Þjóðviljinn - 23.10.1965, Side 1

Þjóðviljinn - 23.10.1965, Side 1
HáskólaháfiSin i dag Laugardagur 23. október [1965 — 30. árgangur tölublað. 324 nýstúdentar taka við háskólaborgarahréfum 13% sam- þykkt í gœr á Akranesi MEIRI HLUTI bæjarstjórnar Akraness staðfesti á fnndi sín- um í gærkvöld samnjnga þá um kjör bæjarstarfsmanna sem samninganefnd starfsmannafé- lagsins og bæjarráð undirrit- uðu á dögunum. en þessir nýju samningar fela í sér 13% kaup- hækkun til handa bæjarstarfs- mönnum og nokkrar tilfærslur á launaflokkum. A BÆJARSTJÓRNARFUNDIN- UM í gær urðu cinkum um- ræður um 13% kauphækkunina, og vildu íhaldsfulltrúar að þessi atriði samninganna yrðu bundin úrskurði Kjaradóms. Um flokkatilfærslurnar voru allir bæjarfulltrúarnir hinsveg- ar sammála. AKVÆÐI SAMNINGSINS um kauphækkunina var samþykkt að umræðum loknum með 6 atkvæðum gegn 2, en 1 bæjar- fulltrúi sat hjá. Þeir sem greiddu atkvæði með framan- greindu samningrsákvæðí voru fulltrúi Alþýðubandalagsins, 2 fulltrúar Framsóknar, 2 full- trúar Alþýðuflokksins og einn íhaldsfulltrúi. A móti voru tveir fulltruar íhaldsins og sá sem sat hjá við atkvæðagreiðsl- una var íhaldsmaður. Hallvcig Fróðadóttir, næst á myndinnj, og ÞorkcII máni, liggur utan á Aski, í Reykjavíkurhöfn í gær. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.) <&- ■ Háskólahátíðin verður haldin í dag, fyrsta vetrar- dag, eins og venja er, og hefst kl. 2 e.h. í Háskólabíói. Að þessu sinni hafa 324 ný- stúdentar innritazt við skól- ann og verða þeim afhent háskólaborgarabréf sín á há- tíðinni. Hátíðin hefst meið leik strengjahljómsveitar undir for- ustu Björns Ólafssonar fiðluleilc- ara og Guðm. Jónsson óperu- söngvari syngur einsöng. Þá flytur háskólarektor, prófessor Ármann Snævarr ræðu og kór háskólastúdenta syngur stúd- entalög undir stjórn Jóns Þór- arinssonar, tónskálds. Að endingu ávarpar háskóla- rektor nýstúdenta. 2 togarar BUR teknir ai meintum élðgiegum veiium n í fyrrinótt tók varðskipið Albert tvo af togurum Bæjarútgerðar Reykjavíkur, Hallveigu Fróðadóttur og Þorkel mána, að meintum ólöglegum veiðum í Faxaflóa. Hófust réttarhöld í máli togaranna síð- degis í gær. Fátt nýmæla / vetrardagskrá átvarpsins 1 fréttaauka Ríkisútvarpsins ræddi Vilhjálmur Þ. Gíslason út- varpsstjóri um vetrardagskrána sem hefst í dag og kom þar fram að hún verður með líku sniði og. undanfama vetur. Af nýju efni má nefna erinda- flokk um islandssögu sem hefst á morgun, verða það 10 erindi. Síðar í vetur verða svo fluttir erindaflokkar um landafræði og ferðir, um uppeldismál og trygg- l ingamál. Þá hefst nýr bók- menntaþáttur er Njörður Njarð- vík sér um og verður þar fjall- að um nýjar bókmenntir í frá- sögum og viðræðum. Af upplestrum má nefna að Halldór Laxness mun lesa sögu sína Paradísarheimt. Flutt verður nýtt framhaldsleikrit um Jörund hundadagakonung eftir Agnar Þórðarson og nýtt laugardags- leikrit, Mold, eftir Sigurð Ró- bertsson. Síðar verður og flutt nýtt laugardagsleikrit eftir Jök- ul Jakobsson. Erling Blöndal Bengtsson og Árni Kristjánsson munu flytja öll verk Beethovens fyrir selló og píanó og fleira markvert er á tónlistardag- skránni. