Þjóðviljinn - 03.06.1965, Síða 12
Maðtir drukknar
í Steingrímsfirði
Sl. mánudag drukknaði maður
frá Hólmavík, Ingrólfur Björns-
son að nafni, er bát hvolfdi und-
ir honum á Steingrímsfirði. Ing-
ólfur heitinn var hálffimmtugur
að aldri, ókvæntur og barn-
laus.
Ingólfur hafði farið til að
vitja um hrognkelsanet ásamt
tveim mönnum öðrum. Voru þeir
á þilfarsbáti en með lítinn bát
með sér. Fóru tveir þeirra, Ing-
ólfur og Jóhann Jónsson, í Iitla
bátinn til þess að draga net en
þriðji maðurinn fór á stóra
bátnum að vitja um önnur net.
Er mennimir tveir voru langt
komnir að draga netin hvolfdi
bátnum undir þeim. Voru þeir
báðir mikið búnir og Ingólfur
ósyndur. Reyndi Jóhann að
halda honum uppi en missti
hann og komst sjálfur með naum-
indum í land mjög þrekaður.
Smábarnagæzlu-
vellir opnaðir
I sumar verða starfræktir
smábamagæzluvellir á lóð Vest-
urbæjarskólans við Öldugötu og
lóð Ármanns við Sigtún (Höfða-
skólinn). Verða báðir vellirnir
opnaðir í dag og starfræktir í
þrjá mánuði.
Verða sumarleyfi síldar-
veiðisjómanna mí afmenn?
■ Sjómannafélög og verkalýðsfélög sem aðilar eru að
sjómannasamningum á Suðvesturlandi, á Snæfellsnesi og
við Eyjafjörð, hafa birt tilkynningu um að þau muni láta
óátalin tiltekin frávik frá gildandi samningum, sem á-
hafnir síldveiðiskipa komi sér saman um, til þess að stuðla
að því að síldveiðisjómenn geti tekið sér reglulegt sum-
arleyfi.
■ Var birt um þetta eftirfarandi orðsending í gær,
og er í henni skýrt frá þeim skilyrðum sem félögin setja.
ins Aftureldingar Hellissandi,
Sjómannafélags Akureyrar,
Verkalýðsfélags Dalvíkur, Mat-
sveinafélags Sjómannasambands
íslands, Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Öldunnar —
telja nauðsynlegt að sjómenn
geti notið reglulegs sumarleyfis
og til þess að stuðla að því
að svo geti orðið, lýsa stjórn-
imar hér með yfir því að gefnu
tilefni, að þær muni láta óá-
talið þótt áhafnir síldveiðiskipa
„Orðsending til sjómanna og
útgerðarmanna varðandi sumar-
leyfi síldveiðisjómanna.
Stjórnir Sjómannafélags
Reykjavíkur, Sjómannafélags
Hafnarfjarðar, Verkalýðsfélags
Grindavíkur, Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur, Verka-
lýðs- og sjómannafélags Mið-
neshrepps, Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Garðahrepps, Sjó-
manna- og vélamannadeildar
Verkalýðsfélags Akraness,
Verkalýðsfélags Stykkishólms,
V erkalýðsfélagsins Stjörnunnar
Grafarnesi, Verkalýðsfélagsins
Jö'kuls Ólafsvíkj Verkalýðsfélags-
Fjölbreyttur ferðabúnaður
Við fórum í verziunina Liverpool i gær til að Iíta á ferðaútbúnað
þann, er verzlunin hefur auglýst að hún hafi á boðstólum fyrir
hvítasunnuferðimar. — Þar voru margir góðir gripir, 2—6 manna
tjöld frá Danmörku og Belgjagerðinni, öll með föstum botni og
stálsúlum. Svefnpokar, margar gerðir og vindsængur. Þá eru og
þar til ýmis ferðaeldunartæki, svo sem gastæki er kosta frá 297
— 1100 krónur, pottar, pönnur og katlar. Margt fleira hefur verzl-
unin fyrir ferðalanga, en sjón er sögu ríkari.
KYNNIR NfJA TEGUND
AF SAUDFJÁRKLIPPUM
Hingað til Iands er væntan-
Iegur sérfræðingur í sauðfjár-
rúningum og mun hann kynna
hér nýja og fuilkomna tegund
af rafknúnum sauðfjárklippum.
