Þjóðviljinn - 08.04.1965, Blaðsíða 4
4 STÖA
Ctgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 90.00 á mánuði.
.. Ll
Undir kostnaðarverði
'r- •.
\ fundi þeim sem stúdentasamtökin í Reykjavík
héldu um stóriðju og erlent fjármagn benti Sig-
urður Thoroddsen verkfræðingur á það í athygl-
isverðri ræðu að Búrfellsvirkjun er aðeins fyrsti
áfangi í heildarvirkjun Þjórsár. Til þess að nýta
vatnsafl árinnar í heild, eins og við munum gera
á næstu áratugum, þarf að gera mikil miðlunar-
mannvirki og dýr, en sá kostnaður sem af þeim
leiðir mun að sjálfsögðu birtast í raforkuverðinu
að lokum. Því fæst ekki rétt hugmynd um raun-
verulegt kostnaðarverð á raforku frá Þjórsá nema
gerð sé heildaráætlun um hagnýtingu alls vatna-
sviðsins og þannig fundið meðalverð rafmagns frá
Þjórsárvirkjunum. En engin slík áætlun hefur
verið gerð.
Tr\
J staðinn er valin sú virkjun sem 'fyrirsjáanlega
verður ódýrust og lagt til að erlent auðfyrir-
íæ.ki fái að hagnýta raforkuna frá henni fyrir verð,
sem margir sérfræðingar telja að verða muni und-
ir kostnaðarverði á þeim eina virkjunarstað. En
jafnvel þótt kostnaðarverð næðist þar, verður
hinu ekki mótmælt að næstu virkjanir verða mun
dýrariymg að auðhringurinn fær allavegana raf-
orku langt undir meðalkostnaðarverði. Fái auð-
hringurinn meirihluta orkunnar frá Búrfells-
virkjun verður þeim framkvæmdum varla fyrr
lokið en íslendingar verða að ráðast í nýjar virkj-
anir í sína þágu. Þá blasir það ástand við að lands-
menn sjálfir verða að búa við dýrari raforku vegna
þess að e'rlendur auðhringur fékk að velja handa
sjálfum sér þá virkjun sem hagkvæmust er 'talin
í landinu. Þannig eru viðskiptin við hringinn ekki
að auðvelda okkur raforkuframkvæmdirnar, held-
ur torvelda þær okkur áframhaldið þegar til
lengdar lætur; við erum að stela frá framtíðinni
til þess að erlendir auðmenn geti spunnið sér gull
úr orkulindum okkar.
Tvískinnungur
'r' ■
miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins urðu al-
úmínmenn í miklum minnihluta, og í stjórn-
málaályktun fundarins voru samþykkt svo marg-
háttuð og stórfelld skilyrði fyrir samningum við
alúmínhringinn að þau jafngiltu algerri andstöðu.
Þessi niðurstaða fundarins varð Framsóknarmönn-
um um land allt mikið ánægjuefni, því hinn átak-
anlegi tvískinnungur forustunnar í þessu máli
hafði valdið óhug. Hér í blaðinu var látin í ljós sú
von að samþykkt fundarins myndi binda fulltrúa
flokksins í stofnunum þeim sem um málið fjalla
op 4 Alþingi íslendinga.
gn skrif Tímans síðan spá ekki góðu. Umtalið um
alúmínmálið mótast af sama óhreinlyndinu og
fyrr, og nú er blaðið farið að leggja áherzlu á að
hér sé í rauninni um smámál að ræða. Það geíur
auðvitað ekki talizt til meiriháttar afbrota þótt
samþykkt miðstjórnarfundar um smámál komi
aldrei til framkvæmda. — m.