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæzlunnar 'í gærdag kom Albert að togurunum í fyrrinótt að meintum ólöglegum veiðum 3—4 sjómílur innan þeirra marka sem gilda fyrir togveiðar ís- lenzkra skipa í Faxaflóa. Var það um það bil á miðjum flóan- um sem þeir voru teknir. Kom varðskipið með togarana hingað til Reykjavíkur í gærmorgun og hófust réttarhöld í málinu kl. 5 síðdegis í gær. Ársþing Glsmusam- bandsins á morgun Ársþing Glímusambands ís- lands verður háð í íþróttamið- stöðinni í Laugardal á morgun. sunnudaginn 24. október, og hefst kl. 10 árdegis. Tala nýstúdenta er 324, sem er svipað og verið hefur undan- farin ár. 1 fyrrd innrituðust 325 nýir nemendur í háskóilann. Nýstúdentar skiptast þannig á milli deilda: í guðfræði hafa innritazt 6, í læknisfræði 52, i lyfjafræði lyfsala 5, lögfræði 38, viðskiptafræði 29, verkfræði 34. og í heimspekideild alls 160, þar af 72 í BA, 26 í íslenzku fyrir erlenda stúdenta og 62 í heim- speki. Þess ber að geta, að vegna breytinga ná námi í ís- Rannsókn toll- skýlisbrunans heldur áfram Samkvæmt upplýsingum full- trúa bæjarfógetans í Hafnarfirði hefur ekkert nýtt komið fram í sambandi við rannsóknina á bruna tollskýlisins við Keflavík- urveginn nýja, en eins og kom fram í frétt blaðsins í gær um þetta mál benda allar líkur til þess að um íkveikju hafi verið að ræða. Heldur rannsókn máls- ins áfram. lenzkum fræðum, innritast þeir, sem þau hafa í hyggju að stunda, nú í BA. Þá hefur ekki verið tekið við neinum stúdentum í tannlækningar, eins og kunnugt er af fréttum. Alls stunda nú 1116 stúdentar nám við Háskóla Islands, en £ fyrra voru stúdentar 1038. Milli deilda skiptast stúdentar sem hér segir: guðfræðinám stunda 27, iæknisfræði 179, tannlækn- ingar 47, lyfjafræði 19, lögfræði 173, viðskiptafræði 132, verk- fræði 70 og í heimspékideild eru alls 469 stúdentar. Klukkunni seinkað í nótt ★ Næstu nótt, aðfaranótt ★ sunnudags, verður klukk- ★ unni seinkað um eina ★ klukkustund. Eru lesend- ★ ur Þjóðviljans hér með ★ minntir á að athuga þetta. Reykjafoss hinn nýi kemur í dag ® Ný'jasta kaupfarið í eigu íslendinga er væntanlegt hingað til Reykjavíkur síðdegis í dag. laugardag, úr sinni fyrstu úthafssiglingu. Skip þetta er ,,Reykjafoss“, nýjasta flutningaskip Eimskipa- félags íslands hf., systurskip „Skógafoss“ sem bættist í flota félagsins fyrir nokkrum mánuð- um. Skipin eru smíðuð í Ála- borg eftir sömu teikningunni. Stærðin er 3800 tonn DW eða 2614 brúttótonn og lestarrými 171 þúsund teningsfet. Ganghraði er 14 sjómílur. Skipstjóri á „Reykjafossi" hin- um nýja er Jónas Böðvarsson, fyrsti stýrimaður Ágúst Jónsson og fyrsti vélstjóri Geir Geirsson. Skipið er væntanlegt á ytri höfnina í Reykjavik kl. 2 síð- degis í dag. Það kemur hingað frá Hamborg. Nú mega ákufantar vara sig Umferðarlögreglan með radartæki H Nú mega ökufantar fara að biðja fyrir sér hér í Reykjavík og nágrenni. — allir þeir bílstjórar, sem hlýta ekki settum reglum um umferðarhraða á göt- unum. ■ Hefur umferðarlögreglan nú yfir að ráða radar til hraðamælinga í bílum og ómögulegt að gera ráð fyrir, hvar þessir radarbílar eru á ferðinni á nóttu sem degi, — hvenær og hvar radargeislinn grípur ökutæki á ólöglegum hraða. Dregur geislinn allt að einn kílómetra frá sér og verður sjálfritari tengdur tækinu, sem ritar jafnharðan niður hraða viðkomandi ökutækis. Sendir og loftnet. Þetta radartæki markar