Þjóðviljinn - 08.04.1965, Page 6
6. slÐA
ÞTÖÐVILnNN
r
— Af ígangsklæðum er nú
andlitssvipurinn mikilvaegast-
ur. — (Salon Gahlin).
Kvikmynd um
Pelle Erobreren
Sænska kvikmyndafélagið
International Educational Film
héfur nú ákveðið að kvik-
mynda „Pelle Erobreren" —
skáldsögn Martin Andersen
Nexös um öreigadrenginn. —
Einnig hefur kvikmyndafélagið
ákveðifi að búa söguna til
flutnings í sjónvarp. Mestur
hluti myndarinnar verður tek-
inn á Borgundarhólmi og kostn-
aður er áætlaður um 30 milj-
ónir íslenzkra króna. — Það
er forstjóri kvikmyndafélags-
ins, Gösta E. Lundqulst, sem
frá þessu skýrir.
Tíu miljónir
áhugamanna
Sovézki ráðherrann Ivan
Tsvetkof skýrði svo frá á
fundi með fréttamönnum ný-
lega, að tala þeirra manna,
sem nú hafi leiklist, tónlist,
söng og dáns sem frístunda-
iðju sína, sé tíu miljónir éða
þar um bil. Þessi fjöldi skiptist
á meir en hálfa miljón hljóm-
sveitir og leikfélög áhuga-
manna.
Stefnir England nú hröðum
skrefum „inn í Evrópu"
Ensk blöð eru full af bjartsýni eftir viðræður
Wilsons og de Gaulie í París fyrir skömmu
Er England nú meir en
nokkru sinni áður á leið inn í
sterka evrópska samvinnu? —
Hið þekkta enska blað „The
Guardian“ telur, að fundur
þeirra Harold Wilsons og de
Gaulle um helgina hafi leitt
til þess, að nýtt átak verði gert
til þess að hindra það, að Vest-
ur-Evrópa skiptist í tvær fjand-
samlegar efnahagsheildir, Við-
ræður þeirra leiðtoga geti einn-
ig haft það í för með sér, að
heimsverzlunin verði gerð ó-
háðari dollaranum.
<•
Engar ákvarðanir
Engar endanlegar ákvarðanir
voru teknar í París, en Eng-
lendingar eru ánægðir með and-
rúmsloftið sem ríkt hefur og
telja það lofa góðu um allar
þær viðræður, sem nú þurfi að
fara fram milli Englands og
Frakklandj um þessi mál. „The
Guardian" álítur, að þær samn-
ingaviðræður sem nú hafi verið
upp teknar marki þáttaskil og
hafj skapað samvinnu, sem ó-
hugsandi hafi verið fyrir tveim
árum. Það sé ekki fjarbi lagi
nú að hugsa sér að Efnahags-
bandalagið og EFTA rennisam-
an þannig að EEC hverfi ?em
heild inn í EFTA.
Rökrétt takmark
Enska blaðið „The Sun“ seg-
ir í þessu sambandi, að efna-
hagslegur raunveruleiki dragi
Englendinga að Evrópu. E.t.v.
óski hvorki Wilson né de
Gaulle að England gerist með-
limur í Efnahagsbandalaginu á
þessu 5'tig'i málsins, en slíkt sé
þó hið rökrétta takmark eftir
viðræðumar í París. Er Eng-
land og Frakkland taki upp
samvinnu og iðnaður þessara
landa tengist traustari böndum,
neyðist þessi tvö lönd til þess
að draga af því réttar ályktan-
ir.
Meginreglan
„The Times“ telur, að ef Wil-
son hefði stungið upp á því,
að England gengi í Efnahags-
bandalagið, hefði hann mætt
múrvegg af andspymu. — De
Gaulle virðist vinna eftir einni
ákveðinni meginreglu: „Svo
lengi sem Englendingar krefjist
ekkí inngöngu í bandalagið sé
hann reiðubúinn til þess að
vera góður nágranni og taka
upp nokkra samvinnu — en
heldur ekki lengur Elaðið seg-
ir ennfremur, að Englendingar
muni að sjálfsögðu taka því
fegins hendi að fá sáttasemj-
arahlutverk milli Bandaríkj-
anna og Frakklands, en slíkt sé
miklum erfiðleikum bundið nú.
Englendingar hafi aðra forystu-
mynt heims og séu háðir fjár-
hagslegu samstarfi við Banda-
ríkin. Jafnframt því þurfi samt
Englendingar að lifa í friði við
Evrópu. Það sé gott og blessað
að auka samvinnu milli land-
anna um efnahagsmál og tækni-
atriði, en sú samvinna muni
í reynd reynast árangurslaus,
ef ekki verði iækkaðir toll-
múramir milli Efnahagsbanda-
lagsins og annarra landa Evr-
ópu.
Meltingartrufíanir Lúthers
ein orsök siðaskiptanna?
Hver var hann eiginlega og hvernig, þessi Marteinn Lúther?
Klæmnasti höfundur heimsbókmenntanna segir organistinn í At-
ómstöð Laxness og ætíð hefnr hann orðið mönnum deiluefni.
Enska leikritaskáldið John Osborne reit fyrir nokkrum árum
um hann leikrit sem þykir hið athyglisverðasta, enda þótt ýms-
ir hafi viljað túlka það á þá leið, a5 meltingartruflanir Lúthers
,FRÁ SKÖPUN HEIMSINS’
Engillinn spyr guð almáttugan:
— Hversvegna vorum við annars að skapa allt þetta?
