Þjóðviljinn - 13.08.1965, Blaðsíða 8
3 SÍÐA — ÞJÓÐVIIvJINN — Föstadagur ÍS. ágóst 1965
kastalinn
EFTIR HARRY
HERVEY
maker. tók herbergi á leigu, sem
sneri út á Rittenhouse torg og
lét ínnrita mig í málaraskóla.
Ég gat ekki einn staðið undir
herbergisleigunni og þvi varð ég
að reyna að finna einhvem sem
gæti búið með mér. Þan.nig
kynntist ég Eric Hann var í
sama málaraskólanum — og
hann var að leita sér að her-
bergi. Dag nokkurn að lokinni
kennslu, fór ég með hann neim
á Rittenhouse torg og sýndi
honum herbergið. Um leið og
hann kom inn í herbergið. brosti
hann og sagði: Þetta lízt mér á.
Þið — Gauguin. Césanne og van
Hárgreiðslan
Hárgrelðslu og snyrtistoía
Steimi og Dódó
Daugavegi 18 III hæð Clyftal
SÍMI: 24-6-16
P E R M A
HárgTeiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 SÍMI: 33-9-68
D O M U R
Hárgreiðsla við allra hæfl
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10. Vonarstrætis-
megin — Simi 14-6-62
Hárgreiðslustofa
Austurbæjar
Mana Guðmundsdóttii
Laugavegi 13 sími 14-6-58
PTuddstofan er á sama stað
Gogh! — þið hljótið líka að hafa
átt vin einhvem tíma, svo að þið
skiljið hve dásamlegt það var að
koma heim á kvöldin í herbergi
sem ekki var tómt.
1 fyrsta sinn á ævinni átti ég
nú vin!
Ég málaði af lifi og sál og
hafði vel uppúr tíbezku mótívun-
54
um mínum, sem fólk var að
byrja að kaupa.
Aðeins eitt skyggði á gleðina
yfir samvistum okkar: Eric þótti
gott að drekka en mér ekki. Ég
man einkum eftir einni nótt ....
hann kom mjög seint heim og
slagaði og hrasaði meðan hann
var að klæða sig úr. Allt í einu
tók hann eftir vanþóknunar-
augnaráði mínu. Hann brosti ..
.. tómu, afsakandi brosi. Þú
veizt vel. sagði hann, að ég vildi
óska að þú gætir drukkið. Við
erum svo góðir vinir. en það er
eitt sem við getum ekki átt,
sameiginlegt — við getum ekki
drukkið okkur fulla saman. Þá
skildi ég þetta ekki. Nú geri ég
það, Eric. en nú er það of se'nt.
Fyrirgefðu mér, Eric, að ég vildi
ekki drekka með þér. Og fyrir-
gefðu mér allt hitt. Það sem
gerðist var mér að kenna. Einu
sinni kenndi ég Altheu um. En
nú skil ég að ég var aðeins að
reyna að blekkja sjálfan mig.
Þú elskaðir Altheu og guð veit,
að það var ekkert syndsamtegt,
en ég var afbrýðisamur og vi'di
ekki missa þig.
Manstu eftir síðdeginu í bóka-
verzluninni í Camac stræti? Það
var rigning og kuldi. Ég hafði
staðið og horft útum regnvota
rúðuna og á blautt og ömurlegt
strætið, og þegar ég sneri mér
við sá ég að þú stóðst og varst
að tala við Altheu. Um leið vissi
ég að þú elskaðir hana. Það var
ekki tilgangur minn að verða ó-
notalegur við þig með því að
haga mér eins og úrillur þurs.
En eitthvað af hugarfari Jakobs
frænda hefur leynzt í mér. 1
fyrsta skipti á ævinni varð ég
eins og þeir heilögu — dóm-
harður, skinhelgur og sérgóður.
Og ég varð kærulaus og yfir-
borðslegur um verk mitt. Manstu
hvað ég hafði verið bjartsýnn og
vongóður um styrkinn? Nú stóð
mér á sama hvort ég fengi hann
eða ekki. Ég veit ekki hvers
vegna ég fór með lestini til New
York laugardaginn sem þú fórsr
í veizlu heim til Altheu. En ég
gat ekki þolað að vera einn í
herberginu — ég varð að komast
burt. Sunnudagskvöldið, þegar ég
kom heim og þú varst svo al-
sæll eftir allt það sem þú hafðir
upplifað með Altheu, hljóp
fjandinn í mig. Þú getur reitt þig
á að ég hef líka skemmt mér,
sagði ég. Ég var alla helgina í
New York með mellu. Þú leizt
undrandi á mig: Já, en þú hef-
ur sagt mér — Já, að vísu, ég
hef ekki reynt það fyrr. Og svo
lýsti ég þessari ímynduðu vem
— háralit hennar og ástríðuofSa.
Ef þú ferð nokkum tíma til New
York, sagði ég hranalega, þá skal
ég gefa þér heimilisfangið henn-
ar. Þú hélzt áfram að stara á
mig meðan þú varst að hátca
og þú steingleymdir að setja
vatnsglasið hjá rúminu þínu.