Maður þessi heitir Ed Warner
og hefur hann sjálfur fundið upp
þessar klippur, sem kallaðar eru
Ew Shearmaster, og eru fram-
leiddar hjá Sunbeam-verksmiðj-
unum bandarísku.
Warner mun ferðast um hér
og sýna klippurnar og þann út-
„S]ússadeilan“
er ólevst enn
Enn stendur allt við sama í
„sjússadeilunni“. Deiluaðilar sátu
á fundi í fyrradag og einnig
ræddu báðir aðilar, hvor í sínu
lagi við stjómarvöldin um. sjúss-
mælinguna en engin niðurstaða
hefur enn fengizt í því máli. I
dag verður samningafundur en
verkfall veitingaþjónanna kem-
ur til framkvæmda á föstudag,
ef samkomulag hefur ekki náðst
fyrir þann tíma.
búnað sem hægt er að fá með
þeim, og halda námskeið um
meðferð og notkun þeirra. BVrsta
námskeiðið verður þriðjudaginn
8. júní að Ærlækjarseli, Norð-
ur Þingeyjarsýslu og hefst kl.
14.00. Miðvikudaginn 9. júní
verður námskeið að Björgum 5
Hörgárdal, Eyjafirði* og hefst
námskeiðið þar kl. 13.30. Þriðja
námskeiðið verður fimmtudag-
inn 10. júní að Vegamótum,
Miklaholtshreppi, SnæfeHsnesi
og hefst kl. 13.30 og föstudag-
inn 11. júní kl. 14 hefst nám-
skeið að Holti, Stokkseyrar-
hreppi, Árnessýslu.
Ed Warner hefur lært búfjár-
og erfðafræði við ríkisháskólann
í Oklahoma. Árið 1945 byrjaði
hann að ctarfa hjá Sunbeam
verksmiðjunum sem sérfræðing-
ur í búfénaði og rúningum. Hann
hefur unr.ið í 20 ár við rann-
sóknir og endurbætur á rún-
ingaraðferðurp og rúmngartækj-
um. Hint,að til lands kemur Ed
Warner úr kynningarferðalagi
um Kanadia, Spán, England,
Skotland og Noreg. Umboð fyrir
þessum klippvan hér á landi hef-
ur O. Johnson o" Kaaber hí.
Sjú Enlæ í Pakistan
RAWALPINDI 2/6 — Sjú Enlæ,
forsætisráðherra Kína, kom í
dag til Rawalpindi í Pakistan,
en heldur áfram þaðan á morg-
un til Afríku. Ayub Khan for-
seti tók á móti honum á flug-
vellinum.
komi sér saman um innbyrðis
og við skipstjóra og viðkomandi
útgerðarmenn að taka sumar-
leyfi til skiptis þannig, að ein-
um manni færra verði á skipi
á síldveiðum en samningar gera
ráð fyrir. en þó skipt í jafn-
marga staði meðan á sumarleyf-
um stendur og gert er ráð fyrir
með fullskipaðri áhöfn sam-
kvæmt samningum.
Reynist hins vegar nauðsyn-
legt að bæta einum manni við
umfram þá tölu skipverja sem
samningurinn gerir ráð fyrir til
þess að unnt sé að síldveiðisjó-
mennimir fái sumarleyfi, munu
stjómir félaganna láta óátalið
á sama hátt þótt svo verði gert
og þá skipt einum stað fleira
meðan sumarleyfi standa yfir en
ákveðið er í samningum, enda
greiði útgerðarmaður í báðum
tilfellum 7°/d orlofsfé svo sem
samningar segja til um.
Stjómir framangreindra fé-
laga vilja taka það fram, að
frávik þessi frá gildandi samn-
ingum eru því aðeins heimil að
um fyrirkomulag þetta sé fullt
samkomulag innan hverrar á-
hafnar síldveiðiskips og skal
samkomulagið borið undir stjórn
viðkomandi sjómannafélags og
hljóta staðfestingu hennar áður
en það er látið koma til fram-
kvæmda eða skráð á skipið“.
Sfóstangveiðimót haldið í
Kefíavík um hvítasunnuna
Næstkomandi föstudagskvöld
verður 6. alþjóða sjóstanga-
veiðimótið sett á Keflavíkurflug-
velli. Verður þetta fjölmennasta
sjóstangaveiðimót, sem haldið
hefur verið hér á landi, en þátt-
takendur eru um 80 frá fimrn
þjóðum. Akureyringar og Kefl-
víkingar senda nú í fyrsta skipli
fjölmennar sveitir til keppni.
