Þjóðviljinn - 03.06.1965, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.06.1965, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 3. júní 1965 ÞIÖ9VILIINN SIÐA. J Þjóðfrelsisherinn í Víetnant herðir enn sóknarlotu sína Mannfall í her Saigonstgórnarinnar orðið é annað þúsund síðustu viku, missti 150 menn í fyrradag SAIGON 2/6 — Þjóðfrelsishermn í Suður-yiet- nam herðir enn sóknaraðgerðir sínar í norður- hluta landsins, í nágrenni við hafnarborgina Quang Ngai, þar sem Bandaríkjamenn hafa eina af helztu flugstöðvum sínum í landinu. í Saigon er viðurkennt að stjórnarherinn hafi undanfarna viku misst 1075 menn í bardögum við þjóðfrels- isherinn og var mannfall hans mest um helgina. I dag var frá því skýrt í Sai- gon að til viðbótar við hið rmkla mannfall stjórnarhersins um helgina hefði hann misst 150 menn í gær í bardögum við þjóðfrelsisherinn. Þessir 150 voru ýmist felldir, teknir höndum eða þeirra er saknað, í meiriháttar sóknaraðgerð skæruliða og um- sátri í nágrenni við Quang Ngai, var haft eftir talsmanni banda- rísku herstjórnarinnar í Saigon. Tveir bandarískir „ráðunautar“ voctj felldir og tveir aðrir særð- ust i þessum átökum. Árásarþotur skotnar niður Samtímis var frá því skýrt að tvær bandarískar árásarþotur hefðu verið skotnar niður vfir Norður-Vietnam í gær. Fjóra’ aðrar urðu fyrir skotum. I dag réðust fjórar aðra' bandarískar flugvélar á radar stöðvar um 200 km fyrir suð austan Hanoi; enn aðrar banda- rískar flugvélar vörpuðu sprengi- um og skutu flugskeytum á önnur skotmörk í Norður-Viet- nam. Harðir bardagar enn Fréttarit.ari Reuters segir að her Saigonstjórnarinnar og Bandaríkjamenn hafi annars í dag „verið að leita‘‘ að beim hersveitum þjóðfrelsishersins sem ollu hinu mikla manntjóni 6tjómarhersins um helgina, eti þá féllu um 550 menn úr stjórn- arhemum. En jafnframt var skýrt frá þvi að bardagar hefðu enn í dae blossað upp á sömu slóðum og harðast var barizt um helgina. I Saigon er viðurkennt að stjórnarherinn hafi misst 1075 menn í bardögunum við þjóðfrels- hefðu verið skotnar niður með kúlum úr loftvamabyssum begar þær réðust á radarstöð um 120 km fyfir sunnan Hanoi. Skotið á ströndina Skotið var í dag úr fallbyssum bandaríska beitiskipsins ,,Can- berra“ á stöðvar þjóðfrelsishers- ins á strönd Suður-Vietnams, um 100 km fyrir sunnan Da Nang. Skotið var úr fallbyssum með 203 mm hlaupvídd, en svo öflug- um fallbyssum hefur bandaríski flotinn ekki beitt síðan Kóreu- stríðinu lauk fyrir tólf árum. Johnson forseti viðurkenndi á fundi með blaðamönnum í Was- hington í gær að vígstaðan í Suður-Vietnam væri sem stæði ekki Bandaríkjamönnum f vil. en kvað Bandaríkjamenn reiðubúna að senda mikið lið þangað til viðbótar því sem þar er nú. Hann kvað hina miklu sóknar- lotu þjóðfrelsishersins ekki oafa komið Bandaríkjamönnum á ó- vart. Franska fréttastofan AFP hafði eftir góðum heimildum í Saigon í dag að mannfallið i liði stjóm- arinnar þar hefði aldrei fyrr í stríðinu í Suður-Vietnam orðið jafn mikið og síðustu daga. Einnig við Pleiku Þjóðfrelsisherinn hefur einnig látið til sín taka í nágrenni bæj- arins Pleiku, sem er inni í miðju landinu. Þar var heil sveit stjómarhersins stráfelld úr laun- sátri í gær. Tveir bandariskir hermenn féllu í þeirri viður- eign. Fréttaritari AFP í Saigon hafði í dag eftir góðum heimildum þar í borg að Bandaríkjamenn hefðu misst 48 flugvélar síðan þeir hófu loftárásir sínar á Norður- Vietnam 7. febrúar s.l. Bahda- ríkjamenn hafa sjálfir ekki við- urkennt opinberlega að hafa misst svo margar flugvélar, en í Hanoi er því haldið fram að enn fleiri bandarískum árásarflugvél- um hafi verið grandað. Stjórnarskipti í Japan át af námuslysinu í fyrradag? TOKÍÓ 2/6 — Stjórn Eisaku j vegna þess