ÞIÖÐVILnNN
Fimmtudagur 8. apríl 1903
Sigurður Þórðarson
tónskáld sjötugur
Eitt af öndvegistónskáldum
íslendinga er 70 ára í dag, 8.
apríl: Sigurður Þórðarson
skrifstofustjóri Ríkisútvarps-
ins og fyrrum söngstjóri
Karlakórs Reykjavíkur. Þess-
ir tveir aðilar, sem notið
hafa starfskrafta Sigurðar
öðrum _ fremur um áratuga
skeið, Útvarpið og Karlakór-
inn, minnast sjötugsafmælis-
ins með hátíðartónleikum í
Háskólabíói í kvöld klukkan
9. Á efnisskránni verða ein-
göngu tónsmíðar eftir Sig-
urð Þórðarson, en flytjend-
ur verða Karlakór Reykja-
yíkur, Svala Nielsen, Guðrún
Á. Símonar, Guðmundur
Jónsson, Guðmundur Guð-
IIIIIIIIIIVIIIIIIiniHIIIKtllllltlllVtlUIRII
jónsson, Kristinn Hallsson,
Guðrún Kristinsdóttir, Björn
Ólafsson og Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Stjórnandi er
Páli Pampichler Pálsson.
Sigurður Þórðarson er
fæddur í Dýrafirði 8. apríl
1895. Hann hóf ungur tón-
listarnám og fór utan til
Þýzkalands, þar sem hann
stundaði nám við tónlistar-
háskólann í Leipzig. Einnig
fór hann námsferðir um
Þýzkaland, Danmörku og
Austurríki. Liðlega þrítugur
að aldri átti hann hlut að
stofnun Karlakórs Reykja-
víkur og var síðan stjórnandi
kórsins á fjórða áratug og
setti mjög svip á tónlistar-
lífið hér á landi á því tíma-
bili. Ótaldar eru þær söng-
skemmtanir kórsins, sem Sig-
urður hefur stjómað frá upp-
hafi hér á landi og á all-
mörgum' tónleikaferðum er-
lendis, í Bandaríkjunum, á
Norðurlöndum og víðar í
Evrópu.
Frá stofnun Ríkisútvarps-
ins 1930 hefur Sigurður Þórð-
arson gegnt þar störfum skrif-
stofustjóra, en tómstundirn-
ar hefur hann helgað tónlist-
inni, tímafrekri söngstjórn og
tónlistarleiðbeiningum og
tónsmíðum. Fjölmörg tón-
verka hans eru landskunn,
ekki hvað sízt sönglögin,
bæði fyrir einsöngvara og
■ ■■•■■■■■■■■■■■■i
■■■■■■■■■■■•■■!
Um verkefni og störf
Kjararannsóknarnefndar
■ í „Fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar“, sem nýlega
kom út, var í inngangi gerð grein fyrir verkefni og störf-
um nefndarinnar.
■ Þjóðviljinn hefur fengið leyfi formanns nefndarinnar
til að birta þennan kafla úr fréttabréfinu, enda er hér
um stofnun að ræða sem full þörf er á að fólk í alþýðu-
samtökunum fylgist með og stuðli að því að starf hennar
geti orðið að sem mestu gagni.
Kjararannsóknamefnd var
upphaflega ætlað það verkefni
að vinna að öflun gagna, sem
yrðu til að styðjast við í samn-
ingagerð atvinaurekenda og
launþega, er búizt var við að
hæfist 15. október 1963. Þar
sem hér var um viðamikið
brautryðjendaverkefni að ræða
og tíminn naumur, varð raun-
in sú, að verkefni nefndarinn-
ar var ekki nema að takmörk-
uðu leyti leyst innan tilsetts
tíma.
Kjararannsóknarnefnd telur,
að framhald starfa hliðstæðra
þeim, sem unnin hafa verið af
nefndinni fram að þessu, geti í
framtíðinni komið að miklu
gagni og auðveldað og greitt
fyrir gerð kjarasamninga.