— Ef einhver spyr þig skaltu bara segja að þú vitir ekkert um
þá hluti. — (Teikning eftir franska teiknarann Jean Effei í mynda-
seriunnj „Frá sköpun heimsins”).
hafi framar öðru orsakað siðaskiptin; enn aðrir segja að leikrita-
skáldið geri úr siðaskiptamanninum „rei2an ungan munk“. —
Hvernig sem þvi er farið, þykir leikritið verðugt viðfangsefni
beztu leikurum og leikstjórum, Það hefur nú verið sett á svið í
París á Palais de Cbailiot, á myndinni hér að ofan sjáum við
leikstjórann Georges Wilson í hlutverki Hans Lúthers og Pierre
Vaneck sem leikur soninn Martein.
Johnson er stór-
mennskubrjála&ur
—segir Ku Klux Klan
Æðsti leiStogi Ku Klux Klan,
hinn „keisaralegi töframaður“
Robert Shelton, mun aldrei við-
urkenna eða beygja sig fyrjr
•tórmennskubrjáluðum ákvörð-
unum Johnsons forseta. Þessari
vfirlýsingu var slöngvað fram
i fundi, sem leyniíélagið hélt
im helgina og er það annar
fundurinn sem Ku Klux Klan
hefur haldlð á fáum dögum.
Samtök vor munu aldrei láta
alríkisvaldið kúga sifi. sagði
Shelton, sem einnig hélt því
fram, að Lyndon B. Johnson
hafi nú komið sér fyrir í Hvíta
húsinu í Washington sem stór-
mennskubrjálaður maður er
telji sig standa ofar guði oig
þykist einn vera fær um að
vera dómari. kviðdómur og á-
kærandi.' <
— Við höfum ekki í hyggju
að viðurkenna vald hans til
slíkra hluta og við munum
heldur ekki hlýðnast forsetan-
um er hann segir, að við verð-
um að viðurkenna það sem ó-
umflýjanlegt sé, sagðj Shelton.
Haldi hann áfram þeirri stefnu,
sem hann hefur fylgt hingað
til, mun forsetinn verða einn
bezti aðilinn, sem nokkru sinni
hefur unnig að því að afla
félágsskap okkar fylgismanna,
sagði „hinn keisaralegi töfra-
maður“ enn fremur.
Fimmtudagur ð. apríl 1955
— Það á að ræða heimabruggið í þinginu, þeir segja að bað
sé orðið þjóðfélagsvandamál.
— Hvernig á annað að vera, það er ekki leiðarvísi að fá í
neinni bókabúð þó að gnll sé í boði!
(Teiknarinn Hammarlund í ,,Dagbladet“.)
2 miljónir lítra
af heimabruggi
Frændur vorir Norðmenn eru
sem kunnugt er miklir íþrótta-
menn og hafa helztu íþrótta-
greinar þeirra auk skíðagöngu
lengj verið taldar málstreita og
trúmálaþras. En ef dæma skal
eftir frétt í „Dagbladet“ í Ósló
hefur nú hin þriðja bætzt við,
nefnilegs heimatorugg. „Dag-
bladet“ vitnar í vísindaskýrslu
sem nýlega hafi verið út gefin
og sýni, að Norðmenn drekki
að minnsta kosti tvær miljónir.
lítra af heimabruggi árlega.
Svo almenn er „íþróttin“ að
allar stéttir þjóðfélagsins stunda
hana jafnt, segir í sama blaði.
Af einstökum Norðmönnum eru
það Þrændur og Heiðmerkur-
búar sem mest brugga. Það
fylgir fréttinni, að hvorki
meira né minna en 11% —
ellefu prósent — af áfengis-
magni Norðmanna sé heima-
tilbúið. Þess er jafnframt getið,
að mest sé um heimabrugg í
sveitum landsins og komi það
heim við það sem annars sé
vitað: Þeim mun lengri vega-
lengd sem fólk búi frá vín-
sölustað, þeim mun meira sé
bruggað enda gerj fólk það
fremur í spamaðarskyni en á-
góða.
Var lögð í
rangg gröf
Dame Edith Sitwell, enska
skáldkonan fræga sem andaðist
9. des. sl., var lögð í ranga
gröf. Það var bróðir hennar
sem eftir þessu tók nokkrum
dögum síðar og kistan verður
nú grafin upp og flutt á réttan
stað. — Kirkjugarðsvörðurinn
heldur því hinsvegar fram, að
hann hafi fylgt fyrirskipunum
frá ættinni og þá hafi enginn
haft neitt við greftrunarstað-
inn að athuga.
Gaullisti kosinn
borgarstjóri í
París nýlega
Áhangendur de Gaulle
Frakklandsforseta unnu nýlega
nokkurn sigur er fylgismaður
þeirra var kjörinn forseti
borgarstjórnarinnar í París en
hann er hálfopinber borgar-
stjóri. Gaullistinn Albert Cha-
canac var kosinn með 48 at-
kvæðum gegn 38 og voru það
fulltrúar miðflokkanna sem
tryggðu honum sigurinn. Þeir
neituóu tilboði vinstri flokk-
anna um samstarf gegn Gaull-
istum. Sósíalistinn Pierre Gir-
aud hlaut mestan stuðning
sinn frá kommúnistum eða 24
átkvæði. Alls fóru fram þrjár
atkvæðagreiðslur og hlaut Gir-
aud 38 atkvæði í þeim öllum.