Þjóðviljinn - 29.05.1965, Síða 10
Norðlenzkir bíða nú eftir
Laagardagur 29. mal 1965 — 30. árgangur
119. tölublað.
Landsliðið tapaði í gær 0:3
Jórnhausmenn í kappróðri
síldinni
■ Eftir ísavetur spá margir síldarsumri fyrir Norð-
urlandi og er þó flest á huldu í þeim efnum ennþá
en Norðlendingar lifa í voninni.
■ Þjóðviljinn hafði samband við nokkra síldar-
staði fyrir norðan í gærdag og fara hér á eftir
frásagnir fréttaritara á þessum stöðum.
Siglufjörður
Hér er þegar hægt að taka á
móti síld. ef það er ekki að
storka forlögunum, sagði frétta-
ritari Þjóðviljans á Siglufirði í
gærdag.
Síldarverksmiðjan Rauðka er
þegar tilbúin og SRP verksmiðj-
an ásamt löndunarbryggju er
reiðubúin til móttöku en löndun-
arbryggjan hjá SR 46 er í lama-
sessi þar sem verið er að rífa
niður alla tóra og skipta um
löndunarbönd og verður þó þessi
löndunarbryggja tilbúin fyrstu
dagana í júní.
Verksmiðjukostur Siglufjarð-
ar getur brætt þrjátíu þúsund
mál á sólarhring og við erum
alveg til í tuskið.
Þá verður starfrækt hér tuttugu
og ein söltunarstöð í sumar og
geta plönin saltað um 25 þúsund
tunnur á sólarhring, en síldar-
saltendur hafa sumir hverjir
ekki ráðið til sín mannskap enn-
þá og hyggjast bíða átekta.
Nú er mikið í húfi fyrir Siglu-
fjörð sem byggðarlag í sumar og
myndu margir ekki þola eitt
síldarleysisár í viðbót og hyggj-
ast flytja alfarnir næsta haust,
ef þetta sumar bregst með síld-
ina. — K. F.
Ólafsfjörður
Hér eru allir bátar önnum
kafnir við undirbúning síldar-
vertíðar og fer fyrsti þeirra á
veiðar í nótt, — Það er Skag-
firðingur, en hann er nýlega
keyptur hingað til Ólafsfjarðar
og verður skipstjóri á honum
Jón Guðjónsson sem var áður
með Stíganda og skipverjar ann-
ars allir heimamenn.
Aðrir bátar munu halda út á
miðin eftir sjómannadag, — það
eru Sæþór, Ólafur bekkur. Guð-
björg og Stígandi.
Hér verður starfrækt þúsund
mála síldarverksmiðja í sumar
og verður hún vinnsluhæf fyrstu
viku ai júní. Þá verða starfrækt
hér þrjú síldarplön, — Jökull
h.f., Stígandi s.f. og Auðbjörg
h.f.
Flökunarvélar voru settar upp
á öll þessi plön í fyrrasumar og
miðar undirbúningi vel áfram
fyrir komandi síldarvertíð.
Það stendur ekki á okkur að
taka á móti síldinni hér í Ólafs-
firði.
1 næstu viku hefja fimm bátar
ufsaveiðar yið Grimsey, en þess-
ar veiðar gáfust vel í fyrrasum-
ar.
Annars gekk netavertíðin með
afbrigðum illa í vetur og áraði
illa til sjávar; og hér er á'kaflega
gróðursnautt og þoka liggur yfir
dag eftir dag. — S. J.
Akureyri
Sex bátar stunda síldveiðar
héðan í sumar og eru f jórir bát-
anna þegar komnir austur á mið-
in. — Súlan, Sigurður Bjamason,
Snæfellið og Ólafur Magnússon
og eru allir þessir bátar búnir
að veiða síld.
Þá er Akraborgin á förum í
nótt, en Gylfi IX. er encnþá fyrir
sunnan og er í óða önn að
tygja sig til brottfarar.
Krossanesverksmiðjan bræðir 3
þúsund mál á sólarhring og er
þegar í vinnsluhæfu ástandi og
getur tekið á móti síld.
Eins mun með Hjalteyrarverk-
smiðjuna jog getur vinnsla haf’zt
þar með litlum fyrirvara, —
þannig stendur ekki á móttöku-
skilyrðum hér í Eyjafirði.
Þess má geta í lokin, að Norð-
urlandsborinn er hættur borun
hér og var síðast staðsettur í
Glerárgili og boraði þar án ár-
angurs eftir heitu vatni. — Þ.J.
