Þjóðviljinn - 29.05.1965, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 29.05.1965, Blaðsíða 4
4 SlÐA Otgcfandi: Sameiningarflokkur alþýdu —■ Sósíalistaflokk- urinn. — Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson, Sigurdur Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason. Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja, Skólavörðust 19. Sími 17-500 (5 linur). Askriftarverð kr. 90.00 á mánuði. Undarlegt JJndarlegt er að nafnlausar ritstjórnargreinar blaða skuli enn vera opinn vettvangur fyrir menn sem eftir málflutningi þeirra að dæma eru naumast með öllum mjalla. Þannig flutti ríkisút- varpið þann boðskap eftir Vísi að morgni upp- stigningardags, að einn af stjórnmálaandstæðing- uni blaðsins ætti þá ósk heitasta að „uppræta heil- ar þjóðir“. Þetta hrökk þó engan veginn til, því sagt var að hann vildi einnig taka hina upprætfu og „hengja“ þá og „skjóta“ eða „murka úr þeim lífið í þrælabúðum“, og þegar þannig væri búið að margtortíma fólki þessu, átti loksins að gera það að „hugsunarlausum vélmennum“. Gagnvart slík- um ósköpum hrökkva siðareglur Blaðamannafé- lags íslands auðvitað skammt; er ekki síarfandi Geðverndarfélag í landinu? Tilboði hafnað gkki eru nema örfáir dagar þar til samningar flestra verklýðsfélaga falla úr gildi, og nú eru hafin þessi linnulausu fundarhöld sem virðast hafa þann tilgang að gera þanþol tauganna að úrslita- atriði í væntanlegri samningsgerð. Engin ástæða var þó til þess að láta samningana komast í ein- daga. Þegar í marzmánuði tóku verklýðsfélögin að undirbúa samningana af sinni hálfu, og þau gerðu stjómarvöldunum mjög skýr boð. Ráðstefna sú sem Alþýðusamband íslands gekkst fyrir taldi, auk kauphækkana og styttrar vinnuviku, upp ýmsar félagslegar ráðstafanir í skaítamálum, hús- næðismálum, orlofsmálum og verðlagsmálum og hét því að meta umbætur á þeim sviðum til jafns við kauphækkanir. Þegar þessi boð voru gerð sat alþingi enn að störfum og átti raunar ekki ýkja annaríkt. Ríkisstjóminni var því í lófa lagið að taka verklýðsfélögin á orðinu og láta samþykkja lög um félagslegar umbætur á öllum þessum svið- um til þess að greiða fyrir samningum um kaup- gjaldið sjálft. Jgn ríkisstjórnin hafnaði þessu boði. Hún léf tím- ann líða og sendi að lokum alþingi heim án þess að ganga nokkuð til móts við hugmyndir verklýðsfélaganna. Þannig hefur ríkisstjórnin sjálf lýst yfir því í verki að launafólk hljóti að rétta hlut sinn með beinum kauphækkunum, auk hinn- ar sjálfsögðu styttingar á vínnutíma. Qg raunar hafa atvinnurekendur gert slíkt hið sama með um- framgreiðslum sínum sem stöðugí eru að aukast og eru víða langí umfram þær kröfur sem venju- legast hafa verið gerðar í samningum. jjannig má þrátt fyrir allt segja að aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar hafi gert viðfangsefnið ein- faldara en þegar reynt er að tengja kiarasamn- ingana lausn á almennum þjóðfélagsvandamálum. Og 1 umræðum um kaunöíqldjð hlióta laun þau sem nJrr ,rfíT-inii+ örpíðq uú Vipopt' í raun ° fnfpcndorr nq hqð eitt álita mál og ^eiluefni hversu miklu nú þurfi að bæta við. — m. HÖÐVILTINN Laugardagur 29. maí 1965 Nýtízkuleg gistihús og sólríkar baðstrendur. Atvinnulíf í örri þróun í Búlgaríu ★ Eins og kunnugt er af fréttum afhenti fyrsti ambassa- dor Búlgaríu á Islandi, Laliou Gantchev, forseta Islands trúnaðarbréf sitt við hátíðlega athöfn að Bessastöðum sl. laugardag. ★ Ambassadorinn hélt á dögunum fund meg fréttamönnum og skýrði þeim frá ýmsu í sambandi við land sitt og þjóð. Einkum lagði hann ríka áherzlu á þá öru þróun sem orðið hefði í landinu frá því það losnaði undan oki fasismans f stríðslok og valdi sér sósíalisma til að koma á hjá sér velferðarþjóðfélagi. Atvinnuvegir standa þar nú í miklum blóma, og hefur land- búnaðurinn, sem er aðalat- vinnuvegurinn sérstaklega tekið miklum framförum. Iðnaður hef- ur aukizt mjög og þá helzt á sviði stáliðnaðar. Einnig hefur matvælaiðnaður og vín og tó- baksframleiðsla aukizt mikið. A sviði