að Sato í Japan á í miklum erfið- ráðuneyti hans leikum vegna slyssins sem varð í kolanámunni við Fukueka á Kjúsjúeyju í gær. 237 námu- menn fórust í þessu slysi, sem var þriðja meiriháttar slysið í japönskum námum á skömmum tíma og annað mesta námuslys- ið i landinu eftir síðari heim- styrjöldina. Ríkisstjórninni er kennt um að hafa vanrækt að sjá fyrir nægi- legum öryggisráðstöfunum i námum landsins, og samband kolanámumanna, sem í eru um 60.000 menn, hefur boðað verk- fall í öllum kolanámum lands- ins á föstudag til að fylgja á eftir kröfunum um að stjórnar- völd lapdsins láti að sér kveða til að tryggja að vanræksluslys sem það við Fukueka komi ekki fyrir aftur. Sato féllst í dag á lausnar- beiðni iðnaðarmálaráðherrans Sakurauchi sem baðst lausnar hann taldi að hefði brugðizt þeirri skyldu sinni að sjá um að fylgt væri settum reglum um ör- yggisráðstafanir í námunum, Aðrir ráðherrar hafa einnig beðizt lausnar, og kann svo að fara að námuslysið verði Sato að falli. Hann hafði hins vegar þegar fyrir slysið ákveðið að gera miklar breytingar á stjórn sinni. Fangelsi fyrir njósnir á Kúbu HAVANA 2/6 — Herréttur í Havana dæmdi í gær 30 manns í fangelsi fyrir njósnir í þágu Bandaríkjanna og gjaldeyris- brask, segir Reuter, sem bætir við að 2o hinna dæmdu a.m.k. hafi verið baptistaprestar. Dómamir voru mildari en saksóknarinn hafði krafizt. STOKKHÖLMI 1/6 — Lands- fundur sænska Hægri flokksins kaus í dag þingmanninn Yngve Holmberg nýian formann flokks- ins. Kosningin fór fram um- ræðulaust. Gösta Bohman, sem einnig á sæti á þingi, var kjör- I inn varaformaður flokksins. Gerhardsen ávarpar þjóðir Sovétríkjanna í sjónvarpi Lagði áherzlu á ágæta og síbatnandi sambúð Noregs og Sovétríkjanna, aukna verzlun og menningartengsl ^MOSKVU 2/6 — Einar Gerhardsen, forsætisráðherra Nor- egs, sagði í kvöld í erindi sem hann flutti sovétþjóðunum í sjónvarpi frá Moskvu, þar sem hann er nú í opinberri heimsókn, að sú sérstaka ábyrgð hvíldi á Sovétríkjunum og Bandaríkjunum, og reyndar einnig öðrum k’jarnorku- veldum, að þeim bæri að hafa forystu um að samið yrði um allsherjar afvopnun. Síðastliðinn mánuð, eða síðan Bandaríkjamenn settu her á land í Dóminíku til stuðnings hinni ger- spilltu herforingjaklíku sem Caamano ofursti og menn hans risu gegn, hafa verið haldnir ötai isherinn síðustu viku, en sagt er' mótmælafundir um alla rómönsku Ameríku þar scm lýst hefur verið fordæmingu á framferði að mannfall skæruliða hafi verið Bandaríkjanna. Myndin er af mótmælagöngu sem farin var fyrir nokkrum dögum í Caracas, höfuð- 810 manns. Þetta er miklu meira mannfall en orðið hefur nokkru sinni áður á jafnlöngum tíma í | stríðinu í Suður-Vietnam. Fimm flugmenn drepnjr Síðar skýrði Reuter frá því að fimm bandarískir flugmenn hefðu látið lífið þegar árásar- þotumar voru skotnar niður yfir Norður-Vietnam. Bandarískur talsmaður sagði að þoturnar borg Venezúela. Dóminíka Indónesar þjóðnýta olíufélög DJAKARTA 22/6 — Öll erlend olíufélög verða þjóðnýtt i Indó- nesíu á fullveldisdegi landsins, 17. ágúst. Indónesiska fréttastof- an Antara skýrði frá þessu í dag. Hér er um að ræða holl- enzk-brezka félagið Shell, og bandarísku félögin Stanvac og Caltex. Indónesíustjóm hefur undanfarna mánuði haft um- sjón með rekstri olíufélaganna, en þjóðnýtingin er gerð sam- kvæmt kröfu kommúnistaflokk*- lns og verkalýðshreyfingarinnar. Vopnahléð er enn étryggt, skotii á Bandaríkjamenn „Stjórnlagasinnar" Caamanos ofursta senda sveitir skæruliða úr höfuðborginni út á landsbyggðina SANTO DOMINGO 2/6 — Vopnahléð sem á að heita að sé í Dóminíku milli hersveita „stjórnlagasinna“ undir for- ystu Caamano ofursta og herforingjaklíkunnar sem Imbert Barrera h'ershöfðingi ræður fyrir er enn