Frá Reykjavik verða 12 sveitir,
þar af ein kvennasveit.
Veiðikeppnin hefst á laugar-
dagsmorgun 5. júní og stendur
yfir f þrjá daga. Róið verður
frá Keflavík kl. 10 á hverjum
morgni, en bátar eiga að vera
komnir aftur í höfn kl. 6 að
19 skip með
25 bús. mál
í fyrrinótt
Nítján skip fengn um 25 þús-
und mál í fyrrinótt á veiði-
svæði um 120 mílur austur frá
Eanganesi og er það nær eina
veiðisvæðið þessa stundina. Þessi
skip tóku þegar stefnuna til
hafna og Iönduðu þessari síld á
fimm f jörðum fyrir austan í gær-
dag.
Það var á Vopnafirði, Nes-
kaupstað, Reyðaftirði, Eskifirði
og Fáskrúðsfirði og fór þessi
síld eingöngu í bræðslu.
Nú ber minna á rauðátu i
þessari síld á þessn veiðisvæði
borið saman við sUdina á dög-
unum út af Dalatanga.
Eftirtalin skip fengu þennan
afla f fyrrinótt.
Sigurður Bjamason 1700 mál.
Bára 300, Þorsteinn 1600, Bjart-
ur 1700, Heimir 1300, Hannes
Hafstein llrtO, Akureyr RE 1500
Halldór Jónsson 1000, Jörundur
III 2200, Keflvíkingur 1400
Reykjaborg 1200, ögri 1000.
Barði 1400, Jón Kjartansson 1600
Ólafur Friðbertsson 1300, Guð-
rún Jónsdóttir 700, Helgi Fló-
ventsson 1000, Sæþór 1000, og
Súlan 1500 mál.
Síldarskipin halda áfram að
streyma á miðin og bætast nv
í hópinn á hverjum degi os
sögðust þeir hjá Síldarleitinn'
á Dalatanga ekki hafa tölu á
flotanum enda hófu heir vaktir
klukkan tólf á hádegi á mánu-
dag.
kvöldi. Alls verða 12 bátar í
keppninni, og eru þeir frá 15
til 40 tonn.
Mótinu lýkur á annan í hvíta-
sunnu með kveðjuhófi á Kefla-
víkurflugvélli, þar sem úrslit
verða tilkynnt og verðlaun af-
hent. Keppt veröur um mörg og
glæsileg verðlaun, m.a. Flugfé-
lagsbikarinn, Roff-styttuna, gull-
og silfurverðlaun gefin af Al-
þjóðasambandi sjóstangaveiðifé-
laga (ICSA) og bikar gefinn af
erlendum þátttakendum í fyrsta
alþjóða sjóstangaveiðimótinu,
sem haldið var á Islandi árið
1960.
Sjóstangaveiðifélag Reykjavífc-
ur hefur annazt undirbúning fyr
ir þetta fjölmenna mót í sam-
vinnu við Stangaveiðifclúbb
Keflavíkurflugvallar.
Fljótvirk fðtahreinsun
tekin hér fil sfarfa
SI. miðvikudag tók ný fata-
hreinsun til starfa hér í borg.
Nefnist hún Fljóthreinsun h.f.
og er tjl húsa að Gnoðarvogi
44. Framkvæmdastjóri er Ás-
geir H. Magnússon.
Fréttamönnum var f fyrradag
boðdð að skoða húsakynni og
vélakost fyrirtækisins, en hér
er um að ræða algjöra nýjung
í fatahreinsun hérlendis. Véla-
kostur fyrirtækisins eru sex
Norge þurrhreinsivélar sem eru
bandarískar og tekur hreinsunin
sjálf aðeins 50 mínútur. I hverja
vél má láta 4 kg af fatnaði
eða hverju því sem hreinsa á
og skilar vélin því tandurhreinu
eftir 45—50 mínútur og í flest-
um tilfellum þarf ekád að pressa
fötin á eftir. Það kostar aðeins
114.00 kr. að hreinsa 4 kg af
fatnaði í hinni nýju hreinsun;
en það er allmiklu lægra gjald
en hjá öðrum fatahreinsunum.