Hinsvegar vill nefndin taka
það fram, að rannsóknir henn-
ar eiga ekki að leiða til dóms-
niðurstöðu eða úrskurðar
nefndarinnar um kaup og kjör,
heldur er það verkefni samn-
ingsaðilanna að draga ályktan-
ir af þeim staðreyndum, sem
aflað hefur verið, og semja á
grundvelli þeirra. En eitt af
frumskilyrðum þess, að góður
árangur náist, er að samtök at-
vinnurekenda og verkalýðs hafi
jákvæða afstöðu til þess starfs,
sem unnið er, og veiti þann
stuðning, sem þau mega.
Af þeirri reynslu, sem feng-
izt hefur, þykir ljóst, að slík
starfsemi getur því aðeins kom-
ið að verulegu gagni, að hún
sé unnin á varanlegum grund-
velli. Það er því álit nefndar-
innar, að auk þess sem bæta
þurfi nýjum upplýsingum við
þau gögn, sem hún hefur látið
frá sér fara, hljóti verkefnið á
næstunni að vera að leggja
grundvöll að framtíðarstarf-
semi hennar. Fer hér á eftir
lauslegt yfirlit- um hugmyndir
verkefna:
1. Almenn verkefni
Höfuðverkefni Kjararann-
sóknarnefndar er að vera sam-
tökum launþega og atvinnuveit-
enda til ráðuneytis f hagfræði-
iegum efnum, er máli skipta.
við gerð kjarasamninga.
I þeim tiigangi léti nefndin
samtökum, er að henni standa,
f té fréttabréf um efnahagsmál.
t.d. á 2—3 mánaða fresti. I
þessu fréttabréfi væru teknar
saman í stuttu en glöggu máli
helztu upplýsingar, er fyrir
lægju hjá öðrum hagstofnunum
um þróun verðlags, kaupgjalds,
gjaldeyris- og peningamála,
innflutning og útflutning, af-
komu ríkissjóðs, framleiðslu
o.fl. Að fenginnl reynslu myndi
komast fast form á slíkt frétta-
bréf.
Einu sinni á ári verði samin
skýrsla, þar sem nefndin gerði
grein fyrir störfum sínum, auk
þess fylgdu upplýsingar um
efnahagsþróun næstliðins árs
og um ástand og horfur í
efnahagsmálum. Næðu þessar
upplýsingar m.a. til:
a) afkomu launþega,
b) afkomu hinna ýmsu at-
vinnugreina,
c) búskapar hins opinbera og
tiltækra þjóðhagsreiknings-
stærða.
Samtök launþega og vinnu-
veitenda ættu þess kost að fá
unnar skýrslur um ákveðin
efni, þegar sérstaklega stendur
á, t.d. þegar endurskoðun'®*
kjarasamninga er £ aðsigi eða
vinnudeilur standa yfir.
2. Sérstök verkefnl
1) Vinna ber að því að gera
skrá um alla gildandi kjara-
samninga félagssamtaka og
launþega og fyrirtækja, er
samningamir ná til. Ennfrem-
ur eftir því sem tök eru á, væri
vísað til innihalds samning-
anna, gildistíma o. sv. frv. Þá
væru þessar upplýsingar að-
gengilegar eftir atvinnugreinum
og landshlutum, og ennfremur
skal reynt að skipa launaá-
kvæðum í greinagóð kerfi til
yfirlits.
2) Unnið skal að því að safna
upplýsingum um vinnumarkað-
inn, þ.e. framboð og eftirspum
vinnuafls eftir atvinnugreinum,
fjölda atvinnuleysingja eða
fjölda af lausum stöðum eftir
atvinnugreinum. Ennfremur um
flutninga vinnuafls innanlands.