mjög ótryggt og hefur það hvað eftir annað verið rofið síðasta sólarhring- Bandarískir talsmenn i Santo Domingo skýrðu frá því í nótt að vopnahléð hefði verið rofið fimmtán sinnum síðasta sólar- hring og hefði hvað eftir annað verið skotið á stöðvar Bands ríkjamanna. Talsmaðurinn sag’i að Bandarfkjamenn hefðu í nokkrum tilvikum svarað skot- hriðinni á stöðvar þeirra. Ekki fylgdi það fréttinni úr hvaða herbúðum hefði verið skotið á þá, né hvert þeir hefðu beint svarskotum sínum, þótt gera megi fastlega ráð fyrir að þe?r hafi skotið á virkl „stjómlaga- sinna“. Bandaríkjamenn hafa síðan átökin hófust í Dóminíku forðast að gera herforingjaklík- unni nokkuð til migka. Fréttaritari frönsku fréttastof- unnar AFP í Santo Domingo kveðst hafa góðar heimildir fyrir því að í,stjórnlagasinnar“ Caamano ofursta hafi gert út skæruliðasveitir frá höfuðborg- inni og sé ætlunin að þær hefji aðgerðir gegn hersveitum her- foringjaklíkunnar út á lands- byggðinni. Fréttamönnum ber saman um að allur þorri lands- manna stvðji Caamano ofursta, þótt hei'f'-’ringjunum hafi £ram að þessu tekist að halda þeim í skefjum, og „stjároíagasinnar" hafi aðeins miðbik! höfuðborgar- innar á sínu valdi. Ekkert verkefni værj nærtæk- ara eða meira aðkallandi en af- vopnunarmálið. f upphafi ávarps síns minntist Gerhardsen þess að tíu ár væru liðin síðan hann kom fyrst til Sovétríkjanna og sagðj að þeir samningar sem þá hefðu verið gerðir milli Noregs og Sovét- ríkjanna um menningarsamvinnu og vöruskipti hefðu reynzt happadrjúgir. — Enda þótt ég hafi nú að- j eins verið þrjá daga í Moskvu, þykist ég mega fullyrða að þessi : heimsókn mín verði bæði gagn- leg og fróðleg. Það hefur verið sérstaklega fróðlegt að bera saman allar aðstæðux hér nú við þær minningar sem ég hef frá því ég var hér fyrir tíu árum. Þær framfarir sem hafa orðið eru deginum ljósari, sagði Gerhard ?en. — Noregur og Sovétríkin eru nágrannalönd sem aldrei hafa átt í erjum saman. í síðasta stríði voritm við bandamenn. Hetjubarátta sovétþjóðanna gegn hinum sameiginlega fjandmanni var þjóð okkar hvatning og örv- un á erfiðum dögum striðsins. Við minnumst með þakklæti þeirra sovézku hermanna sem fyrstir urðu til að leysa norska grund undan hernámsokinu, sagði norski forsætisráðherrann. f lok ávarps síns ræddi Ger- hardsen um sambúg Noregs og Sovétríkjanna i dag og taldi all- ar horfur vera á batnandi sam- búð landanna og aukinni sam- vinnu, bæði auknum viðskiptum, eins og nýgerður vöruskipta- samningur bæri vitni um, og sívaxandi menningarskiptum. — í því gambandi nefndi hann sérstaklega samvinnu landanna Um haf- n<» x’icVirannsóknir Einar Gerhardsen. Opinberri heimsókn Gerhard- sens lauk í dag, en á morgun fer hann í langt ferðalag um landið o.g mun m.a. koma til Samarkand, Tasjkent, Búkhara, Jalta og Leníngrad. Tito ræðir við Novotny í Prag PRAG 2/6 — Josip Titó, forseti Júgóslaviu, og Antonin Novotny, forscti Tékkóslóvakíu, hófu í dag viðræður sínar, í Prag, en þangað kom Tító í morgun i i 6 daga opinbera heimsókn. Frá Tékkóslóvakíu fer Tító til Aust- ur-Þýzkalands þar sem hann mun dveljast í fimm daga. Blökkumenn handteknir i Alabama SELMA 2/6 — Enn í gær voru 25 blökkumenn hand- teknir í bænum Selma í Alabama og hefur þá 150 blökkumönnum í bænum verið varpað £ fangelsi síð- ustu daga fyrir að krefjast þeirra réttinda sem stjóm- arskrá Bandaríkjanna og landslög eiga að tryggja þeim. Föngunum hefur ver- ið geíinn kostur á að verða látnir lausir gegn 200 doll- ara tryggingu, en enginn beirra hefur tekið því boði. Kröfufundir blökkumanna f Selma og öðrum bæjum ’ Alabama hafa staðið f vikutima og verður þeim haldið áfram um óákveð- inn tíma, segir AFP.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.