tímamót í timferðargæzlu á vegunum sagði Sigurjón Sig- urðsson, lögreglustjóri, við blaðamenn í gærdag og fengu þeir að skoða tækið 1 bíla- flota á vegum lögreglunnar inni á Miklubraut — var það þegar komið í notkun þar. Sá bílstjóri hefði mátt biðja fyr- ir sér, sem hefði ekið þar yf- ir sextíu kílómetra hraða og hefði hann fengið bæði lög- regluna og pressuna á eftir sér þá stundina — orðið skyndilega landsfrægur dag- inn eftir. Hefðu þyrpzt utan um hann æðstu menn lög- reglunnar og blaðamenn og blaðaljósmyndarar vopnaðir flössum, ásamt sérfræðingum í radartækni. Enginn bflstjóri gaf þó kost á sér sem fómar- lambi þá stundina. Sigurjón lögreglustjóri kvað aðeins eitt radartæki komið til landsins og væri von á sjálf- ritara eftir tíu daga. Tækið væri nokkuð dýrt — kostaði það 120 þúsund krónur. Rad- artækið er ákaflega meðfæri- legt og enga stvnd verið að skipta því yfir á aðrar bifreið- ar, væri komin góð rejmsla ;í þessi radartæki í umferðar- löggæzlu í Bandaríkjunum og svona tæki væru einnig notuð á Spáni og hefðu gef- izt þar vel. Eins og skiparadar Þá höfðu fréttamenn tal af Mælitækið í bifreiðinni. Gunnari Skarphéðinssyni rad- arsérfræðingi og spurðu nann um tæknilegu hliðina á þessu tæki. Hann er einn af for- stöðumönnum Flugverks h.f. —flytur það fyrirtæki radar- inn inn og mun annast við- hald og viðgerðir í framtíð- inni. Gunnar sagði meðal annars: — Þetta eru svokölluð Stephensontæki — gerð 700 c — bandarísk að uppruna. Rad- artækið vinnur f grundvallar- atriðum .eins og venjulegur skiparadar. Er það byggt upp á þrem atriðum: í fyrsta lagv loftnet með sendi, sem hægt er að staðsetja ýmist utan á bílunum eða í ákveðinni fiar- lægð frá radarbílunum, bá magnari og mælir staðsettur í bílnum og svo loks sjálf- ritari. Radartækið sendir út út- varpsbylgju á hárri tfðni og dregur geislinn allt frá 250 metrum upp í einn kflómetra frá sér og grípur geislinn bað ökutæki á veginum, sem fer hraðast og einskorðar sig ein- göngu við það ökutæki þaðan í frá í gripmáli radarins. Þannig grípur geislinn iitla fólksbíla á 250 metra færi og stóra trukka á allt að eins kílómetra færi — fer það eft- ir stærð ökutækjanna. Lítill fólksbfll getur því svínað í skjóli við stóran trukk, ef þessir. bflar eru samferða á götunni. Ekki hægt að ríf- ast nú Við skulum segja, að lög- regluþjónn sitji í bíl sínum við Miklubraut og tryllitæki komi brunandi á ólöglegum hraða eftir brautinni — þa hringir í bflnum hjá lögregl- unni um leið og geislinn grip- ur bflinn og sjálfritarinn ntar niður hinn ólöglega hraða ökumannsins. Þetta verður vafalaust sönnunargagn fyrir dómstólum og þýðir „kki lengur að standa í rifrildi v!ö lögregluþjón um hraða bílsins — þykjast hafa verið á 45 km hraða í 80 km akstri. Þegar radartækið sendir út - frá sér útvarpsbylgju og nitt- ir fyrir sér bfl í gripsmáli — breytist tíðni útvarpsbylgjunn- unnar í réttu hlutfalli við hraða ökutækisins og tekur mælirinri þá tíðni og sýnir kílómetrafjöldann á klst., er þetta nær hundrað prósent ör- ugg mæling og getur í hæsta lagi munað um eitt prósent til eða frá.v Til ákvörðunar um að rétf tíðni sé á tækinu er líka not- uð sérstaklega útmæld tón- hvísl og má raunar teija tæk- ið hámákvæmt.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.