Notkun slíkra þurrhreinsivéla
hefur færzt mjög í vöxt erlend-
is síðari ár og eru nú um 20
slík fatahreinsunarfyrirtæki í
Kaupmannahöfn. Uppsetningu á
vélum annaðist. S. Larsen taskni-
fræðingur frá Norgeverksmiðjun-
um.
Fyrsta útsýnisflug-
ferí FÍá sunnudag
Eins og skýrt hefur verið frá
í fréttum mun Flugfélag íslands
efna til sérstakra útsýnjsflug-
ferða í sumar. Ferðir þessar
Hvítasunnuferð á Snæfellsnes
Hvítasunnuferð Æskulýðsfylkingarinnar verður
að þessu sinni farin á Snæfellsnes. Farið verð-
ur með langferðabíl frá Reykjavík á laugardag
en áætlað er að koma aftur í bæinn á mánudag,
síðdegis. — Allar upplýsingar um ferðina er að
fá á skrifstofu ÆFR í Tjamargötu 20, sem er
opin frá kl. 5 til kl. 7 síðdegis. Síminn er 17513-
Spariskfrteinin
eru nær uppseld
Hinn 13. maí siðastliðinn hófst
sala verðtryggðra spariskírteina
rík’ssjóðs 1965, samtals að fjár-
hæð 40 miljónir króna. Sala skír-
teinanna gekk mjög vel og var
sambærileg við sölu skírteina,
sem gefin voru út í nóvember
1964.
Um 20. maí voru þegar að
mestu seldar þær 40 miljónir kr.
sem boðnar höfðu verið út, og
vegna mikillar eftirspurnar á-
kvað fjármálaráðherra að seld
yrðu til viðbótar skírteini að
fjárhæð 7 miljónir króna. Þessi
viðbót er nú þegar uppseld hjá
Seðlabankanum og aðeins smá-
upphæðir munu óseldar hjá
Landsbankanum og einstaka
innlánsstofnunum öðrum.
Samkvæmt lögum nr. 23/1956
var ríkissjóði heimilað að bjóða
út innlent lán samtals 75 miljón-
ir króna. Samkvæmt ofanskráðu
hafa þegar verið notaðar 47 milj-
ónir króna af þeirri heimild.
Ennþá hefur ekki verið ákveðið
hvenær eftirstöðvamar, 28 mllj-
ónir króna, verða boðnar út, en
það verður væntanlega ekki *vrr
en með haustinu.
(Frá Seðlabankanum).
verða á sunnudagsmorgnum, far-
ið frá Reykjavík kl. 10.00 og
komið aftur um hádegí. tJm
tvær leiðir er að velja f útsýn-
isflugferðunum og mun veður
ráða hvor leiðin verður farin
hverju sinni.
Syðri leiðin liggur frá Reyfcja-
vík um Surtsey, Vestmannaeyjarj
Heklu, Landmannalaugar. rfir
Skaftáreldahraun að Amarfelli
og Hofsjökul og þaðan suðvestur
um Hvítárvatn, yfir Gullfosa og
til Reykjavíkur.
Nyrðri leiðin liggur frá
Reykjavík norðvestur yfir Snæ-
fellsjötad að Bjargtöngum og
þaðan yfir Rafnseyri. yfir tsa-
fjarðarkaupstað. Þaðan verður
flogið norður að Hombjargi og
síðan suðaustur með Ströndum
að Gjögri og yfir Hólmavífc.
Þaðan yfir Breiðafjörð og inn yf-
ir Borgarfjörð hjá BaulUj eai
baðan verður tekin stefna á
Skjaldbreið og flogið yfir Þing-
velli og til Reykjavíkur.
t sambandi við þessi væntan-
legu útsýnisflug, hefur Flugfé-
lag tslands gefið út vandaða
bæklinga með upplýsingum um
bað sem fyrir augu ber á ferðun-
um. Þessir bæklingar eru gefnir
út á fslenzku og ensku. Bjöm
Þorsteinsson sagnfræðingur hef-
ur skrifað bæklingana og verður
hann iafnframt leiðsögumaður í
ferðunum.
Fyrsta útsýnisferðin í sumar
verður sunnudaginn 6. iúní
fhvítasunnudag).
Flogið verður með Blikfaxa
hinni nýju Friendship skúfubotu
félaesins, en sú fhiwöl pr miög
ákjósanleg til slíks. vegna
stórra glugga ov þesc að
vængurinn er ofan á bol
Framhald á 9. síðu.