3) Haft verði samstarf við
opinbera aðila um, að unnið
verði að aukinni hagskýrslu-
gerð, m.a. á eftirfarandi svið-
um:
a) Launastatistik svo sem
tíðkast í öllum nágrannalönd-
um okkar. Slík launastatistik
veiti m.a. nákvæma mynd af
því, hverjar kaupgreiðslur
raunverulega eru við hin ýmsu
störf og vinnutími.
b) Skráning fyrirtækja með
upplýsingum um verksvið,
starfsmannahald o.þ.h.
d) Ath. á afkomu atvinnu-
reksturs, skipt eftir atvinnu-
greinum. 1 því sambandi væri
æskilegt, að af opinberri hálfu
yrði komið á ákveðnum regl-
um um bókhald fyrirtækja eft-
ir eðli atvinnureksturs (kont-
óranna). Mætti með þeim hætti
auðvelda upplýsingasöfnun og
úrvinnslu. .
3. Sérstakar upplýsingar.
Þá télur nefndin æskilegt að
eiga þess kost að fá eftirfar-
andi þjóðhagslegar upplýsingar
umfram þær, sem að framan
eru taldar:
1) Upplýsingar um þjóðar-
tekjur, myndun, þeirra, notk-
un þeirra og skiptingu, þar
sem í ljós kæmi m.a., hver
væri hlutdeild launþega í
þeim.
2) Upplýsingar um þjóðar-
auðinn, skiptingu hans eft.ir
þátttöku í framleiðslu og eign-
arhaldi.
3) Upplýsingar um greiðslu-
jöfnuðinn og þróun gjaldeyr-
ismála. I því sambandi væri
æskilegt, að upplýsingar fylgdu
Sigurður Þórðarson
kór, en einnig ýmis hinna
stærri verka í kantötu- ög
messuformi og óperettan í á-
lögum, sem frumflutt var
1944. Þá hefur Sigurður og
samið verk fyrir hljómsveit
og smærri verk fyrir píanó.
!■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
um verðlagsþróun út- og inn-
flutnings.
4) Upplýsingar um fjármál
hins opinbera með tilliti til
áhrifa á þjóðartekjur og skipt-
ingu þjóðartekna milli stétta.
Hér er um mjög lauslega
upptalningu að ræða, sem
þyrfti nánari skilgreiningar
við. En auðsætt er^ að þau
rannsóknarverkefni, sem hár
hafa verið talin, eru mörg
þess eðlisv að ekki er nú að
finna neinar viðhlítandi skýr-
ingar um þau, Þarf því hvort-
tveggja að koma til, að Kjara-
rannsóknamefnd vinni sumt
skýrslna frá grunni, og að hún
þrýsti á opinberar stofnanirog
aðila að gera slíkar skýrslur
fullkomnari en þær eru nú,
þar sem sérstakra úrbóta er
þörf. Kjararannsóknamefnd
vill að síðustu leggja áherzlu
á það, að hvorki hún né aðrar
þjóðhagslega upplýsandi eða ,
ráðgefandi stofnanir geta vald-
ið verkefni sínu til nokkurrar
hlítar fyrr en:
a) verðþenslan í efnahags-
kerfinu minnkar verulega,
b) skattaframtöl einstaklinga
og fyrirtækja verða áreiðanleg
og komið í veg fyrir undan-
drátt.
4. Störf og vcrkaskipting.
Kjararannsóknarnefnd telur
það höfuðnauðsyn, að ákyeð-
inni verkaskiptingu verði korn-
ið á milli þeirra aðila, sem
upplýsinga afla um efnahags-
kerfið í heild eða sérstaka
þætti þess, svo að komið verði
í veg fyrir það erfiði og ó-
þægindi, sem af því hljótist,
þegar margir aðilar eru að
leita eftir sömu eða svipuðum
upplýsingum.
Til 1. febrúar s.l. hafði
Framhald á 9. síðu.
KÓPA VOGSBÚAR
Hinn 11. maí n.k. á bærinn okkar 10 ára afmæli.
Tökum nú höndum saman um að gera hann sem
snyrtilegastan fyrir þann tíma.
Kópavogi, 6. apríl 1965.
Heilbrigðisfulltrúi.
Heilsuhæli N. L. F. L
Hveragerði
vantar gangastúlku nú þegar.
Upplýsingar í skrifstofu 'Heilsuhælisins.