Dalvík
Frömdu innbrot
í Glaumbæ
í fyrrinótt handtók lögreglan
tvo pilta er höfðu brotizt inn í
veitingahúsið Glaumbæ og stolið
þar 24 flöskur af áfengi og 5
pakkalengjum af sígarettum.
Höfðu þcir farið inn um þak-
glugga á húsinu og síðan brotið
upp tvcnnar dyr. Það var bíl-
stjóri sem varð var við ferðir
piltanna með þýfið nálægt um-
fcrðarmiðstöðinni og þótti hon-
um þeir hegða sér grunsamlega
og gerði lögreglunni aðvart.
Nú hefur verið ákveðið að skipshöfnin af „Jámhausnum“ H.V. I.,
taki þátt í kappróðrinum, sem fram fer í Reykjavíkurhöfn kl. 4
á Sjómannadaginn. Eins og kunnugt er Þá er „Jámhausinn“ eitt
mesta aflaskip, sem Þjóðleikhúsið hefur gert út í langan tima
og öll skipshöfnin á „Jámhausnum“ einvala Iið og má segja með
sanni að þar sé valinn maður í hverju rúmi, enda allir raddfagr-
ir menn. Fyrirliði „Járnhausmanna" verður a5 sjálfsögðu skip-
stjórinn sjálfur Helgi sprettur, ýRúrik Haraldsson), sá lands-
kunni aflakóngur, og undanfama daga hefur hann sézt á síð-
kvöldum niðri við höfn, þar sem hann er að aefa menn sína und-
ir kappróðurinn. Mikill hugur er í „Jámhausmönnum“ að vincna
bikarinn, sem um er keppt, og munu þeir ekki láta sinn hlut
eftir Iiggja. — Myndin er af Helga spretti, skipstjóra, ásamt unn-
ustu hans, Gullu-Maju, og sitja þau á borðstokk „Járahaussins".
Sjö Dalvíkurbátar fara á síld
og leggja upp eftir helg;na á
miðin fyrir austan, — það eru
Björgúlfur, Björgvin, Loftur
Baldvinsson, Bjarmi II., Bjarmi
I., Hannes Hafstein og Baldur.
Þá er verið að skipta um ÖH
spil í Bjarma II. og er báturinn
staddur í Reykjavík og fór skip-
stjórinn Jóhannes Jónsson, suður
Framhald á 7. síðu.
-^SJÓMANNADAGURINN er á morgun og þá verða hetjur hafsins
Ferró
opnar
# •
★ I dag opnar Guðmundur Guð-
mundsson, Ferró, málverkasýn-
ingu í Listamannaskálanum. —
Ferró hélt síðast sýningu hcr
heima fyrir 5 árum og leikur ef-
Iaust mörgum forvitni á að sjá
hvað hann hefur að bjóða nú.
Síðasta hálfan mánuð hefur stað-
ið yfir sýning á þrettán listaverk-
um eftir Ferró í Róm og verður
sú sýning opin að minnsta kosti
í hálfan mánuð ennþá. Sýningin
í Listamannaskálanum verður
opln í 2—3 vikur frá klukkan
13—22 daglega.
★ Á sýningunni í Listamanna-
skálanum eru fjölmargir mynda-
flokkar, líklega um 115 myndir.
Þama er um að ræða olíumál-
verk. svartlist, klippmyndir, krit-
arteikningar og mósaik. Á sýn-
ingunni eru einnig spjöld með
Ijósmyndum sem sýna myndir
af málverkum úr nokkrum mynd-
flokkum sem eru orðnir um 47
alls. Málverkin sem eru á sýn-
ingunni eru merkt með rauðum
púnkt.i. Eins og áður segir verð-
ur sýningin opin daglega frá kl.
13—22 næstu 2—3 viijur.
rómaðar að verðleikum og birtum við hér af því tilefni mynd
af þrem messaguttum um borð í Esju. Allir eru þeir fimmtán
ára og þetta eru fyrstu dagarnir á sjónum.
HÉRNA ERU ÞEIR a2 færa hásetunum hádegismatinn í fyrra-
dag og heita, talið frá vinstri; Atli Helgason, Sæmundur Frið-
riksson og Kjartan Ásmundsson.
ÞEIR VERÐA STADDIR hjá Vestmannaeyjum á sjómannadaginn
og færa þar Ægi fórnir sínar við upphaf sjómannsferils,—
það er ekki tekið með sitjandi sældinni stundum að vera
hetja hafsins. — (Ljósm. Þjóðv. G.M.).
