtímis því sem gangan í Selma hasfist. Ein sprengnanna fannst við hús þel- dökks lögmanns, Arthur Shores, en sprengjuárásir hafa tvívegis áður verið gerðar á heimili hans. Tvær aðrar sprengjur fundust við kaþólska kirkju og við verktakafyrirtæki. Meðan leitað var að sprengjunum var allt fólkið látið fara úr hverfinu. Aftur í dag fannst sprengja í svertingjahverfinu í Birming- ham, var hún gerð úr 50 dýna- mítskothylkjum sem tengd voru vekjaraklukku. Bæjarstjórnakosningar í Frakklandi Kommúnistar bættu við sig, en gaullistar fóru hrakfarir PARÍS 22/3 — Síðari lota bæj arstj órnakosning-anna í Frakklandi fór fram í gær og voru úrslit þeirra mikill ósigur fyrir flokk gaullista, UNR, sem höfðu gert sér miklar vonir um að vinna meirihluta í mörgum bæjar- félögum. Kosningalögunum hafði verið breytt til að ryðja gaullistum brautina, og í sama skyni hafði stærri borgum verið skipt nið- ur í kjördæmi á nýjan leik. Gaullistar töldu fyrir kosning- arnar víst að þeir myndu fá hreinan meirihluta í borgar- stjórn Parísar, en það fór á aðra leið. Kommúnistar og sósíaldemó- kratar höfðu sameiginlegan lista í París og einnig víða í útborg- um Parísar. Með þessari sam- vinnu tókst þeim að stemma stigu við framsókn gaullista, svo að þeir fengu aðeins 39 af 90 fulltrúum í borgarstjóm Paris- ar. „Alþýðufylking“ kommúnista FLÝGUR FiSKISAGA! iii Landbarbur af slld? Ball um næstu helgi? Nei, - nú talar allt plássið um vorfargföld Flugfélagsins. Flugfélagib býður 25% afslátt af fargjöldum til útlanda í apríl og maL Leitíð upplýsinga um lágu fargjöldin hjá Flugfélaginu e3a ferðaskrii'stofunum. - , y Vmfé/avr Jsfa/idsvj? ^ tCEJLANDAIR og sósíaldemókrata hlaut 38, en hinir ýmsu gömlu flokkar 13. Enginn flokkur hefur þannig meirihluta. Enn herfilegri urðu hrakfarir gaullista í Marseille. Þar höfðu þeir í upphafi stefnt að þvi að koma í veg fyrir endurkjör borgarstjórans, sósíaldemókrat- ans Gaston Deferre, sem hefur gefið kost á sér til framboðs á móti de Gaulle í forsetakosn- ingunum í haust. En afleiðingin af hinum breyttu kosningalög- um, þar sem sá listi fær alla kjörna í hverju kjördæmi sem flest fær atkvæðin í annarri lotu, varð sú að listi Deferre hlaut 41 af 63 fulltrúum í borg- arstjórn Marseille, en bandalag kommúnista og vinstrisósíal- demókrata fékk hina 22. Gaull- istar misstu hins vegar alla full- trúa sína í borgarstjórn Mar- Seille. Eftirmirinilegastan ósigur biðu gaullistar einnig í Grenoble, þar sem bandalag vinstri manna tók af þeim meirihlutann sem þeir unnu 1959. Kommúnistar höfðu þar dregið sinn lista til baka til að tryggja vinstri öflunum sig- ur. Meginniðurstöður kosninganna eru þær að sögn Reuters að þegar á heildina er litið hafa kommúnistar unnið á, miðflokk- arnir sem eru andvígir de Gaul- le hafa lifnað við aftur, en framsókn gaullista hefur verið stöðvuð. Lokakafíar endurminninga Ehrenburgs birtir íMoskvu MOSKVU 22/3 — í lokaköflum endurminninga sinna sem birtir voru í bókmenntaritinu „Novi Mír“ á laugardaginn segist 11 ja Ehrenburg vera hreykinn af því að vera af gyðingaættum. Hann kemst m.a. svo að orði: — Á meðan nokkur gyðinga- hatari er uppi á jörðinni, skal ég miklast af þvf að ég er gyð- ingur. Ég held enn að gyðinga- hatrið sé böl sem sé leifar frá fyrri tímum og að þetta böl muni hverfa úr sögunni eins og allir kynþáttafordómar. En nú veit ég að það mun taka mjög lang- an tíma að eyða aldagömlum fordómum úr hugum manna. Ehrenburg segir að á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina hafi hann jafnan verið ferðbúinn, eins og aðrir gyðingar í Sovétríkjun- um. Hann minnist þess að eitt sinn stóð í blaðafrétt að hann hefði verið handtekinn sem „þjóðníðingur" og „heimsborgari af versta tagi.” Hann kveðst þá hafa skrifað Stalín bréf og látið það í póstkassa í Kreml. Skömmu síðar hringdi Malénkof í hann og bað hann afsökunar fyrir hönd Stalíns. Indónesiustjórn jtjóðnýtir eignir erlendra olíufélaga DJAKARTA 22/3 — Starfsmenn bandarískra og hollenzkra olíu- félaga í Indónesíu biðu þess í dag að fulltrúar ríkisins kæmu til að taka við stjóm fyrirtækj- anna, en kunngert var fyrir helgina að allar eignir erlendra olíufélaga myndu þjóðnýttar. Samtök indónesískra vísinda- manna kröfðust þess í dag á sameiginlegum fundi sem hald- mn var £ Djakarta að öllum bandarískum prófessorum yrði vísað úr landi og að indónesísk- ir stúdentar sem stunda nám í Bandaríkjunum yrðu kallaðir heim. Þá hvöttu þeir stjóm landsins til að endurskoða af- stöðu sína til Bandaríkjanna. Meðal þeirra sem töluðu á fundi vísindamannanna var Sú- bandríó utanríkisráðherra sem hvatti þá til að forðast fyrir- myndir úr auðvaldslöndum. » 4 Á.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.