menningar og heilbrigð- isfnála háfa einnig orðið miklar framfarir. Allir nemendur í framhaldsskólum hljóta náms- laun, og er 6. hver maður í land- inu nú við nám. öll læknaþjón- usta er þar ókeypis. Sagði ambassadorinn að mikil samstaða væri hjá þjóðinni, enda hefði þessi öra þróun að öðrum kosti verið ómöguleg. Þar i landi eru tveir stjórnmála- flokkar, kommúnistaflokkur og bændaflokkur. Mynda þeir saman ríkisstjóm og er forsæt- isráðherrann úr kommúnista- flokknum, en forsetinn úr bændaflokknum, og sagði am- bassadorinn að samvinna með flokkunum væri með ágætum. Sjálfur kvaðst hann vera bænda- flokksmaður. Þá ræddi ambassadorinn sam- band íslands og Búlgaríu. Hann hefur átt viðræður við ýmsa forystumenn þjóðarinnar meðan hann hefur dvalið hér á landi og lét vel yfir kynnum sínum af þeim. Búlgaría hefur boðið landbúnaðarráðherra Ingólfi Jónssyni í heimsókn til að kynna sér landbúnað Búlgaríu, svo og hefur hún boðið Islendingum að senda fulltrúa á mikla iðn- sýningu, sem haldin verður þar í landi næsta haust. Ambassador- inn kvaðst vona. að komið yrði á viðskiptasambandi milli þjóð- anna og myndu báðar þjóðirnar án efa hafa gagn af því. Ennfr. skýrði ambassadorinn frá því, að land hans gerði nú mikið til að laða að ferðamenn, og hefði í því skyni verið reist glæsileg hótle og fleiri væru í smíðum við Svartahafsströndina. Ættu þeir von á 1 miljón ferða- manna þangað í sumar og væru flestir þeirra frá Austur- og Vestur-Þýzkalandi, en þar væru einnig í hópnum ferðamenn frá öllum Norðurlöndum, nema Is- landi en hann kvaðst vona, að úr því myndi rætast sem fyrst. Að lokum kvaðst ambassa- dorinn vona að vináttutengsl Búlgaríu og Islands yrðu traust og varanleg um alla framtíð. ífnt til námskeiis fyrír enskukennara Frá fræðslumálaskrifstofunni hefur borizt eftirfarandi frétt um námskeið fyrir enskukenn- ara: Akveðið hefur verið að halda námskeið í Kennaraskóla ts- lands fyrir enskukennara í framhaldsskólum dagana 8.— 22. september næstkomandi. Til námskeiðsins er stofnað að tilhlutan Upplýsingaþjón- ustu' Bandaríkjanna og í sam- ráði við fræðslumálastjóm. Tilhögun námskeiðsins verð- ur svipuð og námskeiða þeirra fyrir enskukennara, sem haldin hafa verið að tilhlutan Thr British Council og fræðslumála •^tiómar á undanförnum árm Af einstökum þáttum aám- skeiðsins má nefna málvísmdi (linguistics) kennsluaðferðir og kennslutækni, svo og formgerð málsins. A námskeiðinu verða fluttir fyrirlestrar, hafðar verða sér- stakar æfingar í notkun kennslutækja við tungumála- kennslu, sýndar verða kvik- myndir og notuð segulbönd. Þátttakendum verður skipt í starfshópa. Eft>r föngum verður reynt að kynna nýtízku heymar- og talaðferðir. Umræður verða um leiðir til að aðhæfa slíkar að- ferðir kennsluefni i tungumál- um í íslenzkum skólum. A- herzla verður lögð á hagnýt’ viðfangsefni og æfingu í not- lrlm ensks máis. Tveir þekktir bandarískír ^álvísindamenn mumi kenna í námrkeiðinu Fulltr. fræðslu- málastjómar verður Heimir Askelsson. dosent í ensku við Háskóla íslands. Tónleikar Pólýfónkórsins í Skálholti á morgun BSskupinn yfir íslandi herra fyrir næstu áramót svo að á- Sigurbjöm Einarsson boðaði framhaldandi útgáfa blaðsins blaðamenn á sinn fund nýlega væri tryggð. Ekki er að efa að til þess að skýra þeim frá vænt- margir taka undir þessa frómu anlegum hljómleikum Pólýfón- ósk biskupsins og mundu fylgja fordæmi hans ef hann sýndi þennan vilja sinn í verki. kórsins f Skálholtskurkju a morgun. Hljómleikamir hefjast klukk- an 5 og er efnisskrá þeirra hin sama og var á vortónleikum kórsins í Kristskirkju í apríl sl. Fluttar verða tvær sexradda mótettur frá 16. og 17. öld eftir William Byrd og Heinrich Schutz og Stabat mater eftir Palestrina. Þá verða og flutt tvö samtíma- verk, annað, Agnus Dei eftir Þorkel Sigurbjömsson og hitt Messa eftir austurrríska tón- skáldið Jóhann Nepomuk David. Aðgangur að tónleikunum er ó- keypis, en að tónleikunum lokn- um gefst áheyrendum gott tæki- færi til að láta hrifningu