Enska atvinnumannaliðið Cov-
entry City sigraði úrvalslið
landsliðsnefndar í gærkvöld með
3 mörkum gegn engu. Allmikl-
ar brcytingar urðu á úrvalslið-
inu frá því sem það var valið.
Jón Ingi Ingvarsson lék í marki
í stað Hcimis. Sigurður Einars-
son kom í stað Högna Gunn-
laugssonar, en Sigurður varð að
yfirgefa völlinn vegna meiðsla
og kom Jón Leósson þá inn á.
I framlínunni varð sú breyting
að Axel Axelsson kom í stað
Rúnars Júlíussonar.
I fyrri hálfleik var ebkert
mark skorað, en íslenzka liðið
var heppið að fá ekki á sig
a.m.k. þrjú mörk, tvívegis var
bjargað á línu og markvörður
varði vítaspyrnu. Leikurinn var
annars nokkuð jafn í fyrstu en
Bretarnir sóttu þó meir. Und-
ir lok leiksins fékk Ingvar gott
tækifæri að skora, var kominn
einn inn fyrir vömina en tókst
ekki að lyfta boltanum yfir
markmann sem kom á móti.
Fyrsta markið var skorað er
þrjár mínútur vom liðnar sf
seinni hálfleik, Guðni Jónsson
frá Akureyri „kiksaði“ illilega
og framherji Bretanna komst
innfyrir og skoraði óverjandi.
Annað markið kom á 14. mín.;
Bretprnir léku skemmtilega sam-
an og Hudson innherji skoraði
með góðu skoti. Aðeins þrem
Framhald á 7. síðu.
Hvernig börn tileinka sér
umheiminn
Idag verður opnuð í húsa-
kynnum Myndlista- og
handíðaskólans sýning á
barnateikningum. Langflest-
ar myndanna, sem em 40—
50 talsins, era til orðnar í
Mýrarhúsaskólanum og þá
undir handleiðslu Artúrs
Ólafssonar, en hann hefur ein-
mitt verið við nám í teikni-
kennaradeild skólans. Nokkr-
ar myndanna em gerðar í
bamadeild akólans.
Teikningarnar em eftir
börn á aldrinum átta til tólf
ára. En sá tími er, sagði Kurt
Zier skólastjóri í viðtali við
fréttamenn í gær, einmitt
blómaskeið barnateikninga.
Þau eru vaxin upp úr krot-
inu, em orðin fær um að
fylla út í rui’ndflöt og þekkja
samræmi milli hluta, búa til
mynd. Nú geta þau brugðið
á leik með sterk og einföld
form og litagleði. En þegar
kemur fram á gelgjuskeið
hefst hnignun og ber þar
margt til: sterk áhrif full-
orðinna, natúralistískar til-
hneigingar, aukin lesning
sem dregur úr þörf barnanna
fyrir tjáningu: nú þykjast
þau ekki lengur geta teiknað,
skammast sín fyrir allan
bamaskap.
★
yndir barnanna em flest-
ar mjög stórar — það
hefur sem sagt tekizt að yf-
irvinna þessa óþolinmæði,
sem stundum er kvartað yfir:
krakkar vilji hlaupa frá hlut-
um hálfgerðum. Hér verður
annað uppi: hverjum fer-
sentímetra er sýndur fullur
sómi. Og Artúr Ólafsson læt-
ur þess getið, að fyrr hafi
börnin ekki fulla ánægju af
því sem þau em að gera, en
þau hafi lært að ganga vel
frá öllu. Viðfangsefnin eru
margvísleg. I einum sal em
myndskreytingar við Islend-
ingasögur: Gunnar á Hlíðar-
enda spennir boga sinn í
stórskemmtilegri mynd, Hall-
gerði er gefinn kinnhestur
mjög skömlega og forljótur
haus fýkur af herðum brennu-
manns fyrir sverði Kára. Á
öðmm veggjum er Biblían
SYNING A
N
BARNA-
TEIKNINGUM
yrkingarefni: Jónas í Hvaln-
um, krossfestingin, kvöldmál-
tíðin. Á enn öðrum stað ým-
isleg stórtíðindi úr daglegu
lífi: eldsvoði, mark skorað
í knattspyrnu.
★
urt Zier minnir á það, að
myndrænir hæfileikar
þroskist fyrr hjá börnum en
tök þeirra á tungunni. Væm
sjö — átta ára böm beðin
Framhald á 7. síðu.