Alla næstu viku var eins og
ég væri í herbergi með ókunnug-
um manni. Á laugardagsnóttina!
kom þessi ókunnugi maður ekki j
heim og lét ekki sjá sig fyrr en
á sunnudagsnótt. Þegar hann
kom inn í herbergið, slagaði
hann. Þú ert drukkinn, Eric,
sagði ég ásakandi. Já, víst er ég
fullur, tautaði hann móðgaður,
en þó með sigursvip starandi,
sljólegum augunum. Víst er ég
bað. Ég hef búið alla helgina
hjá albeztu hóru sem til er Ég
þori að veðja að hún er betri en
glókollan þín í New York. Rvo
varð fölt andlit hans nábleikt og
hann reikaði fram í baðherbergið
og kastaði upp. Meðan ég lá í
rúminu mínu og heyrði til hans,
fylltist ég aftur hlýju og vináttu
til hans, því að ég vissi að hann
hafði sagt satt. Óþverra skepnan
þín, sagði ég við sjálfan mig-
þú hefur saurgað hreinleika Er-
ic með þessum viðbjóðslegu lyga-
sögum þínum. Andstyggðar úr-
þvætti ertu! Og ég sneri andíit-
inu til veggjar, þögull og niður-
dreginn.
Tvær vikur, þrjár vikur, fiór-
ar vikur — ég veit ekki hve
langur tíminn. var, því að þeg-
ar tvær vofur reika um her-
bergi, verður tíminn jafn óljós
og þaer sjálfar. Ég man ekkert
sérstakt fyrr en morguninn, þeg-
ar Eric kom heim náfölur og
sagði: Ég lét gera á mér Wasser-
mann-prófun um daginn. Ég
var að fá að vita útkomuna. Án
þess að segja fleira og án þess
að líta á mig, fór hann inn i
baðherbergið og lokaði á eftir
sér. Ég hélt hann ætlaði að
kasta upp. En svo heyrði ég skot-
hvell. Ég æddi þangað inn og
kom að honum þar sem hann
lá í baðkerinu — eins og f stein-
kistu.
Það var eins og ég dæi sjálfur,
þegar ég stóð þarna og starði
á vin minn. Eins og svefngengill
reikaði ég fram í anddyrið til að
hringja á lögregluna. Þar sá ég
hvítt umslag við dymar. Ósjálf-
rátt tók ég upp umslagið og reif
það upp á leiðinni f símann.
Efst á blaðinu var nafnið á sjóð-
stjórninni.
1 bréfinu stóð að mér hefði
verið veittur styrkur......
Eigen Ruric var ekki lengur
með kreppta hnefa — hann var
magnlaus, andlega sem líkam-
lega. örmagna og sárþjáður stóð
hann í myrkrinu og starði út á
hafið.
Af hverju fleygi ég ekki þess-
um þjáða og gagnslausa líka í
svartar öldumar, að ég megí
öðiast gleymsku? hugsaði hann.
Nei, Eigen Ruric, þú færð enga
lausn — ekki enn. Refsing þín
er minningin um glæp þinn.
Dauðinn væri velkominn, ef þú
vissir aðeins að þú hrapaðir ekki
niður f algert tóm, heldur hittir
vin og gætir samið frið við hann.
En um það veiztu ekki neitt. Og
4595 — Stálstrengur ei dreginn upp með kaðlinum, og með þvi
að festa honum f lykkju, geta hir.ir slösuðu fikrað sig upp, Juan
með hjálp Rudys.
Þögul horfa þau Þórður og Rudy hvort á annað. Þeim er færður
matur og drykkur, og sfðan segja Rudy og ungu hjónin frá ráða-
bruggi bræðranna.
Þeir eru glæpamenn verstu tegundar. Þeir ætluðu að ryðja systui-
inni og máginum í burtu til að komast yfir arfinn og þar með
demantana. Hneykslun Þórðar er takmarkalaus. Hann hafði eiun-
ig lesið þennan ,,samning“. Og hann mun þegar í stað kæra.
Létt rennur CEREBOS salt
SKOTTA
Vantar yður tæknilegan ráðunaut?
mm
VEIÐILEYFI I
MIKLAVATNI
í FLJÓTUM
Miklavatn er. fyrir landi Hrauna í Fljótum. Sjó-
birtingur, lax og silungur. Veitt bæði- í sjó og I
vatninu. Ágætis veiði. Verð leyfis kr. 100.00.
Gisting möguleg bæði á Siglufirði og á Hólum í
Hjaltadal. 35 km. að Hólum og 28 km á Siglu-
fjörð. Ágætis 3 daga ferð í fallegu umhverfi.
Berjaland ágætt í nágrenninu. Veiðileyfi' seld
hjá okkur. Reynið viðskiptin.
i!
LAN DSÖN^
ferðaskrifstofa
Skólavörðustíg 16, II. hæð
SÍMI 22890 BOX 465 REYKJAVÍK
lur
rlaslmo
Plast
þakrennur og
niðurfallspípur
fyrirliggjandi
PLASTMO
Ryðgar ekki
þolir seltu og sóf
þorf aldrei að móla