sína í ljósi með því að láta eitthvað af hendi rakna til Skálholts- söfnunarinnar. Biskupinn yfir Islandi lét þess jafnframt getið við fréttamenn að alls hefðu safnazt 1 miljón 125 þúsund krónur til bókasanfs- kaupanna og væri þegar búið að greiða 2 afborganir af safn- inu eða alls 1 miljón. Vasri þá eftir að greiða 2,5 milj. og kvaðst hann þess fullviss að vandræða- laust yrði að safna því fé. Að lokum fannst biskupnum yfir Islandi ástæða til að láta þess sérstaklega getið að hann von- aðist til að Þjóðviljanum mætti takast að afla 3ja miljón króna Slórgjöf til Hringsins og Styrktarfél. Hinn 21. apríl s.l. andaðist frú Signrbjörg Pálsdóttir, Óð- insgötu 30, hér í borg, ekkja Eggerts Jónssonar kaupmanns, d. 17. júní 1959 Þeim hjónum varð ekki bama auðið. í erfðaskrá mælti frú Sigurbjörg svo fyrir, að allar eignir búsins skyldu skiptast jafnt milli Bamaspft- alasjóðs Hringsins og Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra. Mun sú ráðstöfun hafa veríð gerð í samráði við Eggert. Hér er um að ræða stórgjöf, varla undir hálfri annarrí miljón króna að verðmæti, til nefndra Hknarstofnana. Þakka fyrirsvarsmenn þeirra gjöflna af alhug. öllum þeim, sem þekktu til þeirra hjóna, Sigurbjargar og Eggerts finnst þessi ráðstöfun lýsa þeim veL Samband vestfirzkra kirkju- kóra héit söngmót á ísafírði ISAFIRÐI 24/5 — S.L laug- ardag var haldið hér á Isa- firði söngmót Sambands vest- -------- —.........- -< Óeirðir í Kolumbíu BOGOTA 26/5 — Síðan miklar kröfugöngur voru farnar í höf- uðborg Kólumbíu á mánudag, hafa um 580 manns verið hand- teknir. 1 gær voru stríðsvagnar á götum og varð því ekki af kröfugöngu stúdenta sem á- formuð var. Frá Borgar- ráði ★ Á fundi sínum fyrra föstudag heimilaði borg- arráð Eeykjavíkur fram- kvæmdir við leiksvæði við Tómasarhaga, Bugðulæk og Miðtún, Blesugróf og Gullteig. ★ A sama fundi var lagt fram bréf Styrktarfélags vangefinna um styrk til framkvæmda á lóð dag- heimilis Lyngáss og rekstrarstyrk. Var um- sókninni vfsað til sparn- aðamefndar og fræðslu- stjóra. ★ Þá var samþykkt að ráða Jónu Guðmunds- dóttur, Austurbrún 4, yfirhjúkrunarkonu við Slysavarðstofu Reykjavík- ur og samþykkt að skipa Axel Kvaran varðstjóra hjá lögreglunni frá 1. þessa mánaðar að telja. Einnig var lagt fram bréf Islenzkra ungtemplara bar sem sótt er um 20 búsund króna styrk til sð gera íþróttasvæði að Jaðri. Umsókninni var vísað til sparnaðarnefnd- ar. firzkra kirkjukóra og tóku þátt í þvl þrír kórar frá Pat- reksfirði, Þingeyri og Isafirði. Mót þetta var haldið í tilefni af 20 ára afmæli sambandsins en það var stofnað af 8 kórum fyrir forgöngu þeirra Jónasar Tómassonar á ísafirði og Sig- urðar Birkis þáverandi söng- málastjóra þjóðkirkjunnar Nú eru hins vegar 13 kórar í sam- bandinu. Þetta er þriðja söng- mótið sem sambandið gengst fyrir. Hið fyrsta var haldið á Þingeyri 1936 og annað mótið á Isafirði 1948. Kórarnir sungu basði hver í sínu lagi og sameiginlega en söngstjórar þeirra eru Baldur Sigurjónsson Þingeyri, Jón Þ. Björnsson, Patreksfirði og Ragnar H. Ragnars á Isafirði. Var söngnum vel tekið og skemmtunin fjölsótt. Kvenfé- lag ísafjarðarkirkju bauð til kaffidrykkju á. undan tónleik- unum en sóknamefndin á eft- irí A sunnudag prédikaði sókn- arpresturinn á Patreksfirði í ísafjarðarkirkju og kirkjukór- inn á Patreksfirði söng og síð- degis á sunnudag flutti sami prestur messu í Hnífsdal og kórinn söng. — H.Ö. MrNíamara MOSKVU 26/5 — í gær kaU- aði aðalmálgagn Kommúnista- flokks Sovétríkjanna, Pravda, Robert McNamara, vamarmála- ráðherra Bandaríkjanna, stríðs- glæpamann. Hann bæri ábyrgð á villimannlegum morðum á kon- um, börnum og gamalmennum er loftárásirnar á Norður-Viet- nam hefðu leitt til, og verðskuld- aði því fyllilega þennan titil. Pravda taldi það ósatt að Bandaríkin hefðu fyrir stuttu gert nokkurt hlé á árásum sín- um. Meðan það hlé hefði átt að standa hefði eldflaugaárásum á Norður-Vietnam haldið áfram.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.